Morgunblaðið - 07.02.1970, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1970
5
r'MiJlSMiwilP?:
ALÞINGI hefur nú gert hlé á
störfum sínum, er mun standa
um mánaðartíma, eða til 2. marz
n.k. Er fundarhléið fyrst og
fremst vegna Norðurlandaráðs
fundarins, sem hefst í Reykja-
vík á laugardaginn, en hluti af
störfum ráðsins mun fara fram í
Alþingishúsinu. Samkomulag
varð svo milli þingflokkanna að
hléið yrði nokkuð lengra, þann-
ig að ríkisstjóminni gæfist tími
til að vinna að einstökum mál-
um, . sem þurfa að koma fyrir
þetta þing, en hafa enn ekki ver
ið lögð fram. Mikilvægust þeirra
mála em húsnæðismálin, en boð
aiðar haifla verið aðgeirðiir til að
afla Byggingasjóði aukið fjár-
nua.gn, og ennifremiuir miun svo
ríkisstjórnin sennilega taka af-
Matthías Á. Mathiesen
— verður hann aðalforseti neðri
deildar?
stöðu til togaramálanna og
leggja fram tillögur um þátt eða
hlutdeild ríkissjóðs í togara-
kaupum.
Störf Alþingis frá lokum jóla-
leyfis til þingfrestunar nú, mót-
uðust mest af afgreiðslu mála,
sem tengd hafa verið EFTA að-
ild fslands. Má þar nefna frum-
varp um breytingu á tollskránni,
tollheimtu og tolleftirliti, sölu-
skatti, verzlunaratvinnu og iðju
og iðnaði. Mjög margar breyt-
ingartlilögur komu fram við
tollafrumvarpið, eða um 200 tals
ins og stóð fjárhagsnefnd sam-
eiginlega að flestum þeirra.
Breytingar þessar voru flestar
minni háttar, en munu þó hafa
í för með sér um 30 millj. kr.
tollalækkun, þegar á heildina er
litið. Umræður urðu allnokkrar
um öll þessi mál, en þær voru
málefnalegar og að mestu lausar
við hið endalausia stagl uim efna-
hagsmálin almennt, sem jafnan
hefur verið þegar þingmönnum
hefur þótt tækifæri til.
Sigurður
Bjarnason
kveður
Á síðasta fundi neðri deildar
fyrif þinghléið kvaddi Sigurður
Bjamason deildarforseti þing-
menn, en hann hverfur senn af
Alþinigi og tekur við embætti
ambassadors íslands í Dain-
mörku. Sigurður er meðal reynd
ari þingmanna okkar. Hann var
ungur kjörinn á þing sem full-
trúi Norður-ísfirðinga, og svo
síðar sem þingmaður Vestfjarða
kjördæmis. Hefur Sigurður ,set-
ið á 31. þingi og þar af verið
deildarforseti á 14 þingum. Ég
hygg að það hafi ekki verið of-
mælt hjá Lúðvík Jósefssyni, sem
þakkaði forseta fyrir hönd þing
manna, að Sigurður hafi staðið
mjög vel í stöðu sinni sem þing-
forseti. Það fer ekki hjá því, að
slíkt starf er vandasamt og oft
reynir á lipurð og réttsýni við-
komanda. Auk þess að vera
röggisiamiur foriseti er Sigurð-
ur einnig með áheyrilegri ræðu-
mönnum á Alþingi. Ræður hans
eru venjulega fremur stuttar,
málefnalegar og vel fram sett-
ar.
Sæti Sigurðar á Alþingi mun
taka 1. varaþingmaður Sjálfstæð
isflokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi, Ásberg Sigurðsson borg-
ardómari. Hefur Ásbérg nokkr-
um sinnum komið inn á þing sem
varamaður og vakið athygli á
séir fyriir Skeleggam mállflultniinig.
Hins vegar mun ekki enn af-
ráðið hver tekur við foa-setaemib-
ættinu. — Fyrsibi varaiforseti
neðri deildar er nú Benedikt
Gröndal og Matthías Á. Mathie-
sen er annar varaforseti. Sjálf-
stæðisflokknum ber að hafa aðal
forseta og er líklegt að Matthías
taki við þeirri stöðu. Hver svo
verður annar varaforseti er erf-
iðara að spá um á þessu stigi
málsins.
