Morgunblaðið - 10.04.1969, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1969
19
Lög um Stofnlána-
deild endurskoðuð
Þingsályktunartillaga Pálma Jónssonar
Pálmi Jónsson hefur lagt fram
á Alþingi tilloRii til þingsálykt-
unar um endurskoðun laga um
stofnlánadeild landbúnaðarins,
landnám, ræktun og byggingar í
sv-eitum og fl.
Er tillaga þingmannsins svo-
hljóðandi: Alþingi ályktar að
fela landbúnaðarráðherra að
láta endurskoða lög um Stofn-
lánadeild landbúnaðarins, land-
nám, ræktun og byggingar í
sveitum: ennfremur önnur lög
og lagafyrirmæli, er varða ríkis
framlög til jarðræktar, bygg-
inga og byggðaþróunar í sveit-
um og taka til athugunar, hvort
eigi sé ástæða til að samræma
þau og fella inn í lögin um
stofnlánadeild og fl.
Hér er þó ekki lagt til að
endurskoða II. kafla laganna er
fjallair um Stofnánaleid land-
búnaðarins.
í greinargerð sinni með tillög-
unni segir þingmaðurinn:
Frá því er lögin um Stofn-
lánadeild landbúnaðarins, land-
nám, ræktun og byggingar í sveit
um voru sett 1962, hafa þrívegis
verið gerðar á þeim minni háttar
breytingar. Sá hluti þeirra, er
fjal'lar um Landnám ríkisins, er
þó að meginefni mun eldri, enda
þótt miklar breytingar hafi ver-
ið gerðar frá því er fyrst voru
sett lög um þetta efni 1941. Þrátt
fyrir, að lögin hafi verið endur-
skoðuð á tiltölulega fárra ára
fresti, virðist augljóst, að þau
Pálmi Jónsson.
hafa tæpast fylgt eftir þróuninni
í landbúnaðinum nú hin síðustu
ár, þeirri þróun, sem þau vissu-
lega hafa átt sinn gilda þátt í
að hrinda áfram.
Með þeirri endurskoðun, sem
hér er lagt til að fram fari á
lögunum, er þess vænzt, að tak-
ist að samræma þau nýjum við-
horfum og marka þeim skýrari
framtíðarstefnu í viðleitni til
áhrifa á byggðaþróun og upp-
byggingu í sveitum landsins.
J afnframt verði leitazt við að
sneiða hjá þeim ágöllum, sem
komið hafa í ljós hin síðustu ár.
Lögin virðast t.d. ýta um of und
ir skiptingu jarða vegna tak-
markana á framlögum til jarð-
ræktar eftir stærð rækunarlands
Skipting á góðum jörðum getur
í vissum tilvikum átt rétt á sér,
en allt of mörg dæmi eru þess,
að sú ráðstöfun hefur reynzt til
óþurftar, og er hætt við, að þess
gæti meira í framtíðinni.
Ýmis ákvæði laganna utn Stofn
lánadeild landbúnaðarins, land-
nám o.fl. eru næsta ó'ljós, eins
og t.d. er viðkemur byggðaþró-
un, en jafnframt hafa verið sett
önnur lagafyrirmæli, sem hafa
skyld verksvið, þó að þau gangi
ekki í sömu átt, eins og lögin
um jarðeignasjóð ríkisins nr. 54
27 april 1967.
Við endurskoðun laga þessara
virðist ástæða til að taka til at-
hugunar hvort eigi sé unnt að
koma við meiri hagkvæmni í skipt
ingu verkefna milli Búnaðarfé-
lags íslands og Landnáms rík-
isins að því er varðar framlög
ti'l ræktunar og bygginga í sveit
uim.
Fljó'tt á litið sýnist ekki óeðli
legt, að innan stofnlánadejldar-
laganna rúmist ákvæði um hvort
tveggja í senn, lánveitingar og
ríkisframlög til styrktar þessum
framkvæmdum, í stað þess að
dreifa þeim verkefnum á hendur
fleiri aðila.
Fyrir Alþingi liggja nú tvö
mál, á þskj. 286 og þskj. 394, er
varða einstaka þætti í lögum um
Stofnlánadeild o.fl. Þau atriði
rúmast vitaskuld mjög vel inn-
an þeirrar endurskoðunar, sem
hér er lagt til að gerð verði, og
krefja einmitt frekar en el'la
fram þá heildarendurskoðun, sem
hér er stefnt að.
