Morgunblaðið - 05.01.1969, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 1969
Úitgefand; H.f. ÁrvafcuT', ÍReykjaiváik.
Fmmkv-æm.d;aatj óri Haraldur Sveinsaon.
'Ritetjórar Sigurður Bjarniason frá Viguir.
Malitolas Jdhanness’en.
Eyj óMur Konráð Jónsson.
Ritgtjórnarfulltrúi Þiorbjöm GuðmundssoiU
Fréttastjóri Bjöm Jóíhannssom
Auglýsingagtjóri Árni Garðar Kristin'saon.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sáni 19-109.
Auglýsingar Aðiaili3.træit* 6. Sími 22-4-80.
Áskriiftargjald kr. 160.00 á mánuði innanlands.
í lansasjöiu kr. 10.00 eintakið.
STÓRMINNKANDI
AFLI
FMskifélag íslands hefur birt
4 upplýsingar um heildar-
aflamagn landsmanna á árinu
1968 og reyndist það vera
um 550 þúsund lestir. Til sam
anburðar má geta þess, að
heildaraflinn árið 1966 var
1240 þúsund lestir og 1967 847
þúsund lestir. Heildaraflinn
hefur því á aðeins tveimur
árum minnkað um 686 þús-
und lestir. Af þessum tölum
má glöggt sjá, hve gífurlegt
áfall sjávarútvegsins og þjóð
arbúsins hefur orðið á þessu
stutta tímabili.
Þegar haft er í huga, að sjáv
arafurðir eru yfir 90% af út-
flutningsvörum þjóðarinnar
og þar af leiðandi undirstaða
gjaldeyrisöflunarinnar má öll
um ljóst vera, að mikil um-
skipti hafa orðið á högum
þjóðarinnar frá því er bezt
lét á árinu 1965 og fram eftir
ári 1966. Slík breyting til hins
verra í öflun útflutningsaf-
- urða hlýtur óhjákvæmilega
að skerða kjör hvers einasta
manns.
Á þeim árum þegar vöxtur
sjávarútvegsins var sem mest
ur höfðu margir ríka tilhneig
ingu til þess að skella skolla-
eyrum við þeim röddum, sem
hvöttu til þess, að ekki yrði
byggt á sjávarútveginum ein-
um heldur leitazt við að nýta
allar auðlindir landsins og þá
ekki sízt fossaaflið með upp-
byggingu orkufreks iðnaðar.
Reynsla síðustu ára hefur von
andi sýnt þeim, sem áður
-vildu byggja allt á einní at-
vinnugrein, að slíkt er ekki
hyggilegt.
Jóhann Hafstein iðnaðar-
málaráðherra, hefur ítrekað
varað við því, að nú séu síð-
ustu forvöð að nýta afl fall-
vatnanna til iðnvæðingar,
vegna þess að nýir orkugjafar
og ódýrari eru á næsta leiti.
Þess vegna verður að hafa
hraðann á og flýta svo sem
kostur er öllu rannsóknar-
starfi á þessu sviði. Þjóðin má
ekki við því að missa af stræt-
' isvagninum að þessu sinni.
Skýrsla Fiskifélagsins um
heildarafla landsmanna á sl.
ári og samanburður við fyrri
ár hafa enn orðið til þess að
undirstrika réttmæti þeirrar
stefnu sem ríkisstjórnin mark
aði með samningunum um
byggingu Búrfellsvirkjunar
og álbræðslunnar í Straums-
vík. Það eru blindir menn,
sem ekki viðurkenna þetta nú.
FJÓRVELDIN
TAKI í
TAUMANA
Á standið í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins
er nú komið á það stig, að þar
getur hvenær sem er komið
til nýrra stórfelldra átaka.
Arabar hafa í vaxandi mæli
gripið til ýmis konar hefndar
aðgerða og skæruliðastarf-
semi gagnvart ísrael og við-
brögð ísraelsmanna hafa ver-
ið slík, að þar hefur lítils hófs
gætt.
Mestu máli skiptir hins
vegar, að friður komist á í
þessum löndum. Nú bendir
margt til þess, að fjórveldin,
Bandaríkin Sovétríkin, Bret-
land og Frakkland telji mál
til komið að grípa í taumana
og hafa sameiginlegt frum-
kvæði að því að koma á friði.
Það stendur þessum þjóðum
næst, einfaldlega vegna þess,
að þær sjá Aröbum og ísraels
mönnum fyrir þeim vopnum,
sem gera þeim kleift að halda
áfram þessum tilgangslausu
hernaðarátökum.
Ástæða er til að ætla, að
grundvöllur fyrir friði í þess-
•um löndum sé nú betri en
oftast áður. Talið er að bæði
Nasser, forseti Egyptalands
og Hussein, konungur Jórdan
íu séu fúsari til skynsamlegra
viðræðna en áður, en á hinn
bóginn hefur öfgamönnum á
báða bóga einnig vaxið fiskur
um hrygg. Varanlegur friður
skapast ekki í þessum lönd-
um nema viðunandi lausn
finnist á vandamálum Palest-
ínu-Araba, sem ekki hafa haft
fast aðsetur í tvo árat.ugi. Von
andi taka fjórveldin þessi
mál föstum tökum nú enda
hafa þau í hendi sinni að
draga a.m.k. verulega úr
hættuástandinu á þessum
slóðum með því að stöðva
vopnasölur þangað.
