Morgunblaðið - 09.03.1969, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1969
þegar þú hittir hann. Það eru
marmarakúlur, bætti hann við í
hvísli.
Peter hafði nálgast meðan þau
voru að tala saman. Guð minn
góður, flugstjóri. Ekki vissi ég, að
þú kærðir þig um börn. Ég man
eftir að hafa heyrt þig segja
einhverntíma í einni flugferð-
inni okkar, að börn ætti að ala
upp undir áhrifum deyfilyfja,
allt til átján ára aldurs.
Að einu eða tveimur und-
anteknum er sú skoðun mín
enn í fullu gildi, sagði McCall.
Og svo vill til að Símon er
önnur þessara undantekninga.
ég verð að fara út á flugvöll
og hitta þar mann. Hann tók
eitthvað upp úr vasa sínum og
rétti henni. Það var lítil pappa-
askja. Viltu fá honum Símoni
þetta, með kveðju minni, næst
, ÁLFTAMtBI 7
T^BLOMAHUSIÐ
simi 83070
Opið alia daga öll kvöld og um
helgar.
Blómin, sem þér hafið ánaegju af
að gefa, fáið þér í Blómahúsinu.
Ég finn að við eigum ýmislegt
sameiginlegt.
Hann leit á Lísu og hún sagði:
Þakka þér fyrir kúlurnar.
Símon verður stórhrifinn. . .hún
leitaði í öngum sinum eftir ein-
hverju orði til að segja í viðbót,
einhverju, sem gæti tafið ofurlít
ið fyrir honum. Það gerði ekki
framar neitt til þó að hún léti
tilfinningar sínar greinilega í
ljós.
Geturðu ekki komið aftur?
sagði hún biðjandi, og bar ótt á
um leið og Peter gekk burt frá
þeim Við voru.m að hugsa um
að fara eitthvað út á eftir.
Áttu við þið Fraser?
Já....ætli ekki það.
Nú dóu síðustu • tónarnir af
franska söngnum út, og Blake
MeCall leit aftur inn um svefn-
herbergisdyrnar. Þetta gat ekki
verið nein ímyndun hann var
með ósjálfbjarga svipinn, sem
hún mundi svo glöggt frá þeirri
stundu, er þau skildu síðast
en svo breyttist svipurinn aftur.
51
Hann hló. Nei, því miður get
ég það ekki í kvöld. Ég verð
að hitta hana Roxane. Og hún
ætlast auðvitað til, að ég bjóði
sér út. Og nú verð ég að flýta
mér, annars kem ég of aaint.
Hún var að því komin að
átinga uppá, að hann kaemi með
hana í veizluna, en vissi, að það
mundi ekkert þýða.
Hann hneigði sig, skellti sam-
an hælunum og var farinn. Hún
dró djúpt andann, saup vel á
glasinu sínu og hélt áfram að
stjórna samkvæminu.
14. kafli
Símabjallan vakti hana aftur
til raunveruleikans. Hún skalf
og dró dúnteppið alveg upp að
höku. Það var þefur af innilok-
uðum vindlingareyk í stofunni,
þrátt fyrir súginn gegn um op-
inn gluggann.
Um leið og hún tók símann,
leit hún gegn um dyrnar á allt
ruslið í stofunni, eftir veizluna.
Skrifstofan hérna. Þú átt
að leggja af stað til Beirut í
kvöld.
Andartak. . .
Hún fann skrifblokkina sína
og blýant skrifaði skilaboðið nið
ur, endurtók tímann og lagði svo
frá sér símann.
Hún lagðist út af aftur, vafði
VANDl ATRA
hrishyg^jí *ncJi i
2
*
i
um sig rúmfötunum og fór að
hugsa um samkvæmið kvöldinu
áður.
Það hafði smámsaman fækk-
að í samkvæminu, þangað til Pet
er og hún voru orðin eftir ein.
Hann hafði heimtað að hún skildi
allt eftir eins og það var, og
færi með honum út að borða.
í bílnum hafði hann fyrst
spurt hvert hún viidi helzt fara,
en þegar hann sá svipinn á and-
liti hennar, sagði hann: það
er sama, ég veit hvert við förum.
Og í kvöld verður það að vera
almennilegur staður.