Mörg rök virðast því hníga
að því, að nú sé eðlilegt að láta
fara fram endurskoðun stofnlána
deildarlaganna ásamt athugun á
samræmingu skyldra lagafyrir-
mæla. Með því sé stefnt að því,
að þau verði á komandi árum
ekki síður en hingað til land
búnaðinum öflug lyftistöng og
þjóðarheildinni til heil'la.
LAN DSLIÐSFLOKKUR : 1 2 3 4 5 6 7 8 2 Ifl 11 .12 ,Vmr
1 FRIDRIK ÖLAFSSON '4 1 1 !á 'a 'h 1. 1 1 1 1 9
? GUOMUNDUR SIGURJÖNSSON Vl 0 'h 1 1 1 1 1 1 1 h 8 'h
3 HAUKUR ANGANTÝSSON 0 1 'h 0 'h 1 1 1 0 1 1 7
4 BJÖRN ÞORSTEINSSON 0 'h 'h 'h '/2 1 t 1 1 0 1 7
s FRFYSTFINN PORBFRGSSON 'A 0 1 'h 0 'h 1 'h 1 1 6 'h
fi JÖN HÁLFOÁNARSON 'h 0 !4 'h 1 0 0 'h 1 'h 1 5 '/,
7 BJÖRN SIGURJÖNSSON 'h 0 0 0 'h 1 0 1 1 1 0 5
B ARINBJÖRN GUÐMUNDSSON 0 0 0 0 0 1 1 0 1 'h 1 4 h
9 JÓN KRISTINSSON 0 0 0 0 '4 'A 0 1 1 1 y* 4 a
10 JÖHANN ÞÓRIR JÓNSSON 0 0 1 0 0 0 0 0 1 h 3
11 HALLDÓR JÓNSSON 0 0 0 1 0 'h 0 '/1 0 0 m 1 3
Liz JÓHANN ÖRN SIGURJÓNSSON 0 'h 0 0 0 0 1 0 'h 'h 0 ii£
- SJÓNVARP
Framhald af bls. 32
tíma um dreifingu sjónvarps um
landið, og þim ákvörðunum, sem
teknar hafa verið um framkvæmd
ir á þessu ári, ásamt ráðgerðum
framkvæmdum á næsta ári.
Þegar ríkisstjórnin ákvað fyr
ir fimm árum að beita sér fyrir
því, að komið yrði á fót ís-
lenzku sjórwarpi, var sú ákvörð
un byggð á því, að aðflutnings-
gjöld af innfluttum sjónvarps-
tækjum skyldu ganiga til greiðslu
á stofnkostnaði sjónvarpsins, en
tekjur af árlegum afnotagjöldum
og auglýsingum skyldu standa
undir kostnaði við rekstur. A'l-
þingi heimilaði ríkisstjórninni að
nota aðflutningsgjöld af innflutt
um sjónvarpstækjum til greiðslu
á stofnkostnaði íslenzks sjón-
varps, og hefur þessi heimild
verið notuð síðan 1. júlí 1964.
Allur rekstrarkostnaður sjón-
varpsins hefur hins vegar verið
greiddur með tekjum af afnota-
gjöldum og auglýsingum.
Unnt hefur reynzt, að hafa
daglega dagskrá lengri en upp-
haflega var ráð fyrir gert. Og
dreifing sjónvarpsins um 'landið
hefur og orðið örari en menn
þorðu að vona í upphafi að orðið
gæti.
Um það bil tvö ár liðu frá
því, að ákvörðunin var tekin
um stofnun íslenzks sjónvarps,
þangað til sjónvarpesendingar
hófust frá sendistöð, sehn ætluð
var Reykjavíkursvæðinu. Bygg-
ingu aðalstöðvarinnar, sem vera
átti og er hornsteinn dreifingar
sjónvarpsins um landið, stöðvar
innar á Skálafelli, var lokið í
nóvembermániuði 1968. ,Um svip-
að leyti hafði verið komið upp
bráðabirgðastöð á Vaðlaheiði og
endurvarpsstöð á Skipalóni til
þess að sjónvarpið næði til Ak-
ureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins
Rétt á eftir eða fyrir síðastlið-
in ára.mót hófust einmig sjón-
varpssendingar til Skagafjarðar
um Ská'lafellsstöðina og til
rtiokkurs hluta Vestfjarða um að-
alstöð í Stykkishólmi. Jafnhliða
hefur verið komið upp fjölmörg
um minni stöðvum. Nú í dag, eða
um það bil 2 Vá 'ári aftir að ís-
lenzkt sjónvarp var hafið, nær
það til landssvæðis, sem á búa
175 þúsund manns eða um 85%
allrar þjóðarinnar. Á þessu land
svæði eru nú 31.400 sjónvarps-
tæki í notkun, og sé gert ráð
fyrir því, að meðalfjölskylda sé
um hvert sjónvarpstæki eru nú
132 þúsund landsmanna á þeim
svæðum, sem sjónvarpið nær til,
sjónvarpsnotendur, eða 66 prs.
