Morgunblaðið - 05.01.1969, Blaðsíða 1
24 síður og Lesbók
3. tbl. 56. árg. SUNNUDAGUR 5. JANUAR 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Von Braun
ber vitni
r réttarhöldum gegn
nazistaforingjum
Huntsville. Alabama, NTB.
ELDFL.AUGASÉRFRÆÐINGXJR-
INN Werner Von Braun, hefur
lýst sig fúsan til að bera vitni
í réttarhöldum gegn þrem fyrr- ;
verandi fangabúðastjórum naz-
ista sem ásakaðir eru um að hafa
tekið rúmleg-a 100 fanga af lífi
á árunum 1944 og ’45.
Hirnir álkærðu eru Helmut Bis-
coff, Erwin Buissta og Ernst Sand
er og 'þeiir 'voru yfir Dora fanga-
þúðuinuim í Harz fjölkwn á sitríðs-
árunum. Þet'ta sivseði er í Austur-
Þýzkalandi. Bæði verjendur oig
áfcærendur báðu Von Braiun að
bera vitni uan að fanigaimir hefðu
eyðilagt V-2 eldflaugar sem voru
iframlleidd'ar í fanigabúðuinum.
Von Braun var sjálifur handtelk-
inn af n'azistum á stríðsárunuim,
þegar hann sagði að sem vísinda-
manni þætti sér allrangt að nota
eldtfliauigar til hernaðanaðgerða.
þær ætti að nio.ta til vísindarann-
sókna til gaigns fyrir mannkynið
en ékki til að stuðla að tortím-
inigu þess.
Háttseitir vinir hams inman flug
Ihersins gátu þó tfengið hann laus-
an oig eftir stríðið gaf hann sig
fram við Bandaríkjiamenn. Hann
va'rð bandarisikur ríkisiborgari
árið 1955 oig er nú stjó.rniandi
Huntsiville deiildar Geimferða-
stofnunar Bandaríkjanna.
Rúmlega 100 millj. kr. tjón í Iðunnarbrunanum á Akureyri — Sjá frétt á baksíðu
Slökkviliðsmenn berjast við eldinn í fyrrinótt á þaki Iðunnar á Akureyri.
Ljósm.: Sv. P.
MIÐSTJORNIN VER
40%
barna látin KROFUR
Genf, 4. janúar, NTB.
UM fjörutíu af hundraði allra
bama á aldrinum 2—4 ára í
Biafra hafa nú látizt af hungri
og illri aðbúð. Hjálparstofnun
kirkjunnar, í Genf, segir að
flóitamennirair í Biafra þurfi
tifalda hjálp á við það sem þeir
njóta, eigi þeir að eiga sér lífs von.
HUSAKS
— um að Smrkovsky verði látinn víkja
úr embœtti
Prag, 4. jan. (NTB).
• LEIÐTOGAR kommúnista-
tflokks Tékkóslóvakíu tóku í dag
ákveðna afstöðu gegn baráttunni
Ráðstefna leiötoga
brezka Samveldisins
hefst í London á þriðjudag
London, 4. jan. (AP).
Á ÞRIÐJUDAG hefst í London
ráðstefna leiðtoga 28 ríkja brezka
Samveldisins, og er talið að eitt
helzta dagskrármál ráðstefnunn-
ar verði ástandið í Rhodesíu. Bú-
izt er við að ýmsir leiðtogar Afr-
íkulanda leggi hart að brezku
stjórninni að beita sér fyrir því
að ríkisstjóm Ian Smiths i Rhod-
esíu verði steypt af stóli.
Ástandið í Rhodesíu hefur mjög
spillt sambúðinni milli Samveldis
ríkjanna, og er Rhodesíudeilan
ástæðan fyrir því að engin Sam-
veldisráðstefna hefur verið haid-
in undanfarin tvö ár. Auk Rhod-
esíudeilunnar er búizt við tals-
verðum umræðum um styrjöld-
ina í Nígeríu, og búizt við að
fulltrúar Ástralíu og Kanada
skori á brezku stjóraina að hætta
vopnasölu til Nígeríustjórnar
Tvö önnur mál verða ofarlega á
baugi, takmörkun innflytjenda
til Bretlands og heimköllun
brezkra hersveita frá herstöðvum
í Austurlöndum.
