Morgunblaðið - 08.04.1970, Page 17
MORGUNBLAÐIB, MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1870
17
— Bréf
Framhald af bls. 12
Akureyri hefur stöðvað að
nokkru útstrey*ni frá Eyjafirði
og nálægum sveitum og jafnvel
atyrkt aðstöðu hinna minni bæja
og kaupstaða á Norðurlandi sem
aðalmiðstöð fjölþættrar atvinnu,
verzlunar, samgangna og menn-
ingar norðanlands. Vestfirðingar
reyna nú að efla stærsta kaup-
stað sinn, fsafjörð, m.a. með því
að stofna þar menntaskóla.
Eins og þið vitið er talsvert
sérstætt með Austurland.
Stærsti kaupstaður fjórðungs-
ins, Neskaupstaður, sem á marga
duglega athafnamenn, er illa sett
ur með samgöngur á landi og í
lofti og getur því ekki orðið mið
stöð Austurlands. Það getur Seyð
isfjörður heldur ekki orðið. En
yngsta kauptúnið á Austurlandi,
Egilsstaðir, hefur vaxið meir á
síðustu árum en nokkurt annað
kauptún þar. Á meðan atvinnu-
vegir þjóðarinnar voru aðeins
landbúnaður og sjávarútvegur,
voru engin lífsskilyrði fyrir
þorp eða kauptún, nema við
sjávarsíðuna. En er atvinnuveg-
irnir gerðust fjölþættari, varð
breyting á þessu, eins og sýnir
sig með Selfoss, Hvolsvöll,
Hveragerði og Egilsstaði.
Nú eru Egilsstaðir orðnir óum
deilanleg miðstöð Austurlands.
Þaðan og þangað liggja vegir
víðsvegar um allan fjórðunginn.
Þar er aðalflugvöllur Austur-
lands. Þar er og miðstöð allrar
kaupfélagsverzlunar Héraðsbúa
og einnig sumra Fjarðanna. Þar
eru og ýmsir opinberir starfs-
menn, sem eru fyrir fjórðunginn
allan, svo sem skattstjóri Aust-
urlands.
Um veturnætur fyrir fjórum
árum fór ég ásamt dr. Árna
Árnasyni fyrir Rotaryklúbb
Reykjavíkur austur að Egilsstöð-
um til þess að kanna skilyrði
fyrir stofnun Rotaryklúbbs þar.
En þar sem aðeins einn maður
af hverri stétt má vera í sama
klúbbi, álitu margir, að í svo fá-
mennu kauptúni sem Egilsstöð-
um væru ekki nægilega margar
starfsstéttir til þess að fullnægja
lágmarksfjölda samkvæmt lögum
Rotary. En við athugun okkar
dr. Árna reyndust starfsgreinar
manna á Egilsstöðum og í ná-
grenni vera um fjörutíu. Klúbb-
urinn var stofnaður, en erfiðast
var að finna fundartíma, því að
vinnudagur kauptúnsbúa var
svo langur og annir miklar.
Fundartími var loks ákveðinn á
þriðjudögum kl. 9 að kveldi.
Klúbburinn mun hafa leyst hlut
verk sitt vel af hendi, stuðlað
að skilningi og góðu samkomu-
lagi atvinnuvega og stétta, sem
eiga fulltrúa í honum.
Mér finnst það spá góðu um
framtíð Egilsstaðakauptúns, hve
hugkvæmir og duglegir íbúar
þess eru að stofnsetja þar at-
vinnufyrirtæki. Má þar nefna
prjónastofuna Dyngju, sem þeg-
ar hefur unnið sér góðan orð-
stír og vakið á sér athygli, bæði
hér heima og erlendis.
Áður en Egilsstaðakauptún
var stofnsett, hafði fólki fækk-
að á Fljótsdalshéraði um alllangt
skeið. Á aldarfj órðungnum 1920
—45 hafði íbúum þess fækkað
úr 2045 í 1666, eða um 18%%.
En með Héraðinu tel ég dalina,
sem frá því greinast. f desember
1962 er fólksfjöldinn 2008, og
er þá aðeins 37 færri en 1920.
Ég hef ekki við hendina yngra
manntal, en nú eru Héraðsbúar
að sjálfsögðu orðnir mun fleiri
en þeir voru 1962. Egilsstaða-
kauptún hefur stöðvað að mestu
brottflutning fólks úr Héraðinu.
