Morgunblaðið - 18.01.1969, Page 24

Morgunblaðið - 18.01.1969, Page 24
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGR EIÐSLA* SKRIFSTOFA 5ÍMI LAUGARDAGUK 18. JANUAR 1969 17700 “l1S22a*lr ALMENNAR TRYGGINGAR P Yfir 30 Eyjabátar á sjó í gær — Afli upp í 10 tonn á línu UM 30 Eyjabátar komust á sjó í gær, en að undanförnu hefur verið bræluskratti og ekki gefið á sjó. Nokkrir Eyjabátar lágu þó tóti á meðan óveðrið gekk yfir, en þeir lönduðu litlum afla í gær. Hofís sóst víða í gær HAFÍS gást allvíða frá landi í gær og barst Landhelgisgæzlunni tilkynning frá Kópaskeri um að þaðan sæist til hafísjaka, sem italið var að gætu verið hættu- legir skipum. Þá var Veður- stofunni tilkynning um að ísjak ar sæjust frá Grímsey og frá Hrauni á Skaga, og voru þeir þar á reki að landi og nokkrir komnir á fjörur. Frá Látravík sást móta fyrir ísbreiðu og við Galtarvita hafði íshroða borið upp á fjörur. Einn- ig sást ís frá Ingjaldssandi, og frá Svalvogum, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar var tilkynnt að ísjakar sæjust á siglingaleið. í gær var logn í Vestmanna- eyjum en ylgja allt um kring Eyjar. Bregður svo við stundum í norðaustanátt að Eyjarnar verða á milli vinda. Eyjabátar róa nú með línu, net og troll. Afli var misjafn hjá línubátum t gær, en komst allt upp í 10 tonn, sem er mjög gott. Neta og trollbátar komu ekki að í gær, en þeir voru í hálfgerðri brælu á miðunum fyrir austan Eyjar. (Ef gefur á sjó í dag verður þar næstsiðasti róður hjá línubátum, fyrir verkfall, ef ekki semst áður. Mestur hluti bátaflotans í Vest- mannaeyjum er nú klár á veiðar eða við það að vera klár, en menn bíða nú og sjá hvað setur í samningamálum. ÞÝZKI togarinn Dortmund kom til Reykjavíkur í gærmorgun með þrjá sjómenn, sem höfðu slasazt er skipið fékk á sig brot- sjó. Voru þeir fluttir í Landa- kotsspitala, en þar var gert að meiðslum þeirra, sem reyndust ekki alvarleg. Fóru tveir þeirra aftur um borð í togarann, en einn liggur í Landakotsspítala. Enffinn sáttn- fundur boðaður NÝR sáttafundur hefur ekki verið boðaður í deilu sjómanna og útgerðarmanna að því er Torfi Hjartarson, sáttasemjari ríkis- ins tjáði Mbl. í gær. Á mi'ðrnætti í nótt átti að hefj- ast verkfall Skipstjóra- stýri- mannafélagsins Öldunnar í Reykjavík, Kára í Hafnarfirði og Vísis í Keflavík. Batnandi veður: Innanlandsflug hafið aftur eftir óveðrið — Fcerð á vegum könnuð í gœr — sagði Bjarni Benediktsson, forsœtis- ráðherra í gcer — Forustumenn verka- lýðs og vinnuveitenda láta í Ijós von um að ekki komi til vinnustöðvunar Þ E G A R samkomulagið um aðgerðir í atvinnumál- um hafði verið undirritað í Alþingishúsinu í gær sögðu forsvarsmenn aðila, Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra, Benedikt Gröndal, formaður Vinnu- veitendasambands íslands og Hannibal Valdimars- son, forseti ASÍ, nokkur orð. Þeir aðilar, sem að þessu samkomulagi standa eru: Ríkisstjórnin, Alþýðusam- hand íslands, Vinnuveit- endasamband íslands, Vinnumálasamband sam- vinnufélaganna, Félag ísl. iðnrekenda, Verzlunarráð íslands og Landssamband ísl. útvegsmanna. Hér fara á eftir ummæli hinna þriggja ofangreindu aðila: Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra: „Ég vil þakka þann anda skilnings og góð- vildar, sem hefur leitt til