al'lra landsmanna.
f svari við fyrirspurn hér á
hinu háa Alþingi haustið 1967
sagði ég, að gert væri ráð fyrir
því, að sjónvarp nái til allra
landshluta á árinu 1969. Gengis
breytingar þær, sem urðu haust
in 1967 og 1968 hlutu hins vegar
að raska verulega fjárhagsgrund
velli þeirra framkvæmda, sem
ráðgerðar höfðu. verið. Engu að
síður tókst að halda framkvæmd
um í fyrra í öllum aðalatriðum
eins og áætlað hafði verið. En á
þessu ári, árinu 1969, hafði verið
áætlað að reisa aðalstöðvarnar á
Vaðlaheiði og Fjarðarheiði, auk
ýmissa aukastöðva. Til þess að
gera þetta kleift hefur orðið að
grípa til sérstakra ráðstafana.
Með núverandi verðlagi eru þess
ar framkvæmdir áætlaðar að
munu kosta 80 millj. króna, en
til viðhalds og endurnýjunar
mun þurfa að verja 8 milljónum
krórsa. Tekjur ríkisútvarpsins af
innfluttum sjónvarpstækjum eru
áætlaðar 48 milljónir, svo að 40
millj. króna hefur vantað á til
þess að hægt mundi vera að
fylgj a upphaflegum áætlunum.
Fé hefur nú verið tryggt til þess
ara framkvæmda, svo að unnt
mun verða að fylgja upphaflegri
áætlun. Munu því í ár verða
byggðar aðalstöðvar dreifikerfis
ins á Norðurlandi og á Austur-
landi, þ.e.a.s. stöð á Vaðlaheiði
og á Gagnheiði, sem nú er talin
heppilegri en Fjarðarheiði, og
sjónvarpi þar með komið til fjög
urra kaiupstaða, þ.e.a.s. til Ólafs
fjarðar og Siglufjarðar um Vaðla
heiðarstöðina og til Seyðisfjarð
ar og Neskaupstaðar um stöð-
ina á Gagnheiði
Þessar ákvarðanir hafa þegar
, verið teknar. En áætlanir hafa
einnig verið gerðar um fram-
kvæmdir á næsta ári, árið 1970
I Þá er ráðgert að byggja aðal-
stöð á Fljótsheiði í Suður-Þing
og Húsavík, aðra aðalstöð á
Blönduósi fyrir Austur-Húna-
vatnssýslu og sem tengistöð fyr
ir Hólmavík og norðanverða
Strandasýslu, svo og tengistöð á
Hrútafjarðarhálsi fyrir Vestur-
Húnavatnssýslu og sunnanverða
Strandasýslu. Ennfremur er ráð
gert að byggja aðalstöð á Háfelli
í Mýrdal fyrir Skaftafellssýsl-
ur og til sambands við sunnan-
verða Austfirði gegnum Höfn í
Hornafirði. Auk þess verður þá
haldið áfram útbreiðslumælingum
fyrir Austfjarða- og Norður-
Austurlandssvæðin.
Ég tel ánægjulegt að geta
skýrt frá því, að þegar á þessu
ári muni verða svo komið, að ís-
lenzkt sjónvarp nái til allra
landshluta. Auðvitað mun það á
þessu ári ekki ná til sérhvers
landsmanins, enda á sér slíkt
ekki stað enn í löndum, sem þó
hafa haft sjónvarp miklu lengur
en Islendingar og jafnvel þótt
aðstæður séu ekki eins erfiðar
og hér á sér stað. En fslend-
ingar hafa sýnt sérstakan áhuga
á sjónvarpi í þann stutta tíma,
sem það hefur verið starfrækt
hér. Þess vegna er sjá'lfsagt að
leggja á það hina ríkustu áherzl
að það kcmist sem fyrst í alla
landshluta. Það er gleðilegt, að
þeir fjárhagserfiðleikar, sem að
þjóðinni hafa steðjað, skuli ekki
hafa orðið til þess að raska áætl
unum um dreifingu sjónvarps um
landið né heldur til þess að
draga úr þeirri þjónustu, sem
sjónvarpið hefur veitt, með stytt
ingu dagskrár eða því, að draga
úr gæðum hennar. Unnið verður
að því, að hvorugt eigi sér stað.
