Morgunblaðið - 10.03.1970, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞtRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1970
Taugaspenna í algleymingl:
Úrslitaleikur í 100 mínútur
Rúmenar unnu
Frá Steinari Lúðvíkssyni
ALDREI hefur annar eins úrslita
leikur orðið um heimsmeistara-
titii í handknattleik sem varð á
sunnudaginn milli Rúmena og
A-Þjóðverja. Tvívegis varð að
framlengja, því eftir venjulegan
leiktíma var staðan 10:10. Var
þá framlengt 2x5 mín. og enn
jafnt að þeim tíma loknum, 11:11.
Enn var framlengt um 2x5 mín.
og tókst þá kempunni Gruia að
skora sigurmarkið og leiknum
lyktaði með 13:12 og heimsmeist
aratitillinn var Rúmena.
Gífurlegur fögn'uíður varð í
leiíkislok. Fjölmargir Rúmenar er
á horfðu þustu inn á völlinn og
kysstu og klöppuðu löndum sím
uim.
Geðshræringin var eigin-
lega ólýsanleg. Ég tók t.d. eft
ir ungum og kraftalegum karl
manni, er stóð í áhorfenda-
stúkunni með rúmenska fán-
ann í höndunum, og tárin
streymdu niður kinnar hans.
Leikurinn bar þess s(kýr merki
að hann var úrslitaleikur og að
miMu var að keppa. Bæði liðin
lögðu allt upp úr örygginu og
spiluðu vamarleikinin mjög á-
kveðinn og jafnvel grófan, ef því
var að skipta. Þjóðverjarair voru
léttari á sér og meiri hraði og
ógnum í spdli þeirra, en eikkert
kom Rúmenuinum úr jafnvægi.
Þeir héldu sínu striki, spiluðu
hægt fyrir framan vörn Þjóð-
verjanna og reyndu síðan að
opna hana með snöggum sprett-
um. Var það því vamarleikur-
inn, sem var mest áberandi í
þessum leik, og markvarzlan,
sem var stórkostleg hjá báðum
þjóðunum.
A-Þjóðverjar komust í 3:0 á
fynstu mínútum leiksins og yfir-
leitt höfðu þeir alltaf frumkvæð
ið i leiknum. Það var efkki fyrr
en á 27. mín. sem Rúmenum tókst
að jafna, 4:4, en í hálfleik voru
Þjóðverjar komnir aftur einu
marki yfir 5:4.
Undir lok síðari hálfleiks
náði baráttan svo algjöru há-
marki. Á 53. mín. var staðan
10:9 fyrir Rúmena og á þeim
7 min., sem eftir voru, sýndu
bæði liðin svo snilldarlegan
vamarleik, að raunverulega
gafst ekkert tækifæri til mark
skota, þó að þau væru reynd.
Var staðan óbreytt þegar tæp
lega hálf mínúta var til leiks
loka og voru Rúmenar þá með
boltann og mátti segja að titill
inn blasti við þeim. En þá
reyndi Gruia markskot, sem
mistókst. Þjóðverjarnir náðu
hraðupphlaupi og skoruðu og
jöfnuðu 10:10.
Var þá leikurinn framleingdur
í 2x5 mín. og Skoruðu Rúmenar
þegar á fyrstu mínútu framleng
ingarinmiar em Þjóðverjar jöfn-
uðu á 65. mim. úr vítakasti og
var staðam 11:11, þegar fram-
lengingunni lauk. Aftur var fram
lengt í 2x5 mín. og aftur náðu
Rúmenar forskoti á fyrstu mán-
útu, en Þjóðverjar jöfnuðu á
næstu mínútu, 12:12.
Skömmu síðar var dæmt
vítakast á Þjóðverjana og var
spennan þá orðin slík, að eng
in Rúmenana fékkst til að
taka vítakastið. Varð þjálfar
inn að reka hinn risavaxna
Gunes til þess, en skot hans
var svo misheppnað, að þýzki
markvörðurinn þurfti ekkert
að hafa fyrir að verja það.
Á 74. mín. skoraði Gruia 13.
mark Rúmena og var það sig-
urmarkið. Tókst honum þar
með að bæta fyrir mistökin,
sem honum urðu á, þegar
venjulegum leiktíma var að
ljúka, og færa Rúmenunum
heimsmeistaratitilinn.
