Morgunblaðið - 18.01.1969, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAOUR 18. JANÚAR 1969
23
Skagstrendingar fá
bát og reisa frystihús
SKAGASTRÖND 17. janúar. —
Nýr bátur bættist í flota Skag(-
strendinga á morgun. Nýtt út-
gerðarfélag, Skagstrendingur hf.
hefur fest kaoip á Arnari RE, sem
er 233 tonna norskbyggður bátur,
4 ára gamall. Útgerðarfélagið
Skagstrendingur var stofnað
snemma í desember og eru hlut-
hafar rúmlega 100 með 700 þús-
und króna hlutafé. Nú þegar
verður hafizt handa um_að útbúa
skipið á togveiðar, en gert er ráð
fyrir að skipið stundi þær veiðar
eingöngu. Skipstjóri verður hinn
kunni aflamaður Jón Guðjónsson
tfrá Ólafsfirði.
í lok mánaðarins verður hið
nýja frystihús Hólanes hf. tekið
fi notlkun og skapast þar aðstaða
(til að taka við auknu aflamagni.
®r fyrirhugð að rækjuvinnsla
tfari fram í gamla frystihúsinu
(Með þessum tveirrnur stóráföng-
lum, nýju fiskiskipi og nýju
tfrystihúsi munu atvinnuhorfur á
(Skagaströnd stórbatna.
— Fréttaritari.
Eban hafnar sov-
ézku tillögunni
Myndin er tekin af því, sem áður var þilfarið á flugmóðurskipinu bandaríska, „Enterprise",
eftir brunann, sem varð um borð í skipinu og olli manntjóni og gríðarlegum skemmdum.
Skipið var dregið til hafnar í Pearl Harbour og verður unnið að viðgerð þar.
Tel AviV 17. jan. — NTB
ABBA EBAN, utanríkisráðherra
fsraels, hafnaði í dag tillögu
Sovétríkjanna um það, hvemig
— Norræna húsið
Framhald af bls. 2
Fjögur ung dönsk skáld munu
koma til landsms í þessu tiletfni,
en þau eru: Klaus Rifbjerg, Ing-
er Christensen, Jörgen Gustava
Brandt og Benny Andersen.
Skemmtikvöldin verða í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 22.
janúar og fimmtudaginn 23. jan.
og hefst dagskráin kl. 20.20
stundvíslega.
Frá 1. janúar sl. var frú
Else Mia Sigurðsson ráðin
bókavörður við bókasafn Nor-
ræna hússins, en hún vann áður
við Borgarbókasafnið og Hag-
stofu íslands. Mun hún sjá um
allt er viðkemur .bókasafninu, en
þess má geta að nú þegar hafa
verið pantaðar um 20 þúsund
bækur til safnsins.
í vetur mun Norræna húsið fá
hingað til la-nds marga kunna
fræðimenn og sérfræðinga frá
Norðurlöndunum til þess að
flytja fyrirlestra um margvísleg
mál, svo sem atvinnumál og bók-
menntir. Meðal fyrirlesara, sem
koma eru: Per Olaf Sundemann
rithöifiundiur frá Svíþjóð, Jens
Kruse rithöfundiur frá Danmörku
og Georg Borgström matvæl'a-
fræðingur frá Svíþjóð. Fyrr-
greindir fyrirlesarar m-unu vænt-
anlega koma í febúar, marz og
apríl. I>á mun finnski gagnrýn-
andinn Kaj Laitinen kom-a hing-
að í febrúarbyrjun og flytja er-
indi í Norræna húsinu.
1 marz verður námsikeið í Nor-
ræna húsinu á veigum Hins ís-
lenzka prentarafélags, sem mun
fá fræðimann á svið prentlistar
til námskeiðsins.
Ýmislegt fleira er á döf-
inni h'já Norræna húsinu, svo
sem kvikmyndasýningar, fræðslu
bvöld o. fl.
í júní nk. verður tónlistarhá-
tíð í Norræna húsinu, en auk
starfs á vegum stofnunarinnar
sjálfrar hafa ýmrs félög afnot af
salarkynnum hússins. Má þar t-d.
nefna Kammermúsíkklúbbinn og
Kvikmyndaklúbbinn.
Bókasafni Norræna hússins
hefur nýlega borizt góð bóka-
gjöf frá bókaforlaginu Gyldendal
í Danmörku.
Þess má líka geta að í bóka-
safninu verður sérstakt hljóm-
plötusafn til útlána eins og bæk-
umar í safninu.
Eins og fyrr segir hefur kaffi-
stotfa Norræna hússins verið
ágætlega sótit, en auk þess að þar
er hægt að fá katffi og fyrirtaks
meðlæti, liggja þar frammi fyrir
gesti um 30 dagblöð frá Norður-
löndum og það eru ávallt ný
blöð á boðstólum, því að þau
koma flugleiðis til landsins.
komið verði á friði miili ísracls
og Araba. Ráðherrann sagði, að
tillagan miðaði að þvi að brjóta
tsraelsríki á bak aftur smátt og
smátt.
