Morgunblaðið - 20.03.1970, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1970
Björn Kolbeinsson
— Minningarorð
í dag verður jarðsettúr Björn
Kolbeinsson, Álfheimum 70, sem
andaðist á Landspítalanum 12.
marz eftir nokkurra mánaða erf-
iða sjúkdómsbaráttu, aðeins 49
ára að aldri.
Dauðinn heggur oft skyndi-
lega og þar sem menn sízt varir
og svo var sannarlega í þetta
sinn. Engan hefði grunað fyrir
réttu ári síðan, að maður, með
jafn mikla líkamsburði og
hreysti og Bjöm hafði til að
bera, yrði að lúta í lægra haldi
á svo skömmum tíma og löngu
fyrir aldur fram.
Enda þótt okkur sé ekki ætl-
að að spyrja, er fráfall slíkra
manna alltaf jafn óskiljanlegt.
og fráleitt.
Björn Kolbeinsson fæddist 6.
janúar 1921 að Kollafirði á
Kjalarnesi og var sonur hinna
t
Arnþrúður Guðný
Flóventsdóttir
frá Húsavík,
andaðist að heimili sínu
Blönduhlíð 3 14. þ.m. Kveðju-
athöfn fer fram í Fossvogs-
kirkju 23. n.k. kl. 10,30.
Jar'ðsiett verður í Grindavík.
F.h. ættingja og vina,
Guðný Þorkelsdóttir.
t
Móðir okkar,
Kristín Jónsdóttir
Baldursgötu 19,
andaðist að Vífilsstaðahæli
aðfararnótt 19. þ. m.
Hrefna Sigfúsdóttir
Gréta Sigfúsdóttir
Þráinn Sigfússon
Hannes Sigfússon.
t
Móðir okkar
Kristjana Guðlaugsdóttir
andaðist að heimili sínu Skóla
vörðustíg 33, miðvikudaginn
18. marz.
Fanney Tryggvadóttir
Kristbjörn Tryggvason
Þuríður Möiler
Aðalsteinn Tryggvason.
kunnu hjóna, er þar bjuggu,
Guðrúnar Jóhannsdóttur og Kol
beins Högnasonar. Hann dvald
ist lengst af í föðurhúsum fram
til tvítugs, en var þó á þeim
tíma einn vetur hjá séra Ófeigi
í Fellsmúla á Landi og annan
vetur á íþróttaskólanum að
Geysi í Haukadal. Síðar stund-
aði hann um nokkurra ára skeið
hin ólíkustu störf, var m.a.
bifreiðastjóri og sjómaður á bát
um, togurum og farskipum.
Árið 1950 hóf Björn störf hjá
fyrirtækinu Bræðumir Orms-
son. Lauk hann prófi í rafvéla-
virkjun og starfaði sem verk-
stjóri hjá fyrirtækinu til dauða
dags.
Árið 1954 giftist Björn eftir-
lifandi konu sinni, Kristínu
Þorsteinsdóttur, og eignuðust
þau sjö böra. Dóu tvö þeirra
ung, en á bak föður sínum sjá
tvíburarnir Karítas og Þor-
steinn, þrettán ára, Eiríkur, tíu
ára, Gunnar, fimm ára, og Rann
veig, þriggja ára, auk sonarins
Guðmundar, sem fæddist 1950.
Þannig vom í hnotskurn
helztu þættirnir í æviskeiði
Björns. En stutt og þurr upp-
talning segir harla lítið um
fjölþætt og viðburðaríkt líf
hans. Björn hlaut sinn skerf af
erfiðleikum þessa heims, en líf
hans var hamingjusamt. Hann
ólst upp á góðu heimili með ást-
ríkum foreldrum og systkinum,
hann fékk svalað útþrá sinni og
ævintýralöngun sem ungur mað-
t
Bróðir okkar
Sigurður Hannesson
frá Sumarliðabæ,
verður jarðsun.ginn frá Kefla-
víkurkirkju laugardaginn 21.
marz kl. 3 e.h.
Systkinin.
t
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför mó'ður okkar,
tengdamóður og ömmu
Jónínu Guðmundsdóttur
Garðstöðum, Garði.
Börn, tengdaböm, barna-
böm og barnabarnabörn.
t
Eiginkona mín, systir, mó'ðir,
tenigdamóðir og amma,
Kristín Jónasdóttir,
lézt að heimili sínu, Vífils-
götu 12 að kveldi hins 18.
marz.
Ormur Grímsson,
systkin, börn, tengda-
börn og barnaböm.
t
Hugheilar þakkir flytjum við
öllum þeim, sem vottuðu okk-
úr samúð og hlýhug við and-
lát og jarðarför eiginmanns
míns, föður, tengdafóður og
afa
Óskars Þórðarsonar
húsasmíðameistara,
Safamýri 31.
