Morgunblaðið - 05.01.1969, Page 4
4
Simi 22-0-22
Raubarárstig 31
S,M11-44-44
Hverfiscötu 103.
Síml eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
sKiPHom21 símar21190
e#tír lokun *lmi 40381
Einangrun
Góð plasteinangrun hefur hita
leiðnistaðal 0,028 til 0,030
Kcal/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðni, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar
á meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega
engan raka eða vatn í sig. —
Vatnsdrægni margra annarra
einangrunarefna gerir þau, ef
svo ber undir, að mjög lélegri
einangrun.
Véx hófum fyrstir allra, hér á
landi, framleiðslu á einMgrun
úr plasti (Polystyrene) og
framleiðum góða vöru með
hagstæðu verðL
REYPLAST H.F.
Ármúla 26 - Sími 30978
Tilboð óskast
í jarðýtu, International BTD8.
Tilb. skulu send Ræktunar-
sambandi Austur-Barðastrnd-
arsýslu fyrir 10. jánúar 1969.
Réttur áskilinn.
Póststöð Króksfjarðarnes.
að BEZT
sr að
auglýsa í
MorgunblaUinu
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1969
0 Eins og lifandi beina-
grindur
Reykjavík, 2. janúar 1969.
„Kæri Velvakandi.
Ég vona að þú verðir svo góð
ur að birta þetta bréf mitt, og
sjáir þér faert að gera það fljót-
lega, meðan þetta, sem ég skrifa
um er enn í fersku minnL
Ég er skrifstofustúlka og vil
því beina orðum mínum að ÖU-
um skrifstofu- og afgreiðslustúlk
um á íslandinu góða.
Horfðuð þið á sjónvarpið á
ganalárskvöld og nýjársdag?
Pannst ykkur ekki sárt að sjá
vesalings hungruðu bömin í Bi-
afra? Voru þau ekki eins og lif-
andi beinagrindur? Munið þið t.d.
eftir litla drengnum, sem fór að
gráta, en varð að hætta við það,
því að hann hafði ekki krafta
til þess? Eða munið þið eftir
litlu telpurmi, sem laeknar voru
að skoða og sýna, en hún dó svo
seinna um kvöldið af hungri?
Var ekki hörmulegt að sjá böm-
in þrjú, sem vom að burðast
við að komast upp tvör troppur?
Þetta eru bara fáein dæmi.
Ég er viss um, að margar ykk
ar, sem vinna að skrifstofu- og
verzlunarstörfum hafa séð þessa
myndir frá Biafra og orðið eins
um og mér, ég gat ekki haldið
tárunum í skefjum. Gætum við
ekki auðveldlega séð af einum
fimm hundrað króna seðli eða
þúsund króna seðli, vitandi það,
að það gæti orðið til þess að
bjarga einhverjum af þessum
svéltandi bömum í Biafra? Ég
ætla að senda þúsund króna seðil
til biskupsskrifstofunnar, því ég
trúL að hún muni koma honum
áleiðis. En þúsund krónur eru
ekki mikið og vona ég að þið
bætið við það smáræði, því eins
og máltækið segir: „Margt smátt
gerir eitt stórt“.
Ein, sem hefur aldrei
verið hungruð."
0 Mörg vandamál
Áhugasamur skrifar;
„Velvakandi góður.
Okkur er báðum vel kunn-
ugt uxn, hvað vandamál þjóðfé-
lagsins eru gífurleg, og skipu-
lagsleysið einkennandi fyrir þjóð-
ina, hvert sem litið er. Get ég
2ja herb íbúð
Á mjög góðum stað í Laugarneshverfi er til sölu góð
2ja herbergja kjallaraíbúð. Afhendist nú þegar tilbúin
undir tréverk. Sameign inni fylgir fullgerð og húsið
frágengið að utan. Gluggar snúa móti suðri og vestrL
Upplýsingar í símum 34231 og .33483.
tfaritílarkuriir
IISilNII
LTI
BÍLSKIJRS
SVALA
ýhhi- lr tftikurtir H. Ö. VILHJÁLMSSDN
RÁNARGÖTU 12. SÍMJ 19669
Danska — Enska — Franska — Þýzka —
N r
Spænska — Italska.
