Morgunblaðið - 18.01.1969, Side 12

Morgunblaðið - 18.01.1969, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1969 ■ÚitgiefaTidi H.f. Árvafcur, ÍReykjaviik. Fxiamk,vaemdiastj óri Harailidur Sveinsaon. Œtitstjórai' Sigurður Bjarwason frá VigW. Matbhías Joíhanness'en. Eyjólfur Konráð Jónssíon. Ritstjómarfuilltrúi Þorbjöm GuðmundsBon. Eréttaistjóri Björn Jóhannsson!. Auglýsingaatjóri Áirni Garðan Krisitinsson. Bitstjórn og afgtreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-109. Auglýsingar Aðaistræti 6. Sími 212-4-BO. Ásfcriiftargj'ald fcr. 150.09 á mánuði innanlands. 1 lausaaöiu kr. 19.00 eintakið. AÐGERÐIR í ATVINNUMÁLUM A llir landsmenn munu vona, að það samkomulag, sem undirritað var í gær um að- gerðir í atvinnumálum beri góðan ávöxt og leiði til út- rýmingar atvinnuleysi því, sem nú ríkir í landinu og verði jafnframt heilbrigðum atvinnurekstri til eflingar. Atvinnuleysi hefur farið vax andi síðustu vikur og þess hefur því verið beðið með eftirvæntingu, hvort viðræð- ur ríkisstjórnarinnar, vinnu- veitenda og Alþýðusambands ins leiddu til samkomulags þesscu-a aðila. Kjarni þess samkomu- lags, sem undirritað var í gær er, að ríkisstjórn- in tekur að sér að útvega 300 milljónir króna, sem nota á til atvinnuaukningar. Settar verða á stofn í öllum kjör- dæmum landsins atvinnu- málanefndir og auk þess At- vinnumálanefnd ríkisins en hún mun taka ákvarðanir um ráðstafanir til aukningar at- vinnu og eflingar atvinnulífs ýmist samkvæmt tillögum hinna einstöku atvinnumála- nefnda eða að eigin frum- kvæði. Augljóst er af samkomu- laginu að sérstök áherzla verður lögð á að nýta sem bezt öll þau framleiðslutæki, sem til eru í landinu en enn- fremur er stefnt að uppbygg- ingu atvinnulífsins m.a. með nýjum atvinnugreinum, sem tryggi betur næga atvinnu í landinu en nú er. Þá er því lýst yfir að gera verði sérstakar ráðstafanir til þess að útvega Byggingar- sjóði ríkisins aukið fjármagn, þannig að flýtt verði fram- kvæmdum við þær íbúðir sem nú eru í smíðum og mun það að sjálfsögðu leiða til aukinn- ar atvinnu í byggingariðnað- inum, jafnframt því sem bent er á nauðsyn þess að Byggingasjóður fái nýja tekjustofna. Þær viðræður, sem leiddu til þessa samkomulags snertu einungis atvinnumálin en ekki kjaramálin. Hins vegar ■ er augljóst að meginforsenda þess, að þetta samkomulag leiði til aukinnar atvinnu og batnandi hags atvinnufyrir- tækjanna er sú, að vinnufrið- ur haldist í landinu. Vélstjór- ar á fiskiskipaflotanum hafa hafið verkfall og verkfall yf- irmanna átti að hefjast í gær kvöldi. Sjómenn hafa boðað verkfall næstu daga. Nú verð ur að leggja höfuðáherzlu á, að samningar takist hið skjót- asta við sjómenn, þaanig að bátarnir hefji veiðar og vinna verði næg í frystihús- unum. Jafnframt verður að vænta þess, að allir geri sér grein fyrir því, að atvinna verði næg. Þjóðin þarf á öðru að halda nú en verk- föllum. Með gengisbreytingunni í nóvember var nýr rekstrar- grundvöllur lagður fyrir at- vinnuvegina. Með því sam- komulagi, sem undirritað var í gær er stefnt að því að at- vinnufyrirtækin geti notfært sér til hlýtar þær aðstæður sem gengisbreytingin skap- aði. En til þess að svo megi verða þarf vinnufriður að ríkja. Takist að tryggja hann hefur íslenzka þjóðin öll tækifæri tii að brjótast fram úr þeim erfiðleikum, sem að hafa steðjað að und- anförnu. ALMENNAR HEILSUFARS- RANNSÓKNIR 17'jölmargar og fróðlegar * upplýsingar fólust í grein þeirri, sem Sigurður Samúels- son prófessor ritaði hér í blaðið í gær um almennar heilsufarsrannsóknir og gildi þeirra. Er það mjög góðra gjalda vert, þegar læknar taka sig til og skrifa slíkar greinar, og veita almenningi þar með aukna innsýn í það, sem er að gerast á sviði heil- brigðismála og heilsuvemd- ar. Mun óhætt að fullyrða að slíkum upplýsingum sé mjög vel tekið og að fólk lesi al- mennt mikið greinar um slík efni. Það er líka auðsætt að brýna nauðsyn ber tii þess að milli fólksins og forvígis- manna heilbrigðismálanna sé góð og náin samvinnu. Prófessor Sigurður Samú- elsson segir í upphafi grein- ar sinnar, að aðalmarkmið almennra heilsufarslegra hóp rannsókna sé fjórþætt. í fyrsta lagi leit að sjúkdóm- um og forstigum þeirra. í öðru lagi leit að orsökum sjúkdóma. í þriðja lagi heilsuvernd og lækning sjúk- dóma og í fjórða iagi athug- un á því, hvaða þýðingu uppgötvun sjúkdómsins hef- ur fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið. Frá leikmannssjónarmiði Jan Voboril við stýrið á Hugo. í aftursætinu er ieikarinn George Segal, og var myndin tekin^ eftir komuna til Rómar. Jan og Hugo eru á leið tif Bandaríkjanna ÞEGAR Rússar réðust inn í Tékkóslóvakíu í ágúst sl. ákvað Jan Voborii að taka saman verkfæri sín og flýja land ásamt heitmey sinni í Fiatinum sínum, sem er af árgerð 1926. Hann ók gegnum sex vegatálmanir, sveitir skrið dreka og hermanna, yfir Iandamærin til Austurríkis, og þaðan til Rómar. Voboril bíður nú í Róm eftir vegabréfaáritun til að komast sem innflytjandi tii Bandaríkjanna. En hann setur skilyrði fyrir því að fara: „Ef þið takið við mér, verðið þið að taka við bílnum mínum.