Kvennaskóla-
málið
Það heyrir örugglega til eins-
dæma í sögu Alþingis, að há-
reysti unglinga á þingpöllum
verði til þess að þingforseti sjái
sig tilneyddan til þess að slíta
fundi. Þetta gerðist á Alþingi
fyrir nokkru, er Sigurður
Bjamason sleit fundi neðri
deildar, eftir að ung stúlka hafði
hafið ræðuhöld á þingpöllum.
Enginn vafi er á því, að þessi
ákvörðun forseta var rétt og
skynsamleg. Hann hefði vitan-
lega getað látið ryðja þingpall-
ana með valdi, en þá hefði ein-
mitt verið valin sú leið, sem hóp
ur innan þessa hóps hefði ör-
ugglega talið eftirsóknarverða.
Atburður þessi hefur síðan ver-
ið til umræðu manna á meðal
og ýmsir telja að brotalöm hljóti
að vera á aga í þeim skólum,
sem þessir unglingra voru úr,
þ.e. Menntaskólunum og
Kvennaskólanum. Er vitanlega
fásinna að kveða upp slíkan
dóm eftir slífct tilvik. Hér gild-
ir hið fornkveðna, að ekki er
hægt að dæma skóginn eftir
fölnuðu laufblöðunum. Þess er
líka skylt að geta, að lang flest
þessara ungmenna hegðuðu sér
vel, en sami mótmælendahópur
og oftast áður hefur látið mest
á sér bera, var atkvæðamestur,
hvort sem það er nú af minni-
máttarkennd eða öðrum hvötum.
Kvennaskólamálið hefur nú
endanlega slegið Brúðkaup
Fígarós út í umtali, og þurfti þó
nokkuð til. f fyrra var þetta
sama mál einnig fyrir Alþingi,
en þá heyrðist ekki hósti né
stuna til andmæla. Nú er hins
vegar allt í einu orðin mjög hörð
andstaða gegn því, einkum með-
al ungs fólks og menntamanna
og margvísleg rök fundin gegn
framgangi þess, allt niður í
„kynferðislegan fasisma“.
Það er sannarlega góðra
gjalda vert, ef frumvarp þetta
og sá hávaði, sem orðið hefur í
kringum það, verður til þess að
alþingismenn fara að huga meira
að skólamálum en þeir hafa gert
hingað til, og þá sérstaklega
hinu mjög svo hefðbundna ís-
lenzka skólakerfi. Það skiptir að
sjálfsögðu engu höfuðmáli,
hvort Kvennaskólinn í Reykja-
vík fær að útskrifa stúdenta eða
ekki, heldur er meira um vert
að rjúfa skörð í þá múra, sem
reistir voru fyrir áratugum og
hafa hingað til lítið látið á sjá.
Með því að veita skóla þessum
stúdentsréttindi mun skapasit
fordæmi, sem sjálfsagt er fyrfc
aðra skóla að fara að, og mun
nú þegar vera að skapast hreyf-
ing í þá átt.
Miklar umræður uirðu um
frumvarpið, er það kom til 3.
umræðu á Alþingi, gagnstætt við
það sem var í fyrra, svo að auð-
séð er, að umtalið og blaðaskrif-
in hafa komið nokkru róti á hug
alþingismanna. Komu frarn í um-
ræðunum margvísleg rök bæði
með og móti, og að mínum dómi
kom einn þingmanna Hannibal
Valdimarsson fram með ákaf
lega óheppilegan samanbuirð í
þessum umræðum, er hann taldi
Kvennaskólann sambærilegan
við Kennaraskólann og Verzlun
arskólann. Virtist þingmaðurinn
Ásberg Sigurðsson
— tekur sæti Sigurðar á Alþingi.