í svari Bandaríkjanma við til-
löigiu Sovétmanna er bent á veik-
ar hliðar 'herunar og að margt sé
Ebain minniti á, hvernig ástandið
hetfði verið fyrir júnísityirjöldina
1967 og siaigði að í samræmi við
sovézku tillöguna hefðu arabísk-
ar herdeildir þá verið mieð fail-
byssur og stríðsvagna skammt
fyrir utan Tel Aivirv. Ebam bvaðst
mótfaiMi'nn því, að sovézba tilliaig-
ain yrði notuð sem gru-n-divöl'liux á
saimingafundum sáttasemjara
Sameiinuðu þjóðainna, Guminars
Jarring, sem hefjast að nýju í
næsta rrnáinuði.
Callas vill ekki
hitta Onassis
París 17. janúar. AP.
MARIA CALLAS söngkona
hefur tjáð Aristoteles Onassis
| fornum ástvini sínum þá ó-
hagganlegu skoðun sína, að
' hann skuli ekki ómaka sig til
) að reyna að hafa samband við
i sig framar.
Onassis er nú staddur í
París og hefur hitt Callas
nokkrum sinnum á heimili
| sameiginlegra vina þeirra. Á
, síðasta fundi þeirra mun
Callas hafa leitt Onassis fyrir
) sjónir, að vináttufundir með
| þeim væru héðan í frá óhugs-
i andi.
Rumor hættir sem aðalritari
kristilega demókrataflokksins á Ítalíu
Rómaborg 17. jan. AP.
FORSÆTISRÁÐHERRA Ítalíu,
Mariano Rumor hefur sagt af
sér sem aðalritari kristilega demó
krataflokksins. Þetta gerðist á
stormasömum fundi flokksins í
dag, þar sem öldur risu hátt
milli Rumors og Aldo Moro, fyrr
verandi forsætisráðherra.
Flokkurinn virðist nú klofinn
í tvær fylkingar.þá sem styður
Rumor og svo hina, sem fylgir
Moro að málum. Rumor kvaðst
láta af starfi aðalritara, þar
sem sú skoðun væri alls ráðandi,
að það væri ósamræmanlegt að
gegna báðum embættunum, for-
sætisráðherraembætti og starfi
aðalritara.
Bygging þurrkvíar
í Sundahöfn rædd
Á FUNDI, sem haldinn var í
hafnarstjórn Reykjavíkur ný-
lega, var meðal annars rætt um
áætlunargerð vegna þurrkvíar í
Sundahöfn, en þar er gert ráð
fyrir að aðstaða verði til skipa-
bygginga í framtíðinni.
Mbl. spurðist fyrir um það
hjá Gunnari B. Guðmundssyni
hafnarstjóra hvað þessu máli liði.
Kvað hann það lengi hafa verið
á dagskrá og hefðu umræðumar
nú m.a. verið tengdar þeim um-
ræðum, sem orðið hafa undan-
farið um skipasmíðar í landinu
og atvinnuútlit hjá járniðnaðar-
mönnum. Kvað hann í athugun
hvaða fjárhagsgrundvöllur væri
nú til þessara framkvæmda, en
fyrir gengisfellingu var áætlaður
kostnaður við þetta verk um
100 milljónir króna.
Hvatning Johnsons:
Könnun geimsins
skuli haldið áffram
Washington 17. janúar. NTB.
JOHNSON Bandaríkjaforseti
(
„Dyrlingurmn“
olli brana
9LOKKVILIÐIÐ var kvatt að i
húsi við Rauðalæk á ellefta 1
tímanum í gærkvöldi, en þar*
hafði kviknað í út frá þvotta-
potti í kjallara. Mun húsfrúini
hafa brugið sér frá til að horfa j
á Dýrlinginn í sjónvarpinu, en '
á meðan kviknaði í þvotta- *
pottinum. Var eldurinn fljót-l
slökktur og urðu skemmdir i
litlar.
hvatti í dag í bréfi til þingsins
til að Bandaríkjamenn héldu
ótrauðir áfram könnun liimin"
geimsins bæði með því að senda
mönnuð og ómönnuð geimför upp
í geiminn til rannsókna.
Johnson minnti á að bandarísk
ir geimfarar hafi farið í átján
geimferðir og verið á lofti í sam
tals 3.215 klukkustundir. Sovét-
ríkin hafa sent á loft tíu mön-nuð
geimför og samanlagt hafa menn
verið úti í geimnum í 3.846 klst.
Johnson sagði að ferð Apollo
8 í fyrra mánuði hefði fært Banda
'ríkin nær því takmarki en áðiur;
að senda menn til tunglsins og
Bandaríkin væru sterkari og rík
ari en áður vegna afreka þeirra
í geimvísindum.
—B ATNANDIVEÐUR
Framhald af bls. 24.
inn eðlilegt í gær, en þá hafði
það alveg legið niðri í tvo daga.