“ — „Ég skal raka af mér yfirskeggið,“ segir hann. „Ég skal láta snoðklippa mig. Ég skal standa í uppþvotti til að gneiða farið, en Hugo verður að koma með,“ sagði Voboril um leið og hann klappaði vin- gjarnlega á annað aurbrettið að framan. Hugo er afbökun á spurn- ingunni: „hvað heitir ,hann“, eins og hún hljómar á tékkó- slóvakísku. Þegar Voboril fylgdi for- dæmi hundraða landa sinna og flýði Prag eftir innrásina, neitaði hann að skilja Hugo eftir, þennan rúmlega fertugi bíl, sem íhefur verið honum til mikillar gæfu undanfarin fimm ár. Hann fann Fiatinn ryðgað- an og gleymdan í garði frænda síns. — „frændii hafði hreinlega gleymt honum þarna eftir langvarandi drykkju. Lögreglan hafði lagt hald á öll skjöl varðandi bíl- inn,“ sagði Voboril. Eftir að hann fann bílinn í garðá frænda síns, vann Vo- borii að því að koma honum í samt lag. Fór hann svo til lögreglunnar og óskaði eftir að fá skoðun á bílinn og fá hann skráðan. Neitaði lögregl an að verða við ósk hans vegna þess hve toppurinn væri lélegur, en þá var bíll- inn með stálþaki. Breytti Vo- boril bílnum þá í folæjubíl og fór með hann opinn í skoðun. Gekk þá allt eins og í sögu. Tók Voboril þá að stunda leiguakstur á Fiatinum. Bíllinn vakti strax mikla athygii, og kepptust menn um að fá að láta fara vel um sig í svörtum leðurs'ætunum á leið til Hradcany-hallarininar, eða í smáferð upp í sveit. Svo urðu þeir Voboril og Hugo kvikmyndaleikarar, þegar þeir óku saman í jarðarför í ték'kóselóvakískrii kvikmynd, sem nefnist „Hættuför". Þegar vestrænir ferðamenn tóku að venja komur sínar til Praig voru þeir Voboril og Hugo þegar orðnir frægir, og þótti sjálfsagt að ferðamenn- irnir fengj.u sér ferð um borg- ina með þeim. Þegar leikarar og starfs- menn við bandarísku kvik- myndina „Brúin við Remag- en“, gem gerist í síðari heims- styrjöldinnii komu til Prag, réðu þeir Voboril sem opin- beran bifreiðastjóra sinn. En tveimur mánuðum seinna réð- usit Rússar inn í landið, og kvákmyndaleikararnir flýttu sér á brott. Skildu þeir eftir fjöldann allan af gömlum her- gögnum, sem nota átti við myndatökuna, þar á meðal átta skriðdreka, brynvarðar foifreiðir — og Volboril og Hugo. Voboril gafst >ekki upp. Hann ók nokkrum vestrænum fréttamönnum um borgina, og foauðst til að lána þeim fíuig- mannahjálma til að sitja mieð í aftursætinu. „En loks gafst ég upp. Ég hugsaði með sjálfum mér að Tékkóslóvakía væri fallegt land, en ekki þegar hvergi væri þverfótað fyrir Rúss- um.“ Voboril fyllti benzíngeym- inn, tók saman pjönkur sínar, og hélt áleiðis til landamær- anna. „Það var leitað í Hugo sex sinnum, en svo hleyptu þeir okkur loks 1 gegn,“ sagði Vo- boril. Þegar hann kom til Rómar, Framliald k bls. 8 verður það strax ljóst, að heilsuvemd og möguleikar á lækningu sjúkdóma byggist mjög á því að einstaklingarn- ir láti fylgjast sem bezt með heilsu sinni, en bíði þess ekki að veikindin hafi heltekið þá, áður en þeir leita læknis. Verður það aldrei nógsam- lega brýnt fyrir almenningi að hlusta á raddir lækna um nauðsyn heilsugæzlu og heil- brigðiseftirlits. Ástæða er til þess að fagna því að settar hafa ver- ið á stofn hér á landi rann- sóknarstöðvar, er annast rannsóknir á hjartasjúkdóm- um og krabbameini. En báð- ir þessir sjúkdómar eru ó- hugnanlega algengir hér á landi. Prófessor Sigurður Samúelsson ræðir sérstaklega um hjartasjúkdómana og or- sakir þeirra. í því sambandi gerir hann matarræði íslend- inga mjög að umtalsefni. Varar hann við einstökum fæðutegundum, sem valdi offitu, er aftur hafi í för með sér stóraukna hættu á hjarta sjúkdómum. Enda þótt lækna greini á, eins og aðra lærða menn, er mikill fengur að upplýsingum eins og þeim, sem fram komu í fyrrgreindri Morgun- blaðsgrein prófessor Sigurð- ar Samúelssonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.