Morgunblaðið - 10.04.1969, Side 12

Morgunblaðið - 10.04.1969, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1969 Staðreyndir og réttnefni að áliti Kristjáns Halldórssonar kennara í>egar ég rakst á grein með fyrirsögninni „Heilaflótti" í MbL 1. marz sl., datt mér fyrst í hug, að þar væri komin skynsamleg og vel rökstudd grein um það vandamál, sem ég hélt, að fyrir- sögnin benti til — þ.e. flutning menntamanna frá heimalandi sínu til annarra landa. Svo var þó ekki, því miður. Greinin fjall aði mjög lítið um þennan vanda, og hann var afgreiddur með fá- einum stóryrðum. Síðan var miklu rúmi eytt í það að velja Menzku skólafólki sem óskemmtilegust heiti og eink- unnarorð. Svo langt var sums staðar gengið í þá átt, að les- endum greinarinnar gat jafnvel dottið í hug, að greinarhöfundur hefði sjálfur beinlínis orðið fyr- ir einhvers konar heilaflótta. Nú hefur þessi rökfasti og hóf- sami rithöfundur birt annað skáldverk í svipuðum anda í Mbl. 27. marz sl. Það tekur því fyrra þó að ýmsu leyti fram — er t.d. allmiklu styttra, stóryrðin færri og sannsögulegur kjarni stærri. K.H. (Kristján Halldórs- son) vill þó ekki orðalaust fall- ast á, að hann hafi haft rangt fyrir sér í fyrri greininni, held- ur segir orðrétt um hana: „En 1 þessari grein minni nefni ég að- eins nokkrar staðreyndir, sem flestum eru kunnar, en margir kveinka sér þó við að ræða, og því síður að nefna réttum nöfn- um“. Ég býst við, að K.H. eigi með þessari klaufalegu máls- grein við það („kveinka sér þó við.......og því síður að nefna . . . .“ er að vísu nánast óskiljan- leg samsetning), að hann hafi þarna aðeins rætt um staðreynd- ir og notað réttnefni. Ég hef þó áður bent á (í Mbl. 8. marz sl.), að svo var alls ekki, enda legg- ur K.H. eftir meira en hálfs mán aðar umhugsun ekki út í að mót- mæla þeim rökum, sem ég setti þá fram. Hann er hættur að tala um stúdenta sem „ofalin dekur- börn“ sem stundi „háskóla- hobby“ árum saman með fullar hendur námsstyrkja af ríkisfé. Með tilvitnunum í úthlutunar- reglur Lánasjóðs íslenzkra náms manna var líka sýnt, að þær „staðreyndir" og „réttnefm“ K.H. höfðu ekki við nein rök að styðjast. Þar kom fram að sú opinbera aðstoð, sem íslenzkir námsmenn njóta, er lán, sem er aðeins ákveðinn hundraðshluti pess fjármagns, sem þá vanhagar um til að geta framfleytt sér, þegar tekjur þeirra hafa verið dregnar frá námskostnaðinum. K.H. er svo skynsamur, að hann sér, að hann getur ekki með nokkru móti fengið lesendur Mbl. til að fallast á, að þessi að- stoð sé ofeldi eða dekur. Samt hefur K.H. fundizt, að hann mætti til að skrifa meira í Mbl. og reyna að láta sem ekkert hefði í skorizt. Þess vegna birt- ir hann þetta seinna ritverk sitt, kallar það orðsendingu til mín, lætur mikið yfir velvilja sínum í garð háskólans, gerir. gys að landfræðikunnáttu einhvers bónda fyrir vestan, reynir að níða háskólastúdenta svolítið og fer svo að tala um prósentur og greindarvísitölu. Þegar ekki er lengur stætt á þvi að reyna að telja fólki trú um, að háskóla- stúdentar fái alltof mikil lán og styrki, verður í staðinn að grípa til þess ráðs að segja, að þeir séu þó a.m.k. heimskir! En í þessu greindarspjalli sínu verð- ur K.H. líka með einhverj- um hætti á í messunni, eða þá að ég hef svo lága greindarvísitölu, að ég skil hann ekki. Hann segir nefni- lega: .