Morgunblaðið - 26.01.1969, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1969.
7
Soffa urtubörn á útskerium
sjór flœðir yfir,
Nú erum við aftur komin á
gamalkunnar slóðir við austan
verðan Hvalfjörð, og er nú hug
mynd okkar að bregða okkur
niður I f jöru og skyggnast ofur-
lítið um meðal dýranna í fjör-
unni einkanlega selanna. Fjar-
an þarna er rík af lífi hvers-
konar. Hún er hrein af allri
mengun, dýrin eru þarna í para
dís, fjarri olíu og annarri meng
un af mannavöldum.
Við leggjum leið okkar þvert
yfir Árdalinn, förum yfir ána
hjá Hólmasundi, höldum upp
melinn, neðanvert við Arna*-
nef, og þar komum við upp á
Mjósund, fylgjum kindaslóðum
niður mel og móhellu alla leið
ofan í f jöru.
Þetta er raunar sama leið og
mín fyrsta leið lá ofan 1 þessa
fjöru, og er sannarlega saga að
segja frá því enda 34 ár lið-
in síðan. Ég var ekki orðinn 11
ára, þegar faðir minn tók mig
með sér til að skoða þessa
fjöru, sem hann hafði í bernsku
rekið fé upp úr með Ólöfu
frænku sinni vegna flóðahættu
á skerjunum. Himinninn var
heiður og blár, einstaka blik-
ur sáust þó hátt á lofti, klósig-
ar, en þeir vita á landsynning,
en nú voru veðurleifar og al'lt
stillt og bjart.
Þegar við komum upp á Mjó
sundin, sáum við eina 12 seli
liggja á Langaskeri. Rólega
fikruðum við okkur niður
kindagötuna varlega yfir mó-
helluna, sem gat verið vara-
söm einkum fyrir litla fætur,
og alla leið ofan í fjöru.
Selirnir byltu sér þunglama-
lega og hægt í átt til sjávar.
Þeim var ekkert um heimsókn
okkar gefið. Síðan sáum við þá
stinga upp kollunum rétt utan
við. Við flautuðum, veifuðum
rauðum duulm, tóbaksklútum en
þeir létu ekki blekkjast og
héldu sig úti, en þó ekki all-
fjarri, því að það er mála sann
ast, að selir eru einhverjar for-
vitnustu skepnur jarðarinnar.
Og nú gerðist hið dularfulla,
þegar við héldum að einhver
sjómaður væri að kalla á hjálp.
Ofanvert við Langasker, á
leið okkar í átt að Hvaisteini,
en það sker nefnist svo, af því
það líkist mest stórhveli, sem
marar þarna £ hálfu kafi, —
heyrðum við allt í einu ang-
istarvein eins og það kæmi
úr mannsbarka. „Mamma
mamma“, langdregið og vælandi
hrópandi, ámátlegt. Það setti að
okkur hroll okkur rann kalt
vatn milli skinns og hörunds,
og við hófum að svipast um í
flæðarmálinu eftir þessum sjó-
rekna sjómanni, sem við héld-
um vera, en sáum auðvitað eng
an, — því að seint um siðir
rann upp fyrir okkur ljós, að
hér var bara um að ræða einn
glaðhlakkalegan sel, syndandi
rétt fyrir utan, — að gera góð-
látlegt grín að okkur, borga
fyrir það, að við skyldum rjúfa
friðsæld þeirra upp á Langa-
skeri.
En enn þann dag í dag, eftir
34 ár, er okkur þetta ógnvekj-
andi hljóð í minni.
Auðvitað kynti það líka und-
ir ímyndunaraflið, að við þekkt
um söguna um selina, þessa
hunda eða hermenn Faraós,
sem urðu að selum, þegar
Rauðahafið lokaðist yfir þá í
Mósesdögum.
Selir eru annars merkilegrar
náttúru. Þeir eru svo nátengd-
ir þjóðtrúnni að undrun sætir.
