Morgunblaðið - 20.03.1970, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.03.1970, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FöSTUDAGUR 20. MARZ 1970 13 Árni G. Eylands:_Fyrri grein Úreltfræði L STÓRIDÓMUR. — Margt hefir verið ritað og rætt um kal í túnum hin síðustu ár, og nú síðast hafa 60—70 búvis- indamenn og sérfræðingar setið á ráðstefnu og borið saman bæk ur sínar, reynslu og þekkingu á þessu sviði, allt við forsjá og stjóm 7 manna kalnefndar, er landbúnaðarráðherra skipaði á síðastliðnu ári, svo sem kunn- ugt er. Rétt áður en ráðstefna þessi hófst birtist í Frey, 1.—2. tölu- blaði 1970, allmikil grein er nefn ist: Búskaparlag og kalhætta. Höfundur greinarinnar er Jónas Jónsson ráðunautur í jarðrækt, sem einnig á sæti í kalnefnd- inni. Segist ráðunauturinn ekki ætla sér að ræða um orsakir kals ins í einstökum atriðum eða frá fræðilegu sjónarmiði. „Heldur er meining mín — segir hann — að benda á þá þætti í búskapnum, sem ter.gja má við kalið og bænd ur geta haft á valdi sínu.“ Margt, sem í greininni segir, um þessa hluti, er mjög þakkar- vert og eigi hvað minnst séð frá mínum bæjardjrrum, svo margt af því tel ég vera miklar og góðar áréttingar á það, sem ég hef rit- að um þetta efni. Vísa ég þar mest til greinar minnar: Kalinu boðið heim, sem birtist í Ársriti Rfl. Nl. 1968. Þótt ráðunáutur- inn komist nokkuð vægara að orði, bendir hann ljóslega á hve margt í búskaparlagi bænda nú orðið, mistök við ræktun og óheppileg meðferð túna, verður til þess að greiða götu kalsins. Kalinu er boðið heim, umfram það sem vera þyrfti, þótt hitt sé jafnvíst, að mikið og víða kel ur, í slæmum kalárum, á þann hátt, að enginn veit ráð við því, enn sem komið er, og hætt við að svo muni lengi verða. Kafli hinnar miklu greinar í Frey, sem kom fram eins og undanfari ráðstefnunnar um kal ið, nefnist: Jarðvinnsla. Eru þar boðuð ný fræði og mikil, sem gefa ærið tilefni til umræðu, og að sjálfsögðu langt fram yfirþað sem ég hefi tök á, að þessu sinni. Nú er af ráðamönnum lögð mikil áherzla á að bændur verði að mæta kólnandi tíðarfari og áföllum af kali með aukinni grænfóðurrækt. f sambandi við þetta segir í greininni í Frey: „Með grænfóðurrækt verður sama land gjarnan margunnið, oft nokkur ár í röð, þá ætti alltaf að nota plóg og herfi en ekki tætara." Ég undirstrika orðin nokkur ár í röð, og þakka sérstaklega orðin um plóginn, ekki mun af veita, en meðal ann arra orða: er ekki dálítið dap- urt er leiðbeiningaþjónustan í jarðrækt bendir plóglausum bændum á að plægja, þegar svo er ástatt, að hvergi er leiðsögn að fá, þó ekki sé nema dag- stund, ef bóndi kaupir sér plóg, um það hvemig á að stilla plóg- inn og standa að verki við plæg inguna, — en það er nú önnur saga. En svo kemur í greininni það sem ég kalla Stóra dóm og mik- inn nýársboðskap til bænda, undirstrika það hér, svo sem mér finnast efni standa til: „Ekki er neitt, sem benðir til þess að betri tún fáist ef land er unnið fleiri ár áður en sáð er til túns. Kenningar, sem