Morgunblaðið - 11.10.1970, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐEÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1970
27
Halldór Laxness. (Ljósm. Ol. K. M.).
1 Innansveitarkroniku er
einnig miðað við sauðfé. Þegar
feðgarnir á Hrísbrú taka menn
tali á hlaðinu og spyrja frétta,
beinist taiið alltaf að sauðfé,
„því alt líf i landinu var eins-
og þann dag í dag miðað við
sauðfé. Til dæmis þegar talað
var um veður þá var það eitt
sjónarmið ráðandi hversu það
mætti henta sauðfé. Gott veð-
ur var það veður sem var gott
fyrir sauðfé. Gott ár var það
þegar óx gras handa sauðfé.
Fallegt landsiag á Islandi þyk-
ir þar sem góð er beit handa
sauðfé. Afkoma og sjónarmið
manna í lífinu voru ákvörðuð
af þessari skepnu. Hrisbrúíng-
ar höfðu fréttir af sauðfé
hvaðanæva af landinu og
sögðu sögur af afkomu sauð-
fjár í Mosfellssveit. Þeir
mundu nákvæmlega hvernig
viðrað hafði fyrir sauðfé ár
framaf ári þrjátíu ár aftur í
tímann. Þessir menn fóru
aldrei i utanyfir sig, en ullar-
treyur þeirra og peysur héldu
vatni og vindi einsog reifið á
íslenskri sauðkind."
Nú er sveitasagnfræðin kom-
in í blöðin, segir Halldór Lax-
ness enn í samtali okkar.
Bændur romsa upp einhverjum
lifandis ósköpum um harðærið
í sveitunum með tilheyrandi
lýsingum á því hvernig veðrið
var í fyrra og hitteðfyrra.
Steini á Valdastöðum var eftir-
minnilegur innansveitarsagn-
fræðingur Kjósarinnar. Ég las
alltaf fréttirnar hans í Morg-
umblaðinu tvisvar, stundum í
þriðja sinn upphátt fyrir fólk-
ið. Þrátt fyrir mörg mótdræg
tíðindi var hann e)ini fréttarit-
arinn sem sló ævinlega hugg-
unarríka nótu. Þegar hann var
búinn að lýsa þessum feikna-
legu óþurrkum allt sumarið,
bætti hann alltaf við, að það
va?ri von manna, að nú færi
að breytast til batnaðar, a.m.k.
upp úr höfuðdeginum.
F.itt var það fyrirbrigði í
sveitum landsins áður fyrr og
minnzt er á í Innansveitar-
kroniku, sem hvergi annars
staðar á sér hliðstæðu. Það var
sá siður að leggjast i kör. Kona
Ólafs á Hrísbrú, öbjörg, lagð-
ist í kör: „Dag nokkurn um
það bil sem börn hennar voru
vel komin á legg lagðist hún í
kör og reis ekki upp siðan; en
kör hefur verið ein mikilsverð-
ust þjóðfélagsstofnun á Islandi
frá því land bygðist. Það var
sagt að konan væri búin að
liggja átján ár í körinni . . .“
1 samtalinu segir skáldið að
einkennilegt sé hve margir ís-
lendingar lögðust í kör. Þetta
orð er ekki til í erlendum mál-
um og illþýðanlegt, samt er
ekki hægt að komast hjá því
í bók eins og Innansveitar-
kroniku. Skáldið segir: Þeir
sem lögðust í kör voru oft
gigtveikir eða kalkaðir í hrygg
og mjöðmum og áttu erfitt með
að bera sig um húsin, sem voru
köld og saggasöm; sumir voru
hjartveikir eða höfðu fengið
áföll og leið bezt milli rekkju-
voðanna og höfðu sig ekki upp
framar. Kannski var þetta að
einhverju leyti lífsflótti eða
mótmæli. Þessi kör var nokk-
urs konar þjóðfélagsstofnun
sem var tekin gild. Hann seg-
ir að merkilega frásögn sé að
finna um kör i æviminningum
Sigurðar Briems, póstmeistara,
um karl í Húnavatnssýslu, sem
tekur sig allt í einu upp heim-
an að frá sér og ríður með
nokkra hesta vestur á land til
dóttur sinnar — til að leggjast
í kör. Þegar karlinn kemur
vestur, háttar hann og liggur
nokkur ár, en þá kemur upp
ósamkomulag á heimilinu milli
hans og dótturinnar og fer í
hart, svo að karl unir ekki
lengur fyrir vestan, rís upp úr
körinni, fær sér hesta og ríð-
ur í vonzku aftur heim í Húna-
vatnssýslu — og er hættur við
að liggja í kör.
