Morgunblaðið - 01.09.1970, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMB.ER 1970
tœki, og vanur að iá vilja sín-
um framgengt. Og það var auð-
heyrt á honum.
— Ég efast um það, svaraði
Mark rólega. Ég er nú ekkibein
linis í neinu uppáhaldi hjá Wern
er.
— Þú gætir nú samt reynt.
Walter hafði áttað sig á fram-
komu sinni og nú varð röddin
biðjandi. — Þú sérð, hvað þetta
er grábölvað fyrir hann Alec.
Hann er mjög stolur og hlédræg
ur maður. Það sem ég óttast
mest, er að hann kunni að hafa
móðgað Werner og Werner láti
svo sitthvað um Edith koma
fram við réttarhaldið.
Nú jæja. En veiztu hver er að
stoðarmaður Wemers við þetta?
— Já, það er einhver Worth
5.
hafi því reynt að pína eitthvað
meira upp úr honum.
— Geturðu komizt að því? Nú
var tónninn í Walter orðinn em-
bættislegur. Hann var hættur
að draga seiminn og tala hægt
og rólega eins og hann var ann-
ars vanur. Walter var efnaður,
greindur, giftur ríkri konu og
félagi i góðu lögfræðingafyrir-
HARKOLLUR
úr Acryl
Ný
sending
GOTT
VERÐ
'K
s L
á
Vesturgötu 2, sími 13155.
fulltrúi og svo náungi, sem heit-
ir Loder og mun vera persónu-
legur aðstoðarmaður Werners.
— Ég þekki Pete Loder. Sjáðu
nú til Walter. Loder verður
sjálfsagt önnum kafinn upp fyr
ir eyru í dag, og verður á eilíf-
um þeytingi. Hver veit nema
hann sé enn á morðstaðnum,
því að þeir rannsaka áreiðan-
lega staðinn mjög nákvæmlega.
En ef þú kemur boðum til hans
um að hringja til þín, þá gerir
hann það áreiðanlega.
— Það ætla ég að gera, sagði
Walter. Borinn tók aftur að
hamast úti á götunni og Mark
sneri sér aftur að vinnu sinní.
Edith Desmond lá upp í loft.
Augun voru galopin og sjón-
laust starandi. Það var skráma
á hægra kinnbeini og mikil
fingraför á hálsinum á henni.
Munnurinn var opinn og tungan
kom í ljós. Blóð hafði runnið út
úr munninum og þomað á hök-
unni. Léreftskjóllinn og undir-
fötin, sem hún hafði verið i, voru
næstum rifin í hengla, er höfðu
verið breiddir yfir hana aftur.
Rifrildi af dagblaði lá rétt við
Atlar tegundir i útvarpstæki, vasaljós
föng alltaf fyrirliggjandt.
Aðeins i heildsölu til verzlana.
Fljót afgreiðsla.
HNITBERG HF.
Öldugötu 15, Rvlk. — Simi 2 28 12.
og
lelk-
Skrifstoiusiúlko ósknst
Vön skrifstofustúlka sem getur starfað sjálfstætt við alhliða
skrifstofustörf óskast sem fyrst. Enskukunnátta nauðsynleg.
Lysthafendur leggi inn nöfn sín og heimilisfang ásamt upp-
lýsingum um fyrri störf á afgr. Morgunblaðsins merkt:
„BML — 4970".
ÚTSALA
í tvo daga.
ULLARKÁPUR og TERYLENEKÁPUR.
Mikill afsláttur.
Kdpu- og dömubúðin
Laugavegi 46.
Verkfræðingur
eðu tæknifræðingur óskust
Tilboð merkt: „Hraðbraut — 4041“.
sendist afgr. Mbl.
höfuðið á henni og kruklað bréf
utan af Players-vindlingum lá
við fætur hennar. Raeburn lagði
frá sér myndina.
— Var nokkurt blóð undir
nöglunum á henni? spurði hann.