Voru sigurlaun afhent þegar
að leilk loknum. Nú var settur í
umferð sérlega fallegur verð-
launagripur, sem Pompidou gaf
og keppt verður uim í framtíð-
irani.
Jens Sumarliðason afhendir Sveini Bjömssyni, formanni hátíða-
nendar tSf fána íþróttahátíðar ÍSf, en fáninn mun blakta í
Reykjavík í sumar. — (Ljósm. Á. J.)
Vetrarhátíðin á Akureyri:
Glæsileg mótsslit
Skrautblysa- og flugeldasýning
stig.
VETRARHÁTÍÐINNI á Akur-
eyri var slitið með hátíðlegri at
höfn sl. sunnudag á íþróttaleik-
vanginum á Akureyri. Jens Sum
arliðason framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar flutti ræðu og afhenti
síðan Sveini Bjömssyni for-
manni hátíðanefndar ÍSÍ móts-
fánann, sem næst verður dreginn
að húni á sumaríþróttahátíðinni
í- Reykjavík í júlí i sumar.
Mótsslitin voru mjög glæsileg
og var efnt til flugelda- og
gkrautblysaisýningar á íþrótta-
leilkva’ngiinum í því tilefni. Log-
andi kyndlar afmörkuðu mót-
slitasvæðið og mannfjöldi fylgd
ist með athöfninni. Þar með lauk
vel heppnaðri vetrarhátíð ÍSÍ á
Akureyri þrátt fyriir leiðinda-
veður flesta mótsdagana.
Nánar verður getið um íþrótta
hátíðina í blaðinu síðar, en hér
fara á eftir úrslit í keppnisgrein
um síðustu tvo mótsdagana:
Laugairdagur 7. marz.
Svig kvenna:
1. Barbara Geirsdóttir,
Akureyri, 99,57 sek.
2. Áslaug Sigurðardóttir,
Reýkjavík, 100,52 sek.
3. Ingunn Sundvoll,
Noregi, 100,96 sek.
Svig karla:
1. Ingvi Óðinsson,
Akureyri, 111,61 sek.
2. Hafsteinn Sigurðlsison,
ísafirði, 112,02 sek.
3. Lasse Kjellberg,
Noregi, 112,65 sek.
í alpatvikeppni urðu úrslit
sem hér segir:
1. Árni Óðinisson,
Akureyri, 18,85
2. Ola Lindback,
Sviþjóð, 21,12 stig.
3. Hafsteinn Sigurðsson,
ísafirði, 32,04 stig.
Alpatvikepnni kvenna:
1. Inigunn Sundvoll,
Noreigi, 7,86 stig.
2. Barbaira Geirsdóttir,
Akureyri, 50,68 stig.
3. Áslaug Sigurðardóttir,
Reykjavílk, 82,04 stig.
Á sunnudaginn fór fram
keppni í 4x10 km boðgönigu og
sigraði sveit Fljótamanna á
154,37 mín. Önnur varð sveit ís
firðinga á 160,59 mín. og þriðja
sveit ísafjarðar á 169,23 mín.
Danir
voru ger-
sigraðir
AUDREI hefur nokkurt lið feng
ið aðra eins útreið í baráttu um
efstu sæti i heimsmeistarakeppni
eins og Danir fengu á laugar-
daginn, er þeir léku við Júgó-
slava um þriðja sætið. Þeir voru
leiknir sundur og saman frá
fyrstu mínútu til síðustu og
markamunurinn varð að lokum
17 mörk. Hafa Danir aldrei tap-
að landsleik með svo miklum
mun og til gamans má geta þess
að mesti ósigur íslendinga í
landsleik eru 14 mörk, en það
var árið 1950.
