Morgunblaðið - 09.03.1969, Page 2

Morgunblaðið - 09.03.1969, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAJRZ 1969. Leitin að Fagranesi og Dagnýju Hún sagði að mjög erfitt hefði verið að leita með ströndum fram. þar sem á hefði verið hríð, stormur og brunagadd- ur, auk þess sem lágsjávað var í fyrstu leit"björgunarsveit anna og erfitt að fara fram skerjóttar þangfjörur. Ásdís sagði að leitarmenn hefðu stað ið saman sem einn maður og leitað mjög skipulega. Á leit- arsvæðinu við Garðskaga fannst bjarglhringur merktur Fagranesi og einnig fannst lóðabelgur, merktur AK 22, krókstjaki og hurðarbrot. 5KYCCNZT UM A LEITARSVÆÐI SUÐURNESJAMANNA BJORGUNARSVEITIRNAR í Garði og í Sandgerði höfðu bækistöð í Garðskagavita í fyrrinótt og leituðu þaðan með strönðinni að bátunum, Fagranesinu og Dagnýju, sem saknað er síðan aðfararnótt laugardags. Þegr biaðamenn Mbl. komu í Garðskagavita á laugardags morgun stóð húsmóðirin í vit- anum í önnum og bakstri, en stöðug umferð leitarmanna hafði verið í vitanum um nóttina og ávallt var kaffi á könnunni og kræsingar með, heimabakað brauð og kleinur. Sést vel á þessu hvað fólk stendur vel saman og leggur sig fram til aðstoðar í hjálp- ar -og björgunarstarfi þegar vá ber að dyrum. í björgunarsveit Sandgerð- inga voru 14 menn og í björg- unarsveitinni í Garði voru 10 menn. Allir þessir menn áttu aðgang að hlýju og matföng- um hjá hjónunum í Garð- skagavita í nótt, en leit fram með ströndum var mjög erfið þar sem lágsjávað var og brunagaddur með stormi. Vitavörðurinn í Garðskaga- vita er Sigurbergur Þorleifs- son og kona hans er Asdís Káradóttir. Ásdís er formað- ur slysavarnadeildar kvenna í Garði og boðaði hún björg- unarsveitirnar . út á laugar- dagsnótt. „Við erum öll einhuga hér til hjálpar", sagði Ásdís þeg- ar við spjölluðum við hana um starf björgunarsveitanna. Leitarbátur siglir grunnt fyrir utan Garðskagavita. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Ásdís gat þess að tvær slysavarnakonur úr Garðinum hefðu komið í vitann um nótt ina með brauðmat til þess að l'étta undir í kosti fyrir leitar- menn. Leitarsveitir á Suðurnesjum voru að fara í aðra umferð með ströndum, þegar blaða- menn hé'ldu í bæinn og grunnt með ströndinni voru leitarbátar á siglingu. Ásdís Káradóttir hellir á könnuna í Garðskagavita. Mjólkurleysi í Bolungavík Ýmist skömmtun eða engin mjólk BOLUNGAVÍK, 8. marz. — Hér hefur verið hálfigert vandræða- ástand vegna mjólkurlieysis. Þetta er fjórði dagurinn núna, sem við erum mjólkurlausir. Skötmimtuð var mjólk á miðviku- dag og síðan hefur engin mjóllk fengizt. Vegurinn hefiur verið lokaður, en forráðamenn þorps- ins fóru fram á það á fimmtu- dag, þegar gott var veður, að vegurinn yrði opnaður fyrir mjólkina, en fókk algierlega neitun hjá Vegagerðinni. Eins hefur Fagranesið verið hér bæði á fimmtudag og í dag, en engin mjólk er send með þvi. Mjólkin kerour frá mjól'kur- búinu á ísafirði í vetur hefur iðulega verið ðkömmtuð mjólk eða engin. Hefur fófok verið að reyna að gefa ungabörnum þurrmjólk eða ávaxtasafa. Áður koro mjólk frá búunum hér í kring, en síðan mjólkurbúið tók til starfa á ísafirði, hefur efcki verið neina mjólk að hafa aí bæjunum hingað. Hún er flutt inn eftir. — Hallur. ÖNNUR POP-GUÐSÞJÓNUSTA í LANGHOLTSKIRKJU ÖNNUR Pop-guðsþjonusta a vegum skiptinema þjóðkirkj- unnar verður í Langholts- kirkju í dag kl. 6 e.h. Guðsþjónustan hefst með hljómflutningi ungra tónlistar manna, sem leika á orgel, gít- ar, trommur og gítarbassa. Þá verður vakning. sem Sigurður Brynjar Jónsson flytur. Al- mennur söngur er næst á dag skrá og því næst verður leik- ið lag af