Morgunblaðið - 10.09.1970, Page 24
MORG-UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. SEPT. 1970
^4
ekki nafnið mitt svo Werner
heyri.
— Ég læt Werner aldrei heyra
neitt, ef hjá því verður komizt.
Löng þögn og það var stein-
hljóð í teppalögðu stofunni hjá
Guest. Mínútur liðu.
— Mark?
— Já. Hlustaðu nú á, Pete,
hvað um þennan Theótocopoolis ?
— Ég get ekkert sagt þér um
hann, Mark.
— Hefur hann fengið dóma
fyrir að ráðast á kvenfólk?
— Já, sjáðu til . . . ég skal
hringja til þín seinna.
— Inna* klukkutíma?
— Allt í lagi. Raeburn gaf
honum númerið og gekk inn i
setustofuna. Þar stóð stór
kanna með appelsínusafa og
13.
— Ég heiti Raeburn.
— Eruð þér sá Raeburn, sem
var áður í lögreglunni?
— Stendur heima.
— Peter Loder hefur talað um
yður. Ýg skal reyna að ná í
hann. En ég býst við, að hann
sé inni hjá Werner.
— 1 guðs bænum, nefnið þér
NAUÐSYNLEG
BOK
TILVALIN
TÆKIFÆRISGJÖF
glas. Meðan hann var að hvolfa
þessu í sig, sá hann bíl Walters
beygja inn á stuttu, malbornu
brautina. Fáum mínútum síðar
kom Walter inn.
— Halló Mark! Þetta er sjálf-
sagt appelsínusafi?
— Já.
— Fáðu eitthvað almennilegt
að drekka — eitthvað sem bragð
er að.
— Nei, þakka þér fyrir. Ekki
í vinnunni. Gamall siður úr lög-
reglunni.
— Vondur siður það. Walter
fór að blanda sér í glas. — Hvað
er að frétta?
— Lögreglan er að leita lúsa
á einhverjum Kýpurbúa. Hann
hefur þegar verið þekktur sem
sekur um þessar tvær fyrri árás
ir, og hefur fengið dóm fyrir að
ónáða kvenfólk. Lögreglan er
þegar búin að kalla Desmond
fyrir, til þess að vita, hvort
hann þekkir nokkra muni frá
Edith í fórum hans. Walter lét
stykki af appelsínuberki detta
ofan i glasið, fyllti það siðan
og saup á.
— Ef Alec kannast við eitt-
hvað hjá honum, ætti það að
verða næg sönnun, er það ekki?
Hann talaði alvarlega og horfði
niður í glasið.
Stúlka óskast
Stórt iðnaðarfyrirtæki í hjarta borgarinnar, óskar að ráða
stúlku til vélritunar- og almennra skifstofustafa.
Vezlunarskólapróf eða hliðstæð menntun áskrlin.
Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 15. þ.m. merkt; „4073".
Vélrifunarstúlka
Tryggingarfélag óskar að ráða nú þegar stúlku vana vélritun
og almennum skrifstofustörfum.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf, leggist inn á afgreiðslu
Morgunblaðsins fyrir mánudagskvöld merkt; „Vélritunar-
stúlka — 4072".
DANSKAR
TERY LENE-KÁPUR
OC ÚLPUR
m TIZKUSKEMMAN
lio
AMERISKAR
LODKÁPUR
OC VINYL-JAKKAR
&
vas.
st
fe TÍZKUSKEMMAN <fj
— Já, og þarf kannski ekki
einu sinni til.
— Kannski. Sennilega hefur
lögreglan eitthvað, sem getur
sett manninn í samband við
morðið á Edith Desmond. En
ekki veit ég, hvað það gæti ver-
ið. Walter saup á aftur.
— Nei, vitanlega ekki. Sem
lögfræðingur geri ég mér það
ljóst. En — fjandinn hafi það
allt saman — svona er það
sennilega. Ég hef nú ekki feng-
izt neitt við glæpamál, en eru
ekki flest morð nákvæmlega það,
sem þau líta út fyrir að vera?
