Morgunblaðið - 10.09.1970, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPT. 1970
19
— Minkar
Framhald af bls. 15
búrunum og spýtir nákvæmlega
réttu fóðurgildi gegnum trekt á
þakinu á hverju búri. Með
þessu móti kemst hver starfsmað
ur yfir að sjá um 1000 dýr á
dag. — Það er aðallega fisk- og
sláturúrgangur, korn, vitamín
og proteinábætir, sem gefnir eru.
Og nýja fæðu verður að mat-
reiða daglega, því að minkurinn
verður að fá nýmeti. (1967 dráp
ust 15.000 dýr á einum degi, af
eitruðu — of gömlu — fóðri í
Noregi). Höglund byggði stór
frystihús og „eldhús“ á öllum
sinum búum. Hann kaupir (fryst
an) fiskúrgang frá Canada,
dýran fisk fluttan með kæli-
vögnum frá Vladivostok, og
þessu hrærir hann saman við það
matarkyns sem hann getur feng
ið nær sér.
í jan. — febr. er minkurinn
bólusettur gegn garnaveiru og
hvelpisýki. í marz er hleypt til
og hvolparnir fæðast í maí. Þá
er mesti annatími ársins — að
meðaltali eiga afkvæmin að vera
3,5 sinnum fleiri en mæðurnar,
en þetta bregst oft og eru ýms-
ar ástæður til. 1 september verða
hvolparnir kynþroska og nú fer
hárvöxturinn að þéttast. 1 okt-
ber er valið úr viðkomunni og
minkabóndinn velur úr þann
fimmtunginn, sem hann telur hæf
astan til undaneldis næsta ár.
Kringum 60% af öllum mink er
með breytilit (mutation) og þess
vegna er þetta úrval vandasamt,
því að ef ekki er valið rétt, get-
úr það bakað eigandanum stór-
kostlegt fjárhagstjón . . . Fyrstu
skinnauppboðin eru rétt fyrir
jólin, en í nóv. — til miðs des.
fer yrðlingadrápið fram.
Á norðurlöndum eru nú rekin
kringum 17.000 minkabú, en stór
framleiðendur eins og Höglund
eru fáir. Flestir eru þetta bænd-
ur, og hafa minkarækt i hjáverk
um. Danski álaveiðimaðurinn
Peter Sælsen frá Jyllinge hóf
minkarækt fyrir 24 árum sem
tómstundavinnu. Hann hefur
hlotið 1. verðlaun á hverri ein-
ustu danskri skinnasýningu síð-
an 1961, og þess vegna hefur
hann getað selt fast að helmingi
allra sinna hvolpa sem undan-
eldisdýr. Þau seljast fyrir 100
n. krónur, ef þau eru af kyni,
sem hlotið hefur verðlaun.
En bjórinn mundi hins vegar
ekki seljast fyrir nema fimmt-
ung þess verðs. Sælsen selur
undaneldisdýr fyrir meir en
35.000 n.kr. á ári.
En til dæmis um hve margs
verður að gæta í þessum bú-
skap, má nefna að eitt árið urðu
hvolparnir óvenju fáir hjá Sæl-
sen. Hann fékk sérfróða menn til
að leita uppi ástæðuna. Þá kom
í ljós, að hún var sú, að þjóð-
vegurinn meðfram minkabúinu
hafði verið lýstur meir en áður,
og þetta hafði áhrif á tímgunar-
tímann. En svo var lampaskin-
inu snúið burt frá búrunum og
þá gekk allt vel!
Loðdýraræktunarfélögin á
Norðurlöndum eiga mestan heið-
urinn af þeim nýtízku aðferðum
sem notaðar eru í dag. Þau sjá
um víðtækar rannsóknir á fóðr-
un, meðferð og kynbótum. Á til-
raunabúi skammt frá Uppsölum
í Svíþjóð hefur tekizt að auka
stærð minkanna, svo að hún
komst upp i rúm 2 kg. Og nú
eru þeir farnir að nota orðið
„Saga-mink“ sem samheiti á úr-
vals minkabjórum. — Hvað seg-
ir söguþjóðin um það?
