Morgunblaðið - 04.02.1969, Page 12

Morgunblaðið - 04.02.1969, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1969. Líkan af álbræðslunni í Straumsvík og höfninni þar. - ALBRÆÐSLA Framhald af bls 1 hjá fiskveiðiþjóð eins og okkur Is'Iendingum má líkja við geig- vænlegar náttúruhamfarir hjá öðrum þjóðum, sem eyðileggja iðjuver og verðmæti svo að lang an tíma tekur að byggja upp aftur. Þrátt fyrir þessi miklu áföll hafa menn ekki liðið skort hér undanfarin 2 ár og einmitt vegna þess, hversu vel hafði tekizt að byggja upp efnahags- kerfi og almenna velmegun. Við höfðum eignast ný og mikil fram leiðslutæki bæði til lands og sjávar, nýjan skipastól og vél- væðingu í iðnaði og öðrum at- vinnuvegum, góðan húsakost og staðið að mikil'li mannvirkja- gerð. Einnig safnað verulegum gjaldeyrisvarasjóði, og að öllu þessu höfum við búið undanfar- in tvö ár. Síðan vék ráðherrann að því, hvað nú væri framundan, og mestu máli skipti að gera sér grein fyrir því. Búið er að gera mjög róttækar ráðstafanir í efna hafsmálum, sem hníga að því, að grundvalla atvinnulífið, miðað við þær aðstöðubreytingar, sem orðið hafa. Við eigum að geta byggt okkar efnahag upp á þeim grundvelli, sem við nú stöndum og þannig að enginn þurfi að líða neyð. Þvert á móti mun það koma í ljós, að margir nýir möguleikar eru fyrir hendi ttl nýs hagvaxtar ef menn sam- Stilla kraftana til að hagnýta þá. Ráðherrann vék að því, að þess væri þegar farið að gæta, að menn gerðu sér þess grein, að þegar síldin hefði brugðizt svo gjörsamlega eins og hún hefur gert á síðastliðnum árum, þá jrrðu menn að venda sínu kvæði f kross og hyggja til annarra Úrræða. Það er þegar farið að koma í ljós, að menn sem eru bjartsýnir og dugandi, og af slikum mönnum er alltaf mikið á íslandi, gera sér grein fyrir hinum breyttu viðhorfum og eru þegar farnir að aðlaga atvinnu- hætti og áform í atvinnumálum samkvæmt því. Ráðherrann vék að því, að slíkt hefði komið mjög skilmerkilega fram í grein argerð atvinnumálanefnda kjör- dæmanna á fundum, sem þær hefðu nýlega átt innbyrðis og sameiginlega með atvinnumála- nefnd ríkisins. Menn töluðu um nýjar fiskveiðar og nýjar fisk- verkunaraðferðir og hagræðing armöguleika. Til dæmis að fisk- vinnslustöðvarnar kæmu sér upp sameiginlegum geymslustöðvum. Víða vildu menn koma upp ís- framleiðslu, sem ekki er núna fyrir hendi. í þessu felst hugs- nnin um það að nýta betur afl- ann, fá meiri gæðavöru á háu verðlagi og sækjast eftir því að geta selt betri vöru. Menn töl- uðu um nýjar tegundir veiði og vinnslu svo sem nýjar aðferð- lr við vinnslu á kola, veiðar á hörpudiski og vinnslu á dýrmæt- um fiski úr honum á Ameríku markað, ti'lraunir með vinnslu á kræklingi til útflutnings, vinnslu á spærling, sandsíli, kolmunna, meiri loðnuveiði en áður, ef sá möguleiki gæfist. Bent var á nýj ar leiðir í miðursuðu á afurðum, sem iítt hafa verið hagnýttar undanfarið, svo sem lifur, en í tveim verstöðvum eru að hefjast tilraunir með slíkt. Rætt var um nauðsyn frekari rannsókna og leit að nýjum rækjumiðum bæði á Breiðafirði, Húnaflóa og á Austfjörðum og fleira slikt mætti te'lja. Þá kom í Ijós að áform eru uppi um nýja iðnaðarfram- leiðslu, eins og veiðarfæragerð á Austfjörðum, nýjar sútunarverk smiðjur og meiri hagnýtingu ís- lenzku ullarinnar en áður. Rætt var um nýjar vinnslugreinar, eins og þaravinnslu eða þang- mjöl, tilbúna rétti með nýjum aðferðum og