„Rannsóknir dr. Matthías- ar Jónassonar hafa leitt í ljós (svo!), að það er nokkuð stór hópur nemenda með lága greind arvísitölu, allt niður í 85 grv, sem getur sloppið í gegnum landspróf og stúdentspróf, að vísu með lágar einkunnir, en þó með fullan rétt til inngöngu í háskóla". Síðar í greininni: „Áðurnefndar rannsóknir dr. Matthíasar benda til að greind- arvísitala 120 og hærri sé nauð- synlegt (svo!) til menntaskóla- náms á íslandi, með núgildandi prófkröfum. Þessi atriði eru sá kjarni málsins, sem ekki verður komizt framhjá, og því ástæðu- laust fyrir okkur að jagast um.“ Ég veit ekki til þess, að ég haf' neitt verið að jagast við K.H. um greindarvísitölu. En ég á bágt með að skilja, hvernig greindarvísitalan 120 og hærri sé nauðsynleg til menntaskóla- náms með núgildandi prófkröf- um, úr því að menn með greind- arvísitöluna 85 geta sloppið í gegnum landspróf og stúdents- próf og fengið fullan rétt til inn- göngu í háskóla. Það þarf greind- ari mann en mig til að skilja þessa spaklegu röksemdafærslu K.H. En þótt K.H. hafi séð, að hann gat ekki lengur haldið þvi fram án þess að verða að enn frekara athlægi, að opinber að- stoð við íslenzka námsmenn sé of há, hefur hann samt ekki skilið hvert markmið námsaðstoðar- innar er. Ég reyndi að útskýra það fyrir honum, að námsaðstoð- inni væri ætlað að jafna aðstöðu manna til framihaldsnáms. Það felur m.a. í sér, að henni er ætl- að að draga úr fjölda þeirra, sem verða að hverfa frá hálfloknu námi af fjárhagsástæðum. K.H. bendir réttilega á, að allmargir þeirra, sem hefja háskólanám, ná ekki að ljúka því. í mörgum tilvikum stafar það einmitt af því, að þeir eiga ekki kost á nægilegri fjárhagsaðstoð, meðan á þeirra kostnaðarsama námi stendur, verða að fara að vinna með náminu til að framfleyta sér, námið dregst þá á langinn, og loks flosna þeir alveg frá námi af þessum sökum. Þeir, sem koma auga á þennan vanda, sjá á augabragði, að miklu hag- kvæmara er fyrir þjóðfélagið að veita þessum mönnum ríflega fjárhagsaðstoð, á meðan á námi stendur, og gera þeim þannig kleift að helga sig því algjörlega og ljúka því á skömrnum tíma. Frá skóla ísaks Jónssonar Þeir foreldrar sem eiga börn fædd árið 1963 og óska skóla- vistar fyrir þau i skóla ísaks Jónssonar nafesta vetur leggi inn umsóknir í síma 32590 fyrir næstu mánaðamót. I.O.G.T. I.O.G.T. Barnastúkurnar Æskan og Ljósið halda skemmtun í Templara- höllinni við Eiríksgötu laugardaginn 12. apríl kl. 4 e. h. Til skemmtunar verða leikþættir, dans, söngur, píanó- og cellóleikur, nýstárlegur spurningaþáttur og skrautsýning, Börnin sjá sjálf um allflest skemmtiatriðin. — Allur ágóði mun renna til velferðarmála. Aðgöngumiðasala verður við innganginn frá kl. 3. Verð aðgöngumiða fyrir fullorðna kr. 50.00, en fyrir börn kr. 20 00. Bindindismenn, foreldrar stúkubarna og aðrir velunnarar eru hvattir til að koma og leggja góðu málefni lið. I.O.G.T. I.O.G.T. ^UorfctuLctr Amaryllis 4 tegundir frá kr. 295.