Morgunblaðið - 05.01.1969, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1969
„Mér lízt annars vel á þetta“
— iætl við skipveija ó Erninum ú Ameiíkumiðum
SKIPSHÖFNIN af Erninum
RE kom heim í jólaleyfi fyrir
jólin, en eins og kunnugt er
hefur Örninn stundaff síldveiff
ekkert gengið enda voru síld-
arbátarnir þarna að hætta
veiðum. Sævar sagði, að þeir
hefðu fundið síld fyrstu dag-
ana innan 12 mílnanna, en
fyrir utan hefði þetta verið
mjög dræmt og slæmar gæftir
og aflinn tæp 300 tonn á ein-
um mánuði.
„Mér lízt annars vel á
þetta“, sagði Sævar, „manni
getur ekki annað en litist vel
á það miðað við aflann sl. ár
hjá þeim skipum sem stund-
uðu veiðar þarna. Ugglaust
er þetta árstíðarbundið, en
mest allt sl. ár voru þarna 3
bandarískir og kanadískir bát
ar með hringnót og þeir öfl-
uðu vel.
Við fórum þarna mikið um
Island. Annars höfum við frétt
af síld á þessu svæði eftir að
við komum heim.“
„Hvenær farið þið aftur?“
„Við förum væntanlega
fljótlega eftir 10. janúar og
reynum eitthvað við þetta
áfram. Ef útlitið verður dökkt
býzt ég við að við komum
heim og reynum við loðnuna,
þegar hún kemur. Það er lík-
lega eini mögulei'kinn fyrir
þessa báta, að minnsta kosti
eins og útlitið er.
Annars er þetta orðið ótækt
ástand með kjör sjómann-
anna. Þegar þeir hlutu upp-
grip á sínum tíma voru laun
allra miðuð við allt á hámark-
inu hjá sjómönnum, en svo
þegar aflabrestur er sitja sjó-
„Hvenær er venjulegur
veiðitími á þessum slóðum?"
„Veiðitíminn byrjar í raun-
inni ekki fyrr en í apríl og
endar í október. Það hefur
aldrei verið réynd síldveiði
þarna í nót fyrr á þessum árs-
tíma, en Rússar og Þjóðverjar
eru á þeissum miðum allt árið
í kring á síldartrolli."
„Fór öll síldin hjá ykkur í
bræðslu?"
„Já, síldin hjá okkur fór
öll í bræðslu og síðan var mjöi
ið notað til alifuglaræktar."
„Hvernig var að vera í
Gloster?"
„Það var mjög lítið við að
vera í landi og það er víst að
þeir geta skemmt s'ér meir
kanarnir hér, en við úti í
Bandaríkjunum."
„Farið þið allir aftur?“
Sævar Brynjólfsson, skipstjóri.
Kristján Viffar Pétursson,
2. stýrimaður.
ar viff austurströnd Bandaríkj
anna síffari hluta október og
fram í desember 1968. Viff
ræddum stuttlega viff nokkra
skipverja á Erninum þegar
þeir komu frá Vesturheimi.
Við töluðum fynst við skip-
stjórann Sævar Brynjólfsson
og sagði hann, að þetta hefði
Skipshöfnin á Erninum á Keflavíkurflugvelli þegar þeir komu heim í jólaleyfi.
stórt svæði og leituðum að
síld, en þetta var ekkert. Við
fórum lengst suður til Long
Það voru spenntir synir, sem tóku á móti pabba sínum, Ein-
ari Erlendssyni háseta frá Keflavík, þegar skipshöfnin kom
heim fyrir jólin.
menn með sárt ennið, en t. d.
iðnaðarmenn halda sínum
hlut óskertum en ekki raun-
hæfum.
Það er skárra fyrir háseta,
sem hefur fyrir fjölskyldu að
sjá að vera hreinlega á at-
vinnuleysisbótum heldur en á
síldarbát. Atvinnuleyisisbætur
hjá t. d. síldarsjómanni með
fjögur börn eru 9150 kr., en
mánaðartrygging hjá sama
manni á bát er 9600 kr. á
mánuði, þegar fæðiskostnað-
ur hefur verið dreginn frá.