loks var rætt um vöxt nýrrar atvinnugreinar hjá okkur, sem er ferðamálaþjónust an. Þá vék ráðherrann að nýj- um útflutningsmöguleikum ís- lenzks iðnaðar og væri þegar unnið að því. Félag íslenzkra iðnrekenda hefði komið sér upp skrifstofu til þess að aðstoða iðnaðinn við útflutning á iðnað- arvöru og ríkisstjórnin hefði þeg ar veitt nokkra aðstoð við að koma þessari starfssemi á fót. Iðnþróunarráð hefði sett á 'lagg- irnar sérstaka útflutningsnefnd á síðastliðnu hausti til þess að athuga þá möguleika, sem hér væru fyrir hendi og mundi þessi nefnd bráðlega skila áliti til iðn þróunarráðsins um þau atriði sem henni hefði þegar gefist kostur á að kanna. Þessu næst vék iðnaðarmála- ráðherra, að stóriðjunni og þeim möguleikum sem henni kynnu að vera samfara. Hann minnti á að álbræðslan í Straumsvík mundi hefja starfssemi sína síðar á þessu ári og á síðastliðnu hausti hefði verið ráðgert, að haldið yrði sleitulaust áfram með stækk un hennar upp í 60 þús. tonna afköst á ári á hæstu þremur ár- um. Spurning væri, hvort meiri möguleikar væru hér fyrirhendi Það hefur vissulega verið haft í huga, sagði ráðherrann, að ef ve'l tækist til með rekstur hinnar nýju álbræðslu, kynnu menn að hafa áhuga á því að stækka hana enn frekar. Ennfremur skýrði iðnaðarmálaráðherra frá því, að rætt hefði verið við önnur álfyrirtæki og einmitt um þessar mundir stæði yfir nokkur könnun þess máls. Of snemmt væri að fullyrða nokkuð um þá möguleika, sem kynnu að vera fyrir hendi, en Ijóst er að við megum ekki láta tækifærin fara fram hjá okkur ónotuð, en orku lindir landsins biða þess að verða beizlaðar. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að erlend fyrirtæki bíða ekki við bæjar- dyrnar hér hjá okkur íslend- ingum til þess að hefja áhættu- rekstur á yzta hjara veraldar. Það tekur bæði tíma og erfiði að sannfæra álíka aðila um mögu leika, sem kunina að vera fyrir hendi hér á landi. En eins og ég hef oft að vikið áður, sagði ráðherrann, þá eigum við fslend ingar ekki að vera hræddir við að semja við erlenda aðila um hagnýtingu tækniþekkingar og fjármagns og fram til þessa höf- um við ekki haft nema góða reynzlu af samvinmu okkar við Svisslendinganna í sambandi við álbræðsluna. Ekkert það, sem gert hefur verið í sambandi við byggingu hinnar fyrstu álbræðslu á ís- landi, hefur dregið nokkuð frá annarri atvinnugrein, nema síð- ur sé. í fjárlögum hefur hvergi neitt frá öðrum dregið, það hef- ur aðeins styrkt aðra atvinnu- vegi að eignast nýtt og sterkt fyrirtæki í þjóðfélaginu, sem vek ur meira traust á landinu og auglýsir það út á við að ýmsu leyti meir en margt annað. Iðn- aðarmálaráðherra sagðist vilja árétta það, sem hann hefði áður vikið að, að enda þótt stóriðj- an væri yfirleiitt mjög sjálfvirk í rekstri, og tæki þessvegna ekki ■eins mik(nn mannafla flil sín 'beinlínis og menn héldu, þá hefði hún samt sem áður miklu meiri áhrif óbeint á vinnumark- aðinn. Öll uppbygging slíkra fyr irtækja tekur auðvitað til sín mikinn mannafia á byggmgartím anum. En þar við bætist, að samkvæmt því sem sérfræðing- ar hafa gert grein fyrir, má reikna með ,að þrír menn í öðr- um atvinnugreinum í landinu fái atvinnu í þjónustuiðnaði, bygg- ingariðnaði, við rafvirkjanir eða raforkuframkvæmdir, samgöngu bætur og annað slíkt. Eftirþví sem spáð hefur verið fram í tím ann, munu á næstu tveim ára- tugum bætast um 8 þús. manns á vinnumarkaðinn í