Morgunblaðið - 11.09.1970, Síða 12

Morgunblaðið - 11.09.1970, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SBPT. 197» Hönd á plóginn Sitt af hverju úr samtali við Kristin á Mosfelli „Sterkur sá, er stýrir plógi." — Ef þessi Ijóðlína stæði ekki í Alþingisrimunum, þar ort um „Stef&n úti í Fagraskógi," þá mundi maður geta haldið að hún hefði verið kveðin um Kristin á Mosfelli — hinn mikla plæginga kappa sem a.m.k. í 13 sumur hafði það að meginstarfi að beita arðinum í íslenzka mold, jafna hana undir þaksléttu, seðjahana áburði, mylda hana til sáningar. Það er bæði gagn og gaman að ræða við Kristin um þetta veigamikla starf hans í þágu grass og gróðurs. Og það var sjálfsagt engin tilviljun, að það skyldi einmitt vera í sjálfum gró andanum, sem það upphófst þetta samtal okkar og skraf um herfið varð að skrúfa sundur í 3 hluta. Svo var plógurinn 4ða klyfið. Þessar milliferðir voru bæði erfiðar og tafsamar. PLÆGING — HERFING Hver voru svo af köstin ? Vitanlega mjög mismunandi eftir jarðvegi og ýmsum aðstæð- um. Þá var allt mælt í fer- föðmum, en í einni dagsláttu eru 900 ferfaðmar. Að meðaltali seg ist Kristinn hafa plægt 6—7 hundruð ferfaðma á dag. En það gat leikið á allt frá 4—5 hundr. ferfaðma upp í 12—13 hundruð. Þegar jörðin var auðunnust og plógurinn dreginn af sterkum vinnufúsum hestum, lék hann í höndum hins æfða manns. Hins Mosfell í Mosfellssveit. Hús Kr. G. fremst á myndinni. gras og gróður og við minnumst löngu liðinna tima, þegar hver morgunn var kall til frjórra starfa, hver dagstund hlaðin önn og kappi, hvert kvöld fyllt sælli þreytu undir væran svefn. DALAMAÐUR — HVANNEYRINGUR Kristinn er Dalamaður að ætt og uppruna. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson búfræðingur og bóndi að Skerð- ingsstöðum í Hvammssveit og Sigurlaug Snorradóttir kona hans. Hún var systir Hjartar í Arnarholti. Hugur Kristins stóð snemma til búnaðarstarfa. Tvi- tugur lauk hann prófi frá Hvanneyrarskóla. Að þvi loknu lagði hann þegar „hönd á plóg- inn“ alveg i bókstaflegri merk- ingu, er hann réðst starfsmaður Búnaðarsambands Borgarfjarð- ar við plægingar hjá bændum í hinu víðlenda héraði. Þrátt fyr ir nokkurt verklegt nám í skól- anum var Kristinn ekki full- numa til þessa starfs. Síður en svo. En sumarið 1912 hafði hann stundað plægingar i 20 vikur hjá Guðmundi á Skeljabrekku, síð- ar bónda á Hvitárbakka. Að þeirri forsjá og fræðslu bjó Kristinn síðan alla tið. VIÐ PLÆGINGAR I BORGARFIRÐI Kristinn hélt dagbók í þau átta ár, sem hann vann fyrir Borgfirðinga. Á þeim árum plægði hann á 107 bæjum, sum- um, oft, jafnvel ár eftir ár hjá mestu framfara- og jarðræktar- mönnunum. Stundum hefur það sjálfsagt verið ergilegt, hversu smáir blettir voru teknir fyrir á hverju ári. Þá lifðu menn eftir reglunni. Flýttu þér hægt. Get- an var líka takmörkuð. Áburð- urinn ekki til. Kýrnar fáar, sauðataðinu brennt. Kristinn vann að plægingum 10 stundir á dag. Hestar hans 5 stundir. Auk þess fór nokkur tími, að vísu misjafnlega lang- ur, i milliferðir. Þá var ekki far- ið að reikna þær sem borgaðan vinnutíma. Hestvagnar voru þá ekki komnir til sögunnar. Varð að binda plóg og herfi i 4 klyf og reiða milli vinnustaða. Diska langtum léttara fyrir hestana og gerði vinnuna auðveldari og ánægjulegri á allan hátt eins og hjá öllum, sem kunna vel að búa í hendur sér. „MÁLMFÁKAR ÓLMIR“ Plægingartími Kristins Guð- mundssonar var liðinn áður en traktorar og aðrar aflmiklar vinnuvélar tóku að bruna inn yf ir landið með sinum afkasta- miklu tönnum og beittu tætur- um. Þá. voru „mótorplógar" komnir til sögunnar í Noregi. 1 grein, sem Kristinn skrifaði ár ið 1921 í Frey um plægingar, segist hann vonast til þess, að einhvern tima komist það í fram kvæmd, að íslenzkum jarðvegi verði rótað um með mótor-, gufu- eða rafmagnsafli. En það leið næstum áratugur þangað til þær vonir rættust og sr. Sig- urður Einarsson gat kveðið til islenzka einyrkjans í Hamri og Sigð: Málmfákar ólmir yfir holtin hvæsa, hófar úr stáli, fax af bláum reyk. Og þar sem mátt þinn brast að brjóta og ræsa þar bregða þeir í villtri orku á leik. Og leggja mela, börð og brekkur harðar að bóndans fótum, sem er drottinn jarðar. HESTAFLIÐ OG VILJINN Hestarnir voru dráttaraflið fyr ir arði Kristins á Mosfelli og í öllum viðskiptum sínum við þá sýndi hann bæði göfugmennsku hins sanna dýravinar og leikni F’latirnar á Garðskaga. vegar var herfunin langtum tíma frekari, þurfti 'oft 2—3 daga til að herfa það, sem plægt var á einum degi, ef grasrótin var seig, t.d. í mýri. En þótt afköst- in færu mikið eftir jarðveginum var þó ennþá meira undir hinu komið að plógurinn væri i góðu lagi — að láta hnífinn og undir ristuskerann alltaf bíta vél. Það var, eins og gefur að skilja, kunnáttumannsins, þannig að hestar hans unnu honum og hann þeim. Sumir völdu sér dráttarhesta eftir stærð, þeir voru sterkari og átakameiri vegna mikils skrokkþunga. Kristinn telur það sína reynslu, að stærstu hestarnir hafi, vegna viljaleysis og stirðleika, oftast verið lakari til dráttar heldur en þeir minni. Ef stærð, vilji og Kristinn á Mosfelli í Hafravatnsrétt. lipurð fór saman hjá einum og sama hesti var það ákjósanleg- ast. Viljugir og liprir hestar voru aðdáanlegir i samstarfi um jarðræktina. En eftir því, sem þeir voru viljugri og ósér- hlífnari voru þegar vandmeð- farnari og viðkvæmari. Þeir þurftu mikla nákvæmni í allri umgengni svo þeir ekki of- reyndu sig. Það var hægt að eyðileggja þá á einni dagstund með því að beita þeim fyrir plóg inn með lötum og seinfærum drógum. Það er ill meðferð á góðum grip. Alls stundaði Kristinn plæg- ingar í Borgarfirði í 8 sumur — byrjaði á vorin þegar klaki fór úr jörð og hélt áfram allt fram til júlíloka stundum líka á haust in ef tíð var góð. Á þessum ár- um plægði hann tæpl. 160 dag- sláttur og herfaði næstum 140 dagsláttur. Tók herfingin oft- ast 2—3 sinnum lengri tíma en plægingin. Auk þess plægði hann mikið af kálgörðum og skurðum — eitt til þrjú plóg- för niður eftir því hvað jarð- vegurinn var þéttur. Þetta var árangursríkt starf og ánægjulegt að líta yfir grænar grasgefnar sléttur þar sem áður voru stór- þýfðir móar og stirðslæg tún. NÝTT VERKEFNI En þrjú siðustu plægingaár sín í Borgarfirði bauðst Kristni jafn framt annað og ólíkt verkefni. Til að rekja þá sögu þurfum við að bregða okkur inn áAlþingi þar sem þingmenn ræddu hvern Nokkrir starfsinenn við kartöfluræktnnina á Garðskaga: Sitjandi frá vinstri: Björn Vigfússon, Gullberastöðiim, Guðmundur Jónsson, Skeljabrekku, Loftur Loftsson, Landlæk. Standandi: Ár- mann Dalmannsson, Kristinn Guðmundsson, Pétur Þorsteinsson, Miðfossum, Magiuis .lakobs- son, Varmalæk, Kristófer Guðbrandsson, Kleppjárnsreykjum. ig bregðast skyldi við þeim margvíslega vanda, er að þjóð- inni steðjaði af völdum Heims- styrjaldarinnar fyrri. yl frumvarpi til laga, sem fram var borið á Alþingi 1917 um almenna hjálp vegna dýr- tíðarinnar var svo að orði kom- izt í 2. gr. að ,,á meðan Norður- álfuófriðurinn stendur er land- stjórninni heimilt að verja fé úr landsjóði til atvinnubóta, s.s. að undirbúa byggingu stórhýsa, hafna, vita, brúa og vega og til að reka matjurtarækt í stærri stíl.“ Meiri hluti Bjargráðanefndar, sem fjallaði um þetta mikla vandamál — dýrtíð stríðsloka- áranna — skipuðu þessir menn: Þorsteinn M. Jónsson, Pétur á Gautlöndum, Sigurður ráðunaut- ur og Pétur Ottesen. Töldu þeir ráðlegt ,,að landstjórnin sjái svo um, að matjurtarækt verði rek- in I stórum stíl á næsta sumri í þeim héruðum landsins, sem bezt eru til þess fallin, svo að landið verði birgt af kartöflum og öðr- um þeim matjurtum, sem auð- ræktanlegar eru hér á landi fyr- ir haustið 1918. En til þess þarf stjórnin að gera ráðstafanir þeg ar í vetur, svo sem með því að láta draga nægilegan áburð að garðstæðunum og safna út- sæði.“ Frumvarp með þessum ákvæð- um var síðan samþykkt sem lög frá Alþingi 14. sept. 1917. Land stjórnin fól Búnaðarfélagi ís- lands framkvæmd málsins og Einar Helgason fór á stúfana til að finna heppilegustu garð- stæðin. Honum leizt bezt á Braut arholt á Kjalarnesi og Garð- skaga á Suðurnesjum fyrir slika stórræktun. Þar mundi vera pláss fyrir oa. 50 dagsláttu garð á hvorum stað, sem gætu gefið um 2000 tunnu uppskeru ef vel heppnaðist. TIL SUÐURNESJA Um kartöfluræktina á Kjalar- nesinu verður ekki rætt hér. Hún kemur ekki við þessa sögu. En til að veita forstöðu fram- kvæmdum á Garðskaga, sem voru á vegum ríkisins eða land- sjóðs, eins og þá var kallað, var ráðinn Guðmundur á Skelja- brekku. Og hans hægri hönd var Kristinn Guðmundsson. Til farar með honum suður á Nes réðust nokkrir ungir Hvanneyr ingar, flestir úr Borgarfirði, harðfrískir menn og kappsfullir. Fyrst af öllu var að afla áburðar, því þá var „loftáburð- urinn" lítt eða ekki farinn að flytjast til landsins. En næring- Framhald á bls. 17

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.