Morgunblaðið - 26.01.1969, Page 1
32 síður og Lesbók
21. tbl. 56. árg. SUNNUDAGUR 26. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Ný stjórn í Saigon"
— er fyrsta krafa Viet Cong í París
París 25. janúar, NTB, AP.
SAMNINGANEFNDIRNAR í Vi-
etnamdeilunni komu saman til
fundar í París í dag og var nú
í fyrsta sinni á dagskrá að ræða
um eiginlegan frið eftir margra
mánaða stapp um lögun fundar-
borða og önnur slík formsatriði.
Ailir aðalsamningamennirnir, er
hlut eiga að máli, mættu til
fundarins, og mætti Henry
Öryggisverðir, sem gættu
bifreiðar Nixons Bandaríkja-
forseta, beygja sig fyrir stein
um og bjórdósum, sem að þeim
var fleygt er Nixon ók um
Pennsylvania Avenue til
Hvíta hússins eftir að hafa
svarið embættiseið sinn sl.
mánudag. Á myndinni hefur
einn öryggisvarðanna stokkið
upp á afturhluta bílsins.
„Palach dó fyrir föðurland, sann-
leika, frelsi og lýöræöi"
sagði rektor Karlsháskóla við útför hans í gœr
„JAN Palach lét lífið vegna
þess að hann elskaði föður-
land sitt, sannleikann, frelsi
og lýðræði“, sagði rektor
Karlsháskólans í Prag, dr.
Oldrich Stary, við útför Pal-
achs, sem brenndi sig til
hana í sl. viku, til þess að
mótmæla hernámi Sovétríkj-
anna. Palach var 21 árs að
aldri og stundaði heimspeki-
nám við háskólann. „Jan
Palach færði fórn að altari
þjóðarinnar, sem mun standa
skrifuð um alla eilífð, ekki
aðeins í huga hvers einasta
heiðarlegs Tékka og Slóvaka,
heldur einnig í hugum millj-
óna manna um heim allan“,
sagði rektor. Ummæli hans
voru eftir honum höfð í út-
varpinu í Prag.
Dr. Oldrich Stary fór fyrir
síðasta heiðursverðinum vfð
kistu Palachs, er útför hans
hófst kl. 11.45 að ísl. tíma. Út-
varpið í Prag sagði, að opiniber-
ir gestix hefðu tekið að koma til
háskólagarðsins skömmu áður en
athöfnin hófst. Kl. 11 var hlið-
inu að háskólagarðinum lokað,
en allt fram tij þeirrar stundar
héldu Tékkóslóvakar áfram a'ð
ganga framlhjá kistu Palachs til
þess að votta honum virðingu
sína.
Kista Palaohs var borin til
heimspekideildar skólans, þar
sem hann stundaði nám, og
sungu viðstaddir þar þjóðsöng
Tékkóslóvakíu. Dr. Stary minnt-
ist fyrstur Palachs, en aðrir, sem
til máls tóku voru menntamála-
ráðherra landsins, prófessor
Vilibald Vezdicek, stúdenitaleið-
toginn Michael Dymacek og
prófessor Jaroslav Kladiva, for-
seti heimspekideildar háskólans.
Útvarpið í Prag sagði, að móð-
ir Palach, frú Libuse Palaohova,
hafi komið að kistu Palachs
ásamt bróður hans kömmu fyr-
ir athöfnina.
Brezka útvarpið skýrði frá
því, að sorg setti svip sinn á út-
förina, og allt færi friðsamlega
fram. Gengju stúdenitar fram
fyrir skjöldu að halda röð og
reglu, en menn óttast mjög að
fari eitthvað úrskeiðis grípi
Sovétherinn til sinna ráða.
Um 10 vestrænum fréttamönn-
um var vísað úr landi í Tékkó-
slóvakíu í gær, þannig að þeir
gátu ekki verið viðstaddir út-
förina.
