Morgunblaðið - 13.10.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 19««
Fjölbreytt úrval
af ódýrum ítölskum, þýzkum og íslenzkum
undirkjólum.
Verzlunin DALUR,
Framnesvegi 2 — Sími 10485.
Lœknaritari
Staða læknaritara við skurðlæknisdeild Borgarspít-
alans er laus til umsóknar. Umsækjandi þarf að hafa
starfsreynslu sem læknaritari eða vera vanur vél-
ritun og hafa nokkra málakunnáttu.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri. Umsóknir,
ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur, Borgarspítalanum Foss-
vogi fyrir 20. okt. n.k.
Reykjavík, 11. 10. 1968.
Sjúkraliúsnefnd Reykjavíkur.
Bók um fæði og
gildi hennar
KOMIN er út hjá Ríkisútgáfu
námsbóka ný bók eftir hús-
mæðrakennarana Vilborgu
Björnsdóttur og Þorgerði Þor-
geirsdóttur, og ber hún heitið
Fæðan og gildi hennar.
Bók þessi, sem er ágrip af nær
ingarefnafræði, er einkum ætluð
til notkunar við matreiðslu-
kennslu í síðustu bekkjum
skyldunáms, þ.e. I. og II. bekk
gagnfræðastigs, og er efnið við
það miðað. Bókin getur þó einn-
ig komið að notum í heimahús-
um.
Síðastliðið haust kom út bók-
in Unga stúlkan og eldhússtörf-
in, eftir sömu höfunda, og er
hún ætluð til kennslu í mat-
reiðslu og hússtjórn í gagnfræða
stigsskólum. Fæðan og gildi henn
ar er viðauki við þá bók. Til
þess að bækur þessar komi að
fullum notum, er æskilegt, að
þær séu notaðar saman við
kennslu.
Hverjum þeim, sem fæst við
matargerð, er nauðsynleg nokk-
ur þekking á eðli og efnasam-
setningu fæðutegunda og þörf-
um líkamans, og er efni bókanna
valið með það í huga.
Vöruskemman Grettisgötu 2
Nýtt
Nýtt
Nýtt
Erum að rýma fyrir jólavörunni og bjóðum viðskiptavinum
okkar að þeir sem verzla fyrir kr. 1000.— fá vörur gefins fyrir
kr. 100.— eftir eigin vali.
Mikið úrval af ódýrum og góðum vörum.
Notið þetta einstæða tækifæri, sem stendur aðeins til
1. nóvember.
Leikfangadeild, smávörudeild, skódeild.
Vöruskemmun Grettisgötu 2
Klapparstígsmegin.
Eitt af verkum Magnúsar á sýr ingunni.
Síðori hluti
múlverkusýning-
or Hngnnsor
Árnnsonor
SÍÐARI hluti málverkasýningar
Magnúsar A. Árnasonar hefst í
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI 10.100
Allar
ge rdi r
Myndamóta
■Fyrir auglýsingar
Bœkur og timarit
•Litprentun
Minnkum og Stcekkum
OPÍÐ frá kl. 8-22
MYNDAMÓT hf.
simi 17152
MORGUNBlADSHÚSINU
A tvinnumálará&stefna
Sjálfstœðismanna á Norðurlandi eystra
Kjördæmisráð Sjálfstæðísflokksins á Norðurlandi eystra efnir til ráðstéfnu í Sjá'fstæðishúsinu á Akureyri
dagana 19. og 20. október næstkomandi, þar sem fjallað 'verður um atvinnumál, stöðu atvinnulifsins á Norð-
urlandi eystra og framtíðarmöguleika. Ráðstefnan hefst kl. 14 laugardaginn 19. pktóber.
Framsöguerindi flytja sérfróðir menn, og eða starfandi í atvinnulífinu. Um atvinnuþróunina, stöðu og mark-
mið, Lárus Jónsson, deildarstjóri. Um landbúnaðinn, Ámi Jónsson, tiVaunastjóri. Um sjávarútveginn og fisk-
iðnaðinn, Björn Ólafsson, framkvæmdastjóri og Kári Ágústsson, framkvæmdastjóri. Um iðnaðinn ,ívar Bald-
vinsson, hagræðingarráðunautur. Um orkuöflun og stóriðjumöguleika Knútur Otterstedt, rafveitustjóri.
Á ráðstefnunni verða almennar umræður og umræður í hópum um hverja grein fyrir sig. Munu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, þeir Jónas G. Rafnar, bankastjóri, Magnús Jónsson, fjármálaráðherra og
Bjartmar Guðmundsson bóndi taka þátt i þeim.
Stjómandi ráðstefnunnar verður Herbert Guðmundsson, ritstjóri.
Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum um stórhuga atvinnuuppbyggingu í kjördæminu. Væntanlegir þátt-
takendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig hjá stjórnandanum. Símar 113,54, 21354 sem allra fyrst.
STJÓRN KJÖRDÆMISRÁDS.
dag, Iaugardag, í sýningarsaln-
um Hliðskjálf við Laugaveg 31. Á
sýningunni eru 30 olíumálverb
og 3 höggmyndir, allt eru þetta
ný verk. Mest ber þarna á lands
lagsmyndum og eru þær víðs
vegar að af landinu, nokkrar frá
Vestmannaeyjum, úr Vatnsfirði
að ógleymdu Esjumálverki. AIl-
ar myndirnar eru til sölu og er
verð þeirra frá 4 þúsund upp í
25 þúsund krónur.
Kristján Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri sýningarsalarins,
sem sýndi blaðamönnum lista-
verkin í fjarveru Magnúsar, sem
dvelst í Frakklandi, sagði að all-
ar myndirnar fengjust með góð-
um afborgunarskilmálum og
kynni fólk vel að meta slíkt fyr-
irkomulag. Kristján lét þess og
getið, að sýningarsalurinn væri
pantaður allar götur fram ttl
1. september næsta ár. Þegar sýn
ingu Magnúsar lýkur mun Jón
Engilberts sýna þar næstur.
Sýningin er opin frá kl. 1-22
til 24. október.
Illllllllllllllllll
BÍLAR
Bifreiðakaupendur:
Enn bjóðum við notaða
Rambler Classic bíla án út-
borgunar — gegn fasteigna
veði — ef samið er strax.
Auk þess eru á söluskrá m.
a. Rambíer American árg.
1966.
•
Scout jeppi árg. 1967.
Willy’s jeppi árg. 1968, nýr.
Peugeot árg. 1964.
Chevy II árg. 1965.
Gloria árg. 1967.
Zephyr árg. 1963.
Sýningarsalir okkar, Hring
braut 121 eru opnir í dag
frá kl. 2 til 5.
Verzlið þar sem úrvalið er
mest og kjörin bezt.
Rambler-
umboðið
JÓN
LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 — 10600
lllllllllllllllllll
Fullgerðar 2$a, 3ja, og 4ra herb. íbúðir
Erum að selja íbúðir í Breiðholtshverfi, sem skilað verður til kaupenda í ágúst, næsta ár, fullfrágengnum úti og
inni, með frágenginni lóð, bílastæðum og gangbrautum. Teikningar, greiðsluskilmálar og allar nánari upplýsingar
á skrifstofunni. Beðið eftir húsnæðismálalánum. Komið og kynnið yður verklýsingar og skilmála.
FASTEIGNASALAN Hátúni 4A, símar 21870, 20998.