í leiknum á laugardaginn
sýndu Júgóslavar þannig haind-
knattleik að unun var á að horfa,
Hvergi var veíkan htekk að
finna. Markvörðurinn var hrein
asti töframaður, vömdn var sem
þykkur veggur og sókinarleikur
inn fjölhæfur og ógnandi. Hefur
Júgóslövum farið stórfcostlega
fram í handkinattleik á fáum ór
um og óhætt að spá þeim vax-
andi velgengni í framitíðinini ef
svo heldur sem horfir. Júgóslav
arnir sikoruðu fyrsta mark ledfcs
ins en Danir jöfnuðu úr víta-
kasti og aftur var jafntefli 2:2
eftir 4 min. Bn eftir það var um
algjöra einetefnu að ræða og þeg
ar 19 mín. voru af leik var stað
an orðin 9:2 og úrglitin rauinveru
lega ráðin.
Á þessu tímabili hafði mark-
vörður Júgóslava varið tvö víta
köst og hvert einasta skot Dan-
ana er að marki kom næsta auð
veldlega.
í hálfleifc var staðan 13:6 og
í síðari hálfleik hélt markamun-
urinn áfram að aiulkast. Var stað
an 24:12 þegar. 10 mín. voru til
leiksloka og 5 síðustu mörfciin
Skoruðu svo Júgóslavarnir og
innsigluðu stórsigur sinn. Danir
léfcu heldur óskynsamlega í þess
um leiik. Það var strax ljóst að
þeir voru veikara liðið og réðu
alls ekfci við hraða Júgóslavana.
Eigi að síður gerðu þeir ekkert
til að halda hraðanum ndðri og
gkutu oft í vonlitlum færum.
um
til úrslitaleiksins
Unglingamót skíða-
fólks á Seyðisfirði
UNGLINGAMEISTARAMÓT Is-
lands á sfcíðum verður haldið á
Seyðdisfirði dagania 26.—30. marz.
Keppt er í tvekniur flokkum
drenigja 13 og 14 ára og 15 og
16 ára og eánum flokfci stúifcna
13—16 ára.
Dagiskrá mótsiins er i stórum
dráttum þaranig: Fimmtudaginm
26. marz stökfc og flokfcasivig og
laiuigardaiginn 28. marz stórsvig
og ganga. Pásfcadag 29. marz
ver'ður fceppt í svigi og boð-
gönigu.
Undirbúningur fyrir mótið er
niú í fullium gangi og er það von
Seyðfirðiniga að forystumenn
skíðamála hver á sínum stað
stuðli að því að sem stærstur
hópur umigmennia mœti á fyrsta
skíðalanidismóti, sem haldið er á
Austurlandi. Þáttfökutiikynmdng
ar berist Þorvaldi Jóhannissyni
íiþróttafcennara fyrir 17. miarz.
SVO SEM Skýrt var frá í
Mbl. á döguinum, lenti ísl.
handknattleiksliðið í nofcfcr-
um erfiðleikum í borginmi
Metz, þar sem leifcið var við
Dani og Pólverja, þar sem að
búnaður sá, er heimamenn
ætluðu liðinu, gat efcfci talizt
til fyrirmyndar. Þegar að var
fundið, spurðu þeir svo með
nofckrum þjósti hivort þedr ætl
uðust til þess að fá rauðan
dregil á götuna, þegar þeir
kæmu.
Gátu því fararstjórar fel.
liðsins þvi ekki aninað en broa
að í kampinn er þeir fcomu að
horfa á úrslitaleikinn á summu
dagjmn, því að þá var þeim
vísað imn um sénstafcar dyr,
eins og handkmattleiksforystu
mönnum annarra þjóða, og
þar var búið að leggja rauð-
an dregil á götuna, og her-
menn í fornum búningum
stóðú heiðursvörð.
Ekki verður annað sagt en
að Fröikfcunum hafi farizt vel
stjóm og framfcvæmd fceppn-
innar og gerðu þeir allt til að
gera mótslokin sem hátíðleg-
ust og virðulegust. Var öllum
keppendum og fararstjórum
boðið í mjög íburðarmikinn
kvöldverð á stærsta veitinga-
húsi Parísar og var þar m.a.
mikil skrauteldasýning og all
ir voru leystir út með gjöfum.
Á laugardaginn þáðu ís-
lendingar heimboð sendiherxa
hjómanma í Frakfclamdi, Henr
iks Sv. Björnssontar og frúar og
sama dag var einmig boð hjá
borgarstjóra Parísar fyrir far
arstjóra allra liðanma.
— Stjl.