Morgunblaðið - 20.03.1970, Page 5

Morgunblaðið - 20.03.1970, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUÐAGUR 20. MARZ 1970 5 „Þarf stuðning nátt- úruverndarmanna um allan heima segir Peter Scott um í»jórs- árveramálið í bréfi til Ásu Guðmundsdóttur Wright MORGUNBLAÐINU hefur borizt bréf frá Ásu Guðmunds dóttur Wright, sem búsett er á Trinidad og rekur ASA WRIGHT NATURE CENTRE þar sem hún lýsir áhyggjum sínum yfir afdrifum gæsarinn ar, verði Efri-Þjdrsá virkjuð. „il>að var enski fuglafræð- ingurinn Peter Scott, semn fyrst sagði mér frá þeissu al- varlega máli,“ segir Ása í bréfi sínu. „Síðan hefur fjöldi fuglafræðinga heiimsótt mig hér í Sprimg Hill og lýst á- hyggjum sínuim yfir fraimtíð gæsastofnsiins.“ Hún segir ennfremur: „Eng inn vill standa í vegi fyrir uppbyggingu íslands og efna- hagsþróun, en hins vegar spyrja margir vinir mínir, hvort við fslendingar ætlum að láta „big businese“ eyði- leggja náttúru landsins. Enn þá er nóg af óvirkjuðum stór ám víðsvegar um landið (t.d. Jökuisá á Fjöllum) og óþarft er að láta gróðasjónarmið ráða.“ Frú Ása G. Wright leggur með bréf, sem Peter Scott hefur ritað henni vegna fyrir hugaðra framlkvæmda við Þjórsá og afleiðingar þeirra fyrir framtíð gæsarinnar. „fslenzka vandamálið er mjög alvarlegt, og þarfnast stuðn-ings náttúruverndar- manna um allan heim,“ segir Scott í bréfi sínu til Á. G. Wright. „í því skyni að út- vega raforku fyrir nýju ál- verksmiðjuna hyggjast þeir virkja Þjórsá á þremur stöð- um. Neðsta stíflan hefur þeg- ar verið byggð, og fram- kvæimdir eru að hefjast við aðra stifluna. Þriðja stíflan — upp undir Hofsjökli — mun flæða yfir þriðjung Þjórsár- vera, sem er heimsþekíktur staður, enda verpir þar rúm- ur hehningur allra heiðar- gæsa sem finnast í veröldinni. Þessar gæsir koma svo allar til Eniglands og Skotlands yf- ir vetrartímann. Annar áfangi verksins mun svo hækka yfir borð vatnsins um tíu metra, sem hefur í för með sér, að þessi einstalka gróðurvin Mið-fislands fer algjörlega undir vatn og eyðileggst. Enn sem komið er hafa framíkvæmdir við þriðju stífluna eikki hafizrt. Afla þarf fjármagns frá erlendum peningastofnunum, en það mun aðeins verða htið eitt kostnaðarsamara að láta gera þessa stíflu við aðra á, þar sem hún eyðir ekki þessum einstaka og heimsfræga stað, og mundi geta séð fyrir allri raforkuþörfinni. Mér er annt um álit íslands út á við, ferðamannasíraum- inn til landsins, framtíðar- gæði þess, líffræðilegan skiln ing og orðstír þann, sem fer af íslandi sem menningar- þjóð. Allt þetta höfðar til þjóðlegrar ábyrgðartilfinm- ingu til að bjarga og vernda Þjórsárver í stað þess að eyða þeim með stundaxhagn- að fyrir augum. Vegna alls þessa — Ása mín — gerðu allt sem í þínu valdi stendur fyrir okkur, fyrir Þjórsárver og fyrir ísland.“ Þessi mynd var tekin í Þjórsárverum fyrir nokkrum árum, þegar íslenzkir fuglafræðing ar voru þar við rannsóknir á heiðargæsinni. F.v. er dr. Agnar IngólfSson, Jón B. Sigurðs- son og dr. Finnur Guðmundsson. Stórkaupmenn í kynnisferð til Noregs SÍÐARI hluta aprílmánaðar mun hópur íslenzkra stór- kaupmanna fara í kynnisferð til Noregs. Fara þeir til þess að kynnast þróun mála í heildverzlun og kanna, hvort stórkaupmenn hér geti hagnýtt reynslu Norðmanna að einhverju leyti í rekstri fyrirtækja sinna. Verður ferðin væntan- lega farin dagana 18.-25. apríl 18 lesta bíll og í árekstri MJÖG harður árekstur varð rétt eftir hádegi í gær á gatnamót- um Grensásvegar og Miklubraut ar. Skullu þar saman Skoda fólksbifreið og 18 lesta sandflutn ingabifreið, sem ekið var aust- ur Miklubraut. Skodinn kom Grensásveginn að sunnan og við áreksturinn kastaðist hann um 50 metra vegalengd austur fyrir gatnamótin. Ökumaður Skodans slasaðist m.a. á höfði og var flutt ur í slysadeild Borgarspítalans. Bifreið hans er stórskemmd, einkum framanivert og á vinstri hlið. Eigi hefur Rannsóknarlögregl- an haft tal af hinum slasaða öku mamni, en sá er ók sandflutn- ingabiínum heldur því fram að grænt ljós hafi verið gegnt akstursstefnu hans, er árekstur- inn varð. Ökumaður Skodans var fluttur í slysadeild Borgar- spítalans eins og áður er getið. Uppreisn á vopna flutningaskipi Washington, 16. marz AP TFIRVÖLI) í Kambódíu tóku í sína vörzlu tvo vopnaða sjó- menn af vopnaflutningaskipinu „Columbia Eagle,“ sem var á leið frá Bandaríkjunum til Thai lands. Svo virðist sem uppreisn hafi verið gerð um borð og skip stjórinn neyddur til að sigla skip inu inn fyrir landhelgi Kambód- íu. n.k. og hafa þegar um 20 stór kaupmenn tilkynnt þátttöku. Þetta kom fram í ræðu Björg- vins Schram, formanns Félagis ísl. stónkaupmanna á aðalfundi félagsims sl. laugardag. Dvölin í Noregi verður væntanlega skipu lögð þannig, að þremiur dögum verður varið til beimsókna í fyr irtæki en þátttakendum skipt í hópa eftir sérgreinum. Síðan verður einn dagur notaður í að hlýða á fyrirlestra og eininig í viðræður við norska sérfræð- irnga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.