Morgunblaðið - 07.12.1969, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.12.1969, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNTJDAGUR 7. DESEMBER 1960 P.V.G. Kolka: Tveir ferðalangar Það getur vart ólíkari ferða- langa á lifsins krókaleiðum en þá Sigu'rbjörn í Vísi og Magnús Storm. Annar er með heilags manns yfirbragði, en hinn mark- aðuir rúnum syndarinnar, o? báð- ir virðast una vel því útliti þeg- ar þeir bregða upp spegilmynd af sér og samtið sinni. Við nán- ari athugun er þó Sigurbjöm næsta ólíkur þeim helgu mönn- um, sem höfðust við á hárri súlu eða sem einsetumenn hell isskútum eyðimarkurinnar því hann var maður dugnaðar og áfergju, ekki aðeins við að vinna fyrir stónri fjölskyldu, heldur og í hverjum félagsskap, sem hann var viðriðinn, hvort sem var K.F.U.M., sóknarnefnd, niðurjöfnunarnefnd eða sund keppni í straumiðu stjómmál- anna, eins og þau vora framan af þessari öld, þegar persónu- legur kunningsskapur og ísmeygilegur áróður máttu sin meir en flokksblöð og l.jóður- bönd stéttarfélaga. Og hann kunni því ekki illa að synda móti straumnum, ef því var að skipta, því að þar átti hann betur heima en í djúpum hyljanna. Kostum og göllum bessara endurminninga Sigurbjarnar hef Ur verið lýst svo vel í Reykja- vikurbréfi Mbl. frá 30. f m. að litlu er við að bæta. Þó má geta þess, að í viðbót við frásagnir um ýmislegt sem gerðist að tjaldabaki í landsmálum og bæj- armálum, þá gefur bókin all- glögga mynd af þeirri bjart- sýnu atoirku og fórnfýsi, sem einkenndi að mörgu levfi fyrri hluta þessarar aldar hér á landi. Og þótt frásögnin snúist mjög um höfundinn sjálfan og alls- konar smáatvik, sem litlu eða engu virðast skipta aðra, þá er hér um að ræða allmikla fram- för frá fyrsta bindi þessarar ævisögu, sem enginn sér enn fyr ir endann á. Skráð smáatvik geta stundum veitt síðari kynslóðum forvitnilega skráargatssýn inn á leiksvið liðinnar aldar og ar dag bók Pepys glöggt dæmi um það, en hún var að vísu leynileg minnisbók fyrir hann sjálfan svo að ekki þurfti að haga dóm- Sigurbjörn A. Gislason uim uim mernn og máiliefini m.eð til liti til aðstandenda. Pepys gaf gleggstu lýsingiu sem tii er, á pestinni í London og brunanum mikla, en annars snýst dagbók hans mikið um hversdagslega við burði, svo sem það hvað var á borðum hjá honum og öðrum við ýmis tækifæri og hvað einstak- ar flíkur á konu hans kostuðu. Þetta getur varla kallast skemtilestur, þegar það er rak ið dag frá degi, en hefur hó sína þýðingu til skilnings á 17. öld- inni. Við sem nú lifum, hefðum líka getað þegið nokkrar smá- smugulegar firásagnir Sturlu Þórðarsonar af daglegu Irfi á Sturlungaöld. Hinn syndugi maður Magnús Magnússon á lítið skylt við þá garpa, sem bundnir eru satan- isku bræðralagi Mafíunnar. Hann átti að vísu um stutt skeið að afloknu embættispróH nokk ur samskipti við ýmsa afbrota- menn, en aðeins sem fulltrúi sakadómara. Sennilega hefur honum ekki verið sýnt um að sveifla hrísvendi laganna og varð haran því hvorki sýslumaður né ráðuneytisstjóri og ekki not- aði hann heldur próf sitt til upp skúfunar á söluverði íbúða, né heldur til að greiða úr brætu- flækjum deilugjamra manna, svo Kópavogsbúar Snjókeðjur á ýmsar gerðir fólks- bifreiða við mjög hagstœðu verði Skodabúðin Auðbrekku 44-46. Kópavogi simi 42606 Bongoud Margir vita að Bongoud kventöskur eru á heimsmælikvarða að gæðum. Höfum úrval af þessum töskum í ýmsum litum og skinnum. Allar skinnfóðraðar. Ákjósanleg jólagjöf. Töskubúðin Laugaveg 73 hann öðlaðist aldrei þann heiður að fá að bera réttlætÍ3- skrúðann, sem er embættisbún- ingur hæstaréttar. Aftur