Morgunblaðið - 10.03.1970, Side 12
r.
, 12 MORiQUOSHBLAÐIÐ, MIIÐJUDAGUR 10. MARZ 1870
' ",
$&. \
Rhodesía varð lýðveldi þegar klukkan var eina mínútu yfir tólf,
aðfararnótt síðastliðins mánudags. A myndinni «ru þeir Ian Smith,
forsætisráðherra og Clifford Dupont, handhafi forsetavalds, sem
undirritaði yfirlýsingu um að þingið væri þar með leyst upp. —
Dupont varð fyrsti forseti Rhodesíu (settur) og mun gegna því
embætti a.m.k. þar til liggja fyrir úrslit úr almennmu kosningum
sem haldnar verða 10. apríi n.k. Með þessu hefur Rhodesiía rofið
síðustu böndin sem bundu hana við brezku krúnuna og samveldið.
Frétta-
myndir
Forvitnir iögreglumenn fylgdust með þessum ungu blómarósum,
sem burðuðust með hel armikið pappírsblóm inn á skrifstofu Har-
olds Wilsons, forsætisráðherra. Þær voru að mótmæla seinkun
skýrslu um listkennslu 'ím byrjað var að sem.ia fyrir tveim árum.
Þessi aðferð við að mótmæla var grundvölluð á auglýsingunni
frægu: „Segðu það með blómum.“ Forsætisráðherrann mun hafa
tekið vel á móti þeim. og :agði að ef allir mótmæltu á svona
indælan hátt vrði til muna friðsamlegra í heiminum.
y'
Dionne-systumar kanadiisku, fyrstu fimmburamir sem náðu fullorðinsaldri, eru nú aðeins prjar eitir.
Hinn 28. febrúar sl. voru þær viðstaddar jarðarför Marie Dionne, sem lézt fyrir skömmu, eðlilegum
dauðdaga að því er læknar sögðu. Systumar þrjár eru frá vinsitri: Yvo nne, Anette og Cecile.
April Ashley veifar glaðlega til gesta sdnna og býð ur þeim að ganga inn í veitingahús, sem hún er að
opna með félaga sínum, Desmond Morgan. April Ashley er að því leyti fréttnæm að fyrir skömmu
kvað brezkur dómari upp úrskurð þess efnis, að h ún væri karlmaður. April var upphaflega karlmað-
ur, en lét breyta sér með skurðaðgerð. Hún var eiginlega nálægt því að vera tvikynja, og þar sem
henni fannst konueðlið ríkara í sér, lét hún gera aðgerðina.
Edward Kennedy fór til írlands á dögunum til að skoða nokkra þá staði er bróðir hans John
heimsótti meðan hann var forseti. Ekki er hægt að segja að Edward hafi verið eins vel tekið,
ofstækisfullir unglingar gerðu aðsúg að honum og lögreglan varð að brjóta honum leið í gegnum
þröngina. Á myndinni stendur bann fyrir framan málverk á Shannon-flugvelli, málverkið sýnir
bróður hans ganga tU móts við mannfjöldann þegar hann kom í heimsókn.
De Gaulle, fyrrverandi Frakklandsforseti, hefur lítið sézt úti við leftir að hann féll í síðusitu kosn-
ingum. Heppinn ljósmyndari náði þessari mynd er gamli hershöfðinginn gekk úr lítilli sveitakirkju
þar sem hann var viðstaddur útför vinar síns.