Lúðvík Jósefsson sagði að
fagna bæri yfirlýsingu ráðherra
um útbreiðslu sjónvarpsins, og
væri hún mjög ánægjufeg þar
sem jafnvell hefði verið búizt við
að ekki yrði uinnt að standa við
áætlanirnar.
Benedikt Gröndal ræddi uim
útbreiðslu sjónvarpsins og sagði
að hún hefði gengið skjótar fyr-
ir sig en nokkur hefði þorað að
vona. Hér væri mjög miklir erf-
iðleikar á dreifingu sjónvarps
vegna landslagsins, en tækni-
menn Landssímans sem störfuðu
Skákþingi íslands 1969 lokið:
Friðrik skókmeistari íslonds
Cuðmundur Sigurjónsson annar, Björn
Þorsteinsson og Haukur Angantýsson
í þriðja og fjórða sœti
SKÁKÞINGI ÍSLANDS 1969 er
lokið. Þátttaka var meiri en áð-
úr hefur þekkzt hérlendis, eða
alls 84. í hinum útvalda lands-
Iiðsflokki kepptu 12, og er sú
tala óbreytt frft ári til árs og
hefur verið svo í all'mörg ár. Ur-
s'lit einstakra skáka í keppninni
um titilinn Skákimeistari íslands
birtast hér á meðfylgjandi töflu
í blaðinu.
Friðrik Ólafsson stónmeistari
bar sigur úr bítum, eins og allir
bjuggust við, en Friðrik vann
með minni mun en nokkurn
hafði órað fyrir, því að hann
var aðeins hálfum vinningi ofar
en íslandsmeistarinn fyrrver-
andi Guðmundur Sigurjónsson.
Landslið fslendinga í skák er
aðeins skipað fjórum mönnum.
og eru því Friðri'k, Guðmundur,
Haukur Angantýsson og Björn
Þorsfeinsson sjálfkjörnir þar til
næstu landsliðiskeppni, að ári.
í meistaraflokki voru 24 þátt-
takendur og keppnin jöfn og
sikemmtileg frá byrjun. í meist-
•araflokki var teflt eftir svo-
inefndu Monrad-kerfi, 9 u'mferð-
'ir og urðu jafnir efstir þeir
©jörn Jóhannesson og Ingvar
fÁsimundsson með 7 vinninga
;hvor. Stefán Briem, Benedikt
|Halldórsson og Jóhann Þorst-
teinsson hlutu 6 vinninga hvor.
Ólafur H. Ólafsson, Stefán Þorm
gr, J'úlíus Friðjónsson og Karl
,Þorleifsson 5 V2 vinning hver.
|Þeir Björn og Ingvar hafa með
|bessu unnið sér rétt til að tefla
| landsliðsflokki árið 1970.
í 1. flokki voru þátttakendur
13 og sigurvegari Gunnar Finns-
•son með 514 vinning, en í öðru
|og þriðja sæti þeir Ingi Ingi-
mundarson og Magnús Gylfasor
með 5 vinninga hvor. Tefldai
voru 7 umferðir eftir Monrad-
kerfinu.
18 tóku þátt í 2. flokki og sigr
aði Þórður Ragnairsson með 5V
vinning og Ádolf Emilsson ann-
Friðrik Ólafsson stórmeistari
skákmeistari Lslands 1969.
ar með 5 vinninga af 7 möguleg-
'um.
• Unglingameistarj var Haf-
Steinn Ágústsson með 5 vinn-
Inga af 5 mögulegum, eða 100%.
'Þátttakendur í Unglingaflokki
voru 18.
■ Skákstjóri var hinn þekkti
iskákmeistari Þórir Ólafsson og
'Stjórnaði hann mótinu af mikilli
ifestu og skörungsskap — sig.
Stærsta og útbreiddasta
dagblaöið
Bezta auglýsingablaðiö
Aðallundur
Verzlunarmannafélags Hafnarfjarðai verður haldinn laugardag-
inn 12. apríl kl. 2 e.h. í Sjálfstæðishúsinu i Hafnarfirði.
Dagskrá: I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Verkfallsmálin.
STJÚRNIN.
JÓN ÞORSTEINSSON læknir Domus Medica
verður fjarverandi
um óákveðinn tíma vegna veikinda.
Staðgóngumaður: Nikulás Sigfússon sérfæðingur i lyflækn-
ingum, Domus Medica, sími 12810.
LOKAÐ
vegna jarðarfarar laugardaginn 12. april.
að þessu má'li hefðu staðið sig
ENDURSKOÐUNARSKRIFSTOFA
EYJÓLFS K. SIGURJÓNSSONAR
Lágmúla 9.
eyjarsýslu fyrir Þingeyjarsýslur með miklum ágætum.