Morgunblaðið - 05.01.1969, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1969
1 öilum þeim umræðum, sem
fram hafa farið hér á landi sáð-
ustu mánuði um æskuna ag
áhrif hennar í stjómmálunum
hefur ein veigamikil staðreynd
gleymzt, sú, að hið raunverulega
forustuihlutverk í málefnum ís-
lenzku þjóðarinnar á næstu ár-
um mun alls ekki falla í hlu.t
ihinnar „ungu, upprennandi kyn-
slóðar“ eins og unga fólkið milli
tvítugs og þrítugs er gjarnan
kallað heldur annarrar kynslóð-
ar sem kannski mætti
kalla „gleymdu" kynslóðina
vegna þéss, að á hana hefur
ekki verið minnzt í um-
ræðum um kynslóðaskipti í
stjórnmálunum, en fremur ber
þó að nefna lýðveldiskynslóðina
vegna þess, að það féll henni í
skaut að lifa í blóma æsku sinn-
ar þau tímamót, þegar lýðveldi
var stofnað á Islandi og „unga“
kynslöðin var enn í vöggu.
Með lýðveldiskynslóðinni er átt
við þá menn og konur, sem nú
eru á miðjum fertugsaldri og
fram á miðjan fimmtugs-
aldur eða þar um bil. >að
liggur í hlutarins eðli, að
þegar þeir menn, sem um nær
þriggja áratuga skeið hafa með
einum eða öðrum hætti farið
með málefni þjóðarinnar, taka
sér vedðskuldaða hvíld, sem verð
ur í vaxandi mæli á næstu árum,
einfaldlega fyrir aldurs sakir,
mun það verða hlutskipti lýð-
veldis'kynslóðarinnar að taka við.
Það verður ekki með nokkru
móti „hlaupið yfir“ þetta fólk,
enda hefur það öðlazt þann
þroska, þá menntun og reynzlu,
sem veitir því talsverða yfirburði
yfir þá æsku, sem kvatt hefur
sér hljóðs með svo eftirminnileg-
um hætti á undanförnum mán-
uðum.
Með þessu er engan veginn
gert lítið úr ungu kynslóðinni
eða dregið úr þvi að veita eigi
henni meiri hlutdeild á vettvangi
stjórnmálanna en verið hefur.
Með þeim breytingum, sem urðu
á forustu Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík fyrir nokkrum vikum
voru ungum Sjálfstæðismönnum
veitt mikil áhrif í málefnum
flokks síns í Reykjavík en áhrif
I innri málefnum stjómmála-
flokks og forusta á sviði þjóð-
mála er ekki eitt og hið sama,
þótt hið fyrra sé oft undanfari
hins síðara.
Ekki er úr vegi a@ gera sér
nokkra grein fyrir því, hvaða
menn lýðveldiskynslóðarinnar
eru líklegastir til þess að skipa
Lýðveldiskynsló&in, hin nýja forystu-
sveit Sjálfstæðisflokksins
hina nýju forustusveit Sjálfstæð-
isflokksins, sem vafalaust mun
í vaxandi mæli koma fram á
sjónarsviðið á allra næstu árum.
Sumir þessara manna hafa þeg-
ar setið á Alþingi um nokkurt
skeið, aðrir eru með annan fót-
inn innan dyra en hinn fyrir ut-
an, þ.e. hafa vaUzt til þingfram-
boðs og eru nú varaþingmenn.
Enn aðrir hafa valizt til áhrifa-
mikilla trúnaðarstarfa í ýmsum
voldugum samtökum éða þýð-
ingarmiklum stofnunum en öll-
Geir
HallgTímsson
Pétur
Sigurðsson
Eyjólfur
Konráð
Guðm. H.
Garðarsson
Davíð Sch.
Thorsteinsson
Gísli
Jónsson
vettvangi eins og tátt er um
slíka menn. En til góðs eða ills,
til lofs eða lasts, eiga aliir þess-
ir menn og konur það sameigin-
legt að skipa þá sveit, sem
smátt og smátt hefur verið að
koma fram í dagsljósJð, sem arf-
taki þeirra, sem um langt skeið
hafa verið í forustuliði Sjálfstæð
isflokksins á vettvangi þjóðmál-
anna.
Fyrstan þeirra manna, sem til-
heyra lýðveldiskynslóð Sjálf-
stæðisflokksins ber að telja Geir
Matthías A.
Mathiesen
Matthías
Bjarnason
Sverrir
Hermannsson
Þorsteinn
Gíslason
Gunnar
Helgason
Gunnar G.
Schram
enn lent í þeirri eldraun, sem
herðir stjórnmálaimenn og sýnir
bezt mannkosti þeirra. Sú eld-
raun kann að bíða Geirs Hali-
grímssonar á næsta ári. Fjórir
ungir allþingismenn skipa þenn-
an flokk, þeir Matthias Á. Mat-
hiesen, Pétur Sigurðsson, Pálmi
Jónsson og Matthías Bjarnason.
Matthías Á. Mathiesen vann
ungur að árum frægan kosninga-
sigur í Hafnarfirði og hefur sáð-
an verið valinn helzti forustu-
maður Sjálfstæðisflokksins í
Palmi
Jónsson
Pétursson
Baldvin
Tryggvason
Bragi
Hannesson
Guðjón
Sigurðsson
Höskuldur
Ólafsson
Matthías
Johannessen
Már
Elísson
Pétur
Sæmundsen
Ragnhildur
Helgadóttir
Þór
Vilhjálmsson
um er það sameiginlegt, að þeir
gegna störfum, seirn veita þeim
mikil áhrif og leggja þeim jafn-
framt mikla ábyrgð á herðar.