x x
Og er nú komið að lokum í
frásögninni af Innansveitar-
kroniku Halldórs Laxness. Til
að ná saman endum er ráðleg-
ast að halda áfram þar sem frá
var horfið i upphafi. Skáldið
hafði minnzt á, að skáldsagan
væri ritstýrð sagnfræði. 1 fram-
haldi hugleiðinga hans um það
gfni má bæta við þessum orð-
um hans: Ég hef mikið hugs-
að um rætur skáldsögunnar og
oft í alvöru. Hvernig á að segja
frá, svo að það hafi tilætluð
áhrif á þann, sem maður er að
segja söguna? Hvernig á að fá
hann til að taka eftir og hlusta
og hugsa sjálfan? Skáldsagan
hefur þvi aðeins tekizt, að hún
eignist lesendur. En þeir þurfa
ekki að vera mjög margir.
Islenzkur sagnaskáldskapur
forn hefur hjálpað mér í leit
að viðhlitandi formi. Og í Inn-
ansveitarkroniku hef ég sér-
staklega lagt mig eftir þvi,
hvernig þessir ósviknu sveita-
sagnfræðingar skrifuðu og
skrifa enn,. þ.e.a.s. menn uppi i
sveit sem sjá veröldina fyrir
sér eins og útvíkkun á sveit
sinni og framhald af henni.
Tökum mann eins og Jón India
fara, sveitasagnfræðing á 17.
öld. Hann kemur úr afskekktri
sveit vestanlands og lendir i
því að sigla til Indlands, en sér
þó alltaf heiminn frá bæjar-
dyrunum í sveitinni sinni. Hug-
leiðingar hans og lýsingar eru
ekta íslenzk sveitasagnfræði,
þó hann sé að lýsa Indlandi.
Sama má segja um Eirik á
Brúnum; hvort heldur hann
lýsir hóruhúsunum eða kónga-
fólkinu I Kaupmannahöfn eU-
egar sælurikinu í Utah er
hann ævinlega kyr á hlaðinu
heima .í sveitinni sinni. Gísli
Konráðsson er einnig dæmi-
gerður sveitasagnfræðingur.
Hann er oft hálf leiðinlegur og
daufur, fullur af þurrum fróð-
leik, en á milli lýsir hann allt
í einu stórsögulegum eða drama
tískum atburðum með einföld-
um, en skörpum dráttum, mjög
áþreifanlega svo að lesandann
rekur í rogastans. En það er
eins og hann taki ekki eftir
því sjálfur. Þegar hann kemur
að stórviðburðum, setur hann
allt í einu tóndeyfi á strengi
sína í staðinn fyrir að maður
hefði búizt við að nú hækkaði
hann röddina og færi að æpa.
Nei, ekki aldeilis! Svo getur
hann komið með ákaflega
spaugilegar athugasemdir og
bitrar, til dæmis þegar hann
lýsir aðför norðlenzkra bænda
að Grimi amtmanni á Möðru-
völlum. Þetta voru hálfsvangir
bændur og áreiðanlega kaffi-
þyrstir, sumir komnir langt að.
Grimur amtmaður átti forláta
hund. Gísli skýtur þvi inn í
frásögn sína, að amtmaður hafi
mjög þurft að vanda hundinum
kaffi.