Eitt mesta framlag til minka-
bjórasölunnar gerði Daninn
Björn Hansen, er hann tók upp
nýja gæðaflokkun á skinnum,
sem fylgt hefur verið í skinna-
miðstöðinni í Khöfn síðan 1960.
Þar er ákveðnum gæðaflokki
skipað saman í „búnt“, og getur
þá hæstbjóðandi í bjórakippuna
fengið svo eða svo mörg skinn i
einu, og verið viss um að þau
séu nákvæmlega jöfn að gæðum.
Það er þessu fyrirkomulagi að
þakka, að skinnauppboðin í
Osló, Stokkhólmi og Kaupmanna
höfn (en þar selja Finnar lika
sín skinn) eru nú orðin umfangs
mestu uppboð heitns, á þess-
ari vöru, og um leið þau, sem
ganga greiðast. Þar tekur ekki
nema 20 sekúndur að meðaltali
að selja hverja kippu (80—300
skinn, sem eru að heita má al-
veg óþekkjanleg hvert frá
öðru). Einn stórkaupandi frá
New York segir: „Ef ég vil ná
í 180 sams konar, sérlega dökk
karldýraskinn í USA, verð ég
kannski að fara í þrjú minka-
bú til að ná í þau. Hinsvegar
get ég fengið 2000 sams konar
skinn í Skandinavíu „í einum
hvelli." Fyrirtæki hans kaupir
90% af öllum sínum minkabjór-
um í Skandinavíu.
Skinnauppboðin eru haldin i
desember, janúar, marz, maí og
september. Osló byrjar, þá kem-
ur Khöfn og Stokkhólmur. Hvert
uppboð stendur viku til tíu
daga og uppboðshaldarinn talar
ensku, en boðin eru gerð í gjald
eyri þess lands, sem uppboðið er
haldið í. 1 hinum fagra uppboðs
sal í Osló sitja að jafnaði 300
kaupendur frá 20 löndum frammi
fyrir uppboðshaldaranum. Hver
kaupandi hefur stórletrað tölu-
númer á borðinu fyrir framan
sig. Þegar kippan er „slegin“
kemur númer hæstbjóðanda
fram í ljósletri uppi á sviðinu.
Allt verður að ganga í snar-
kasti.
Og alltaf er einhver flugfé-
lagsfulltrúi nærstaddur til þess
að sjá um eldfljóta þjónustu og
sendingu á vöru, sem er háð
skjótum tízkuduttlungum. Undir
eins og uppboðinu lýkur eru
bjórarnir komnir á fleygiferð til
— New York, Frankfurt, Lond-
on, Tokyo.
— Til minkakápu í nútímastíl
þarf 3000 sauma og 140 tima
vinnu. En svo er nútima hug-
viti fyrir að þakka, að færri
bjóra þarf í kápuna nú en áður
var og þess vegna hefur tekizt
að lækka hana i verði. í ár ætti
að vera hægt að fá síða kápu
úr „standard mink“ fyrir eitt-
hvað yfir 9000 n.kr., en tilsvar-
andi kápa, gerð í gamla stíln-
um, mundi kosta hálfu meira . . .
Þannig segist James Hudson
frá. Greinin gæti verið til fróð-
leiks, bæði þeim, sem hafa áhuga
á að eignast „minkafeld", en þá
ekki síður hinum, sem vilja koma
sér upp minkabúi. En eins og
greinin að framan ber með sér,
er það óráðlegt að efna til þess
konar fyrirtækja af vanefnum
og án kunnáttu. Frásögn Hud-
sons ber með sér, að „minkabú-
skapurinn" er flókin og vanda-
söm atvinnugrein. Hins vegar má
af henni ráða, að Island hafi
ekki lakari aðstæður til þessa
búskapar en hin löndin, sem
nefnd eru i greininni. — Og
þjóðin brenndi sig svo illilega á
vankunnáttu, hirðuleysi og eftir
litsleysi með lagabókstafnum
hér forðum, að varla er ástæða
til að ætla að hún brenni sig á
sama soðinu nú.