nýjustu plötu Hljóma. Því næst flytur Sveinn R. Hauksson hugleiðingu og þá syngur Kristín Ólafsdóttir ein söng. Næst er hugleiðing, sem Árni Johnsen flytur og þar á eftir mun Kristín Ólafsdóttir syngja fjóra af Sálmum á at- ómöld eftir Matthías Johann- essen. Ómar Valdimarsson flytur vakningu og þá er al- í mennur söngur. Valdimar Sæ / mundsson mun leiða í bæn og 1 lesningu bænarinnar Faðir vor. Þá mun að endingu verða hljómflutningur tónlist- armanns. Eftir Pop-Guðs'þjón- ustuna verður séra Sigurður Haukur Guðjónsson til svara ef kirkjugestir vilja leggja fram spurningar til klerks, séra Sigurður Haukur og séra Jón Bjarman æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar hafa unnið að undirbúningi Pop-Guðsþjón- ustunnar ásamt unga fólkinu. Hvert sæti var setið i Lang- holtskirkju á síðustu Pop- Guðsþjónustu og einnig var staðið þár sem pláss var. Árni G. Eggertsson. Árni G. Eggerts- son lntinn ÁRNI G. Eggertsson, lögmaður andaðist í Winnipeg 7. þessa mán aðar, 73 ára að aldri. Árni var þjóðkunnur maður, sem jafnan lét sig málefni íslendinga miklu skipta. Hann átti sæti í stjórn Eimskipafélags íslands af hálfu vestur-íslenzkra hlutihafa frá ár- inu 1952. Útför Árna Eggertssonar verð- ur gerð 11. marz. Grænlnnds- sýning AÐSÓKN er góð að grænlenzku heimilis-listsýningunni í Nor- ræna húsinu .Hafa margir skóla- nemendur komið þangað og sumir skólanna skipulagt heim- sóknir fyrir nemendur sina. Er tala gestanna nú komin toi'Uvert á sjötta þúsund. RÁÐSTEFNUNNIUM AÐILD AÐ NATO HALDIÐ ÁFRAM í DAG RÁDSTEFNA Varðbergs og Sam- taka um vestærna samvinnu um „Aðild íslands að Atlanshafs- bandalaginu“ hófst í gær. Verð- ur ráðstefnunni haldið áfram í dag og hefst fundur kl. 2 síð- degis í Tjarnarbúð, niðri. Á ráðstefnunni í gær fluttu erindi þeir Benedikt Gröndal, alþingisroaður, Matthías Á. Mat- hiesen, alþingismaðuT oig Stein- grímur Hermannsson, fraim- kvæmdastjó'ri. í dag verða málsihefjunduT þeir Karl Steinar Guðnason, keninari, Stynmir Guinnarsson, lögfræðingur og Tóroás Karlsson, blaðamaðuir. Að ræðum þeirar kxknum verða frjálsar umræður. INNRROT AÐFARANÓTT laugardags var brotizt inn í Mjólkurbarinn við Laugaveg og stolið 20—30 kart- onum af vindlingum. Ekkert var eyðilagt. A FUNDUR í STAPA KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis- flokksins í Reykjaneskjördæmi heldur almennan fund um at- vinnu- og þjóðfélagsmál að Stapa í Njarðvíkum, miðvikudag inn 12. marz kl. 9 stundvíslega. Erindi flytja Árni Grétar Finnsson hrl.: Virk þátttaka al- mennings í atvinnurekstri er þjóðarnauðsyn. Opna þarf leið fyrir fjármagn fólksins til at- vinnulífsins. Dr. Gunnar Sigurðs son: Stóriðja á íslandi. Frummæl endur munu síðan svara fyrir- spurnum. Aliir eru velkomnir á fundinn meðan húsrúm leyfir. Ferðolélogið byrjnr sunnudngs- lerðir n Reykjnnes um helginn FERÐAFÉLAG íslands hyggst byrja fyrr ferðir sínar í ár en hefur verið og fara þá meira um Reykjanesskaga, en þar er víða stórfenglegt landslag, sem aldrei verður of oft skoðað. Og verður farið á hverjum sunnudegi héð- an í frá í einhverja sunnudags- ferð. Verður fyrsta helgarferðin far in nú á sunnudag, 9. marz, kl. 9.30 og farið um Reykjanes, Grindavík og gengið á Þorbjörn. Eru vafalaust margir, sem ekki hafa farið um þessar slóðir eða ekki farið það með kunnugum fylgdarmanni, og vilja því nota slíkt. tækifærL Er fólki bent á það, að brott- fararstaður í öllum ferðum Ferða félags fslands, verður framvegis á bílastæðinu við Arnarhól (fyr- ir ofan Sænska frystihúsið). Það verður á sama hátt endastöð, þeg ar komið er úr ferðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.