Morgunblaðið - 11.09.1970, Síða 14
14
MORGUNBLAÐtÐ, FÖSTUDAGUR 11. SBPT. 1970
Útgefandi hf. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Ami Garðar Kristinsson.
Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6. Simi 22-4-80.
Áskriftargjald 165,00 kr. á mánuði innanlands.
f lausasölu 10,00 kr. eintaklð.
PRÓFKJÖR
Tninan tíðar fer fram próf-
*■ kjör meðal Sjálfstæðis-
marma í þremur kjördæm-
um um skipan framboðs-
listia Sjálfstæðisflo'kksins við
næstu Alþ ingisk osn inga r.
Prófkjör fer fram um næstu
helgi í Vesturlandskjördæmi
og hefur prófkjörstisti þar
þegar verið birtur. Á næst-
. unni fer einnig fram próf-
kjör í tveimur fjöimennustu
kjördæmum landsins, Reykja
vík og Reykj aneskj ördæmi.
Prófkj örsiistar í þessum kjör
dæmum verða birtir á næst-
unni og frambjóðendur í
prófkjörinu kynntir. Þegar
þessiar upplýsingar lig'gja
fyrir, hafa kjósendur góðan
tíma til þess að gera upp hug
sinn um það, hverja fram-
bjóðendur þeir hyggjast
styðja.
í þessum þremur kjör-
dæmum hafa allir stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokks-
ins við næstu Alþing-
iskosningar, fiokksbundnir
sem óflokksbundnir, rétt til
þátttöku. í prófkjörinu í
Reykjavík si. vetur tóku þátt
um 7000 borgarbúar og um
% þeirra voru óflokksibundn-
ir stuðningsmenn flokksins.
Frá því að prófkjörsiistar
verða birtir og tii prófkjörs-
dags munu einstakir fram-
bjóðendur og stuðningsmenn
þeirra leita eftir fylgi vænt-
awlegra þátttafcenda í próf-
kjörinu. Það er eðliiegur þátt
ur í prófkjörinu, að hver um
sig leggi sig fram um að berj-
ast fyrir sig og sínum fram-
bjóðenda. Mestu máli skiptir,
að sú kosninigabarátta fari
fram með heiðarlegum hætti,
drengifegum vinnubrögðum
' og án þess að vegið sé að
öðrum frambjóðendum.
Reynslan af hinu víðtæka
prófkjöri í Reykjavík og ann-
ars staðar sl. vetur sýndi, að
þessi vinnubrögð voru í
heiðri höfð og er ekki að efa,
að svo verður einnig nú.
Ákveðin og dugmikil barátta
fyrir einstökum frambjóð-
endum er sjálfsögð, enda sé
hún innan marka drengskap-
ar og réttra leikreglna.
Prófkjör geta leitt til marg
víslegra breytinga eins og
eðiilegt er. Framkvæmd próf
kjörsims nú og sú kosninga-
barátta, sem háð verður af
hálfu eimstakra frambjóð-
enda, mun veita dýrmæta
reynslu og gefur vísbending
um, hvort halda skuli áfram
á sömu braut eða leita ann-
arra ráða til þess að tryggja
sem mest áhrif hinna al-
mennu stuðnimgsmanna
flokksins á va.1 frambjóðenda.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ákveðið að gera tilraun til
þess að færa valdið út til
fólkisins í mun stærri stíl en
aðrir flokkar. Reynslan ein
gefur til kymma, hvort þar
verður um frambúðarskipan
mála eða ekki að ræða.
Að prófkjörum loknum
taka menn höndum saman á
ný tiil stuðnings við þá, sem
hlotið hafa mest traust í
prófkjörunum og þar með
verið valdið til framboðs á
vegum Sjálfstæðisflokksins.
Vafalaust eru skipbar skoð-
anir um það, hverjir eru bezt
til framboðs fallnir eins og
jafman vill verða, en fyrir því
er löng og sterk hefð innan
Sjálfstæðisflokksinis, að þeg-
ar niðurstaða er fengin, snúa
menn bökum saman, hversu
svo sem farið hefur um á-
hugamál hvers og eins í próf-
kjörinu sjálfu.
Sjálfstæðisflokkurinn stend
ur nú á mifclum tímamótum
í sögu sinni. Forystumenn
flokksins hafa ákveðið að
bregðast við þeim vanda, sem
að steðjar með því m.a. að
opna enn alla starfsemi
flokksins og gefa landsmönn
um öllum tækifæri til þess að
fylgjast með því, hvemig
Sjálfstæðismenn ráða málum
sínum. Morgunblaðið fagnar
þeirri ákvörðun og tvímæla-
lauist má telja, að það muni
verða stærsta stjórnmála-
flokki þjóðarinar til mikils
styrktar og vegsauka, þegar
fram í sækir.
Náttúruvernd
og verklegar framkvæmdir
IVTú standa yfir miklar um-
ræður og raunar deilur
um það, hvernig samræma
eigi verndun náttúrunnar
annars vegar og þörf þjóðar-
innar fyrir verklegar fram-
kvæmdir af ýmsu tagi hins
vegar. Það er fagnaðarefni,
að þessar umræður fara
fram. Það eitt sýnir, að Is-
leudingar, sem standa nú á
|þröskuldi nýrrar og stór-
felldrar iðnvæðingar, eru
staðráðnir í, að hún gerist án
þess að náttúruspjöll hljótist
af, eins og orðið hafa örlög
svo margra annarra þjóða.
Þjóðin er vakandi fyrir nauð-
syn þesis að varðveita nátt-
úrufegurð landsins, en hún
er líka framfarasinnuð og
reiðubúin til þess að sækja
fram til aukinmar velsældar.
Þessi tvö sjónarmið er hægt
að samræma og þau verða
samræmd.
John. TJiaain.san,
framkvœmdastjóri
stofnunarinnar.
Alþjóðleg barátta
gegn krabbameini
Eftir Björn Bjarnason
Núverandi höfuðstöövar alþjóðlegu rannsóknarstofnunarinn-
ar á krabbameini í Lyon. Húsnœði þetta er aðeins til bráða-
birgða, því að nú er unnið að byggingu 14 hæða húss fyrir
stofnunina.