Og svo náttúrlega Brynjúlf-
ur frá Minna-Núpi. Sagan af
Þuríði formanni og Kambráns-
mönnum er eindregin íslenzk
sveitasagnfræði. En allir þess-
ir sveitakarlar hafa bakstoð í
fornsögunum, þó höfundar
fornsagnanna séu önnur teg-
und af mönnum, miðaldalær-
dómsmenn, akademískir menn.
Ég gæti talið upp heilan fans
af nútímamönnum sem skrifa
sveitasagnfræði, sumt ágætlega
til dæmis minningabækur
Eyjólfs Guðmundssonar á
Hvoli i Mýrdal og mjnningar
Ingunnar á Kornsá, elskulegt
rit.
Annálaritarar skrifuðu ekki
svona. Þeir skrifuðu upptaln-
ingar á stórviðburðum: fæddist
lamb með tvö höfuð, eldur í
Heklu, menn í loftinu, óper-
sónulegar haldlausar upptaln-
ingar og koma þessu máli ekki
við. Menn eins og Jón Espólín
hafa ekki vakið neina sérstaka
athygil mina. Hann er dálitið
metnaðargjarn rithöfundur og
tilgerðarlegur í orðfæri og stíl,
reynir að skrifa fornsagnastíl
og verður óekta.
x x
Sagan af Mosfellskirkju,
hvernig hún var rifin og siðar
endurreist, hefur alltaf þótt
spennandi og hnýsileg í Mos-
fellssveit. Lengi vel var ekki
útlit fyrir að kirkja mundi aft-
ur rísa á Mosfelli. En þegar
Stefán Þorláksson deyr, kemur
í ljós að hann hefur gefið fé
til að ný kirkja risi á Mosfelli.
Þá var sagan fullkomnuð, seg-
ir skáldið. Þeir voru byrjaðir
að marka fyrir kirkjunni og
grafa grunninn, þegar ég
fór til Róms 1963 að sitja ráð-
stefnu sem Sameinuðu þjóðirn-
ar efndu til í undirbúningi her
ferðar gegn hungri í heiminum.
Að ráðstefnunni lokinni gerði
ég grindina að þessari sögu. Ég
átti auðvelt með að setja upp
þessa grind, því atburðaröðin
er fullkomin i sjálfri sér og
litlu við að bæta. M.
ALLTAF FJOLGAR
VOLKSWAGEN
Verðið eitt gefur ekkert til kynna, nema
því aðeins, að þér vitið, hvað þér fáið i aðra
hönd.
Hvað viðkemur Volkswagen 1200, þá fáið
þér heilmikið.
Til dæmis, þægindí. Djúp-bótstruð sæti
klædd leðurlíki. Klæðningu í hvalbak. Gúmmí-
mottur á gólfum. Þvottekta leðurlki í toppi.
Rúðusprautu. Vindrúður. Hitaleiðslur aftur I
o.s.frv.
Margvíslegar öryggisendurbætur eru á nýja
1200 bílnum. Tvöfalt bremsukerfi. Öryggis-
stýrisás, sem gefur eftir, við ákveðið högg
og verndar ökumann, ennfremur öryggis-
stýrishjól. úryggis-hurðar handföng og rúðu-
upp-halarar. öryggis-belti.
Og að lokum,
V.W. 1200, er búinn sterkri loft-
kældri vél með sjálfvirku inn-
sogi, — 15” hjólum með sjálf-
stæðri fjöðrun, sterkri yfirbygg-
ingu og sléttri botnplötu.
Þetta er ekki svo lítið
fyrir jafn ódýran bíl, — og þér
ættuð því ekki að láta hið lága
verð villa um fyrir yður.
Komið, skoðið og kynnist
VOLKSWAGEN 1200.
1971
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Simi 21240.
1971
ÞESSI BÍLL
lcostar aðeins 196.500,—
en þaH er engin ástceiSa til aH fjárfesta peningana í honum
<•
r
€