Þjóðsagan segir, að á mið-
nætti á Jónsmessunótt eigi á-
lög þeirra að falla af þeim, og
þeir að ganga á land upp, sem
egypskir hermenn. Margar
Sofa urtu börn
á útskerjum,
og enginn þau svæfir.
veltur sjór yfir,
Sofa kisubörn
á kerhlemmum,
murra og mala,
og enginn þau svæfir.
Sofa Grýlubörn
á grjóthólum,
urra og ýla,
og enginn þau svæfir.
Sofa bola börn
á báshellum,
moð fyrir múla,
og enginn þau svæfir.
Sofa manna börn
í mjúku rúmi,
bía og kveða,
og babba þau svæfir.
sagnir eru um slíka viðburði
í íslenzkum þjóðsögum, en auð-
vitað er það ekki í tízku hjá
nútímamönnum að leggja trú á
slík hindurvitni.
Allt um það, skal nú tilfærð
ein selasaga, sem að þessu lýt-
ur.
Við yngstu bræðurnir tveir,
Björn og ég lögðum það í vana
okkar í gamla daga, sem
við köllum svo, að vaka
Jónsmessunótt, þessa örlaganótt
þegar selir ganga á land og taka
á sig manns mynd, i gerfi eg-
ypskra hermanna Faraós.
Nóttina sem hér er um að
ræða, var veður kalt, stormur
og hálfgerður hríðarhraglandi, en
Við förum velbúnir niður í
fjöru, um 11 lpytið, kvöldið fyr
ir Jónsmessunótt. Gaman var
að veita því athygli, hvernig
allir fuglar þögnuðu, því nær,
sem dró lágnættinu, en það er
staðreynd, að þá er líkt og
náttúran öll hvílist, heyrist ekki
einu sinni í spóatetri eða mýr-
ispítu, hvað þá lóu. Um lág-
nættið syngur ekki einu sinni
hún um dýrðina „dýrðin — dí“
— og þó er lágnættið á vorin
og 1 byrjun sumars einhver ynd
islegasti tími ársins.
Við gengum rösklega frá Ósn
um í átt að tunglinu, sem við
nefndum svo, en það er stuðla
bergslandslag, ríkt af holufylling
um með skínandi agötum, on-
yxum og opölum, *— og gekk í
sjó fram, og var okkar uppá-
haldsstaður. Segar Tungli
sleppti, lá leiðin i Fúsafjöru,
kennd við Sigfús í Norðurkoti
þann sæmdarmann.
Þá höfðu menn búmanns-
klukku á íslandi og sérstakan
sumartíma, og vegna þess að
við reiknuuðm með því, að sel-
unum, hermönnum Faráós, væri
máski ekki kunnugt um slíka
hluti, töldum við lágnættið vera
kl. 1 að venjulegri klukku. —
Og nú varð klukkan eitt. —
Skyndilega stakk selur upp höfð
inu hjá Lönguskerjum. Við bið-
um milli vonar og ótta. Þarna
kom hann, hershöfðingi Fara-
ós, hugsuðum við, og skulfum
á báðum beinunum.
í djúpri þögn biðum við þess
sem verða vildi. — Og það
varð. Selurinn gaut á okkur aug
unum, eins og mannsaugum, og
við vorum bara tveir litlir
drengir, pínulítið hræddir, — en
ekkert gerðist. Selurinn stakk
sér von bráðar aftur í djúpið,
og það er ég viss um, að hann
hefur skellt í góm og hlegið að
allri okkar hræðslu. Svona eru
þjóðsögurnar, sem urðu til áð-
ur en farið var að virkja
Elliðaárnar og Sogið, eintóm
myrkfælni, tómt „plat“.
En samt eru selir til margra
hluta nytsamir, eins og bezt
má sjá á þessari síðustu sela-
sögu minni að þessu sinni, sem
hér á eftir verður frá sagt.