Var flogið til allra staða á áætl-
un nema ísafjarðar og Patreks-
fjarðar, en þangjað hefur ekki
verið hægt að fljúga á aðra viku.
Vélin, sem lagði atf stað tdl Norð-
fjarðar sveimaði nokkuð lengi
ytfir flugvellin.um þar, en gat
ekki leratt vegna snjókomu og
sneri við tfil Reykjavíkur.
í óveðrinu síðustu daga hefur
lítt verið hægt að kanna færð
á vegum, en í gær var veður
víðast hvar sæmilegt og unnt að
kanna færð. Er hún góð um Suð
urland og Snæfellsnes og fært er
alltf vestfur í Búðardal og fór
áætliunarbifreið þangað í gær.
Vestan Búðardals er ófært og eru
allir vegir á norðanverðum Vest-
fjörðum lokaðir nema í nágrenni
ísafjarðar. Leiðin norður í land
var fær í gær, en í gærkvöld
var farið að snjóa á sunnan-
verðri Holtavörðuheiði og hætta
talin á að vegurinn kynni að lok
astf. Snjór lokar vegi í Langadal,
en um Svínvetningabraiut er fært
til Akureyrar og þaðan út
Svalbarðsströnd, en þar fyrir
aust-an eru allir v-egir lokaðir,
Snjómokstur hófst á nokkrum
leiðum á Austiurlandi og síðdegis
í gær var orðið fært í nágrenni
Egilsstaða og þaðan til Reyðar
fjarðar og Eskifjarðar og frá
Reyðarfirði til Stöðvarfjarðar
Einnig var Lónsheiði mokuð og
var orðið fært frá Höfn i Horna-
firði á Djúpavog.
Fónotraðk
afsakað
Stokkhólmi, 16. jan. — NTB
SÆNSKA utanríkisráðuneytið
hefur látið í ljós einlæga hryggð
vegna atburðar sem varð
sænska sjónvarpinu nýlega, þeg
ar sjónvarpsmaður einn notaði
bandaríska fánann sem fóta-
þurrku í sjónvarpsþætti ein-
um.
Bandaríska sendiráðið í Stokk
hólmi bar fram harðorð mót
mæli vegna þessa hinn 9. jan. og
voru þau aflhent þá strax, eða
daginn eftir að þátturinn var
sýndur í sænska sjónvarpinu.
- GEIMFARAR
Framhald af bls. 11
vísindamenn, vinir og blaða-
menn biðu þeirra.
Soyuz 5“, þar sem Boris Vol-
ynov er aleinn um borð, eftir
að Jelisejev og Krunov höfðu
skipt um „farkost“ úti í himin-
geimnum í gær, er enn á braut
umhverfis jörðu. Segir Tass að
öll tæki um borð starfi með eðli-
legum hættL
Geimfararnir fjórir sváfu allir
í átta klst. í nótt og hvíldust fyr-
ir það, sem gerðist í morgun.
Tass greindi í dag í fyrsta
sinn allnáið frá því, hvernig bún
ingar sovézku geimfaranna, sem
fóru á milli geimskipanna á
fimmtudag, hefðu verið. Búning-
arnir eru sagðir algjörlega „sjálf
■stfæðir", þ.e. að enga taug þarf
til þess að flytja þeim súrefni f-rá
geimskipinu. Eru þeir því „frjáls
ir ferða sinna“, ef svo má segja.
Tass sagði, að í skálmum bún-
inganna væru súrefnistækin,
hitatæki og loftræstikerfi, sem
hægt væri að blása með heitu
og köldu lofti í búninginn að
vild.
Lýsing Tass á búningum þess-
um sýnir ljóslega, að geimfar-
arnir geta hreyft sig úti í geimn-
um án þess að vera bundnir af
súrefnisslöngu við geimfarið.
Hins vegar sagði Tass ekki, hve
lengi geimfarar gætu verið ut-
an geimfars í þessum búningum.
,,Soyus“-áætluninni hefur ver
ið lýst sem skrefi í þá átt að
byggja geimstöð, sem verði á
braut umhverfis jörðu. Sovézkur
verkfræðingur ritaði í Pravda 1
dag. að sovézkir geimvisinda-
menn teldu það „miklu mun skyn
samlegra“ að geimfarar atfhöfn-
uðu sig frá geimstöð á braut um-
hverfis jörðu fremur en að
skjóta geimförum upp frá jörðu í
hvert sinn.
Pravda sagði í dag, að slíkar
geimstöðvar mundu verða
„mikilsverðar“ varðandi þjálfun
geimfara til ferða til annarra
plánetna, sem kynnu að taka
mörg ár.
Almennt er litið svo á, að
„Soyus-áætlunin ,og lendingin í
dag, sé nýr sigur fyrir sovézk
geimvisindi. Aldrei áður hefur
geimfari lent aftur á jörðu niðri i
öðru geim.skipi en því, sem flutti
hann út í geiminn.