— Begóníur 8 tegundir frá kr. 27.— til 32.— Dahliur frá kr. 38.— til 46.— — Decorative 10 tegundir. — Cactus 10 tegundir. — Pompon 4 tegundir. Gladiólur, 6 tegundir kr. 10.— Iris Germanica 4 litir kr. 46.— liljur 8 tegundir frá kr. 42.— til 65.— Paeonlur (Bóndarósir) 2 tegundir kr. 75.— tH 95.— Gloxínía 4 litir kr. 48.— Anemónur 2 tegundir kr. 6.— Fleiri tegundir af smálaukum, einnig garðrósir, margar tegundir kr. 95.— Póstsendum. Adr.: Alaska, Reykjavík. Gróðrarstöðin v/Miklatorg — Sími 22822. Gróðurhúsið v/Sigtún — Sími 36770. Gróðrarskálinn v/Hafnarfjarðarveg — Sími 42260. Menntun þessara mainna keimur þjóðfélaginu þá fljótt að notum, í stað þess, að annars kæmi hún annað hvort mun síðar eða aldrei að notum. Það er alveg rétt hjá K.H., að þessi mistök kosta þjóðfélagið stórfé. — Nú á síðari árum hafa verið sett þrengri tímamörk um nám í flestum deildum háskól- ans. Um það er ekki nema gott eitt að segja í sjálfu sér. En þessi þröngu timamörk krefjast á hinn bóginn þess, að stúdentar fái meiri fjárhagsstuðning en áður, þar sem nú er orðið ókileift að vinna nokkuð að ráði með námi í flestum deildum vegna þeirra. Það er því aðeins um tvennt að velja: meiri fjárhagsaðstoð við námsmenn eða stærri hóp há- skólastúdenta, sem flosnar frá námi af efnahagsástæðum. Menn geta gert upp við sig, hvort þeir telja hagkvæmara fyrir þjóðfé- lagið. Ég varpaði því fram til K.H. i grein minni, hvort hann gæti leyst vandamál tannlæknadeild- ar. Hann segir, að það sé guð- velkomið! Síðan slær hann fram fiugmyndum um hlutafélag eða samvinnufélag starfandi tann- lækna, sem kosti nám og náms- aðstöðu tannlæknanema, og til vara þvi, að samið verði við verkalýðifélögin um styrk til tannlæknadeildar. Þar með held- ur hann að málið sé leyst og er nú heldur en ekki upp með sér! Mikið barn getur barnakennar- inn verið. Það, sem þarf, eru nefnilega ekki tillögur af þessu tagi. Það þarf að fá forráða- menn þessara mála til að að- hafast eitthvað raunhæft til lausn ar vandanum — fá þá til að vakna til meðvitundar um þá hættu, sem steðjar að landi tann- læknaskortsins, ef hætt er að út- skrifa tannlækna. Samtök stúd- enta hafa bent á þessa hættu ár- um saman og gert tillögur og ályktanir um nauðsyn þess, að hafizt verði þegar handa um lausn þessa brýna verkefnis. Það hefur allt komið fyrir ekki. Tannlæknadeildin hefur ýmist verið lokuð eða hálflokuð undan farin ár, og henni verður lokað alveg í haust, ef ekki verður áð- ur hafizt handa um raunveru- lega lausn málsins. Sú lokun fer ekkert siður fram, þótt ég stingi nú upp á því til samræmis við tillögur K.H., að félag vegg- fóðrarameistara beri allan kostn- að af tannlæknakennslu á ís- landi. — Það eru algjör ósann- indi hjá K.H., að íslenzkir stúd- entar hafi einihvern tíma hótað því „að grípa til líkamsmeið- inga og eyðileggingarstarfsemi", þótt hvorki gengi né ræki í bar- áttumálum þeirra árum saman — t.d. i málefnum tannlækna- deildar. Þeir hafa hins vegar velt því fyrir sér, hvort ekki væri í slíkum málum hægt að grípa til einhverra róttækari aðgerða en oftast hefur verið beitt — og það hefur rauar verið gert í vetur og alveg án þess að skert væri hár á höfði eins einasta manns eða nokkur hlutur skemmdur. — Ég vil svo að lokum vitna í K.H. þar sem hann segir, að fyrri grein minni hafi frekar verið ætlað „að varpa skuggum en birtu.