Hjalti bróðir minn hafði orð-
ið sér úti um selariffil. Hugð-
ist hann nú „salla“ duglega á
einn sel á Langaskeri. Læddist
hann eins og síðasti Móhíkan-
inn eftir fjörunni, og bar vind
inn frá selunum, sem þar lágu
og spókuðu sig í sólskininu,
frá þeim til hans. Læddist hann
eins og æfður veiðimaður í skot
færi tók öruggt mið og skaut.
Einn selurinn drattaðist hel-
særður í sjóinn. En bróður mín
um var ekkert um það gefið að
láta hann sleppa, en lagðist til
sunds, og hafði innan tíðar synt
selinn uppi, tók í lappir hon-
um, og synti með hann björg-
unarsund til lands.
Mikið erfiði var að bjarga
fengnum heim, en selkjötið
reyndist hnossgæti, og það sem
meira var, selalýsið notuðum
við í staðinn fyrir fernisolíu til
að blanda saman við málningu
og gafst vel. —
Og þar með læt ég staðar
numið að tala um seli að þessu
sinni. — Fr. S.
ÚTI
Á
VÍÐAVANGI
og enginn þau svæffir
Sofa urtubörn á útskerjum, velt
ur sjór yfir, og enginn þau svæ
fir.“ Hausinn á selnum minnir
á þekktan lieimsspeking, og hv
að skyldi svo selurinn vefa að
hugsa?
Útgerðarmenn Línusteinar fyrirliggjandi. Pípugerð Jóns Guðnasonar Bröttukinn 1, Hafnarfirði, sími 50286. Tek að mér uppsetningu púða og klukkustrengja. Fljót og góð vinna. Uppl. í síma 24 8 57 eftir kl. 12. Inga Stórholti 12.
Heitur og kaldur matur Smurbrauð og brauðtertur Leiga á dúkum, glösum, diskum og hnífap. Útv. stúlkur í eldhús oa framr. Veizlustöð Kópav., s. 41616. íbúð til leigu Góð 3ja herb. íbúð til leigu 1. febr. Ep skammt frá Sjómannaskólanum. — Tilb. sendist Mbl. merkt „Austurbær 6085“.
Gluggahreinsunin auglýsir. Húsmæður, fyrir- tæki, verzlanir. Glugga- hreinsun, gluggaþv. Fljót og góð þjónusta. Reynið viðsk Geymið augl s. 23215. Önnumst alls konar ofaníburðar- og fyllingar- verk. Seljum 1. flokks fyll- ingarefni frá Björgun hf. Vörubílastöðin Þróttur. Sími 11471 — 11474.
Námskeið fyrir byrjendur í tauprenti hefst í febrúar. Upplýsing- ar í s'ímum 35464 og 30698 eftir kl. 6. 2 stór herbergi til leigu, ásamt baði, sér- eldhúsaðst ásamt geymslu. Uppl. í síma 84736 og 32947.
Atvinna óskast Tvítug stúlka óskar eftir atvinnu nú þegar, dönsku- og enskukunnátta fyrir hendi. Margt kemur til gr. Úpplýsingar í síma 16895. Afslöppun Næsta námskeið í afslöpp- un og fl. fyrir barnshafandi konur hefst í febrúar nk. Uppl. í s. 22723 kl. 13—14 h. daga. Hulda Jensdóttir.
Asbest Tnnan- og utanhússasbest f yrirliggj andi. Húsprýði hf. Frysti- eða kæligeymsla óskast til leigu. Upplýsing- ar í síma 10220.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu RÚMSTÆÐI (full stærð) óskast með eða án dýnu. Upplýsingar í síima 20466 frá 16—20.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í sölu á rafbúnaði í dreifistöðvar fyrir
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
ARABIA-hreinlætistæki
Stórkostleg
nýjung
Hljóðlaus W.C. — kassi.
Nýkomið: W.C.
Handlaugar
Fætur f. do.
Bidet
Baðker
W.C. skálar & setur.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Glœsileg vara. Verð hvergi lœgsa
Einkaumhoð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
lieildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.
Bezt iiíi auglýsa í Morgunblaðinu