Innritun allan daginn
MÁLASKOLI
HALLDÓRS
þvl ekki staðizt þetta lengur og
rita þér nokkrar línur um hugð-
arefni mín um hin ýmsu mál-
efni, sem augljós eru almenniingi,
þótt allir láti sér um muna að
kveikja á ljósrofanum.
Þar kemur mér fyrst í huga,
vankantar leigubíla þjónustunnar
við almenning. Má segja það ör-
ugt að ekki er hugsað um hag
almennings, þegar startgjald
leigubifreiða er hækkað, heldur
aðeins um það, hvað þarf leigu-
bílstjórmn mikið fé, til að geta
séð heimili sínu farborða og rek-
ið sinn stóra ameríska luxusbíl,
eða hvað sem hann er, sem oft
þarf nær helmingi meira rekstr-
arfé, og kostar nokkra hundruði
þúsundkrónuseðla meira, heldur
en fjögurra til fimm mamna bif-
Ireið, sérstaklega styrkt fyrir
ileigubílaakstur og er fáanleg frá
■íýmsum löndum Evrópu t.d.
0 Ekki leigubílstjórum
að kenna
% Ég veit að við gerum okkur
Ibáðir vel grein fyrir ástandi
'þessara mála I dag, sem er fyrst
bg fremst vegna vöntuniar á leyf-
um, til reksturs á minni leigu-
bifreiðum tii fólksflutninga, sem
esr Iíklega á valdi ríkis eða bæj-
arstjóma að veita, og eins vegna
vöntun samræmingar á inn-
flutoingi leigubifreiða og styrkja
til þeirra.
Því má ekki skella allri skuld
inni á leigubílstjórana, sem að-
eins gera skyldu sína gagnvart
sjálfum sér og fjölskyldum sín-
um, og oft betor en þeim er ætl-
að við viðskiptavinima.
Því vil ég varpa þessari spum
ingu til þín og alls almennings.
„Er vilji ykkar að haldið verði
áfram á sömu braut, og hvaða
rök hafið þið máli ykkar til
stoðnings?
Frá einum ungum, sem óskar
eftir skipulögðum aðgerðum frá
grunni.
Áhngasamur."
0 Út og inn
Þreyttur rukkari skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Það sem amar að, ætti ef til
vill að bíða þar til eftir jóþ en
hér kemur það nú samt: Hér í
borg er mikið af veglegum skrif-
stofubyggingum, og flestar þess-
ar veglegu byggingar hafa tvö-
falda vængjahurð, venjulega eru
þær stórar og íburðarmiklar.
En vandamálið þegar maður
kemur að þessum hurðum er, að
oftast er önnur lokuð, og hin
opnast annað hvort út eða inn,
svo að möguleikamir til þess
að komast inn í fyrsta atronnu
era orðnir harla litlir (t.d. Morg-
unblaðshúsið).
Ég held að beztia lausnin á
þessu sé, að setja spjöld á hurð-
inia með orðunum INN og ÚT
eftir því sem við á. Þessi orð
er bezt að melta á hlaupum milli
skrifstofa og betri en orðin ÝTA
og DRAGA, sem oft vilja vefjast
fyrir mönnum.
Kærar þakkir
og gleðileg jól.
Þreyttur rukkari."
0 Hvers vegna aðeins
Pólverjar?
„Kæir Velvakandi.
Ég get nú ekki lengur orðum
bundizt. Ég las i Morgunblaðinu
fyrir skömmu greinargerð frá Far
manna- og fiskimanwasambandi
íslands, þar var mikið rætt um
byggingu skuttogara. En aðeins
minnzt á Pólland og pólskar
skipasmíðastöðvar í því sam-
bandi. Era ekki aðrir t.d. Portú-
galar, Spánverjar, Englendiingar,
Þjóðverjar o.fl sem hafa reynslu
í byggingu skuttogara Hvers-
vegna er svona mikil áherzla
lögð á að nefna Pólverja, eða er
jafnvel ákveðið að það skuli
vera Pólverjar sem byggja tog-
arann ef til kemur?
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
Stýrimaður."
Ung og grönn
Ungleg og grönn
með
LIMMETS
og TRIMETTS
megrunar-
ískexi
kremkexi
smurkexi
og súkkulaði
Fœst í apótekum