— Nei. Loder liðþjálfi hristi
höfuðið. — Hvorugri stúlknanna
sem áður var ráðizt á, tókst held
ur að klóra hann neitt. Það var
illa farið.
— Eru þær góð vitni?
— Já, önnur þeirra, sem heit-
ir Carol Hunt, — sú fyrri. Hún
var rétt á útjaðrinum á Almenn-
ingnum, og hún varð ekkert
hrædd. Gaf okkur nákvæma lýs-
ingu, eftir atvikum. En hin er
alveg ómöguleg — hún er svodd
an bjáni. Varð skíthrædd og
missti alveg vitið, ef slíkt þá
annars fyrirfinnst. Svo þrælaði
Werner henni út aftur í dag,
fantur eins og hann er. Loder
var fljótmæltur og orðin runnu
saman hjá honum. Það var kom-
ið yfir miðnætti og hann hafði
verið að þræla síðan eldsnemma
morguns, en hann hafði samt
komið heim til Marks og var nú
að drekka te i stofunni hjá hon-
um.
— Hvað liggur fyrir um morð-
ingjann?
— Hann er riðvaxinn, dökkur
með fitugljáandi hár. Carol Hunt
getur ekki lýst fötunum,
en heldur samt, að það hafi
verið vinnuföt. Og hann tautaði
eitthvað, sem hún skildi ekki,
þegar hann kom til hennar, og
hún er viss um, að hann hafi
talað með erlendum hreim. Þú
yerður að muna, að hann var með
klút bundinn fyrir niðurandlit-
ið. En jafnskjótt sem hún varð
þess vör — þvi að það var orðið
talsvert dimmt — þá æpti hún
og hann sló hana.
— En hin stúlkan ?
— Hún man ekki annað en
það, að maðurinn var andfúll.
Hún segir að þetta hafi verið
stór maður, en það getur eins
vel verið ímyndun hennar. Við
erum að leita að Kýpurmanni eða
Möltubúa, eða hugsanlega sjó-
manni frá Austur-Indíum. Og
þetta gæti svo líka verið Iri.
Sennilega með slæmar tennur og
magakvilla. Við höfum yfirfarið
skrána yfir alla, sem sleppt hef-
ur verið úr geðveikrahælum. Ég
er búinn að iiggja í símanum
hálfan daginn að athuga það.
— Sjáðu nú til, Pete, sagði
Mark. Þú ert úrvinda af þreytu
og það var fallega gert af þér
að koma hingað. Og ég vil ekki
vera að eyða tímanum frá þér.
Alec Desmond hefur sennilega
komizt upp á kant við Werner i
morgun.
— Já, og lái honum það hver
sem vill, sagði Loder.
2 66 0C
Ný söluskrá .
Septerrvbensölustoráin er kom-
in út. í benmi er að finna
helztu upplýsingar um flestar »
þær fasteignir, sem við höf-
um til söliu.
★ t
Hringið og við send um yður
sknána endurgjaldsl'aost í
póstii.
★ i
Spanið siporin, drýgið tímann. "
Skiiptið við Faist'eiginaiþjónust-
una, þar sem úrvaillið er mest
og þjómuistan bezt.
★ H
FASTEIGNA-
PJÓNUSTAN
Austurstrat! 17 (5111$ & Valdi) 3. hað
Síml 2 66 00 (2 línur)
Ragnar Tómasson hdl.
Heímasímar:
Stefán J. Riehter - 30587
Jóna Sigurjónsdóttir • /8396
— ... og honum hefur dottið
í hug, að hann muni láta ein-
hvern óþverra um Edith koma
fram við réttarhaldið. Er nokk-
uð til í því? Peter Loder iðaði
eitthvað vandræðalega í sætinu
og hvoldi í sig úr tebollanum.
— Werner segir ekki orð við
réttarhaldið — hann þarf þess
ekki.
— Desmond hefur þá ekkert að
óttast, eða hvað? Aftur tók Lod-
er að iða í sætinu.
