Morgunblaðið - 11.09.1970, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. SEPT. 1970
snöggt á kveikjaranum, rétt eins
og hann væri vondur.
— Og varð Desmond fyrir
vonbrigðum með arfinn. Hvað
gerðist eiginlega?
— O, bara þetta venjulega.
Allir héldu, að Carmichael gamli
væri forríkur ætti hundrað
þúsund, sem þær systurnar ættu
að skipta milli sín. En það reynd
ist vera eitthvað fimm þúsund.
svo sem ekkert óvenjulegt.
Hann hafði tapað peningum,
eins og oft vill verða.
— Það hafa nú samt orðið
vonbrigði.
— Vitanlega. Sjáðu nú til
Mark. Ég sé alveg, hvað þú ert
að fara. Desmond varð fyrir öll
um þeim vonbrigðum, sem eigin-
maður getur orðið fyrir. Ef við
14.
var mjög falleg og greind. Og
Alec er greindur, En annars
var eitthvert skraf um það, að
hún hefði orðið fyrir vonbrigð-
um af einhverjum blaðamanni —
með einhverju útlendu nafni,
sem ég man ekki lengur. Edith
átti arfsvon, enda þótt það væri
á margra vitorði, að faðir henn-
ar var ekki likt því eins ríkur
og hann var sagður. Vitanlega
lyftu margir brúnum, því að
Edith hafði orð á sér fyrir að
vera frekar léttlynd, en vitan-
lega lyfta menn brúnum yfir
flestum trúlofunum. En svo, skil
urðu, að Edith hrakaði óðfluga.
En þegar hún giftist vissi eng-
inn, hvernig mundi fara fyrir
henni.
— Þetta hlýtur að hafa verið
kvalræði fyrir Desmond. Guest
stóð upp að fá sér aftur í glas-
ið, áður en hann svaraði.
— Já, það var hreinasta kval
ræði, sagði hann dræmt. y- Des-
mond er kaldur karl — hlédræg
ur og fjarrænn. Og svona maður,
að þurfa að vera að beiðast af-
sökunar á því, að konan hans
gerir uppistand og gubbar í
kokteilsamkvæmum og rífur í
eiginmenn annarra kvenna að
hurðarbaki og móðgar sendi-
herra. Þú skilur, að ég vor-
kenni Edith og mig hryllir við,
að hún þyrfti að enda svona. En
ég er samt feginn, að hún skuli
vera dauð. Það er ljótt að segja
það, en svona er það nú samt.
Ég er feginn. Þetta voru orðin
hreinustu vandræði. Walter
kveikti sér i vindlingi og tók
göngum enn út frá því, að Aiec
Desmond hafi kálað konunni
sinni, þá hafði hann ástæðu til
þess. Gott og vel. Desmond hafði
ástæðu. Látum það gott heita.
En er þér alvara að segja mér,
á þessari stundu, þegar kynæð-
ingur hefur sama sem verið
ákærður, að þá haldir þú þér
enn að þeirri hlægilegu hug-
dettu, sem Werner dreymdi sér
til, áður en hann rakst á sann-
leikann? Walter drap í vindl-
ingnum sínum og kveikti í öðr-
um, með snöggri hreyfingu.
— Ég hengi mig ekki i neina
hugdettu, heldur er ég bara að
hugsa. Hann sá, að Walter var
reiður. Hvers vegna? Hann var
reiður af því að hann hafði kom-
izt úr jafnvægi. Walter og Ern-
estine og allt þetta fólk í þess-
um stóru húsum í Wimbledon,
með bílana sína og kæliskápana,
kokteilana og bækur og myndir
og vetraríþróttir. — Þetta fólk
átti góða daga. Vitanlega hafði
enginn vinnukonu — aðeins
ráðskonur og barnfóstrur og
ítalskar innistúlkur. Auðvitað
hvíldi tekjuskatturinn þungt á
þeim, en hvenær höfðu Walter
og Ernestine þurft að neita sér
um nokkurn hlut? Og þau lögðu
það í vana sinn, eins og hvert
annað hátekjufólk að líta bara
undan ef eitthvað leiðinlegt kom
uppá. Hegðun Edith Desmond
hafði verið leiðinleg, og Guest-
hjónin höfðu verið neydd til að
horfa á hana, og þess vegna létti
Walter svona mjög, þegar
Edith var úr sögunni. Og hann
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Alls konar tilfinningaflækjur eru í uppsiglingu.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Félagslífið gerir dálitið strik í reikninginn hjá þér.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Þú ræður því alveg sjálfur, hvort þú sóar tímanum i óþarfa þras.