Þegar konulík finnst undir eld-
húsgólfinu, er það alltaf eigin-
maðurinn. Þegar einhver kynæð
ingur kyrkir konu, þá er það
kynæðingur.
— Þetta er sjálfsagt rétt hjá
þér. Og Peter Loder, sem er að
vinna við þetta, heldur einmitt
að svo sé.
— Ég get bara ekki skilið,
hvernig lögreglunni hefur nokk
urntíma getað dottið nokkuð
annað í hug. Fáðu þér viskí,
Mark. Þú ert ekki neitt að vinna
núna. Walter brosti. En svo, þeg
ar hann leit á Mark, hætti hann
að brosa. —■ Þú heldur þó vænt-
anlega ekki í fullri alvöru, að
Alec Desmond hafi kálað
Edith ?
— Sannast að segja veit ég
ekkert, hvað ég held. En athug-
aðu þetta, Walter. Ef nú Peter
Loder hringir eftir tíu mínútur
og segir, að Desmond hafi kann
azt við veski og armband, sem
Edith hafi átt, hvað þá?
— Nú, þá ákærir lögreglan
Theotocopoulis fyrir morð.
— Vitanlega. Og þá gæti ekk
ert bjargað honum. Walter hugs
aði sig um andartak.
— Nú, jæja. Kviðdómurinn
mundi nú ekkert vita um dóm-
ana hans. En ef stúlkan og Alec
héldu fast við framburð sinn,
mundi það nægja. Og ef eitt-
hvað fleira kæmi fram — svo
sem klór á andlitinu á honum
— þá væri úti um hann. Finnst
þér það ekki?
— Vist svo. Og Desmond væri
leystur af öllum grun.
—- Vitanlega. Og hvað allan
almenning snertir, þá mundi eng
inn vita, að nokkur grunur hefði
nokkurntíma verið fyrir hendi.
— Einmitt. En hugsaðu þér
nú bara, Walter — rétt hugsaðu
þér það til þess að drepa tím-
ann — að Alec hafi myrt kon-
una sína.
— Já, hugsum okkur það
bara.
— Þá hefur hann mikla freist
ingu til að kannast við einhvern
hlut úr fórum mannsins. Og ef
hann hefur myrt konuna sína, er
ólíklegt, að hann standist þá
freistingu. Nú varð þögn og
Walter hleypti brúnum.
— Þú hugsar alltaf það versta,
sagði hann dræmt.
— Ég á talsverð samskipti við
glæpamenn.
— Enginn lögfræðingur mundi
dirfast að verja manninn, með
því að gefa neitt í skyn, sem
gæti orðið Desmond til foráttu.
Það hefur ekkert komið fram,
honum til hnjóðs — nema eitt-
hvert kjaftæði um, að hann
hafi rifizt við hana. Og kviðdóm
endur hræðast kynæðinga. Des-
mond verður pislarvottur í
þeirra augum, — maður, sem hef
ur orðið að þola annað eins og
þetta. Hann verður eins konar
heilög kýr.
— Kannski honum hafi sjálf-
um dottið það í hug, sagði Mark.
Síminn hringdi.
— Guð minn góður, sagði Walt
er, ég veit varla, hvað ég vildi
frétta. Hann tók símann og kink
aði svo kolli til Marks. — Þetta
er hann Loder og vill tala við
þig. Mark tók glasið sitt með sér
að símanum — hann var enn
þyrstur og fötin hans gegndrepa
af svita.
— Pete? Mark hér.
— Ég hef lítinn tíma, Mark.
Önnum kafinn upp fyrir haus.
Loder virtist snöggur og
áhyggjufullur. Síðan þetta morð
var framið, höfum við alltaf ver
ið að elta uppi menn, sem eru
nýsloppnir úr fangelsi fyrir að
hafa ráðizt á kvenfólk. Og þann
ig náðum við í Theotocopoulis.
Og hér er vottorðið um að þú ert ekki lengur haldinn stelsýki.
Þegar við fréttum, að hann væri
nýfluttur til Wimbledon, varð
hann númer eitt hjá okkur.
Við tókum hann því fastan og
stúlkan þekkti hann aftur.