almennum iðn aði, en jafnframt er þá gert ráð fyrir, að við bætist um 24 þús. manns í þjónustuiðnaði, bygg- ingariðnaði, virkjunarfram- kvæmdum og samgöngubótum eða öðru slíku. Nú er gert ráð fyrir, að um 500 manns fái at- vinnu í álbræðslunni við rekst- ur hennar, þegar hún hefur náð fullum afköstum. En séu áætlan ir sérfræðinganna réttar, þá ætti slíkt að skapa óbeint atvinnu fyrir aðra 1500, eða alls mundi atvinnuaukningin nema um 2 þús. manns. Þetta viðbótarvinnu afl stendur í sambandi við ýmis konar rekstur, sem leiðir af ál- bræðslunni, það eykur verkstæð Lsvinnu og viðgerðir, menn sem fá fasta atvinnu í álbræðslunni, fá betri aðstöðu til þess að aufca framkvæmdir t.d. við íbúðar- byggingar o.s.frv., og mundu þar með skapa nýja möguleika í byggingariðnaðinum.Að þetta sé nokkuð nærri lagi styðja aðr- ir útreikningar ,sem byggjast á því, að vöxtur og velmegun í 20 árum, hafi alla jafnan staðið í beinu sambandi við öflun nýs gjaldeyris. Þjóðartekjurnar hafa jafnan fjórfaldast miðað við þá hreinu gjaldeyristekjuaukningu, sem við höfum getað áunnið okk í Straumsvík mun gefa okkur með núverandi gengi um 7 hundr uð millj. kr. á ári í hreinar gjaldeyristekjur, og samkvæmt fyrri reynslu ætti það að þýða áukningu þjóðarteknanna, serr. nemur að minnsta kosti fjónum sinnum þessari upphæð, eða 2800 milljón kr., en sú aukning þjóðar tekna mundi dreifast um allt hag kerfið, og skapa þannig nýja at- vinnumöguleika. Hvort tveggja það, sem ég hef nú vikið að bendir ótvírætt til þess mikla at vinnuöryggis, sem í raun og veru leiðir af því, að upp rísi ný stóriðjufyrirtæki í landinu. Þá vék iðnaðarmálaráðherra að því, að ríkisstjórnin hefði haft áhuga fyrir að koma upp stóriðjufyrirtækjum á öðrum svið Minnti ráðherrann á fyrri áform um að koma hér upp sjóefna- vinnslu og olíuhreinsunarstöð. Að síðar talda málinu hefði veru lega verið unnið fyrir nokkrum árum, en því frestað í bili með- an menn þurftu að einbeita sér að álsamningnum. Að undan- förnu hefði þetta mál verið tek- ið upp aftur og sérstakar við- ræður um möguleika til bygging ar olíuihreinsunar hér á landi ver ið ræddir á sl. sumri og nú stæðu enn fyrir dyrum viðræður um mögulieika til byggingar olíu- hreinsunar hér á landi við nýja aðila, sem við hefðum ekki haft samband við áður. Ráðherrann sagðist vilja vekja athygli á þessu til þess að menn gerðu sér grein fyrir, að á ýms- an hátt væri leitast við að skapa möguleika á einu eða öðru sviði, sem allir stefndu að því, að tryggja atvinnuöryggið í fram- tíðinni. Við gerum þetta alveg jafnt, sagði ráðherrann, þótt kommúnistar bölsótist yfir því, og jafnvel sumir Framsóknar- menn líka, þótt þeim fari, að ég hy’gg, mjög fækkandi. Við erum ekki hræddir við að eiga sam- vinnu við erlenda aðila, erlent fjármagn og erlenda þekkingu. Við teljum að við séum menn til þess að semja ekki af okkur, og það er grundvallarskilyrði fyr- ir því að við getum haldið uppi sjálfstæðu ríki í sambúð og sam- skiptum við umheiminn, að við séum ekki hræddir í hvert sinn er við sjáum útlending. Ég veit, sagði ráðherrann, að erlend fyr- irtæki hugsa sér ekki að gefa okkur neitt, en við ætlum held- iur ekki að gefa þeim neitt. Hvor um sig mun væntanlega á hverj um tíma reyna að hafa upp úr slíkri samvinnu eins mikið oig hann getur. Þannig verður þetta að vera, og enda þótt við ykjum samvinnu okkar í atvinnurekstri hér á landi við erlenda aðila, þá