þessa samkomulags og óska þess af heilum hug, að það verði íslenzku þjóðinni til góðs“. Hannibal Valdimarsson, for- seti ASÍ: „Ég þakka það að þetta samkomulag hefur náðst, þótt ég harmi það hve langan tíma það hefur tekið, en atvinnuástand farið hríð- versnandi á meðan. Þessar við ræður hafa snúizt um at- vinnumál en ekki kaupgjalds mál. Ég vona samt að þetta samkomulag verði til þess að milda andrúmsloftið þegar kemur til viðræðna um þau mál. Alþýðusambandið óskar þess að stefna þess í launamál- um nái fram að ganga án þess að til vinnustöðvunar þurfi að koma“. Benedikt Gröndal, formað- ur Vinnuveitendasambands íslands: „Við vinnuveitendur erum ánægðir með þennan fyrsta áfanga og vonum að haldið verði áfram í jafn góð- um anda. Meginatriði er að atvinnuvegirnir hafi skilyrði til að starfa áfram og að ekki komi til stöðvunar og þannig verði að þeim búið að þeir verði samkeppnisfærir“. Bjarni Hannibal Benedikt „Vona af heilum hugað samkomu- lagið verði þjóðinni til góðs“ VEÐUR fór batnandi um allt land í gær og hófst innanlands- flug á ný eftir tveggja daga stöðvun vegna óveðurs. Þá varð og aftur ferðafært á Iandi og hægt var að kanna færð á veg- um. í gærmorgun var talin hætta á því að gríþa yrði til rafmagns- skömmtunar á orkuveitusvæði Sogsvirkjunarinnar vegna mik- illar krapamyndunar, en er á daginn leið rættist úr og kom ekki til skömmtunar. Samkvæmt upplýsingum Veð- urstofunnar eru horfur á að áttin verði austlægari um norðan og vestanvert landið og mildara loft vinni á. Hefur veður mjög gengið niður og komst veður- hæðin í gær mest í 7 vindstig á Vestfjörðum. Kaldast varð í Æðey, 10 stiga frost en á Kamba- nes'i og Fagurhólsmýri komst hit- inn í 3 stig. Áætlunarflug var nokkurn veg Framliald á t>ls. 23 Inflúensan virðist í rénun í Reykjavík MBL. hafði samband við Braga Ólafsson aðstoðarborgarlækni í gær og spurði um inflúensuna og sagði hann að svo virtist ,sem hún væri að byrja að réna. Virð- ist kuldakastið ekki hafa haft áhrif á útbreiðslu hennar enn sem komið er. Á Akureyri er lítið um inflú- ensu og eru fjarvistir í skólum síður meiri en venja er um þetta leyti. Var t.d. aðeins um 5% nemendanna fjarverandi í Gagn- fræðaskólanum í byrjun vikunn- ar-, Á þeim stöðum, sem Mbl. hefur haft fregnir af úti á landi, sting- ur inflúensa sér niður, án þess að hægt sé að tala um faraldur. Á Raufarhöfn hefur verið all- mikið um kvef og veikindi, en fólk heldur nú frekar að ekki sé um Hong Kong inflúensuna að ræða. Brutust 45 mín- útna leið — og kól á höndum, VOPNAFIRÐI 17. janúar. — Alla þessa viku hefur verið stór- hrið hér og engar samgöngur hingað á aðra viku, hvorki á landi, sjó né í lofti. Hefur frost verið mikið og á sunnudag, er bíl tókst að brjót- ast frá Bakkafirði til Vopna- fjarðar var hann 7 tíma á leið- inni, en venjulega er þessi leið faTÍn á þremur stundarfjórðung- um. Þurftu þeir, sem í bilnum á 7 klst. fófunt og andliti voru oft að fara út og ýta og kól suma af mönmunum til nokkurs skaða á höndum, fótum og í and- liti. Vegna veðurofsans féll skóli niður í tvo daga. Nýlega var komið með oliu og fóðurbæti svo að ég ætla að Vopnfirðingar verði sæmilega settir að þessu leyti þótt hafís leggist að landi. — Fréttaritari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.