Og einhverjir hafa flutt úr
Fjörðum til Egilsstaða og strjál-
ingur annars staðar frá, jafnvel
úr Reykjavík. Sumir bændur í
nágrenni Egilsstaða munu
drýgja tekjur sínar með því að
sækja vinnu þangað, þegar þeim
gefst tími til.
En enn eru Egilsstaðir ekki
nægilega sterk miðstöð fyrir
Austurland, og þurfa því Hér-
aðsbúar, og raunar fleiri Aust-
firðingar, að gera allt sitt bezta
til að efla kauptúnið, sem verða
mun í framtíð höfuðstaður Aust-
urlands og gegna sama hlut-
verki þar og Akureyri gegnir
nú fyrir Norðurland.
Það mun vera fullráðið, að
læknamiðstöð verði á Egilsstöð-
um. Verða þá sennilega settir
þangað þrír læknar, en brátt
mun þurfa að fjölga þeim, ef
þorpið stækkar mikið frá því,
sem nú er. Og eftir því sem fólki
fjölgar meir á Egilsstöðum, verð
ur auðveldara en nú er að fá vel
útbúna læknamiðstöð þar, hvað
snertir húsnæði og tæki og síð-
ar meir sérfræðinga.
Það mun nú nokkurn veginn
víst, að Austfirðingar geta feng-
ið menntaskóla staðsettan ífjórð
ungnum. En miklu varðar um
staðarvalið. Skólinn verður að
vera staðsettur þar sem mest eru
líkindi til, að hann verði vel sótt
ur, ekki aðeins af nemendum úr
næsta umhverfi, heldur einnig
úr fjarlægum sveitum. Einnig
verður skólastaðurinn að vera
lí'klegur til þess að draga að sér
kennara, og gott er að mega
vænta þess, að einhver hluti
nemenda leiti þangað til búsetu
og starfa að námi loknu.
Ég hef heyrt, að leitað hafi
vérið álits allra hreppsnefnda
og bæjarstjórna í Austurlands-
kjördæmi um stað fyrir mennta-
skóla á Austurlandi. Hafi meiri
hlutinn mælt með Egilsstöðum,
nokkrir með Neskaupstað og fá-
einir með Eiðum. Það er óheppi-
legt, ef mikill ágreiningur verð-
ur um staðarvalið, og ég vona,
að hann sé ekki það djúpstæð-
ur, að hann hindri framgang máls
ins. Einnig vona ég, að svo vel
takist til, að skólinn verði stað-
settur þar sem hann hefur mest
áhrif, menningarleg og fjárhags
leg, til eflingar byggða á Aust-
urlandi.
Það er ekki óeðlilegt, að fjöl-
mennasti kaupstaður fjórðungs-
ins, Neskaupstaður, vilji fá
menntaskóla til sín, en lega
kaupstaðarins og samgöngur
þangað og þaðan á landi og í
lofti mæla gegn því.
Á Eiðum er nú gagnfræða-
skóli og barnaskóli, og á Hall-
ormsstað húsmæðraskóli og
barnaskóli fyrir Upp-Hérað. Að
þessum skólum ber að sjálfsögðu
að hlynna, og skólahús þar
munu í framtíð, sem nú, koma að
góðu haldi sem ferðamannagisti-
hús á sumrin.
Ef Austfirðingar vilja, að mið
stöð sín og verðandi höfuðstað-
ur eflist, þá virðist mér, að þar
eigi að reisa menntaskóla Aust-
urlands. Kaupfélag Héraðsbúa
mun og fyrir nokkrum árum
hafa samþykkt að gefa skólan-
um allstóra lóð í Egilsstaða-
kauptúni.
Áður en fyrsta Alþingi kom
saman, eftir að það var endur-
reist með staðsetningu í Reykja-
vík, höfðu stjórnarvöldin ákveð
ið að flytja latínuskólann frá
Bessastöðum til Reykj avíkur.