Það er margt heppilegra.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Andleg störf hafa yfirburði yfir cfnishyggjuna.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Taktu öllu með ró, og segðu það, sem þér býr i brjósti.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Vinir þinir skiptast í tvo hópa i dag, og þér kemur það á óvart.
Vogin, 23. september — 22. október.
Reyndu að hitta góða vini í dag, ef þú getur.
Sporðdrekinn, 23. októb-er — 21. nóvember.
Þú ert dálítið stuttur i spuna, og það er óþægilegt fyrir suma.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Farðu snemma í starfið, og hlustaðu á það, sem þér kemur vcl að
vita. Slepptu öðru.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Reyndu að koma þinum nánustu i skilning um það, að þú bcrð
hlýjan hug til þeirra.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Reyndu að taka einföldustu leiðina út
úr erfiðleikum þínum.
Fiskamir, 19. febrúar — 20 marz.
Það er hagkvæmt að láta berast mcð straumnum í dag.
tók það sem gefinn hlut, að morð
inginn væri einhver ómerkileg-
ur útlendingur og hryllti við
þeirri tilhugsun einni saman, að
það gæti verið Alec Desmond
eða einhver af hans tagi.
En hvað ef nú innan um allt
þetta efnafólk, væri morðingi,
sem æddi um eins og villidýr.
Sá átti nú heldur betur hægt um
vik! Enginn mundi trúa, að það
gæti verið hann, og því ósvífnari
sem hann var, því minna mundi
það trúa á tilveru hans.
— Þú ert eitthvað þungur á
svipinn, Mark.
— Er ég það? Afsakaðu.
— Og vitanlega er þetta al-
varlegt mál. Ég held, að þessi
Kýpurbúi hljóti að vera brjál-
aður. Walter saup enn á glasinu
sínu. Hann hafði misst allan
áhuga á þessu.
— Frú Cull bauð mér í kvöld-
mat með þér. Walter leit upp.
— Ég vildi að ég hefði vitað,
að þú ætlaðir að koma. Ég þarf
að fara a fund — það er í góð-
gerðafélagi hérna í nágrenninu
— en þá hefði ég frestað því. Ég
verð að fara strax og við erum
búnir að borða. Frú Cull verður
áreiðanlega fegin að mega fóðra
þig. Hún var að hafa orð á því
við Ernestine, að þú værir eitt-
hvað magur og mjór á kinn. Og
kvenfólk sækist alltaf eftir
hungruðum karlmönnum, sem
þær halda vera. Svo gengu þeir
inn í borðstofuna og tóku vel
fyrir sig af matnum.
Seinna, þegar Walter var far-
inn, sat Mark einn í setustof-
unni. Hann horfði á einhverja
skrautsýningu í sjónvarpinu, í
tíu minútur en slökkti þá á því
aftur, óþolinmóður, reyndi að
líta í tímarit en hætti líka við
það. Hann var órólegur. Honum
var ómögulegt að beina hugan-
um frá lögreglustöðinni, þar sem
Werner var að ganga í skrokk
á Theotocopoulis. Hann þekkti
svo vel þetta umhverfi — her-
bergi lýst af óvörðum ljósaper-
um með auglýsingum á veggjun-
um og eldhússtólum, plankaborð
þakið tómum tebollum og Wern-
er með axlir, sem ætluðu að
sprengja bláa jakkann, sveittur
á enninu, bítandi í samloku, eins
og utan við sig, og spyrjandi í
sífellu, dræmt, þungt og vægð-
arlaust, eins og þegar skrið-
dreki brýzt áfram i ófærð ...