uppi hafa verið nú annað veifið frá öðrum en ráðunautum í jarðrækt um að ræktun okkar sé of snöggsoðin, jarðvinnslan standi of skamman tíma, og að nauð- synlegt sé að viðhafa forrækt- un (rækta grænfóður eða aðrar einærar jurtir nokkur ár áður en grasi er sáð) hafa alls ekk- ert við að styðjast, hvorki í hérlendum tilraunum eða reynslu, þær eru byggðar á mis skildum hliðstæðum frá erlend- um ræktunarvenjum og em úr- elt fræði. Þvert á móti, það reynist því miður þeim mun erfiðara að fá grasið til að ná fótfestu og var anleika, sem oftar hefur verið sáð í landið og því umbylt.“ Hér er mikið sagt og ákveðið, svo mikið, að ef þetta eiga að teljast og reynast örugg sann- indi, þá markar það, að mínu viti, alger tímamót í ræktunar- málum íslenzkra bænda. n. NOKKUR ÁR. — Tvennt er það, sem fyrst ber að athuga, áður en hin miklu dómsorð eru rædd. „Nokkur ár,“ hvað eru það mörg ár? Er hægt að ræða um forræktun til ný- ræktar í nokkur ár? Ég tel að svo sé ekki. Þegar talað er um „nokkur ár,“ er varla átt við minna en 5—6 ár. Þótt þess muni dæmi, að menn hafi í ráð- leysi ræktað grænfóður í belg og biðu í 5—6 ár í sama flag- inu veit ég eigi til þess, að ábyrgir leiðbeiningamenn um jarðrækt hafi ráðið bændumtil að „forrækta“ land til túns á slíkan hátt. Slíkt er ekki for- ræktun í venjulegum skilningi og betur fallið til landskemmda en landbóta, nema um verulegt sáðskipti sé að ræða og af kunn áttu, en þá er líka komið út fyr- ir það sem er forræktun til tún- ræktar. Að mæla gegn slíkri for ræktun, grænfóðri 5—6 ár í Ólafur Jónsson. sama flagi, er því að búa sér til Grýlu og kljást við hana. Þegar talað er um heppilega forræktun, er að jafnaði átt við að rækta grænfóður í nýrækt- inni 1—2 ár, í mesta lagi 3 ár og sá grasfræi annað eða þriðja árið. Þannig var forræktunin yf irleitt framkvæmd á meðan hún var og hét, sem liður í nýrækt- inni. Þó að slík forræktun rejmd ist mörgum bóndanum miður vel, oft að kunnáttuleysi og vöntun á heppilegri tækni við jarð- vinnsluna, er það að villa bænd um sýn að tala inn fánýti for- rætkunarinnar og miða galla hennar við að „rækta grænfóð- ur eða aðrar einærar jurtir nokk ur ár áður ep grasi er sáð.“ Slíkt er utan við umræðu um bætt tök á túnræktinni, nemaþá sem víti til varnaðar. Þá er að átta sig á því hverj- ir þeir muni vera mennimir með hin „úreltu fræði,“ sem ekki eru ráðunautar í jarðrækt, en sem hafa „annað veifið“ haft uppi kenningar „um að ræktun okkar sé of snöggsoðin, jarð- vinnslan standi of skamman tíma, og að nauðsynlegt sé að viðhafa forræktun.“ Hvaða villu trúarmönnum og falsspámönnum mun þar vera helzt til að dreifa? Eru þeir ekki auðfundnir, ef lit ið er yfir það, sem helzt hefur verið ritað um þessi mál nú undanfarið og hin síðustu ár? Ég kem ekki auga á nema þrjá menn, sem hafa gerzt stórlega sekir um þessa hluti bæði í ræðu og riti. Allir hafa þeir verið að burðast við það sem í Frey er nefnt „úrelt fræði“ — og — „kenningar, sem hafa alls ekk- ert við að styðjast." Þessir menn