Dýrfinna Kristjánsdóttir,
börn, tengdaböra og
bamabörn.
t
Faðir okkar og fósturfaðir,
tengdafaðir og afi
Jón Stefánsson
Fjölnisvegi 13,
sem lézt hinm 12. þ.m. verð-
ur jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju laugardaginn 21. marz
kl. 10,30.
Ámi Þór Jónsson
Sigurveig Einarsdóttir
Þorbjörg Pálsdóttir
og fjölskyldur.
t
Þökkum auðsýnda samú'ð við
andlát og útför
Guðbjargar Helgadóttur
Stykkishólmi.
Krístmann Jóhannsson
Guðrún Kristmannsdóttir
Ásgeir Agústsson.
ur. Hann kvæntist duglegri og
samhentri konu, sem bjó honum
fallegt heimili, og börn þeirra
voru hans yndi.
En Björn hafði sjálfur til
brunns að bera flesta þá eigin-
leika, sem stuðla að eigin og
annarra hamingju. Skapprýði
hans og jafnaðargeði var við-
brugðið, og flestir, sem kynnt-
ust honum náið, urðu varanleg-
ir og tryggir vinir hans. Hins
vegar var hann viljafastur og
hvikaði ekki frá þeirri skoðun,
sem hann taldi rétta. Hann lézt
með því æðruleysi, sem ein-
kenndi hann alla ævi.
Ég kynntist Birni persónulega
gegnum" magsemdir, en auk þess
var ég svo lánsamur að hafa
hann sem starfsfélaga í rann-
sóknaferðum á öræfum landsins
sumurin 1962—1964 og ferðafé-
laga í ótal veiðiferðum. Hann
var mikill náttúraunnandi, sem
eflaust var arfur frá þeim tíma,
sem hann bjó í Kollafirði, og
hann varði eins miklu af frí-
stundum sínum úti i náttúrunni
og honum var unnt. Hann var
afburða veiðimaður og stundaði
laxveiðar um áraraðir. Það var
mikill lærdómur að fylgjast með
honum í þeim ferðum, bæði
vegna leikni hans og ekki síð-
ur vegna þess, að hann gekk að
veiðunum með gleði og hugar-
fari hins sanna sportmanns.
Þetta kom einnig fram í áhuga
hans á fiskirækt, sem hann
vann mikið að.
A öræfum var Björn að allra
dómi einn hinn bezti og örugg-
asti ferðafélagi, sem völ var á,
og er þó á engan hallað. Þar
naut hin ágæta skapgerð hans
sín til fulls, jafnaðargeð og ró-
lyndi, og úrræði fann hann við
hverjum vanda, sem bar að
höndum. Þau sumur, sem hann
ferðaðist með okkur sem tækni-
legur allsráðandi, fundum við
til meiri öryggiskenndar en
nokkurn tíma fyrr eða síðar á
ferðalögum. Það varð að orð-
tæki í hópnum, að það tækni-
legt vandamál væri ekki til, sem
Björn gæti ekki gert við með
„nagla og snæri”.
Við búum enn að hugvitssemi
hans og úrræðum á ferðum okk
ar. En lengst mun þó lifa minn-
ingin um frábæran vin og fé-
laga, og við hörmum ótímabært
fráfall hans.
Megi hin góða mínning, sem sam
ferðamenn Björns í þessu lífi
geyma um hann, létta eiginkonu
hans, börnum, aldraðri móður og
öðram ættingjum sorg þeirra.
Ingvi Þorsteinsson.
Mínar innilegustu þakkir til
allra þeirra er heimsóttu mig
og glöddu á ýmsan hátt á 100
ára afmæli mínu.
Ég óska ykkur öllúm Guðs
blessunar.
Ambjörg Arnadóttir
Melabraut 7, Hafnarfirði.
í dag verður til moldar bor-
inn Björn Kolbeinsson, rafvéla-
virki. Hann andaðist á Land-
spítalanum fimmtudaginn 12. þ.
m. eftir stranga sjúkdómslegu.
Björn fæddist 6. janúar 1921
að Kollafirði á Kjalarnesi, son-
ur hjónanna Kolbeins Högnason
ar, bónda og skálds, og konu
hans Guðrúnar Jóhannsdóttur,
kennara.
Bjöm ólst upp í Kollafirði
fram undir tvítugs aldur við al-
menn sveitastörf. Meðfædd at-
hyglisgáfa hefur stuðlað að því,
hve fjölfróður Björn var um
náttúru þessa lands. í foreldra-
húsum hlýtur hann að hafa not-
ið góðrar tilsagnar um umhverfi
sitt, svo lagið var honum að
þekkja blóm, steina, fugla og
fiska og svo gjörkunnugur var
hann lifnaðarháttum í íslenzkri
náttúru. Enda þróaðist með hon
um mikil ást á útilífi og ferða-
lögum, og var hann með traust-
ustu ferðamönnum þessa lands.