— Hlustaðu nú á Mark. Við
vitum allir, að Edith Desmond
var hálfbrjáluð og drakk of mik
ið og elti karlmenn. Ég fullvissa
þig um, að Wemer kærir sig
ekkert um að láta það koma
fram. Og til hvers fjandans ætti
hann líka að kæra sig um það ?
— Ég býst við, að Alec Des-
mond hætti til að móðga fólk —
og Werner er hefnigjarn, ef í
það fer.
— Já, en sérðu Mark — ef
morðinginn er einhver kynæðing
ur, mundi hann ráðast á hverja
sem væri. Það þyrfti alls ekki
neitt að koma fram, hvernig
Edith var. 1 löngu þögninni
sem nú varð, kveikti Mark sér í
vindlingi. Svo fleygði hann
brenni á eldinn. Pete hallaði sér
aftur á bak og fékk sér meira te.
— Pete, sagði Mark lágt. — Ég
minnist þess, að þér hætti dálít-
ið til að roðna. Loder leit á
hann hissa.
— Þú þarft ekki að roðna, ef
ég hef á röngu að standa. Wern-
er hefur Alec grunaðan um að
hafa myrt konuna sína.
— Nei, sjáðu nú til, Mark . . .
Loder setti frá sér bollann og
stóð upp. En kinnarnar voru
þegar teknar að taka á sig ljós-
rauðan lit, undir föstu augnatil-
liti Marks.
III.
— Þetta var ómerkilegt bragð
af þér, sagði Loder. — Þú notar
þér . . . þegar ég er búinn að
gera þér þann greiða að koma
hingað. Hann var bálvondur og
kafrjóður. í þá daga er Mark
sjálfur hafði verið í lögreglunni,
var Pete nýgræðingur þar, og
þekktur að því að roðna hvað
sem út af bar.
— Seztu niður, Pete. Fyrir-
gefðu mér. Ég er þér þakklátur
fyrir að koma hingað. Kannski
get ég hjálpað þér, einhvern
tíma seinna. Mér datt bara snögg
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
I.cti ríkir allt í kringum þig, og það var lcitt. Reyndu að manna
þig upp og gerast athafnasamari.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Það crn ekki allir á sama máli um fjármálin, og því hætta á mis-
skilningi. Gleymdu ekki að telja rétt og hafa á réttu að standa.
| Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Hugmyndlr þínar eru svo frumlegar, að hætta er á því að sauð-
svartur almúginn í kringum þig taki ekki við sér. Reyndu samt að
koma samstarfsmönnum þfnum á sporið.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Ólíklegt er að þú fáir góðar hugmyndir alveg á næstunni, eða
komist að góðri niðurstöðu.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Þú ert svo frumlegur í dag, og lætur gamminn geysa. Reyndu að
huga lítið eitt af einkamálunum.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Þú færð afar ófulinægjandi upplýsingar, og óhagkvæmar eftir
því. Einhverjar deilur verða til vegna smáatriða, sem setja þig út af
laginu.
Vogin, 23. september — 22. október.
[ Geymdu stórhugmyndir til betri tíma. Ef þú ferðast um ótroðnar
slóðir, ertu kominn fram úr þeim, sem þú áður varst samferða.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Haltu þig utan allra fjármála í dag, og reyndu að hugsa um allt
annað en efnisleg vandamál.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Vinir þínir eru alltaf að freista þín. Þú gleymir smáatriðunum, sem
þó eru svo mikilvæg, ef þú ert að flýta þér, og tekur ranga ákvörðun
þess vegna.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þögul ástundun þín er þér gagnleg, meðan aðrir leika sér. Ilaltu
þig við áformin, fremur en að þrasa við kunningjana um gagnsemi
og gildi nýrra fyrirætlana.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Reyndu að sýna tillitssemi i félagslífinu og haltu þig utan fjár-
málanna.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Það má alveg breyta um skoðun, án þess að allt fari á annan end-
ann. Það hefur áhrif á heila hópa fólks, og hefur þú tæplega ráð á slíku.