Hafði Jón Sigurðsson haft for-
göngu í því máli. Hann segir með
al annars í hinni merku grein
sinni, Um skóla á íslandi, sem
kom út í Nýjum félagsritum ár-
ið 1842:
„Að Reykjavík sjálfri sémesta
upphefð og efling að skólanum
er enginn efi á, og því hefur
heldúr enginn neitað. Bærinn
fær ekki einungis falleg hús
nokkur, heldur og verða margir
skynsamir og valinkunnir menn
við það borgarar í bænum, og
getur bærinn vænt sér bæði
sæmdar og nota af þeim; enda
er víst að skólaflutningurinn til
bæjarins getur orðið aðalstaður
sá, sem vér þurfum að hafa, og
orðið menntun þjóðarinnar og
framförum að mestum notum.“
Engin mun nú efa, að Jón Sig-
Urðsson hafði rétt fyrir sér, er
hann vildi flytja Bessastaða-
skóla til Reykjavíkur, og það
varð skólanum sjálfum, Reykja-
vík og þjóðinni allri til gagns.
Jón vildi jafnan efla og laga
Reykjavík, svo að hún gæti
sómt sér vel sem höfuðstaður
landsins. Latínuskólinn átti með-
al annars að stuðla að því, að
svo yrði.
Eftir að niður var lagður bisk
upsstóll og skóli á Hólum og
prentsmiðjan flutt þaðan, voru
Hólar ekki lengur höfuðstaður
Norðurlands. Möðruvellir í Hörg-
árdal urðu um langt skeið amt-
mannssetur og síðar höfuðskóla-
setur Norðlendinga.
Þegar Norðlendingar fengu
menntaskóla á Akureyri, datt eng
um í hug að staðsetja hann á
hinu forna biskupssetri, Hólum,
eða hinu gamla amtmanns- og
skólasetri, Möðruvöllum. Ég
þarf ekki að lýsa því, hve mikla
þýðingu menntaskólinn hefur
haft fyrir Akureyri og raunar
fyrir allt Norðurland. Ef skól-
inn hefði verið settur á Möðru-
völlum, en ekki á Akureyri,
hefði hann aldrei orðið eins fjöl
sóttur og hann er nú. Akureyri
hefði heldur ekki orðið eins fjöl-
mennur bær og mikill menning-
ar- og framfarabær.
Ef menntaskóli Austurlands
yrði staðsettur á Eiðum en ekki
Egilsstöðum, teldi ég það álíka
mistök eins og orðið hefðu, ef
Bessastaðaskóli hefði ekki verið
fluttur til Reykjavíkur, og
menntaskóli á Norðurlandi hefði
verið staðsettur á Möðruvöllum.
Þótt svo yrði, gætu Eiðar aldrei
orðið miðstöð Austurlands. Það
yrðu Egilsstaðir eftir sem áður.
Vil ég nú með fáum orðum
draga saman helztu rök fyrir
því, að Menntaskóli Austurlands
verði staðsettur á Egilsstöðum:
1. Egilsstaðir eru vegna legu
sinnar sjálfsögð miðstöð Austur-
lands og eru nú þegar orðnir
samgöngumiðstöð þess og verzl-
unarmiðstöð miðhluta Múla-
sýslpa.
2. Óvíða á Austurlandi er veðr
átta betri en á Egilsstöðum, og
þótt ekki sé langt milli Eiða og
Egilsstaða, munar þó nokkru,
hvað veðrátta er betri á Egils-
stöðum.
3. Egilsstaðir hafa á fáum ár-
um vaxið meir að fólksfjölda en
nokkur annar staður eystra.
4. Líklega yrði skólahald eitt-
hvað ódýrara á Egilsstöðum en
Eiðuim, því að ríkið myndi
þurfa að reisa og kosta kennana
bústaði á Eiðum ,en á Egilsstöð-
um væri liklegt, að kennarar
vildu sjáilfir reisa sér íbúðir,
þar sem auðvelt myndi að selja
þær aftur, ef þeir vildu losna
við þær.
5. Líkindi eru til þess, að
menntastoólinn mundi verða
meira sóttur á Egilsstöðum en
á Eiðum.
6. Alimargir nemendur úr
kauptúninu mundu sækja skól-
ann, og ýmsir nemendur utan
kauptúneins myndu búa hjá
frændum sínum og vinafólki í
kauptúninu, svo að komast mætti
af með minni heimaviistir en ef
skólinn væri staðsettur á Eið-
um.