Hann leit aftur út um glugg-
ann og sá Sally Evans koma inn
um hliðið, utan af Almenningn-
um. Andartaki seinna leit hún
á húsið og sá hann standa við
gluggann. Hann veifaði og hún
nálgaðist. — Halló! sagði hún og
horfði inn I stofuna. Ertu al-
einn þarna ?
— Já, ég er að bíða eftir sim-
hringingu.
— Nú, er það vegna . . . Hún
þagnaði. — Fyrirgefðu ef ég er
of forvitin. En það var hún
ekki. Af öllu því fólki, sem hafði
þekkt Edith Desmond, var Sally
Evans sú eina, sem virtist hafa
orðið fyrir áhrifum af þessu og
þykja það miður, enda þótt
henni hefði verið lítið um Edith
gefið. Kannski var þetta bara
vegna þess, hve ung hún var.
— Það er alit í lagi, sagði
hann. Það er um hana Edith
Desmond. Það hefur ýmislegt
verið að gerast. Bíddu andar-
tak, ég skal koma út. Hann opn
aði gluggadyrnar og gekk út.
Þau gengu að bekknum undir
móberjatrénu og settust. — Lög-
reglan er að yfirheyra einhvern
Kýpurbúa, sagði hann og siðan
sagði hann Sally í sem stytztu
máli, hvað gerzt hafði. — Þeir
eru líkiega að ráða það við sig,
hvort þeir eiga að ákæra hann
strax eða sleppa honum lausum
í bili og bíða frekari upplýsinga.
Ofurlítinn hroll setti að Sally.
— Heldurðu, að hann hugsi
um þetta eins og venjuleg
manneskja? Ég á við, ef hann
hefur gert það? Mark hugsaði
sig ofurlítið um.
— Það er bágt að segja, sagði
hann. Ég hef ekki séð hann.
Flestir glæpamenn eru bara
venjulegar manneskjur, nema
hvað þeir eru kannski uppfyllri
af sjálfsþótta og sjálfsmeðaumk
un. En sumir eru það ekki. Þeir
B lásturskennarar
Tónlistarskólinn á Akureyri óskar að ráða kennara á blásturs-
hljóðfæri (helzt trompetleikara.
Laun samkvæmt launaskrá opinberra starfsmanna.
Kennarinn þarf einnig að vera fær um að taka að sér stjórn
Lúðrasveitar Akureyrar.
Laun fyrir það starf samkvæmt samkomulagi.
Umsóknir sendist fyrir 20. september.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Tónlistarskólans sími
(96) 11653 eða 21460.
Hausttízkan er komin.
Heitir djúpir litir gefa tón vetrarins. Dimmblátt, vín-
rautt, lilla, dökkrautt, mikið af brúnum litum og svo
auðvitað svart, eins og alltaf. Vogue búðirnar eru
með á nótunum og bjóða yður:
Ullarkjólaefni með skávend í öllum ofantöldum litum.
Tvíbreitt á kr. 449.00 pr. m.
Frönsk terylene með shantung vefnaði í fínu kjólana.
120 cm. breið kr. 490.00 pr. m.
Crymplene — jersey, með samlitum Lurex-þræði.
Gullfallegir litir. Tvíbreitt. Verð kr. 773.00 pr. m.
Mynstruð bómullarjersey, tvíbreið á kr. 411.00 pr. m.
Nylonefni í barnakjóla. 115 cm. breið á kr. 239.00
pr. m.
Einlit, þykk ullarefni í mörgum fallegum haustlitum.
Efni í kápu, buxnadragt eða pils. Tvíbreið. Verð kr.
499.00 pr. m.
Buxnaefni 55% terylene og 45% ullarkambgarn.
Mikið litaúrval. Tvíbreið efni, sem kosta frá kr. 475.00
til 678.00 pr. m.
Vel klæddar konur verzla í Vogue. Athugið, að búðir
okkar í Miðbæ, Háaleitisbraut og við Strandgötu,
Hafnarfirði, bjóða líka öll þessi efni.