Ekki munu margar jökulárnar á
hálendi fslands, þar sem Björn
hefur ekki valið vað fyrir sám-
ferðafólk sitt, enda fáum betur
treystandi til slíks.
Um tvítugt fór Björn að heim-
an. Hann var einn vetur á
íþróttaskólanum í Haukadal og
einn vetur hjá séra Ófeigi Vig-
fússyni á Fellsmúla. Síðan stund
aði hann ýmis almenn störf,
bifreiðaakstur, sjómennsku á
fiskibátum, togurum og farskip
um, en hóf nám í rafvélavirkj-
un 1950 hjá Bræðrunum Orms-
son og starfaði þar til dauða-
dags, lengst af sem verkstjóri.
Verður lengi í minnum haft,
hve mikinn áhuga Björn hafði
á öllum sínum verkum, og hve
velvirkur og ráðagóður hann
var. Hann hefur skilið eftir mik-
inn og góðan arf meðal samstarfs
fólks síns, ekki sízt ungling-
anna, sem nutu tilsagnar hans.
Verður honum seint þakkaður
sá skerfur, sem hann hefur lagt
af mörkum við uppbyggingu
fyrirtækisins.
Það var ekki aðeins gæfuspor
uppeldissystur minnar, Kristín-
ar, þegar hún giftist Birni 18.
júní 1955, heldur allrar okkar
fjölskyldu. Svo mikill aufúsu-
gestur var Björn í okkar hópi.
,Með okkur tókst strax kunn-
ingsskapur, sem skjótt óx upp í
vináttu, sem aldrei bar skugga
á. Upp í hugann koma ótal
ánægjustundir við veiðar og
ferðalög, sem aldrei munu gleym
ast, við hlið hins óeigingjarna
drengskaparmanns og karlmenn
is, sem Björn var. Ekki hefði
hvarflað að mér fyrir ári, að ég
stæði nú í þessum sporam og
skrifaði eftirmæli um Björn, sem
var ímynd karlmennskunnar og
heilbrigðinnar. En eigi má sköp
um renna.
Kristín og Björn eignuðust sjö
börn og eru fimm þeirra á lífi,
öll á bernskuskeiði. Einn son,
átti Björn áður en hann kvænt-
ist, og er hann nú um tvítugt.
Er því mikið verkefni fyrir
höndum hjá systur minni og
óska ég henni guðs blessunar
og styrks við að komast yfir
þá erfiðu tíma, sem framundan
eru. Að lokum dettur mér í hug
hluti af mannlýsingu úr' kvæði
eftir Kolbein Högnason, föður
Björns, er mér finnst vel eiga
við hinn látna vin minn og mág:
Vann hann víða
að vandamálum.
Hófst í heiðri
af hverri raun.
Örugg var ætlun,
ást á sannleika.
Vottuðu verk
vit og göfgi.
Karl Eiríksson.
Örfá kveðjuorð.
Er hel í fangi minn hollvin
ber, þá sakna ég einhvers af
sjálfum mér. Það snart mig
þannig, og alla mína fjölskyldu,
hvað þá konu og börn, þegar
við urðum þess vís, að Björn
Kolbeinsson væri haldinn ó-
læknandi sjúkdómi. Við áttum
Framhald á bls. 23
Guðríður Kristins-
dóttir — Minning
Fædd 3. sept. 1897.
Dáin 11. marz 1970.
Kveðja frá barnabörnum.
Nú hvílir í svefni héluð storð
og hljóðlát er vetrar rósin.
Þó ber hún frá Guði bróðurorð,
sem bragandi norðurljósin.
Nú sefur hún amma einnig vært
— í eilífðar blómstur garði.
En ástvini hefur sorgin sært.
Hún sofnaði fyrr en varði.
Við segjum ei hérna sögu þá
er svipti þig góðum maka.
Þá barstu á höndum börnin smá
þótt bagaði nætur vaka.
Það raskaði mörgu reynsla sú,
sá róður með börnin fjögur.
En auðna þín, göfgi, ást og trú
við átökin þung, var fögur.
Við minnumst þín amma alla tíð
í önnum að fegra og laga.
En þó varstu okkur ætíð blíð
og æskunnar vermdir daga.
þar lagðir þú oftast rós við rós
og ræktaðir hamingjuna.
Að koma til þín var kærust þrá
og kærleikann ljúfa finna.
Við unaðarstundir áttum þá
í atlotum handa þinna.
Við eigum svo fögur æsku ljós
sem ætíð er vert að muna,
Við kveðjum þig amma kvíðnum
róm
svo klökk yfir burtför þinni.
Því leggjum við þetta litla blóm
á legstaðinn hinzta sinni.
E. J. E.
Vegna jarðarfarar
Björns Kolbeinssonar, verkstjóra verða skrifstofur vorar,
verzlun og verkstæði lokuð frá kl. 13—16 föstudaginn 20. marz
næstkomandi.
BRÆÐURNIR ORMSSON H.F.