A f öllum veitingahúsum í Lon
don, þurftu þau einmitt að rek-
ast inn í þann, sem Blake hafði
þurft að bjóða Roxane á. En þá
sá Lísa, að annar karlmaður var
við borðið hjá þeim, og áfctaði
sig brátt á því að þetta var Ed-
ward Beamish. Hversvegna skyldi
Blake ekki hafa nefnt það neitt,
að mágur hans væri líka í Lond-
on? Hversvegna allt þetta puk-
ur? Þessi óframfærni hans gat
tæpast talizt heiðarleg.
Roxane hafði strax komið
auga'á þau og heilsaði þeirn vin-
gjarnlega. Hún var að vanda
glæsileg og mannblendin og bauð
þeim til þeirra. Blake virtist leið
ast, en samt hafa hálfgaman af
þessu en Edward Beamish lék á
alls oddi og kom þeim öllum til
að hlæja, er hann sagði þeim
frá ýmsum erfiðum gestum, sem
hann hafði orðið að sýna gest-
risni í írak.
Roxane fór ekkert í launkofa
með feginleik sinn að hafa ein-
hvern að dansa við annan en
bróður sinn eða eiginmann, að
því er Lísu fannst. Hefði hún
ekki þekkt Peter eins vel og
raun var á, hefði henni getað
dottið í hug, að þetta væru sam-
antekin ráð þeirra. En Peter tók
þessu að venju eins og það kom
fyrir.
Eftir matinn bað Roxane Pet-
er að dansa við sig og hélt í
hann nokkra dansa í röð, og
þannig leið nokkur stund áður
hún bað hann hafa sig afsakaða,
þar eð hún væri svo uppgefin
eftir allt tilstandið daginn áður.
Vonbrigðasvipurinn á Pefcer fékk
hana til að iðrast þessarar neit-
unar sinnar, en hitt var verra,
að nú gæti hún ekki þegið boð-
ið ef Blake skyldi bjóða henni
upp.
Roxane dró Peter aftur í dans
inn. Lísa kunni því vel að sitja
bara milli þeirra Blakes og Ed
vards, og hlusta á tal þeirra. í
daufri birtunni þarna í salnum,
hallaði hún höfðinu að flos-
klæddu bakinu á bekknum og
hlustaði á rödd Blake og ímynd
aði sér að hún væri þarna ein
mað honum.
Röddin í honum var svo djúp,
líkust því sem hún var þegar
hann var að tala um Simon.
Nú töfraði hún hana aftur. Hún
fann, að hún hlustaði meir á
sjálfa röddin.a en orðin, sem
sögð voru. Einu sinni sneri bann
sér að henni og lagði höndina
á arm hennar og banti henni á
and iiið á drengnum. sem sló
trumburnar. Unglingurinn hafði
fríðan vangasvip og virtist eins
og langt í burtu, en neðri hluti
'
9 MARZ 19C9
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Þú veizt enn ekki nóg. Taktu ekki til láns, né ljáðu öðrum fé
Taktu þátt í einhverju fræðandi. Forðaztu kappræður og ill
indi.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Farðu í kirkju og vertu úti, taktu ekki þátt í kappræðum.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Taktu ekki þátt í viðskiptum í dag.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Athugaðu vel það sem í kringum þig er.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Talaðu varlega í dag, en greinilega til að forða misskilningi.
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Farðu í kynnisför og taktu nýja afstöðu.
Vogin 23. september — 22. október
Gerðu þér fulla grein fyrir verðgildi hlutanna, og farðu ekki
of langt.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Reyndu að fara varlega, jafnvel þótt eitthvað sé aðkallandi.
Þögnin getur hjálpað þér.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Ef þér er lofað einhverju, skaltu fá það skriflegt, og undir-
ritað.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Það reynir á hvernig þú hefur valið þér vini. Þú getur sjálf-
um þér um kennt, ef illa fer.
Vatnsberinn 20 janúar — 18. febrúar
Taktu þátt í einhverju fræðandi. Forðaztu kappræður og illdeil-
ur. Hvíldu þig seinni hluta dags.
Fiskarnir. 19 febrúar — 20 marz
Það er engin útleið úr flækjunni í dag, svo bezt er að sigla
milli skers og báru. Taktu ekkert alvarlega, og láttu ekkert
uppi, um það sem þú veizt.