Margir þessara manna hafa
verið mjög umdeildir á liðnum
árum og eru enn, bæði innan
sáns flokks og utan. Sumir þeirra
hafa sætt og sæta harðri gagn-
rýni fyrir störf sín á opinberum
Hallgrímsson, borgarstjóra í
Reykjavík, sem varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
lýðveldisárið og lýðveldisdag-
inn, einn af krónprinsum Sjálf-
stæðisflokksins. Hann á að baki
óvenju farsælan stjórnmálafer-
il og ef nokkuð er má segja, að
sá stjómmálaferill sé of sléttur
og felldur, borgarstjóri hafi ekki
Reykjaneskjördæmi, stærsta kjör
dæmi landsins utan Reykjavíkur,
því kjördæmi, sem Ólafur Thors
veitti forustu síðustu ár ævi
sirunar. Fáum ungum mönnum
hefur verið sýndur sMkur sómi.
Pétur Sigurðsson er áhrifamik-
ill foruistumaður í verkalýðs-
hreyfingunni og mjög vaxandi
þingmaður, sem hefur treyst
tengsl Sjálfstæðisflokksins við
þýðingarmikla þjóðfélagshópa.
Pálmi Jónsson hefur aðeins
setið á þingi í rúmt ár en er
líklegur til að verða farsæll for-
ustumaður bænda innan Sjálf-
stæðisflokksins. Matthías Bjarna
son kemur úr því umhverfi, þar
sem stjórnmálabaráttan hefur
verið einna hörðust á íslandi og
hefur mótazt af því, einn harð-
asti baráttumaður flokks síns og
áhrifamaður í röðum útgerðar-
manna.
Fimm varaþingmenn skipa
þann hóp, sem hér ep til um-
ræðu, þeir Ásgeir Pétursson,
sýslumaður, Eyjólfur Konráð
Jónsson, ritstjóri Sverrir Her-
mannsson, viðskiptafræðingur,
Þorsteinn Gíslason, skipstjóri, og
Guðmundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur. Allir hafa
þessir menn sett sterkan svip á
það umhverfi, sem þeir starfa í,
Ásgeir, sem forustumaður í einu
blómlegasta landbúnaðarhéraði
landsins og sá maður, sem flest-
um betur skynjar hvernig vind-
ar blása í íslenzkum stjórn-
málum hverju sinni, Eyjólfur
Konráð, sem harðskeyttur bar-
áttumaður í ritstjórastóli stærsta
dagblaðs landsins og líklega á
meiri þátt í framgangi stóriðju
á íslan'di en flestir gera sér grein
fyrir, Sverrir sem skeleggur
forustumaður verkalýðshreyfing-
arinnar í landinu og mál-
snjall talsmaður síns flokks, Þor-
steinn landsfrægur aflamaður og
nýjasta stjarnan á himni Sjálf-
stæðisflokksins og Guðmundur,
sem formaður stærsta launiþega-
félags landsins um éuabil, full-
trúi í æðstu stjórn verkalýðssam-
takanna, jafnframt víðtækri
þekkingu á mlálefnum einnar
þýðingarmestu atvinnugreinar
landsmanna, fiskiðnaðarins.
Auk þeirra, sem nú hafa verið
taldir má geta sér til um ýmsa
aðra meðlimi lýðveldiskynslóð-
arinnar, sem líklegt má telja að
skipi hina nýju forystusveit
Sjálfstæðisflokksins. Þar má
nefna menn eins og Þór Vil-
hjálmsson, prófessor, Ragnhildi
Helgadóttur, Baldvin Tryggva-
son, forstjóra Almenna bókafé-
lagsins, Höskuld Ólafsson, banka
stjóra, Matthías Jóhannessen,
ritstjóra, Braga Hannesison,
bankastjóra, Pétur Sæmundsen,
bankastjóra, Davíð Seh. Thor-
steinsson, iðnrekanda, Gísla
Jónsson, menntaskólakennara,
Guðjón Sigurðsson, formiann
Iðju, Gunnar Helgaison, borgiar-
fulltrúa, Má Elísson, fiskimála-
atjóra og Gunnar G. Schcam,
atjómarráðsfullitrúa. Allir þessir
menn eru með einum eða öðrum
hætti í þeirri aðstöðu að balda
um púlsinn á þjóðféiaginu. Bald
vin og Matthías forystumenn á
sviði menningarmála, Bragi, Pét
ur, Davíð og Guðjón í tengslum
við iðnað og iðnveiikafólk, Guð-
jón og Gunnar með víðtæka þekk
ingu á málefnum launþega, Hösk
Framhald á bls. 16
HEIMDALLUR - ÚÐINN
ÁRAMÓTASPILAKVÖLD
ÁRAMÓTASPILAKVÖLIJ SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANN A f REYKJAVÍK VERÐUR FIMMTUDAGINN 9. JAN.
KL. 20.30 í SJÁLFSTÆÐISHÚSINU.
1) SPILUÐ FÉLAGSVIST. 4) DREGIÐ f HAPPDRÆTTI.
2) ÁVARP: Formaður Sjálfstæðisflokksins 5) SKEMMTIATRIÐI.
3) dr. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. SPILAVERÐLAUN AFHENT. 6) DANS.
Ilúsið opnað kl. 20. — Lokað kl. 20.30. — Sætamiðar afhentir í Sjálfstæðishúsinu á venjulegum skrifstofutíma.
SKEMMTINEFNDIN.