ekki vita um það að báðir þess-
ir skólair veittu nemendum sín-
um miklu mefci menntun áður
en þeim var veitt stúdentsrétt-
indin heldur en Kvennaskólinn
gerir. Þannig eru lágmarksskil-
yrði til inngöngu í Kennaraskól
ann hin sömu og Kvennaskól-
inn nú bezt veitir og þeir sem
fá inngöngu í Verzlunarskólann
hafa þegar lokið skyldimámi eða
hliðstæðu námi. f báðum þessum
skólum þurfa nemendur að vera
a.m.k. einu ári lengur til þess að
öðlast Stúdentsréttindi en í hin-
um almennu menntaskólum. Það
er líka mikill misskilningur hjá
hinum sama þingmanni að halda
að þeir sem eru andvígir frum-
varpinu séu blindaðir af nei-
kvæðu ofstæki. Það kann að
gilda um suma og ætti þingmað-
urinn að eiga hæg heimatökin
að kanna það.
Ég vil nota þetta tækifæri til
þess að láta í ljós persónulega
skoðun á þessu máli, af þeirri
ástæðu einni, að ég hef orðið
var við að sumir telja mig mjög
á móti þessu máli, og að ég hafi
gert Magnúsi Kjartanssyni óeðb
lega hátt undir höfði í frétta-
frásögnum af umræðum á Al-
þingi. — Hins vegar minnist ég
þess ekki að Magnús hafi haft
svo mikinn áhuga á skólamálum
fyrr, þótt þau hafi oftsinnis
komið til umræðu á Alþingi sl.
3 ár.
Frá ritstjórum Morgunblaðs-
ins hef ég aðeins ein fyrirmæli
í sambandi við fréttir frá Al-
þingi — að skýra rétt og hlut-
laust frá bæði umræðum og mál-
um, svo og að meta frétta- og
frásagnargildi þefcra. Af þessari
ástæðu var vitanlega jafn
greinilega skýrt frá ræðum
Magnúsar um málið og annarra
þingmanna.
Það er svo rétt, að ég tel ekki
Sigurður Bjamason
— tekur við ambassadorsstörf-
um í Danmörku.
timabært á þessu stigi að
Kvennaskólinn fái umrædd rétt
indi, og eru rök mín fyrir því
nákvæmlega þau sömu og fram
kom í þingræðu Braga Sigur-
jónssonar um málið, að hér sé
byrjað á öfugum enda, og að
meiri og brýnni þörf sé að fá
fyrst menntaskóla annars staðar,
en að bæta þeim þriðja við í
Laefcj airgötiunmi í Reykj aví'k.
Það eru til skólar víða um land
sem eiga sér jafnmerka sögu og
Kvennaskólinn, ef út í það er
farið, en þörfin skiptir vitanlega
mestu máli. Enn eiga Vestlend-
ingar, Vestfirðingar, Austfirð-
ingar og Reyknesinigar engan
menntaskóla. Væri ekki skyn-
legra að greiða úr þeim málum
fyrst, og verja þeim fjármunum
sem fara í nýja Kvennaskóla-
Framhald á hls. 11
iiTiIIIP
wii i
HANGIKJOT
REYKTUR LAX
REYKT SÍLD
KAVIAR
RÆKJUR
Saltet og röget lammeköd. En nationalspise
gennem aarhundreder. I popularitet til-
svarende den danske flæskesteg. Serveres
som hovedret eller som paalæg.
Röget sild. Fast í ködet. Skæres í skiver som
röget end „fersk röget laks“ — mere smag.
Röget sild. Fast í ködet. Skæres í skiver som
paalæg.
Specialbehandlede stenbiderrogn, en lækker-
bidsken for de kræsne.
Konserverede Nordhavsrejer. Smaa, lækre,
dejlige.
Stort udvalg i vor dypfrostdisk (taaler vel et par timers flugvning).
Lammeköd með krydret smag af islandsk hede. Jomfruhummer,
Kammusling og en række andre dejlige sager.
— ÆGTE ISLANDSK —
Vi pakker og sender, saafremt De önsker. Har De lyst til at se en
islands slagter- og selvbetjeningsbutik, saa vær velkommen, ingen
köbetvang.
§
MATARDEILDIN
(Reykjavik Food Center) Hafnarstræti 5.
Austurver, Háaleitisbraut 68.