Samveldiisrikjunum hefur mjög
fjölgað undantfarin ár. Samveldið
var stotfnað árið 18®9 þegar Bret-
ar óttuðust að nýlendurnar í
Kanada færu að dæmi nágrann-
Framhald á bls. 23
fyrir því að Josef Smrkovsky
verði endurkjörinn forseti ný-
kjörins þings landsins.
'• Að undanförnu hafa verið
uppi háværar kröfur um það frá
verkamönnum og stúdentum að
Smrkovsky verði ekki látinn
Víkja úr embætti. Hins vegar
'hafa slóvakískir kommúnistar
undir forustu Gustavs Huskaks
krafizt þess að næsti forseti þings
ins verði Slóvaki. Hafa þessar
deilur leitt til þess að stúdentar
hópuðust saman við Wenceslas-
styttuna í Prag í gærkvöldi og
’hófu að safna undirskriftum und
ir k’röfur um að Smrkovsky haldi
embætti sínu. Einnig hafa ýms
verkalýðsfélög lýst yfir stuðningi
'við Smrkovsky, þeirra á meðal
félag málmverkamanna, sem tel-
ur um 900 þúsund félagsmenn.
• Búizt er við að endanleg
ákvörðun um skipan í embætti
'þingforseta verði tekin á fundi
miðstjórnar kommúnistaflokks-
ins á þriðjudag.
Skýrt var frá andstöðu tékkó-
slóvakís'ku kommúnistaleiðtog-
anna við baráttuna fyrir endur-
kjöri Smrkovskys í Prag-útvarp-
inu í dag. Segja leiðtogarnir þar
að of mikil harka sé komin í mál
ið, og geti kröfurnar gengið of
langt. Gagnrýnir flokksstjórmn
framkomu blaðanna í málinu, og
segir það alrangt að ætlunin sé
að svipta Smrkovsky öllum emb-
ættum hjá ríki og flokki.
Flokksstjórnin viisar á bug full
yrðingum um að kröfur fokks-
deildarinnar í Slóvakíu um að
Slóvaki verði skipaður þingfor-
seti feli i sér vantraust á ýmsa
leiðtoga flokksins. Þá afsakar
flokkastjórnin Gustav Husak, og
segir að ráðizt hafi verið á hann
með lygum og rógi.
— „Þær athugasemdir, sem
birtar hafa verið í blöðum og
öðrum fjölmiðlunartækjum að
undanförnu, sýna ekki mikinn
stjórnmálaskilning eða þroska,“
segja leiðtogarnir. „Blöðin hafa
Framhald á bls. 23
Brúðguminn
kom í fnllhlíf
Wellington, Nýja Sjálandi,
AP.
ÞAÐ er víst óhætt að segja
að Frank Pesche hafi verið
í sjöunda himni yfir væntan-
legu brúðkaupi sínu. Nokkr-
um mínútum áður en hann
átti að mæta til kirkju steig
hann upp i litla flugvél ásamt
kunningja sínum og þeir fóru
1 upp í 7000 feta hæð. Þar
spenntu þeir á sig fallhlífar,
utanyfir hvitu smokingjakk-
ana, og stukku út.
Svo til um leið og brúður-
in kom akandi, lentu þeir
fyrir framan kirk judyraar,
spenntu af sér fallhlífarnar og
gengu inn.
Frank Fesche er félagi í fall
hlífarstökksklúbb og konan i
hans elskuleg er ritari klúbbs-
ins. Þau kynntust þar, og því
fannst honum viðeigandi að
koma af himnum ofan til
vígslunnar.
Réttarhöldin í Póllandi:
Ásakaðir um að hafa
þegið aðstoð
Varsjá, 4. janúar. NTB.
Réttarhöldin gegn þeim Kuron
og Modzelewski tóku nýja stefnu
á föstudagskvöld þegar ákæru-
valdið sakaði þá um að hafa þeg
ið aðstoð frá samtökum Trotsky
sinna í Vestur-Evrópu. Mennim-
ir tveir, sem voru fyrirlesarar
við háskólann í Varsjá eru ásak-
aðir um að hafa hvatt til stúd-
Framhald á bls. 23