77/ leigu
TILBOÐ
óskast í Volkswagen 1200 model 1970, sem er mikið skemmd-
ur eftir ákeyrslu. Bifreiðin verður til sýnis að Funahöfða 7
í dag kl. 13—19.
Tilboð óskast lögð inn á afgr. blaðsins merkt: „Volkswagen
1200 — 4265" fyrir 12. þ.m.
TILBOÐ
óskast í Mercedes Benz 200 D árg, 1962, sem er mikið
skemmd eftir árekstur. Bifreiðin verður til sýnis hjá Vöku
í dag kl. 13—19.
Tilboð óskast lögð inn á afgr. blaðsins merkt: „Mercedes Benz
200 D — 4266" fyrir þann 12. þ.m.
Heildverzlun
vantar vanan mann til útkeyrslu og lagerstarfa.
Tilboð sendist Mbl fyrir laugardag merkt: „4075".
Sölufólk
Duglegt og lipurt sölufólk óskast strax.
Upplýsingar í síma 52446.
Bókhald
Vön stúlka óskast til starfa við vélabókhald, sem allra fyrst.
JÓN LOFTSSON H/F.
Hringbraut 121, sími 10600
Málverkasýning
Sigfúsar Halldórssonar
í Casa Nova er opin kl. 2—10 til 13. sept.
Ekki framlengd.
Stórt húsnæði hentugt fyrir félagasamtök til leigu ! gamla
Miðbænum. Sérstök húsvarðaríbúð fylgir með.
Upplýsingar gefur Sverrir Hermannsson í sima -20625.
Ú tgerðarmenn
Höfum á boðstólum nýjan verksmiðju-skuttogara 830 smál. brt.
með öllum nýjasta útbúnaði, ennfremur nýlega tré- og stál-
báta frá ca. 90—180 smál.
HEILDVERZLUNiN ÓÐINN
Traðarkotssundi 3, sími: 17344—18151.
Kennarastöður
Kennara vantar við Gagnfræðaskólann á Seyðisfirði m.a.
í stærðfræði og eðlisfræði.
Ennfremur handavinnukennara stúikna við Barna- og gagn-
fræðaskólann ásamt bóklegri kennslu að hálfu,
Upplýsigar gefur skólastjóri næstu daga á City Hótel
síma 1-86-50.
Keflavík — Suðurnes
Tónlistarskólinn í Keflavík tekur til starfa 1. október.
Umsóknir um skólavist þurfa að hafa borist fyrir 25. sept.
til Vigdísar Jakobsdóttur, sími 1529.
SKÓLASTJÓRI.
Skrifstofustúlka óskust
Opinber stofnun óskar eftir að ráða skrifstofustúlku.
Góð vélritunarkunnátta og nokkur tungumálakunnátta áskilin.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr.
blaðsins fyrir 15. þ.m. merktar: „Skrifstofustaf — 4076".
BLÖNDUÓS - BLÖNDUÓS
AÐALFUNDUR
Jörundur F.U.S. í Austur-IIúnavatnssýslu
heldur aðalfund sinn föstudaginn 11. sept-
ember kl. 21.00 í félagsheimilinu, Blönduósi.
Félagar eru hvattir til þess að mæta.
Stjórnin.
ISAL
Óskum eftir að ráða
AÐSTOÐARMANN
á rannsóknarstofu til að annast efnagreiningar með nútima
sjálfvirkum tækjum.
Umsækjandi þarf að vera traustur, nákvæmur, öruggur og
fljótur að tileinka sér mismunandi vinnuaðferðir.
Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi.
Þeim sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu er bent á að
hafa samband við starfsmannastjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, Reykjavík og bókaverzlun Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar fyrir 14. september 1970.
iSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVlK.