Morgunblaðið - 07.12.1969, Blaðsíða 10
10
MORGUHBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 106»
f Keldnaholti er hafin bygg-
ing á þriðja rannsóknastofnana
húsinu og er það fyrir Rann-
sóknastofnun iðnaðarins. En
sem kunnugt er á þama að risa
rannsóknahverfi og eru þegar
fluttar þangað Rannsóknastofn
un landbúnaðarins og Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðar-
ins.
Næsta haust þarf Rannsókna
stofnun iðnaðarins að víkja fyr
ir Háskólanum úr gamla At-
vinnudeildarhúsinu á háskóla-
lóðinni og því eru áform um að
ljúka nýju byggingunni fyrir
þann tíma. Mbl. leitaði frétta af
•V* íftj/v'
Grunnur fyrir
............^
< .»' . V&Lh ’ V ' ■■■:■■■:«■»:■
Rannsóknahús iðnaðarins bíður næstu þíðu. í baksýn hús Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins, sem er svipuð bygging.
ÞRIÐJA BYGGINGIN
í KELDNAHOLTI
Rannsóknastofnun
iðnaðarins flytur
þangað næsta haust
nýju byggingunni og starfsem-
inni, sem þangað fer, hjá Pétri
Sigurjónssyni, forstöðumaimi
Rannsóknastofnunar iðnaðar-
ins.
Búið er að graifa grurminn
undir nýja húsið í Keldnaholti
og fylla hann með hraungjalli.
Með því vinnst það, að þarna
er frostlaus grunnur og hægt
að hefja byggingaframkvæmdir
um leið og frost fer úr lofti.
Jafnvel hugsa iðnaðarstofnun-
armerm sér að byrja að steypa
undirstöður, etf þíða kemur í vet
ur. Þetta spairar mikinn tíma,
flýtir verfkinu um marga mán-
uði.
Byggingin verður 900 fer-
metrar og öll á einni hæð. Hug-
myndin er að steypa súlur,
veggi og burðarbita fyrirfram
og reisa það síðan. Byggingin
er mjög svipuð húsi því, sem
reist var í Keldnaholti undir
Rannsóknastofnun byggingar-
iðnaðarins, og er í ýmsu byggt
á reynslu, sem þá féklkst, eins
og t.d. í sambandi við þéttingu.
í húsi Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins var tölu-
vert af tréflekum í útveggjum,
en Rannsóknastofnun iðnaðar-
ins ætlar að steypa þá fleka.
Þá verða innréttingar mjög ein
faldar. Allar leiðslur verða að-
gengilegar og ekki faldar í
veggjum. Þær verða færðar
upp yfir loft, en í gólfinu að-
eins komið fyrir frárennsli.
Annars sagði Pétur, að ekki
væri alveg búið að ganga frá
þessu. Unnið er að teikningum.
Teiknistofa Skarphéðins Jó-
hannssonar arkitekts teiknar
húsið, Stefán ólafsson venk-
fræðingur hefur verkfræðileg-
ar teikningar og KristjánFlyg
enring sér um loftræsti- og hita
lagnir. En vonir standa til að
húsið verði tilbúið og hægt að
flytja inn í setpember næsta
haust.
RANNSÓKNIR FYRIR
IÐNAÐINN
Hvaða starfsemi er það þá,
sem flytur í nýju bygginguna í
Keldnaholti? — Það er rann-
sóknastarfsemi fyrir iðnaðinn,
og hún er býsna margþætt, seg
ir Pétur. Ákveðnar stefnur eru
þó að myndast og byggjastupp
vissir kjamar, eins og málmiðn
aðanrannsóknir, tiréiðnaðarrann
sóknir, efnaiðnaðarrannsóknir
tnefjaiðnaðarrannsóknir o.fl.
Þessar greinar blandast að
nioikikru leyti í ramnsóknastainf-
seminni. En þær þurfa líka
stundum að haldast aðgreindar.
Það fer eftir því hvernig má
stilla saman nauðsynlegum
tækjum. Sumar rannsóknir eru
þess eðlis, að þær mega ekki
koma saman við aðrar. Meng-
unaTrannsóknir verða t.d. að
vena út af fyrir sig, þar sem
ekki mega koma að sýnishorn-
unum nein utanaðkomandi efni.
Og sama er um fluorrannsókn-
imar vegna Straumsvíkur.
— Málimiðnaðarramnsóknirnar
hafa ryk og óhreinindi í för
með sér og því mega ýmsar aðr-
ar rannsóknir ekki vera á sama
stað. — Þetta hefur allt sín
áhrif á hönnun nýju byggingar
innar, segir Pétuir. Við reyn-
um að stúka húsnæðið sem
minnst niðuir, þar sem það er
ódýrara í byggingu. En sumt
getuir ekki farið saman.
Öll starfsemi Rannsókna-
stofnunar iðnaðarins flytur í
Keldnaholt. Þar er þó litlu hús
rými eytt í skrifstofur, því
rannsóknastofnanirnar hafa
sameiginlega skrifstofu í bæn-
um, og fá þannig vélabókhald,
sem er fullkomnara og ódýrara
og betri þjónustu. Það hús, sem
nú á að byggja, gerir þó ekki
meira en rétt nægja í bili und-
ir starfsemina, að því er Pétur
segir. Og fljótlega þarf að
halda áfram með fyrirhugaðar
byggingarframkvæmdir á þess-
um stað. Bn allt, sem byggt er
þama, er þannig, að það fari
vel saman við heildarsvip svæð
RANNSÓKNIR Á MENGUN
Við notuðum tækifærið til að
ganga um hjá Rannsóknastofn-
un iðnaðarins og spyrja Pétur
hvaða verkefni séu þar helzt í
gangi.
— Vandi okkar er að finna
út hvar við getum bezt orðið
að gagni. Þar sem peningar eru
af skomum skammti, reynum
við að taka það sem hefur fljót
virkasta og raunhæfasta þýð-
ingu, segir hann. Af því mótast
starfsemin. Við höfum því beitt
okkur í iðnaðanrannsóknum
þar sem fyrirtækin þurfa mest
á því að halda. Þannig hefur
skiptingin i fyrrnefndar grein-
ar orðið til. Við höfum líka orð
ið mjög gott samband við málm
iðnaðarmennina og trésmiðina
Rann-
sóknir
á
íslandi
og sendum þeim prentaðar upp
lýsingar, þegar einhver vanda
mál koma upp. Og ætlunin er
að halda áfiram að byggja upp
þetta samband.
Mininzt vair hér að oflain á
mengunarrannsóknir og fluor-
rannsóknir. Mengunarrann-
sókniæ á öllu neyzluvatnssvæði
Elliðaánna eru að hefjast hjá
Rannsóknastofnun iðnaðarins
en þær taka tvö ár, þar sem
sýnishorn þarf að fá á öllum
árstíma.
Fluorrannsóknir fara reglu-
lega fram í sambandi við ál-
verksmiðjuna í Straumsvík.
Rannsóknastofnun iðnaðairins
byrjaði þessar rannsóknir um
leið og byggingaframkvæmdir
hófust og mun halda áfram
reglulegu eftirliti.
Þá hefur verið unnið tals-
vert í sambandi við límingu í
trésmíði. Og einnig eru í gangi
ranmsóknir á réttu ralkiahlutfalli
í sambandi við viðinn, sem un-n
ið er úr, sem er mikilvægt í
trésmíði.
Þá hefur að undanförnu ver-
ið mikið unnið að rannsókr.um
í sambandi við saltvinnslu á
Reykjanesi. Einnig úr sýnis-
homum frá júgóslavneska sér-
fræðingnum, sem hefur veirið
hér vegna málmleitar. Og fjölda
margar aðrar rannsóknir eru í
gangi, fyrir utan hina venju-
legu þjónustu fyrir iðnaðinn,
sem er mjög fjölþætt.
TUGMILLJÓNA TJÓN
VEGNA MALMTÆRINGAR
Eitt af stæsrri vandamálunum,
sem Rannsóknastofnun iðnaðar
ins er að flást við, er mélim-
tæring. En tugir milljóna fara
forgörðum á hvetrju ári vegna
slíkrar tæringar. Þetta er eink
um vaindamál hér vegna sjáv-
arloftsins, sem alls staðar er.
En einnig er mikið um tæringu
vegna vatns.
Nú er til dæmis verið að at-
huga miíkla tæringu á hitalögn-
um í Árbæjarhverfi. Þair hefur
verið olíukynding og notað upp
hitað kalt vatn og stendur taer-
ingin í sambandi við það. Nú
verður hitaveituvatni hleypt á
hverfið, en ekki er þó útilok-
að að tæringin geti haldið
áifram. Þess vagna þarf að gera
einhverjar ráðstafanir til að
■koma í veg fyrir það.
í sambandi við þetta og fleiiri
málmtæringarvandamál kemur
hingað innan skamms forstöðu-
maður Konrosions centralen í
Kaupmannahöfn, Hans Arup,
en harrnl er sérfræðingur í efnis
tærinigarvandacmiáíLuim. Sagði Pét
ur, að hann mundi halda fyrir-
lestra, hjálpa Raransóikniaistofin-
un iðnaðarins með að skipu-
leggja tæringarrannsóknir, og
auk þess mundi hamn aðstoða
við að leysa verkefni, eins og
tæringima í Árbæjarhverfi og
fleira af því tagi.
Pétur sagði, að þessi háttur
hefði stundum verið hafður á,
í byrjun einhverra verkefna.
Um tvennt væri að ræða, að
senda eigin mienn til rannsókna
stofnama erlendis, til að kynna
sér viðkomandi rannsóknaað-
ferðir. Eða þá að fá sértfræð-
inga hingað til ráðuneytis, og
það væri miklu ódýrara og
áhrifaríkara. Það hefði líka
amniam kost. Þammig væri abofn-
að til kynna og sambanda, sem
gerði stanfssemi stofnunarinnar
öruggari og betri.
Á gönigu ökkar um Ramnsókna-
stofnun iðnaðarins staðnæm-
umst við hjá dýru tæki, sem
kom í fyrra og kostaði rúma
milljón, en það rannsakar áhrif
raka og Ijóss á ýmisis konar efni.
Er það t.d. notað við rannsókm
ir á gæðum gólfteppa og hús-
gagnaáklæðis, málningu plast-
efna o.fl o.fl.
Um leið og Pétur fylgir okk-
ur til dyra, sýnir hann okkur í
skonsu á neðstu hæð önnur
tæki, sem mest eru notuð utan
rannsóknastofanna. Með þeim
er hægt að gegnumlýsa málma.
Einnig að senda hljóðbylgjur
gegnum þá og finna með því
galla í málmum og vélum. Byrj
að var að veita þessa þjónustu
vegna byggingarframkvæmda í
Straumsvík. En með því að geta
gegnumlýst rafsuðu og annað
og ganga þaranig úr skugga um
að það sé gallalaust, geta ís-
lenzkir iðnaðarmenn t.d. sann-
að hæfni sína í samkeppninni
við erlenda sérfræðinga. Með
þessum tækjum er hægt að
sýna, að þetta eða hitt sé ekki
gallað og hvar gallamir eru,
ef þeir eru einhverjir. Öll slík
verk eru jafnóðum prófuð í
Straumsvík.
Þair sem oft eir erfitt að færa
þá hluti til, sem á að prófa,
vegna stærðar þeirra, og koma
þeim á Raranlsóiknaistoifraun iðn-
aðarins, þá er lagt kapp á að
hafa færanlegan tækjakost, svo
að hægt sé að fara á staðinn
og veita þessa þjónustu. Þann-
ig var t.d. nýlega sendur mað-
ur með tækin til Norðfjairðar
og þau eru tiltæk, ef á þarf að
halda, hvar sem er á landinu.
Margt fleira er í gangi í
Rannsáknastafnun iðnaðarims
og hefrar hér aðeins verið stikl-
að á stóiru, til að gefa hug-
mynd um þá starfsemi, sem ver
ið er að byggja yfir í Keldna
holti. — E. Pá.
Pétur Sigurjónsson í rannsóknastofunni, við tækin, þar sem flu-
orrannsóknir fara reglulega fram vegna álverksmiðjunnar í
Strau msvík.