skulum við hafa það í huga, að innan tíðar eignast íslend- ingar þessi fyrirtæki sjálfir, og þótt samið sé til 10, 20 eða 40 'ára, þá er það engan veginn langur tími í æfi þjóðarinnar, nema síður sé, og liðinn áður en varir. En eftir stendur sterk- ari íslenzk þjóð, með aukna verkmenningu og meiri trú á sjálfri sér en áður. f lok ræðu sinnar vék ráð- herrann nokkuð að því, hversu stjórnarandstaðan hefði verið úr ræðalaus og tillögusnauð í sam- bandi við þá erfiðleika, sem að þjóðinni hefðu steðjað. Fram- sóknarmenn vildu að vísu reyna að láta líta svo út, sem þeir hefðu lagt einhverjar ákveðnar tillögur fram í sambandi við við- ræður stjórnmálaflokkanna á sl. hausti til úrlausnar í efna- hagsmálunum, en það væri allt á misskilningi byggt eða vísvií- andi ranghermi. Ríkisstjórn- lin væri ásökuð fyrir að hafa igripið til gengisbreytingar. Aldrei hefði fengizt úr því skor ið, hvort stjórnarandstæðingar vildu heldur vera með gengis- breytingu eða uppbótaleiðinnnL Þeir hefðu viðurkennt, að mikil tekjutilfærsla þyrfti að eiga sér stað í þjóðfélaginu, og talað um ýmsar hliðarráðstafanir í því sam bandi. Ástæðulaust væri að víkja nánar að því nú. Hitt væri staðreynd, að menn hefðu við- urkennt almennt, að ef ætti að fara uppbótaleiðina, þyrfti að leggja allt að eitt þúsund og fimm hundruð millj. kr. í nýjum sköttum á almenning til þess að færa fjármagnið milli atvinnu- greina, og jafnvel þó að sumir kannski teldu, að þessi upphæð hefði ekki þurft að vera svo há, þá er á það að líta, að hér er enn alveg óreiknað iðnaðardæm ið. Mieð því á ég við, sagði iðn- aðarmálaráðherra, að ef uppbóta leiðin hefði verið farin, þá var útilokað annað en að veita stór- kostlegar uppbætur í fjölda grein um iðnaðarins, ef menn ekki stefndu vísvitandi að því að leggja hann í rúst. Og vissulega gat þá alls ekki verið um neina nýja útflutningsmögulieika fyrir íslenzkan iðnað að ræða. Iðnaðarmálaráðherar lauk máli sínu á þessa leið: Við skulum gera okkur grein fyrir því, að við stöndum á vegamótum og erfiðum tímamótum. En við höf um grundvöll til þess að byggja á, og við megum leyfa okkur að vera bjarfsýnir að vissu marki, að það haldi áfram að veiðast við strendur landsins nú sem áð- ur, og kannski verði bati á er- lendum mörkuðum, og neynsla fyí-ri ára hefur sýnt að enda þótt áföll verði í bili, þá má búast við að skakkaföllin jafni sig. Með því aðhagnýta betur en nokkru sinni áður þá möguleika, sem við höfum, leggja inn á nýjar leiðir í almennum atvinnugreinum hér innanlands á nýjar stóriðjubraut- ir, virkja okkar auðlindir, vinna orkuna úr fallvötnum og jarð- varma, þá hafa íslendingar, þessi fámenna þjóð, stórkostlega mögu leika í framtíðinni. Það eru að imínum dómi bráðabirgðaerfið- leikar, sem við þunfum nú að horf ast í augu við. Ég viðurkenni að við getum ekki búist við svo mik illi velgengni sem við höfðum á árunuml964 til 1966, en minna má líka gagn gera. Við þurfum ekki eftir því að sjá þótt breyt- ingar verði á ýmsum sviðum, og að vissu leyti er það gott fyrir þjóð, eins og fyrir hvern einstakl ing, að þurfa á stundum að leggja 'hart að sér. Tökum höndum sam an og glötum ekki trúnni á land- ið, þá mun það atvjnnuleysi, sem nú er, hjaðna, nýir atvinnu möguleikar opnast, og unga kyn slóðin mun eiga bjarta framtíð fyrir sér. Unnið að byggingu álbræðslunnar í Straumsvik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.