Jan Palach verður jarðsettur
í Olsany kirkjugarði, þar sem
helztu mikilmenni Tékka og
Slóvaka hvíia, og verður sú at-
höfn einkaathöfn og fáir við-
staddir.
Tékkneski herinn hefur feng-
ið fyrirskipanir um að vera reiðu
búinn til að skerast í leikinn
með stuttum fyrirvara, ef til
óeirða kemur við útförina. Búizt
Stiórnmálasam
band við USA?
Beirut, Líbanon 25. jan. AP'
BLAÐIÐ A1 Anwer hér í I
borg segir í dag að Egyptar |
hafi ákveðið að taka aftur upp ,
stjórnmálasamband við Banda
ríkin. Sagði blaðið, að egypzka |
stjórnin mundi taka upp j
stjórnmálasambandið 15. f#-
brúar nk., og að stjórnin hafi
tilkynnt um þessa ákvörðun I
sína öllum sendiherrum Araba |
ríkjanna í Kaíró. Engar frek-
ari skýringar fylgja fregn þess ]
ari.
er við að rösklega eitt hundrað
þúsund manns fylgi Jan Paiach
til grafar.
Sambandsstjórn Tékkósló-
vakíu boðaði og í dag, að hún
hefði gefið innanríkisrá'ðuneyti
og varnarmálaráðuneyti landsins
sérstaka heimild til að kveða
niður allar hugsanlegar and-
sovézkar mótmælaaðgerðir. I»á
hafa yfirvöld landsins gert ýms-
ar aðrar ráðstafanir síðustu
daga og hefur lögregla verið
efld, sérstaklega í Prag, en einn-
ig í ýmsum stærri borgum
Tékkóslóvakíu.
Alexander Dubcek, flokksleið-
togi, sem er um þessar mundir
í Bratislava og sjúkur af inflú-
ensu, hefur bréflega lýst ein-
dregnum stuðningi við allar þær
öryggisráðstafanir, sem bóðaðar
eru. Hann kvaðst og skora á
borgara landsins að koma fram
af stillingu og virðuleik við út-
Jan Palach
förina og nota hana ekki sem
tilefni til óspekta.
Sex önnur ungmenni hafa
gert tilraun til sjálfsmorðs með
því að hella yfir sig benzíni og
kveikja síðan í, undanfarna
daga, en lögreglan segir að í
engu þessara sex tilvika hafi
pólitískar ástæður ráðið.
Italía logaði í mót-
mælagöngum í gær
Stúdentar um gervallt landið
minntust Jans Palaeh
Napóli, Rómaiborg 25. jan.
ÍTALÍA logaði í óeirðum og
mótmælaaðgerðum alla aðfara-
nótt laugardags og fram eftir
degi. í Napoli kom upp mikill
eldur við háskóla borgarinnar,
þegar um fimm hundruð stúd-
entum lenti saman. Annars veg-
ar voru hægri sinnaðir, sem
hugðust mótmæla innrás Var-
sjárbandalagsríkjanna á Tékkó-
slóvakíu, og minnast útfarar
Jans Palach, en hins vegar voru
vinstri sinnað'r hópar. Vörpuðu
fylkingarnar bensínsprengjum
hvor á aðra og að sögn AP
fréttastofunnar eru fjölmargir
sárir.
í Rómaborg gengu um eitt
þúsund stúdentar úr fimm skól-
um í áttina til sovézka sendi-
ráðsins og báru spjöld þar sem
á var m. a. letrað „lengi lifi
frjáls Prag“ og „á Ítalíu deilum
við, í Prag deyja þeir“. Lögregl-
an stöðvaði gönguna, áður en
'hún komst að sendiráðinu.
Svipaðar mótmælagöngur voru
farnar í flestum öðrum borgum
á Ítalíu á laugardag og á Sikiley
bjuggu stúdentar um sig í há-
skóla eyjarinnar til að mótmæla
Framhald á bls. 2
Cabot Lodge, sendiherra, ný-
skipaður aðalfulltrúi Bandaríkj-
anna nú í fyrsta sinn.