eru að ég hygg Ólafur Jónsson, fyrrverandi til- raunastjóri á Akureyri, Ámi G. Eylands — sá er þetta ritar — og Klemenz Kr. Kristjánsson, fyrrverandi tilraunastjóri á Sámsstöðum. Ég tel þá eftir ald- urröð þótt litlu muni, allir ná þeir 75 ára aldri með stuttu millibili nú og á vorinu, sem í hönd fer, og allir eiga þeir full- an hálfrar aldar starfsferil við búnaðarmál, aðallega ræktunar- mál, að baki. Sé það svo, að þeir hafi haft uppi „nú annað veifið“ —r „úrelt fræði,“ er lík- lega sanni næst að segja að þetta séu allt úreltir menn með úrelt fræði. Er þá lítil furða þótt ekki sé góðs von. En rétt er að benda á það, að þótt þeir Ó.J. og K.K.K. hafi aldrei borið tit- ilinn „ráðunautar í jarðrækt,“ er meira en hæpið að ætla að dæma þá úr leik, í umræðum um þau mál, svo samofið er til raunastarfið ráðunautastarfinu. ra. HIN ÚRELTU FRÆÐI. — Fyrstur er nú Ólafur sem fyll ir 75 ára aldurinn 23. marz i ár, lítið eitt elztur þessara þriggja. Enginn núlifandi ís- lendingur hefir skrifað meira, gagnmerkara og rökfastara um tilraunamál og jarðrækt heldur en ólafur. Þrjú rit er fyrst að nefna í því sambandi: Sáðsléttur, 1930, Belgjurtir, 1939 og Nýrækt, 1948. Þessi þrjú rit tel ég að séu það sem bændur höfðu mest á að byggja við nýræktun og tún- rækt sína allt fram til þess, að stóraukin tækni og vafasöm leiddi þá inn á þá braut „að ljúka vinnslu landsins, sáningu og frágangi, á sem skemmstum tíma, og sem fyrirhafnarminnst.“ (Ó.J., 1964). Þessu má lýsa enn þá greinilegar með orðum sem æfður og snjall garðyrkjumaður mælti í mín ejrru nú nýlega. Hann sagði: „Það er ekki von að nýræktunin takist vel og að túnin verði góð, þegar fjöldi bænda setur ekki markið hærra en að vinna ræktunarstörfin ein hvemtíma og einhvem veginn.“ Enn má nefna tvö rit frá hendi Ó.J., sem mjög koma við rækt- unarþekkingu og túnrækt bænda: Arangur gróðurtilrauna (hjá Ræktunarfl. Norðurl. í 45 ár), 1950. Gróðurtilraunir, 1951. Að sjálfsögðu er sumt I þess- um 5 ræktunarritum ó.J. ekki lengur í fullu gildi, brejrtt tækni Framhald á hls. 21 Bezta og nytsamasta fermingargiöfin er alfræðibók frá The Richards Company. Vegna rýmingar á lager eru til nokkur eintök af eftirtöldum bóka- flokkum á sérstaklega hagkvæmu verði: Ameriean Peoples Encyclopedia (20 bindi) Popular Science (10 bindi) Grolier Classics (10 bindi) Basic Home Library (10 bindi) Medical and Health Encyclopedia (4 bindi) Funk & Wagnalls Dictionáry (2 bindi) Kr. 8.000.00 — 2.500.00 — 1.500.00 — 2.000.00 — 1.000.00 — 1.200.00 Hagkvæmir afborgunarskilmálar ef óskað er. The Richards Company Inc. Tjarnargötu 22, sími 17466. Viðgerðaþjónusta Framvegis verður símanúmer viðgerða- þjónustu Rafha 25322. Sími verzlunarinnar verður eftir sem áður 10322. Vörur með afslœtti Seljum í dag og næstu daga nokkra gallaða snyrtivöruskápa í baðherbergi, eldhúsborð o. fl. með miklum afslætti. Op/ð til klukkan 16, laugardaginn 21. 3. Rafha við óðinstorg — Rafha við Óðinstorg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.