Hún gekk beint að honum í
hópnum og bauðst til að leggja
eið út á það. Maðurinn hefur
fengið þrjá dóma. Hann reyndi
að koma með fjarverusönnun
fyrir þessa nótt — sagðist hafa
verið að spila. En þegar menn-
irnir, sem spurðir voru, heyrðu,
að um morðákæru væri að ræða,
afneituðu þeir honum samstund-
is. Mín tilgáta er, að hann sé
geðveikur og það verður hon-
um sjálfsagt fært til málsbóta.
Loder hafði romsað þessu upp,
snöggt og höktandi, svo að orð-
in rugluðust saman.
— Kannaðist Desmond við
nokkurn hlut úr fórum hans?
Mark sá út undan sér, að Walter
Guest gaf honum nánar gætur.
— Nei. Mark horfði á Walter
á móti og hristi höfuðið.
— Er það áreiðanlegt?
— Já. Desmond er kominn
heim til sín aftur.
— Hvað heldur Werner nú?
— Werner segir mér nú ekki,
hvað hann héldi.
-— Hættu nú þessu, Pete, sagði
Raeburn. Þú veizt mætavel,
hvað Werner heldur. Góði vertu
nú ekki að fara kring um þetta
eins og köttur kring um graut-
arpott.
— Ég held að hann hafi eng-
an grunaðan núna nema
Theotocopoulis. Hann hefur ver
ið að hamast á honum síðan
klukkan tíu. Hann heldur, að
hann muni gefa sig.
— Og Desmond er þá slopp-
inn?
— Æ, í guðsbænum, Mark!
Það veit ég ekki. Svei mér þá.
Ég veit það ekki. Ég er að reyna
að hjálpa þér og þá máttu ekki
nauða svona í mér. Loder var
alveg kominn að niðurlotum.
Þannig urðu allir, sem unnu
hjá Werner.
— Fyrirgefðu, Pete. Ég ætl-
aði ekki að ganga of hart að
þér. Er Werner enn að hamast
á Theotocopoulis ?
— Já.
— Hringdu til min aftur, ef
eitthvað gerist. Hann gaf Pete
númerið og lagði símann á. Rae
burn sneri sér að Walter Guest.
— Þú heyrðir þetta? Des-
mond kannaðist ekki við neinn
hlut.
— Samkvæmt þínu áliti, sýn-
ir það, að hann er heiðarlegur.
-— Já, annaðhvort það, eða þá
mjög klókur.
— Of klókur.
— Það eru glæpamenn oft.
Raeburn saup enn á appelsínu-
safanum. — Hversu vel þekkt-
irðu Alec Desmond, Walter?
— Ekki sérlega vel. Við höf-
um verið nágrannar í fimm ár
og hann hefur verið skjólstæð-
ingur minn álíka lengi. Edith
hefur verið það alveg síðan
hún þurfti fyrst á lögfræðingi
að haida. En ég þekki menn,
sem voru með Alec í Oxford og
hef heyrt sitt af hverju um
hann.
— Hvers vegna giftist hann
Edith ?
— Hvers vegna giftist fólk?
Þú verður að muna, að Edith
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Það þýðir ekki fyrir þig að beita undanbrögðum í dag.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Það er erfitt að komast að réttri niðurstöðu í dag.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Reyndu að bera kennsl á eigin t.akmarkanir.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Fólk, sem er langt fjarri, er þér hjálplegt um stund.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Reyndu að láta hlutdrægni fara fyrir ofan garð og neðan.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Ef þú ert að stefna að réttu marki, hjálpar það mikið að reikna
dæmið rétt.
Vogfin, 23. september — 22. október.
Misskilningur verður fljótt til. Hafðu allt eins einfalt og þú getur.
Sporðdrekinn, 23. októb-er — 21. nóvember.
Nú skaltu ekki gera neinar efnislegar breytingar.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Misskilningur getur komið upp af svo mörgum ástæðum.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Sameignir geta orðið breytingum undirorpnar, sem þú áttir ekki
von á.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
I dag er fátt auglýst í fyrstu. Fáðu gleggri upplýsingar.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 marz.
Þú færð betri aðstoð, ef aðrir skilja tilganginn í verki þínu.