Morgunblaðið - 27.10.1968, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1968
- MOGULEIKAR
Framhald af bls. 11
aibitamarkaðinum, en hann er
a’llstór bæði á Norðurlöndunum,
í Þýzkaíandi og Austur Evrópu
SJÓLAX
Framleiðsla sjólax hófst í Nið
ursuðuverksmiðju S.Í.F. 1940.
Mest var framleitt af sjólaxi í
Matborg h.f. árin 1955-1960 og
var allmikið flutt út af þessari
vöru, siðan hefur framleiðsla og
útflutningur á sjólaxi verið sára
lítill enda þótt um stöðuga eftir
spurn sé að ræða. Niðursuðu-
verksmiðjan Matborg var 'lögð
niður, en ný verksmiðja gerð
sérstakíega fyrir sjólax var sett
upp hjá Júpiter og Marz h.f.,
en sú verksmiðja hefur ekki náð
fullum afköstum vegna skorts á
æfðu fólki.
Við framleiðslu á sjólaxi er
um meiri verðmætisaukningu hrá
efnisins að ræða en í nokkurri
annarri fiskiðngrein, sem stund-
uð er hér á iandi. Markaður fyr
ir sjólax er einnig fyrir hendi,
og islenzki ufsinn er það bezta
hráefni, sem hægt er að fá. Hér
hafa íslendingar því einstæða að
stöðu til að efla fiskiðnað, sem
miðar að fullvininslu.
GRASLEPPUKAVÍAR
Fyrir nokkrum árum hóf SfS.
niðurlagningu á grásíeppukaví-
ar með aðstoð Rannsóknarstofu
Fiskifélags íslands. Er þessi
framleiðsla og útflutningur enn
í fullum gangi og tvö önnur ís-
lenzk fyrirtæki hafa nú tekið að
framleiða þessa vöru til útflutn
ings. Beztu grásleppuhrognin til
kavíarframleiðslu koma frá ís-
fandi, svo að erlendir framleið-
endur eru háðir hráefninu héð-
an. Höfum við þarna mjög sterka
aðstöðu. Ættum við að geta lagt
niður öll okkar grásleppuhrogn
sjálfir og hætt við að flytja
þau út óunnin.
UMBÚÐIR
f nefndarálitinu er fjallað ít-
airlega um umbúðir og þann þátt
sem þær eiga í að gera vör-
una betur se'ljanlega. Kemur
fram að síldartunnur hafa verið
fluttar inn fyrir 66 millj. kr. að
meðaítali á ári 1961-1965 og
augljóst er því að innlenda
funnusmíði má auka til stórra
muna. Þá segir að alivel sé séð
fyrir þörfum fiskiðnaðarins á
pappírs og pappaumbúðum, en
aðeins sé ein dósaverksmiðja
starfandi og anni hún engan veg
in.n eftirspurn. Þarf innlend
dósagerð að þróast hér samfara
niðursuðuiðnaðinum, á sama hátt
og öskju- og kassagerð þróað-
ist hér með frystiiðnaðinum.
í nefndarálitinu segir að nið-
urlagning og niðursuða í glös og
vöxt, einnig hérlendis. Hér vant
ar tilfinnanlega glerverksmiðju,
sem framleiðir allskonar glerum
búðir bæði fyrir niðursuðuiðn-
aðinn og annan matvælaiðnað
og vörudreifingu. Þarf að gera
kostnaðaráætlun um slíka verk
smiðju. Verksmiðjan ætti ekki
að miðast við framleiðslu á
rúðugleri eða öðrum hinum
vandasömu greinum gleriðnaðar.
Þá fer notkun íláta úr p'lasti
stöðugt vaxandi og mun það veit
ast Islendingum auðvelt að gera
hverskonar umbúðir úr plasti,
sem flytja má inn á ýmsum
vinnslustigum.
AUKIN FJÖLBREYTNII
FRAMLEIBSLU
FISKKÖKUR
Enskar fiskkökur saman-
standa af soðnum fiski, soðnum
kartöflum, brauðmyísnu, eggj-
um, kryddi og fl. Eru þær mjög
vinsælar í Bretlandi og ýmist
seldar ferskar eða frystar. Ekk-
ert er því til fyrirstöðu að hefja
framleiðslu fiskkaka hérlendis
fyrir brezkan markað. Hráefnið
er aðailega afskonningur frá
flökum, þunnildi og fl. Hins veg
ar ber að geta þess að fiskkök-
ur eru að jafnaði tiltölulega
ódýrar þannig að verðið er ekki
hátt.
FISKMULNINGUR
(FISK FLAKES)
Fisk fiakes eru gerðar úr
þorskfiskum. Þetta er beinlaus
eða beinlítil mylsna af fiski, og
má nota til framleiðslunnar
hvers konar úrgang úr fiskin-
um, t.d. hausa, þunnildi og af-
skurð. Framileiðs'lan er mjög ein
föld og getur varan því orðið-
ódýr, ef notuð eru afkastamik-
il tæki. Fisk flakes wru eitt
sinn framteidd hérlendis og nú
standa yfir tilraunir á fiskmauki
og fiskpylsum yfir hjá Rann-
sóknarstofu fiskiðnaðarins. Er
hugsanlegt, að á þennan hátt sé
hægt að hagnýta fiskúrgang og
lítt eftirsóttar fisktegundir.
ÞORSKLIFUR
Niðursoðin þorskiifur hefur
verið á markaði í nokkur ár, og
fer eftirspurnin vaxandi. Eink-
um hefur hún verið mikið keypt
í Frakklandi. Margar fyrir-
spurnir hafa komið til íslands
um þessa vöru og er framleiðsla
hennar hafin hér í smáum stfl
og hefur hún öll verið fiutt út.
Framleiðsla á þessari vöru virð
ist eiga mikta framtíð.
Gera má einnig pöstu úr
þorsklifur og er slík framleiðsia
þegar hafin bæði í V-Þýzka-
landi og Póllandi. Á Rannsókn-
arstofnun fiskiðnaðarins hafa
verið gerðar tilraunir með fram-
leiðslu á pöstu úr þorsklifur og
þorskhrognum til samans. Er
þar um nýja vörutegund að ræða,
sem sennilega á framtíð fyrir sér.
FLATFISKFLÖK
Ein verðmætasta tegund af
frystum fiskflökum, sem hér eru
framleidd eru kolaftök, og ber
að nota þessa verkunaraðferð,
eins og framast er unnt. Um ára-
bil hefur nær allur skarkolinn
verið fluttur út héðan heilfryst-
ur. f markaðslöndunum hefur
hann síðan verið flakaður og
ýmist endurfrystur sem flök eða
farið á markaðinn ófrosinn.
Ástæðan fyrir því, að hann hef-
ir ekki verið flakaður á íslandi
eru ýmsar, m.a. skortur á hæfu
flökunarliði auk fámennis í
frystihúsunum. Með komu nýrra
flokkunarvéla hlýtur að verða á
þessu breyting og mundi það
óneitanlega skapa aukin gjald-
eyrisverðmæti.
SÍLDARHROGN OG SÍLDAR-
SVIL
Norðmenn sjóða niður mikið
af síldarsviljum, sem þeir flytja
út til Breflands. Þá kaupa Jap-
anir einnig söltuð sildarhrogn
og eru Norðmenn að athuga
möguleika á því að bjóða þeim
slíka vöru. Er sjálfsagt fyrir ís-
lendinga að athuga þetta líka.
Ýmis efnasambönd, t.d. hormón
ar, eru unnin úr síldarsviljum
og hafa íslenzk síldarsvil verið
efni til slíkrar vinnslu.