Með þessu fyrirkomulagi
verður erfitt að fá góðan
mannskap á sjóinn, en hvern-
ig gengur fer ekki sízt eftir
því hvernig manrnskapurinn
er. Sjómaðurinn hlýtur að
eiga að hafa hærra kaup en iðn
aðarmaðurinn í landi og þar
kemur m. a. til lengri vinnu-
tími, fjarvistir frá heimilum
o. fl. Eftir síðustu aðgerðir í
þessum málum er betra að
vera á bótum heldur en á
bátum.“
★
„Þetta var ágætt“, sagði
Magnús Sigurðsson háseti, ,,en
það var frekar slæm veðr-
átta, og svo lóðaði frekar lít-
ið á sild. Við vorum alltaf
fyrir utan 12 mílna landhelg-
ina, en við fáum væntanlega
að veiða inn að þriggja milna
mörkunum og þá væntanlega
að landa við 3 mílurnar líka.
Því sem við höfum landað
höfum við orðið að landa við
12 mílurnar. Við fengum í allt
tæp 300 tonn á einum mán-
uði.“
„Við búumst við því að flest
ir fari aftur, en þetta var
mjög léleg útkoma og lítill
hlutur. Annars er troll algeng-
aista veiðarfærið á þessum
slóðum og t. d. er kílóið af
ýsu selt þarna á 98 sent.“
★
„Þetta var helvíti aumt“,
sagði Kristján Viðar 2. stýri-
maður, „lítið við að vera og
lítil síld. Að minnsta kosti í
þessum mánuði, enda hefur
síldveiði ekki verið reynd fyrr
á þessum miðum í þessum
mánuði. Rúss’ar og Þjóðverjar
hafa veitt þarna í troll á
Magnús Sigurffsson, háseti.
svæði frá Nýfundnalandi og
til New York. Það var slæmt
veður í desember og er víst
oftast í janúar líka.
Nokkrum dögum áður en
við komum fékk kanadískt
síldveiðiskip 550 tonn á tveim
nóttum, en svo brældi og sild-
in hvarf og varð bara smá
dreifð. Við hefðum haft miklu
meira út úr þessu með því að
selja aðgang að bátnum, held-
ur en að vera að dunda við
að veiða, því að fólk var
mjög forvitið að skoða skipið,
því að skipin þarna vestra
eru ekki upp á marga fiska,
sérstaklega trollbátarnir. Ég
held að við ættum að hætta
við að brenna okkar gömlu
skip, heldur selja þau til
Bandaríkjanna".
„Fenguð þið þessa síld sem
fékkst á stuttum tíma?“
„Við höfum fengið þessa
síld, setn við fengum á 3 nótt-
um. Hún fékkst bara með
djöflagangi, með því að 'kasta
oft.“
„Hvernig var að vera í
Gloster?"
„Æ, ég get ekki hælt því,
þetta var lítill staður, en mað-
ur var svo sem ekkert ónáð-
aður með djöflagangi. En það
er víst ágætt þarna um sum-
artímann, því að þá er þar
ágætis baðströnd."
„Hvort líkar þér betur á
heimamiðum eða fjarlægum?“
„Það er skemmtilegra á
heimamiðum. Það er líka
mjög dýrt að lifa þarna.“
Lokað vegna jaiðoifaiai
Lokað fyrir hádegi mánudaginn 6. janúar vegna
jarðarfarar Eiríks Gröndals bifvélavirkja.
SKODABÚÐIN Bolhotti 4.
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ H/F.
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI SKODA Elliðaárvogi 117.
SKODA VERKSTÆÐIÐ H/F., Dalshrauni 5.
VELJUM ÍSLENZKT
Tóvinna — jurtalitun —
listvefnaður og munsturteikning
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ÍSLANDS efnir til nám-
skeiða í ofantöldum námsgreinum 15. janúar n.k.
Tekið er á móti umsóknum og upplýsingar gefnar í
verzluninni íslenzkur heimilisiðnaður, Laufásvegi 2,
kl. 10 — 12 f.h. sími 15500.
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAG ÍSLANDS.