ATVINNU-
LEYSISBÆTUR
AUKNAR
Oíkisstjórnin gaf út um ára-
mótin bráðabirgðalög,
sem leiða til þess að atvinnu-
leysisbætur aukast verulega.
Það var vissulega tímabær!
Utgerðin neitar að taka
við „Drottningunni"
bínu'vélar skipsins í reyiisliu-
siglinigurmi.
Sir Basil bætti við, að túr-
bínu'mar vaeru af heims-
þbkktri gerð og hefðu verið
LONDON. — Brezka skipa-
félagið Cunard hefur neitaff
aff veita viðtöku stórskipinu
„Queen Elizabeth II“, hinu
nýja flaggskipi félagsins,
vegna ýmissa vandamála, sem
upp hafa komið varðandi afl-
vélar skipsins, og einnig telur
félagiff, aff frágangi á farþega-
klefum og ýmsum þægindum
sé áhótavant. Lýsti forsjóri
Cunard, Sir Basil Smallpiece,
þessu yfir á blaðamannafundi
um borff í hinu nýja skipi
fyrir nokkrum dögum.
Sir Basil sagði, aið Cumard
mundi ekki veita „Drottning-
unni við'töku frá skipasmíða-
stöðinni 1. janúar, eins og ráð-
gert heifði verið, en þann dag
átti skipið að koma úr 10 daga
reynsfuisiiglingu til Soutihamp-
ton.
Sir Basiil sagði, að tvær
meginástæður lsegju til þess,
að Cunard hefði tekið þessa
ákivörðuin. Annans vegar væri,
að imnréttiingar á farþeigaiklef-
um væru ek'ki í þeim gæða-
flokiki, sem óskað hetfði verið
eftir, og mangar vikur mundi
taka að breyta þeim í rétt
horf. Hiin ástæðan væri sú, að
upp hefðu komið mörg tækni-
leg vandamál varðandi túr-
settar í mörg önnur skip, en
það myndi taka a. m. k. tvær
vikur að lagfæra þá ágalla,
sem fram hefðu komið í
reynsil'uferðinni.
h»i« HniHs «,,,
Lúxusskipiff „Queen Elizabeth 11“ reyndist ekki hafa nægan
lúxus þegar allt kom til alls.
Carl Ross læt
ur af störfum
hringsins, útgerffarfélagsins
brezka sem flestir fslendingar
þekkja til, lét af störfum hjá
Ross nú um áramótin. Frá
breytingum þessum hjá Ross
var skýrt í Fishing News nú
skömmu fyrir áramót. Mr. A.
S. Alexander, sem veriff hefur
framkvæmdastjóri Ross tekur
viff stöffu Ross sem stjómar-
formaffur.
Carl Ross er nú 76 ára gam-
all. Hann gerðist meðeigandi í
fiskverzlunarfyrirtæki föður
síns, Thomas Ross Dtd., 1919
og varð stjórnarformaður þess
félags 1929. Hófsit hann þá
handa um að byggja upp þetta
fjölskyldufyrirtæki úr litlu í
30 millj. sterlingspunda Stór-
veldi með aðalsetur í Grimsby.
Undir stjóm Oarl Ross hóf
fyrirtækið fiskveiðar jafn-
frarri't fiskverzlun og á síðari
árum hefur Ross-hringurinn
fært út kvíamar í ýmsum öðr-
um greinum.
Fyrir nokkru kom í ljós, að
A. S. Alexander
ýmis fyrirtæki, sem Ross hafði
uppá síðkastið ráðizt í, vom
síður en svo arðbær, og orð-
rómur komst á kreik um að
ágreiningur væri milli Alex-
anders aðalframkvæmdaistjóra
og Carl Ross. Carl Ross hefur
ekkert viljað um þennan orð-
róm segja, en sagði við Fishing
News: „Ég mun að sjálfsögðu
halda áfram að búa í Grims-
by, en ég hefi ekkert frekar
að segj-a í bili.“
Al'exander þverneitaði því
hins vegar opinberlega að á-
greiningur hefði verið með
þeim Ross.
VŒJ I ITfl iN Ú RH IEIMI
ráðstöfun, þar sem atvinnu-
leysisbæturnar hafa ekki ver
ið í samræmi við verðlag í
landinu fram til þessa.
Verulegur fjöldi atvinnu-
lausra er nú í landinu og er
aukning atvinnuleysisbóta
nokkur úrbót fyrir þá. Þó
verður að leggja höfuðáherzlu
á að koma atvinnulífinu um
land allt sem skjótast í gang,
þannig að næg atvinna verði.
Um þessar mundir standa
yfir viðræður milli ríkisstjórn
arinnar, Alþýðusambands ís-
lands og atvinnurekenda um
ráðstafanir til þess og munu
landsmenn allir vonast eftir
jákvæðum niðurstöðum
þeirra viðræðna. Atvinnu-
leysi er ekki hægt að þola á
íslandi í dag og allir verða að
leggjast á eitt um að útrýma
því.