STEIKT SÍLD SÚRKRYDDUÐ
Þjóðverjar framleiða súr-
kryddaða steikta síld, og nota
þeir sjálfir mikið af þessari
vöru. Eftir steikinguna er síld-
in lögð niður í súran kryddíög
og hefur því talsvent geymslu-
þo'l. Mögulegt á að vera að fram
leiða þessa vöru hér og er þeg-
ar farið að undirbúa slíkt.
reyktur háfur
Frystur háfur er fluttur út
héðan og Mkar vel. Þjóðverjar
gera úr háfnum mjög verðmæta
vöru, sem þeir nefna sjóál. Er
fiskurinn roðdreginn og reykt-
ur. Mikið af framleiðslunni er
selt þannig sem gerviáll, en
í flökum. Þunnildin af háfnum
eru verkuð sér á svipaðan hátt
og nefnast Schil'lerlokkar, en
það er mjög eftirsótt og verð-
mæt vara. Er sjálfsagt að hefja
framleiðslu á þessum vörum hér
á íandi, því hægt mun vera að
fá hér talsvert magn af háfi.
GRÁSLEPPA í HLAUPI
Við öflun grásleppuhrogna fell
ur hér mjög mikið til af grá-
sleppu, sem ekki er hægt »8
nota. Nokkuð er að vísu hert
eða saltað, en meginhlutinm fer
til ónýtis. Tilraunir, sem gerðar
hafa verið í Rannsóknarstofu
fiskiðnaðarins, hafa sýnt, að fisk
inn af grás’leppunni má sjóða
niður í hlaupi og gera þannig
úr honum ágæta vöru. Þetta er
ný framleiðslugrein, sem þarf að
athuga betur.
KRÆKLINGUR
Af kræklingi er víða mikið
við strendur ísíands og er sjálf-
sagt að mota hann til manneldis.
Örðugt mun að flytja héðan út
ferskan krækling, en niðursoð-
inn kræklingur er útbreidd og
vinsæl vara erlendis. Ber því að
hefja þessa framleiðslu hér sem
fyrst.
Er hér talsverð reynéla fengin
í pptöku og niðursuðu á krækl-
ingi, nú síðast fyrir atbeina
Rannsóknarstofnunar fiskiðnað-
arins.
HÖRPUDISKUR
Hörpudiskur er mjög eftirsótt
ur til matar, bæði vestan hafs og
austan. Einkum eru hörpudiska-
veiðar stundaðar í miklum mæli
frá Kanada og t.d. var aflinn
þar árið 1962 62 þús. tonn,
Lítið er vitað um magn hörpu-
disks við íslandsstrendur, en þó
hafa kúfiskbátar við ísafjarðar-
djúp, komizt á góð hörpudiska-
svæði. Hörpudiskurinn er lík-
lega verðmætastur íslenzkra
skelfiskstegunda. Sýmishorn af
íslenzkum hörpudiski, sem send
hafa verið til Bandaríkjanna
hafa likað mjög vel. Á því er
vissulega þörf að kanna, hvort
tök séu á því að hefja hér hörpu
diskaveiðar.
MANNELDISMJÖL
Framleiðsla á fiskmjöli til
manneldis hefur verið reynd á
nokkrum stöðum erlendis. Hefur
einkum verið stefnt að því að
framleiða mjöl, sem væri lykt-
arlaust og bragðlítið svo að hægt
væri aö blanda því í brauð. Eft
irtektarverð er aðferð sú við
fram'leiðslu á manneldismjöli
sem Magnús Andrésson hefur tek
ið einkaleyfi á. Mjöl, sem fram-
leitt er með þessari aðferð er
látið halda sinu eðlilega fisk-
bragði og lykt og sparast við
það mikill kostnaður. —
Aðferð þessa þarf að prófa nán-
ar og senda sýnishorn af vör-
unmi á þá markaði sem 'líklegir
eru tfl að taka á móti henni.
Nýlega hófust í Rannsóknar-
stofnun fiskiðnaðarins tilraunir
með að mala skreið og pakka
henni síðan í loftdregnar plast-
umbúðir. Þessi aðferð virðist
geta haft marga kosti og er ver-
ið að byrja að sýna hana erl.
skreiða kaupendum.
HVALUR OG SELUR
Nýlega hófst hér í hvalstöð-
inni framleiðsla á kjötkrafti úr
hvalkjöti að norskri fyrirmynd
og hefur hún gengið vel. Mark-
aður fyrir þessa vöru er þó
ekki góður eins og er. Norð-
ur talsvert af hvalkjöti, en þar
menn og S-Afríkubúar sjóða nið
ur taisvert af hvalkjöti, en
mun vera um að ræða kjöt af ný-
skotnum hvölum, sem skorn-
ir eru um borð í hvalveiðiskip-
um. Niðursuða á hva'lkjöti geit-
ur vel komið hér til greina, eink
um ef flutningaleiðir hvaíbát
anna styttust og meira kæmi af
1. flokks hvalkjöti.
Not af sel eru ekki mikil hér
við land, ef borið er saman við
það ógagm sem selurinn gerir.
Hringormurinn sem sezt í hold
nokkurn hluta ævinnar í sefn-
um og getur því álls ekki án hans
verið. Þegar þess er gætt,
hversu mikilli fyrirhöfn og
kostnaði þessir ormar valda hér
við freðfiskvinnslu og hversu
oft þeir spilla gæðum fiskafurða,
þá kemur mjög til athugunar að
útrýma selnum, að minnsta kosti
í grennd við helztu fiskimið.
EFLING MARKAÐA
í nefndarálitinu segir að það
sé lán íslendinga að fiskafurð-
ir eru yfirleitt verðmætari vör-
ur, en t.d. kornvara og græn-
meti. Ber þar til að aðálnæring-
arefnin í fiski eru prótím og
ffeiri, sem eru miklu dýrari en
þriðji flokkur næringarefni, kol
vetnin. Framleiðsla fslendinga af
fiskpróteini árið 1967 var 125
þúsund tonn. Þar af fóru aðeins
32 þús. tonn til manneldis. Hinn
hlutinn, 93. þús. tonm, sem fór í
fiskmjöl, hefði nægt til þess að
fullnægja lágmarks próteinþörf
25 mi'lljóna manna í eitt ár.
Framleiðsfan er alltaf háð
markaðinum. Það væri t.d. þýð-
ingarlaust fyrir íslendinga að
vinna allan sinn þorsk í vand-
aðar pakningar af frystum flök-
um, því að það mundu ekki fást
nógu margir til þess að kaupa
svo dýra vöru. En eftir því sem
efnuðum neytendum fjölgar í
heiminum verður eftirspurnin eft
ir dýrari fiskafurðum meiri.
Milliríkjaviðskipti með fiskaf-
urðir fara i stórum dráttum eft-
ir framboði og eftirspurn, þá eru
víðast hvar settar upp vissar
hindranir til þess að beina við-
skiptu.m á ákveðnar brautir. Eru
þessar hindranir venjulega
fólgnar í innflutningstakmörkun
um, oftast í formi tofla, og verða
þannig fslendingar að greiða
töluverða tolla af flestum teg-
undum útflutts sjávarafla.
fslendingar hafa sterka sam-
keppnisaðstöðu og hafa sýnt að
þeir geta framl'eitt betri fiskaf-
urðir en aðrar þjóðir. Þeir mega
ekki slaka á kröfunum um vöru-
gæði, og verða að fylgjast með
tímanum hvað snertir fjöl-
breytni i pökkun og umbúðum.
Megin stefnan á matvæ'lamörk-
uðum V-Evrópu og N-Ameríku
er sú að létta neytendum sem
allra mest matargerðina og
Framleiðsla freðfiskflaka á Ban daríkjamarkað er veigamikill þáttur í ísienzkum fiskiðnaði.
Myndin var tekin s.I. vor eir Karl Rolvaag, sendiherra Bandaríkjanna á Islandi heimsótti fisk-
vinnsluhús í Vestmannaeyjum. (Ljósm. Mbl. Sigurgeir).