“ Hafi einhvers staðar fallið skuggi á við það, sem fram kom í þeirri grein, hefur það lík- lega gerzt á svipaðan hátt og í þjóðsögunum gömlu, þegar dags- röndin brauzt fram, nátttröllin dagað upp, af því að þau þoldu ekki ljósið, og þau urðu að stór- um, ljótum steindröngum, sem vörpuðu fyrst löngum skuggum, en síðan æ styttri, unz sólin komst í hádegisstað. Höskuldur Þráinsson, form. stúdentaráðs. Björgunarstörf eru margvísleg ÞEGAR einhver er týndur, hljóm ar frá útvarpinu: „Skátar eru beðnir að mæta til leitar“, Flug- björgunarsveitin, og stundum al- menningur, og er gott eitt um það að segja, mjög gott, ómetan- legt. Aftur á móti er stundum kona að deyja frá börnum sínum, ým- ist í sjúkrahúsi eða heimahúsum. Þá þarf hvorki flugvél né leitar- menn með ljós í hendi. Hún ligg ur þarna með ólæknandi krabba mein, eða var það kanniski ekki ólæknandi? Hefðu Kobaltgeislar bjargað lífi her.nar, ef hún hefði fengið þá í tæka tíð? Okkur eru sagðar tölur þessara sjúklinga í öðrum löndum, og eru batahorf- ur mun meiri, þar sem Kobalt- geislameðferð er fyrif hendi. Krabbameinsfélagið hefur kom ið upp leitarstöð B af miklum dugnaði. Landsspítalinn hefur fengið Kobalttæki að gjöf, sýn- ir það skilning ogfrábærain höfð ingskap gefenda. Ber að þakka þessum aðilum gott framtak. Peninga vantar alltaf, ef eitt- hvað á að gera. Alltaf er samt verið að byggja kirkjur, banka og hraðbrautir, svo eitthvað sé nefnt. Við erum búin að fá hægri handar akstur með miklum kostn aði, en nóg um það. Aðrar þjóð- ir hafa tekið upp Kobaltgeisla- lækningar, við þuríum að fá þær líka, og það án tafar. Við áttum að brosa við umferðarbreyting- unni og gafst vel. Enginn getur brosað við þeirri breytingu, sem verður á móður á bezta aldri, sem þessi hræðilegi sjúkdómur nær tökum á. Skær og falleg augu hennar verða döpur og ang istarfull og bresta að lokum. Eft- ir standa hnípin börn og oftast eiginmaður. Það kom skýrt fram við uim- ræðurnar á Alþingi 26. marz sl. að alþingismönnum var ekki ljóst það neyðarástand, sem hér Soffía Eygló Jónsdóttir ríkir, vegna skorts á sjúkrarými fyrir kvensjúkdómasjúklinga, fyrr en þeim barst bréf með til- lögu og greinargerð frá Banda- lagi kvenna í Reykjavík varðandi þessi mál, sem hin ýmsu kvenna samtök í landinu styðja af al- hug. Þetta er ópólitískt mál, sem allir eiga að standa saman um, og kom greinilega fram vilji til þess á Alþingi. Samkvæmit upp- lýsingum heilbrigðismálaráð- herra hillir nú undir bráðabirgð arlausn varðandi Kobalttækin, en það dregur á engan hátt úr þörf inni á að f jölga sjúkrarúmum fyr ir þessa sjúklinga. Ég treysti þeim aðilum, sem þessum málum ráða, að hefjast handa þegar í stað, og munu kon ur um land allt fylgjast með framkvæmdum af áhuga. Soffía Eygló Jónsdóttir, formaður Kvenfélags Kópa- vogs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.