á móti gerðist hann um tíma ritstjóri stj ómmálablaðs og er hugsan- legt að hann hafi þá gengið með þrngmann í maganum, en bað var ekki óalgengur atvirnnusjúkdóm- Ur meðal lögfræðinga. Hvergi getur hann þó um innantökur af þessu tagi og lýsir hann bó ýms- um bneyskleika sínum af mikilli hreinskilni í þessari ævisögu sinni. Magnús kaus í stað þessara möguleika hið Ijúfa líf, ef hægt er að hafa það orðtak um það að berja fótastokkiim á víxlum á reið sinni milli æskuára og gam alsaldurs. Þá þjálfun í rök rænmi hu'gBun, s&m lögfiræðin átti að inn-ræta honum, notaði hann til altra tegunda spila- mennsku, allt að þrjá til fjóra daga í viku í 65 ár, en stundaði af jafnmikilli reglusemi drvkkju ,skap 1—2 daga í viku um meiira en 40 ára skeið. Þann tíma sem afgangs vairð sveiflaði hann sín um lipra penna til að skrifa og gefa út blaðið Storm, og síðair á ævinni til að þýða ýmsar fróðleg ar ævisögur frægra manna. Stormur mun um langt skeið hafa veitt honum nauðsynlegt lífsuppeldi, enda var blaðið vin sælt, ekki hvað sízt fyrir palla- dóma sína um alþingismenn, en þeir voru að jafnaði hnittnir, mátulega illkvittnir til að skemmta lesandanum og sjaldan með áberandi smekkleysur. Þetta var á meðan maddama Fram- sókn var í banneign og sxipaði húsfreyjusess eða a.mk. hjá- konusess á þjóðarbúinu, og gerði Magnús henni ýmsar glett ur. Magnús var kominn af góðu og gáfuðu bændakyni og áttu foreldirar hans sex syni. Hann gefur stuttorðar lýsingar á helztu bændum um allt miðbik Húnavatnssýslu, þeim er voru ofar foldu á uppvaxtarárum hans, enda eru snjallar mann- lýsingar höfuðkostur á bók hans. Hann reyndist klaufskur á flest það, er til búskapar horfði, en hugur hans stóð mjög til mennta eins og margra rnnarra ungra manna í ættarhérraði hans. Eftir eins vetrar nám í Hvítár- bakkaskóla var hann talinn svo menntaður, að hann var gerður að farkennara 17 ára gamll, en jaifntframt reynidist hann sjálfur námfús lærisveinn tveggjaheima sætna, sem veittu honum verk- lega kennslu í kynlífsfræðum, og hafði önnur þeirra forÞam- ast vetrarlangt í Reykjavík. Hann neyndist síðar á ævinni með köflum hyskinn við nám sitt, en hefði getað náð ágætis einkunin, ef hefði hann sttindað það af jafnmiklum áhuga og Magnús Magnússon 19 19W Magntís t. Baldvinsson Laugaveg 12, simi 22804. þennan leyniiega lærdóm æsku- áranna, þótt uppburðarlítill og klaufskur væri til að byrja með. Magnús fór 21 árs gamall í þriðja bekk Gagnfræðaskólans á Akureyri, en vaT svo illa und- irbúinn, að það háði honum þá og síðar. Hann klöngraðist þó yfir ýmsa þröskulda i mismun- andi prófgreinum, varð stúdent frá Menntaskólanum í Revkja- vík 1917, orðinn 25 ára, og tók lögíræðipróf fimnim áruim siðar. A þessari námsbraut átti harm marga ágæta samferðamenn. er sumir komust síðar til metorða. en eins og margir fleiri vanin hann á sumrum fyrir sér síld- inni og síðustu árin með þing- skriftum, sem komu honum að góðu haldi við palladóma hans seinna meir. Að ofloknu ?mbætt- isprófi fékk hann námsstyrk til útlainda og naut þar einnig hjálpar Thoir Jensens, sem var jafnan mjög ósinkur á fé við unga menntamenin og listamenn, sem leituðu til hans, þótt ókunn- ugir vsbtu. Leið hans lá til Dan- merkur og Þýzkalands og not- aði hann tímann meir til að sjá sig um en að hlýða fyrirlestrum, en í því fór hann að ráðum kenn ara síns Einars Arnórssonar, sem hann mat mjög mikils. Öll námsár Magnúsar féllu ingsbann á áfengi var í lögum á Islandi. Bannið slævði mjög þá bindánidiÍBÍhmeyfiinigu, sem áður vair orðin sterik, eiinkuim meðail ungra manna, og almenn fíkn í áfengi fór því í