Morgunblaðið - 10.03.1970, Blaðsíða 7
MOROUNBLAÐIÐ, MUÐJODiAO'UH 10. MAHZ 1I&70
7
GÖMUL AKUREYRARMYND FRÁ 1898
Gamla iteykjavikurmyndin, sem
við birtum á dögunum, vakti mikla
atbygli, og margir veltu fyrir sér
aldri henna<r. Sveinn Þórðarson,
fyrrv. bankaféhirðir, sendi okkur
]>essar uppiýsingar um l»ríkirkjuna
en hún var risin, þegar myndin
var tekin:
Árbækur Reykjavíkur (Jón
Helgason) segja: „Hin nýja kirkju
bygging fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík („fríkirkjan“ )var hátíð
lega vigð 22. febrúar — þetta er
undir 1903 — af séra Ólafi Ólafs-
syni (frá Arnarbæli), sem ráðinn
hafði verið prestur safnaðar þessa
og undir árslok (18. des. 1903)
hlaut konungsstaðfestingu sem frí-
kirkjuprestur."
Við þökkum Sveini tilskrifið, og
í dag birtum við svo gamla mynd
norðan frá Akureyri, sem tekin
mun vera 1898.
Sjálfsagt eru einhverjir gamlir
Akureyringar, sem þekkja hin
ýmsu hús á myndinni, en við setj-
um samt fram aðeins eina spurn-
ingu, sem lesendur geta spreytt sig
á að svara, og hún er þessi:
„Hvaða hvíta hús er það, sem
stendur uppi í brekkunni?"
Svörin má hringja eða skrifa til
Dagbókarinnar.
Gefin voru saman í hjónaband
af séra Ragnari Fjalar Lárussyni
ungfrú Elín Björnsdóttir verzlunar
stúlka og Arnar Magnússon vél-
virki. Heimili þeirra er í Geitlandi
12.
Ljósm Studio Gests Laufásvegi 18a
Laugardaginn 6. des. voru gefin
samain í Lan.gholtskirkju af séra
Árelíus Níelssyni umgfrú Sigur-
veig Ebbadóttir og Haraldur Hans
son, Heimili þeirra verður að
Kópavogsbraut 67, Kóp.
Opmberað hafa trúlofun sína,
SÓlveig Ásgeirsdóttir, Karlagötu 2
og Jón Hjartarson, offsetprentari,
Stan.garholti 4.
Þann 15.2. voru gefin saman í
hjónaband í Garðakirkju af séra
Braga Friðrikssyni, ungfrú Ólöf
Einarsdóttir og Sigurjón Guð-
mannsson. Heimili þeirra er að
Hellisgötu 23, Hf.
Ljósmyndastofa Kristjáns,
Skenseyrarveg 7, Hf.
GAMALT
OG
GOTT
Táta, Táta, teldu dætur þínar!
Hægt er að telja.
Ein er í búri
borð að reisa;
tvær mél mala;
þrjár salt selja;
fjórar- í fjósi
í fötu að toga,
fimm i fjalli
fifil að grafa;
sex á sandi;
sjö á landi;
átta í eyjum
eld að kynda;
níu i nesi
nauta að geyma;
tíu i túni
töðu að hirða;
tuttugu heima.
Fátt er n,ú talið,
telja mátti betur.
Blöð og tímarit
Garðurinn, fréttabréf Garðyrkju
félags íslands er nýkomið út, er
þetta 2. tbl. 4. árg. Ritstjóri þess
er Ólafur B. Guðmundsson. Segir
þar ritstjórinn frá fyrstu vorönn-
umum í garðyrkju, skrifar skemmti
lega um gróðurhús áhugamanna i
íélaginu og segir;
„Ýmsa er farið að kitla í fingur-
gómana eftir að fá að krafla í
mold og eru farnir að hugsa til
að koma vorlaukunum sínum í
gan,g, eða bollaleggja um sáningu."
Þá segir í ritstjórnargreininni,
að samþykkt hafi verið að halda
blómasýningu dagana 8.—10. ágúst
í sumar. Þá heldur félagið fræðslu
fund laugardaginn 14. marz í Dóm-
us Medica kl. 2, og talar Hafliði
Jónsson um grasflatir, áburð og um
hirðu. Samtalsþáttur verður um
vorlaúka. Myndasýming.
Auk fréttabréfsins gefur félagið
út ársrit sitt, sem er gott framlag
til garðyrkju og gróðurs í landinu.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band af sr. Sigurði Pálssyni, vígslu
biskup, ungfrú Bergþóra Guðbergs
dóttir Forsæti, Villingaholtshreppi
Árnessýslu og Ólafur Sigurjónsson.
Heimili peirra er á sama stað.
Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Aheit og gjafir
Áheit og gjafir á Strandarkirkju
afh. Mbl.
x— 2 200, Gógó 200, V.V. 50,
H.Ó. 200, M.R. 100, Þ.Þ. 200, M.B.
1500, Guðlaug 100, Inga 100, M.S.
300, Guðrún 100, G.F. 100, J.G.
200, B.A. 200, Ó.M. 500, Björn Boga
son 200, N.N. 5, G. 100, St.M. 500,
ÞB.G. 100, M og G 100, G.G. 25,
Kristin 200, Guðmunda 1000
Guðm. góði afh. Mbl.
Þ.J. 200, N.N. 1000, A.J. 100.
Sunnudaginn 28. des 1969 voru
gefin saman í hjónaband í Stykkis
hólmskirkju af sr. Hjalta Guð-
mund-ssyni, ungfrú Kristín J. Gísla
dóttir og Árni Traustason. Heimili
þeirra verður að Hjallavegi 6.
Rvik.
Ljósmst. Gunnars Ingimars.
Suðurveri.
Laugardagnn 7. marz opinber-
uðu trúlotun sína umgfrú Kristín
Hinriksdóttir og Magnús J. Weld-
ing Efstasundi 70. Rvík.
VÍSUKORN
Ef þú saurgar sanmleikann
svörtum blettum eigi,
þér mun heilög hamingjan
hampa iífs á vegi.
Leifur Auðunsson.
ÁRNAÐ HEILLA
HJÓNAKLÚBBUR KEFLAVlKUR Damsií&ilkiuc verður haWwnn teiugandagmn 14. marz. Að- gamigseyTÍr gneiddur við inin- gamigiinm. — Stjómin. BROTAMÁLMUR Kaupi arian brotamalm teng- hæsta verði, staðgreið's'te, Nóatúni 27, sími 2-58-91.
HÁBÆR Höfum húsnæð'i fyrir allls kon ar fétegissatrvkoimiur, bnúð- kaups- og feim'ingarveizfur. Mun-ið hinar vimsæ'liu garð- veizlur. S. 20485 og 21360. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu
Sölumaður
Iðnfyrirtæki sem framleiðir alls konar
fatnað og þarf að setja upp dreifingarmið-
stöð vantar kunnugan og duglegan sölu-
mann. Til mála kæmi að sölumaðurinn yrði
meðeigandi að dreifingarmiðstöðinni.
Veltan er áætluð 10 milljónir.
Þeir sem hefðu áhuga á að athuga þetta
sendi nafn sitt í lokuðu umslagi til Morgun-
blaðsins fyrir 14. marz merkt: „Sölumaður
— 8182“.