Morgunblaðið - 05.01.1969, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.01.1969, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1969 15 Tómas Ó. Jóliannsson Minningarorð Hve sæl, ó hve sæl er (hver leikandi lund en lofaðu engan dag fyrir sólarlagsstund. ÞAÐ hafa sjiálfsagt fleirum en mér komið í hug þessar ljóðlín- ur, er við fréttum að Tommi væri dáinn, en svo var hann allt- af kallaður í fjölskyldu- og vinahópi. Hann hafði farið til vinnu isinnar að vanda, að morgni 23. des., gengið að störfum með sömu samvizkusemi og endranær, gengið að vinnustað til hádegis- yerðar, komizt á leiðarenda en ekki að matborði. Dáinn. Svona örstutt er bilið á milli lífs og dauða. Tómas Óskar Jóihannsson, en svo hét Tommi fullu nafni, var fæddur í Reykjaivík 25. apríl 1903. Foreldrar hans voru hjónin Helga Tómasdóttir og Jóhann Björni-son verkamaður, bæði .miklum mannkostum búin í hví- vetna. Tommi ólst upp í stórum systkinaihóp og varð því snemma að taka til hendi, og aðstoða föð- ur sinn að afla heimilisna-uðsynja því mi'kla aðdrætti þurfti í stóru heimili, þó vel væri nýtt, er að var flutt. Fljótt kom í ljós að Tommi hafði góðar námsgáfur, og er hann hafði aldur til og getu fór hann í Verzlunarskólann og út- skrifaðist þaðan. Að afloknu námi stundaði hann verzlunar- og skriifstofustörf, meðal annars í Vestmannaeyjum á tímabiM. Megar Tommi flytur frá Eyjum ræðst hann til starfa hjá Alþýðu- brauðgerðinni og hefist þá nýr þáttur í lífi hans og fyrirtækisins sem nýtir starfsorku hans, sá hluti þáttarins, sem að fyrirtæk- inu snýr verður ekki rakinn hér. Þegar Tommi kemur að Al- þýðubrauðgerðinni er þar að störfum ung stúlka, Katrín Kjart ansdóttir að nafni, Kata. Þau fella hugi saman og stofna heim- ili. Skjótt eftir að þau Kata og Tommi stofnuðu sitt indæla heimili, varð það einskonar mið- depill skylduliðs þeirra og vina. Viðmót þeirra var slíkt, að þang- T amningastöð Hestamannafélagið Hörður gengst fyrir tamningastöð að Laxnesi Mosfellssveit í vetur. Stöðin starfar frá 20. janúar til 15. maí. Tamningamenn verða Bjami Krist- jánsson og Jóhannes Guðmundsson. Þeir hesteigendur sem vilja koma hestum í tamningu hafi samband við Bjarna Kristjánsson Reynivöllum. STJÓRNIN. að vildu allir koma, enda var sambúð þeirra með ágætuim. Við fráfall Tomma þyrpast ótal minningar í hugann, hvort heldur staldrað er við heimili hans eða utan þess, hann hafði til að bera svo ilágæta framkomu að öllum leið vel í návist harys. En þó býst ég við að ríkast sé flestum í minni, þegar hann á heimili sínu kom með útbreidd- an faðminn móti gestum sínum, ungum og eldri, ög veitti ásamt konu sinni af slíkri rausn og manngæðum, að ekki verður samanburðar leitað. í huga sinna ungu vina átti hann slík ítök, að frá þeirra sjónarhóli var ekki til nema einn Tommi, og við það má bæta að innan frænd- Uðs þeirra hjóna voru jól ekki að fullu gengin í garð fyrr en bú- ið var að koma á Njarðargötu 47 og skiptast á jólaóskum. Þegar leiðir skilja og vinir hverfa af sviðinu, vaiknar maður við þá staðreynd að þarna var mörg skuldin ógreidd. Ég og fjölskylda mín átti Tomma stóra skuld ógreidda, skuld, sem enginn getur greitt með neinum venjulegum gjaidmiðli. Þesaar línur eru fátækleg kveðja og þökk að leiðarlokum. Blesisuð sé minning hans. Magnús Árnason. B ifreiðaverkstæðið Spindill hf. SKÚLAGÖTU 53 verður lokað vegna jarðarfarar mánudaginn 6. janúar. PANELOFNAR Nú framleiddir á íslandi Hátt hitagildi Fallegir Ódýrir Húsbyggjendur leitið tilboða Panelofnar hf. Söluumboð: HITATÆKI HF. Skipholti 70 — Sími 30200 4 tók það upp. Þetta var glænýr tíukrónupening- ur. Klumpur hljóp sein- asta spottann til vina sinna. „Hvernig getur þetta verið ógæfa?“ sagði hann hlægj aindi. Hann sfcakk peningnum í vasa sinn og tók undir handlegginn á Frikka og í ranann á Hermanni. „Þetta var gæfa“, LESBÓKBARNANNA sagði hann, „gæfa fyrir okkur alla — því nú för- um við beint út í búð og kaupum okkur sælgæti". Þegar þeir voru komn- ir inn í búðina fór Klump ur allt í einu að hlægja. Hann benti á almanakið, sem hékk á bak við búð- arborðið og sagði: „Það er föstudagur í dag, en það er níundi en ekki þrettándi dagur mánaðar ins. Þú hlýtur áð hafa lit- ið á skakkan mánuð, Frikki. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af hjá- trúar-föstudeginum þín- um fyrr en í nó^ember." „Nú, þess vegna hefur þetta orðið svona mikill gæfudagur", sagði Her- mann og horfði á isælgæt ið. „Ég held að ég fái mér stóran sleikibrjóstsykur, svo að ég geti lengi hald- ið upp á gæfuna mína“. 0 35-65 J) Óli og Dóri eru í handbolta — en sagan segir ekk- ert um hvort boltinn fer í mark í þetta sinn. Það, sem þú átt að gera, er að finna mismuninn á þessum tveimur myndum, sem virðast í fljótu bragði vera eins — það vantar nefnilega 5 hluti i neðri myndina. Géturðu fundið þá? Skrýtlur -í- Maður nokkur hafði sent svohljóðandi sím- skeyti: Viltu giftast mér? Greitt svarskeyti (tíu orð). Eftir klukkutíma fékk hann svarið: Já, gjarn- an, með ánægju, já já, já, já. Þín María. Kemnari: „Hversu marg- ir verða eftiir ef þú dreg- ur 3 frá 10?“ Óli þegir. Kemnari: „Hversu marga fingur hefur þú á báðum hönduimuim til saimans?" Óli: „Tíu“. Kennari: „Alveg rétt en ef þú nú mi-sir þrjá fingur?“ ÓM: „Þá losna ég við að leika á píanóið". (tðtnatinít 13. árg. Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson 5. jan. 1969 *<á>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.