vöxt. Það þótti manns- bragur að því að geta náð í ólög legt áfengi. Löghrjótair hafa alltaf fyrirfundizt á fslandi, en það voru að jafnaði menn, sem fóru einförum og voru litnir homauga af almenningsálitinu. Með banninu varð breyting á þessu, því að þá þótti sjálfjagt, að þeir sem höfðu aflað sér áfengis, létu sem flesta vini og kuTiniingja njóta þess með sér og myndaðist þannig andlegt handa lag Bakkusarvina, ekki hvað sízt meðal menntamanna, sem áður höfðu yfirleitt borið virðingu fyrir landslögum, enda verið ráð andi stétt, en þegar ráðandi stéttir þjóðfélagsins hætta að virða lög og hafa jafnvel félags skap um að bijóta þau, er hætt við að allri löghlýðni í landinu hnigni. Á þessum árum var hvwki til hjjóðva.rp né sjónivairp, emigir op- inberir vínbarir né dansstaðir, ef frá er tekið Góðtemplarahús- ið, þar sem að jafnaði voru haldin böll fyrir almenning vikulega, mikið sótt af þeirri fjölmennu stétt, nú útdauðri, sem gengdi vinnukonustörfum í heimahúsum, áður en rafmagns- tæki komu til sögu. Annars not- uðu konur firítíma sína mest til hannyrða, en karlmenn áttu fleiri kosta völ. Margir og það af öllum stéttum, notuðu hann til bóklesturs, einkum fomsagna og ljóða, en þá var hvert sæmilegt skáld þj óðhetja. Þeir sem ekki neyttu áfengis, sátu langtímum á kaffihúsum við umræður um skáldskap, stjómmál eða önnur háfleyg efni, en yfir höfuð og heirðar allra slíkra gnæfði hið andlega aristókrati, menn sem höfðu stúdentsmenntun, hvort sem voru ráðhemrar eða rónar. Með peningum einum gátu menn varla keypt sér aðgang að þess- ari hirð nema sem skutulsveinar, en afreksmenn í göfugum listum spilamenmskunnar, svo sem bridge og lomber, áttu þar sæti á bekk með þeim, sem stunduðu slíka íþrótt. f höll Bakkusar var þó á bannárunum oft aðeins spurt um eitt: „Áttu nokkuð?" Magnús var og er mikill íþróttamaður í spilum, hafði ágæta kímnigáfu og var vín- hneigður, en þó varla svo ir.ikill drykkjumaður sem orð hefur á gert og sízt meiri en margir, sem nú gegna þýðingarmiklum störf- um í þjóðfélaginu. Homim varð því gott til félaga, bæði við spilamennsku og einnig við drykkju, en það fór alls ekki alltaf saman. Margir þessara fé- laga hams voru þjóðkunnir menn á sínum tíma og nöfn nokkurra munu lemgi lifa í þjóð- arsögunni. Flestir þeirra hafa gengið fyrir ætteimisstapann á undan honiuim, ein haimn slkýrir frá samverunni við þá á hlýleg- an og hispurslausan hátt, segir af þeim margar eftinminnilegar sögur, án þess að draga fjöður yfir bresti þeirra, þótt á ein- staka stað sé nafni haldið leyndu. Hann dregur oft upp skýrar myndir og skemtilegar í hnitmiðuðu og stuttu formi, og er það næsta ólíkt eftirmælum, eins og þau gerast að jafnaði, með mærðarfroðuna velland? út -J innan þess tímabils, sem aðflutn yfir alla barma og jafnvel blaða- ávörp til hins látna, eins og gera v©«S»-» t<e««3V mBKSV , ustöll gamla íímans tiusgogti r v^f5>9lSV více<<C»Kí>V ,VÍc)M(5V <VÍc)WðW> e<íe>M(5V >VÍc)M(SV e^cH KSV e. megi ráð fyrir að íslenzk blöð liggi frammi á biðstofunni hjá sánkti Pétiri. Bækur þeirra Sigurbjarnar og Magnúsar sýna næsta ólíkar htóðar þjóðlifisine á fyrri hliuta 20. aldar, en það or einmitt úr slíkum brotum sem fræðimenn ókominnia tíma munu setja sam- an þá marglitu mósaikmynd, sem heitir Saga. Án slíks efnis stend uir hvert tímabil næsta litlaust fyrir sjónum þeirra, sem reyna að lyfta tjaldi timans til þess að skyggnast inn í foirtíðina, ogþví hafa þær ekki aðeins skemmt- anagildi í bili, heldur notagildi er fram í sækir. Slíkar bækur falla því ekki í gleymsku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.