Áður en fundurinn hófst
gafst blaðamönnum kostur á að
hitta samningamenn og Ijós-
myndarar mynduðu í gríð og
erg. Fyrstur til að ganga í fund-
arsalinn, þar sem hið gríðar-
stóra grænklædda samningaborð
er, var Pham Dang Lam, aðal-
fulltrúi Saigonstjórnar. Henry
Cabot Lodge kom strax á eftir,
siðan aðalsamningamaður Hanoi-
stjórnar, Xuan Thuy, en síðastir
mættu fulltrúar Þjóðfrelsisfylk-
ingar Viet Cong. Tran Bu Kiem,
„utanrí'kisráðherra" fylkingar-
innar fór fyrir þeim. Skrítið bros
færðist á andlit Lam, sendiherra
Saigonstjórnar er hann sá Kiem,
en þeir voru eitt sinn skólafé-
lagar í S-Vietnam.
Áður en fundurinn hófst sagði
Henry Cabot Lodige að hann
hefði í hyggju að leggja til að
ræða um „friðlýsta" svæðið á
mörkum N- og S-Vietnam, en
Bandaríkjamönnum hefur löng-
um verið það mál ofarlega í
huga.
Fyrstur á mælendaskrá á fund
inum var Kiem, og flutti hann
langa ræðu, eða um 5000 orð.
Hann sagði að í S-Vietnam væri
„að þróast öflug hreyfing meðal
almennings“ og kröfur fari vax-
andi um að stjórn Nguyen Van
Thieu, forseta, og Nguyen Cao
Ky, varaforseta, verði steypt af
stóli. Hann kvað hreyfingu sína
krefjast „myndunar ríkisstjórn-
ar svo friður megi ikomast á,
stjórn, sem hefði góðan vilja til
þess að taka þátt í þessari samn-
inigaráðstefnu.“
Þá hefur NTB það eftir Kiem,
að hann hafi óskað eftir sam-
steypustjórn á breiðum grund-
velli í Saigon með það fyrir
augum að frjálsar kosningar
gætu farið fram.
AP segir, að upphaf viðræðn-
anna bendi til þess, að aðilar
séu greinilega ekki á eitt sáttir
um hversu haga skuli viðræðun-
um. Bandarikjamenn og banda-
menn þeirra í Saigon hafa hern-
aðarmálin sjálf efst á blaði, en
ljóst er að stjórnmálalega hliðin
er efst í hugum N-Vietnama og
„Þjóðfrelsisfylkingarinnar.*1 —
Henry Cabot Lodge átti að tala
siðar á fundinum í dag.
Um hálfri kluikkustundu áður
en samninganefndirnar komu til
fundarins, kom til árekstra milli
tveggja hópa S-Vietnama, sem
saman voru komnir fyrir utan
bygginguna. f öðrum hópnum
voru stuðningsmenn Viet Cong
en í hinum stuðningsmenn Sáig-
onstjórnar. Töldu hóparnir hvor
um 100 manns hvor. Veifuðu
þeir fánum, hrópuðu slagorð
hvor að öðrum, og endaði þetta
með hrindingum og pústrum.
Um 100 franskir lögreglumenn
létu þá til skarar skríða og komu
Vietnömunum á brott frá bygg-
ingunni. Ekki er vitað til að
meiðsli hafi orðið á mönnum.
Síðustu fréttir:
Norður-Vietnamar skoruðu i
dag á Bandaríkjamenn að flytja
brott her sinn frá Suður-Vietnam
og láta Vietnama sjálfa um að
leysa sín mál. Það var aðal-
fulltrúi Hanoi-sendinefndarinnar
á samningafundinum í París
Xuan Thuy sem sagði þetta þar
í dag.