7. Ýmsir þeir, sem setið hefðu
í menntaslkóla á Egilsstöðum,
myndiu leita þangað aftur að
loknu námi eins og orðið hefur
á Akureyri. Margir af embætt-
ismönnum Akureyirar, svo sem
kennarar, læknar, forstjórar fyr-
ir ýmsum srtofnunum o.s.frv. eru
sitúdentar frá M.A.
8. Fólki myndi ört fjölga á
Egilsstöðum, er menntaskóŒi
væri þar risinn. Skólinn sjálfur
myndi veita ailmörgu fóliki at-
vinnu. Og ýmsir myndu flytja
þangað vegna aðstöðu barna
sinna til skólanáma og jafnframt
atvinnumöguleikanna í kaup-
staðnum.
9. Sterlkustu röikin tel ég þó
vena, að Egilsstaðir hljóta að
verða höfuðstaður Austurlands í
fram'tíð. Duglegir og djanfir at-
hafnamenn og vel menntaðir og
víðsýnir skólamenn geta gert
staðinn að öflugri athafna- og
menningarmiðstöð.
Við Islendingar verðum aS
leggja kapp á, að ekki aðeins
á Austurlandi, heldur hvar sem
er á landinu, haldist bókleg og
verkleg menning í hendur og
styðji hvor aðra.
Ég vona, að Egilsstaðir verði
í framtíð sterk og eftirsótt at-
hafna- og menningarmiðstöð.
Mun það verða til góðb báðum
hinum skólasetrunum á Héraði,
Hallormisstað og Eiðum, og einn-
ig til þess, að eyðijarðirnar, sem
nú eru á Héraði, byggist aftur
smátt og smátt vegna aukins og
nærtæks markaðar fyrir vörur
bændanna, góðrar aðsitöðu til
skólasóknar barna þeirra, og fjöl
þættrar þjónustu Egilsstaðakaup
túns.
Ég trúi því fastlega, að EgiLs
staðir hafi í framtíðinni sömu
þýðingu fyrir Fljótsdalshérað og
Austurland sem Akureyri hefur
nú fyrir Eyjafjörð og Norður-
land.
Það hafa óneitanlega verið
margir dimmir dagar hér syðra
síðastliðið sumar. En þegar ég
hlusta á veðurfregnir, varðar
mig mestu, hvernig veðrið er á
Akureyri og Egilsstöðum. Það
hefur glatt mig mjög á liðnu
sumri, hve sólSkinsdagarnir hafa
verið margir á Fljótsdalshéraði.
Það hefur bætt mér upp sólar-
leysið hér syðra.
Vona ég, að þið fáið mörg í
röð eins góð sumur og hið síð-
asta, og nýtt blómatímabil sé
nú að hefjast fyrir Austurland,
líkt og var á síðari hluta 19. aild-
ar, en með miklu hraðötígari
og stórfengiegri framförum en
þá. Þá munu bændur á Fljóts-
dalshéraði fá sama ál'it á sveit-
um sínum og sböðu sinni eins og
þeir höfðu á síðasta áratugi 19.
aldar.
Vélabókhald &
Endurskoðun 1970
Kaupmenn, byggingarmeistarar,
útgerðarmenn, verktakar,
iðnrekendur, verkstæði.
Tek að mér vélabókhald, venjulegt bókhald
fyrir smærri og stærri fyrirtæki, verkstæði,
útgerðarmenn o. fl.
Annast launaútreikninga og hverskonar
skýrslugerðir.
Vil benda á að bankar og lánastofnanir
krefjast. nú í sambandi við fyrirgreiðslu
EFNAHAGS- OG REKSTURSREIKNINGS.
Upplýsingar í síma 22889 eftir kl. 6 e.h. og
alla laugardaga og sunnudaga. Tilboð má
einnig senda afgr. Morgunblaðsins merkt:
„Vélabókhald og endurskoðun 1970 — 8191“.
Geymið auglýsinguna.
Lifið heil.
Kópavogur
Aðalfundur Byggingasamvinnufélags Kópavogs verður haldinn
í félagsheimilinu, neðri sal, miðvikudaginn 15. april og hefst
kl. 20,30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Prófkjörið í SPEGLINUM.
„Eysteinn nær mér vart í beitisstað að
vitsmunum“ segir 1. þingmaður SPEGILS-
INS í viðtali.
Sölubörn. Komið að Hverfisgötu 4 kl. 1—5
í dag og á morgun.
Munið sölulaunin 10 kr.