Morgunblaðið - 11.10.1970, Síða 6
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1970
R/S Hafþór við rannsóknír á Þi stilfirði. — Hvers vegna skal
hann tekinn úr rannsólauun? (Ljósm. Jón Jóns9on).
Góður loðnuafli í flotvörpu á r/s Arna Friðrikssyni í marz
sjónum við ísland. Með umhverf
isrannsóknum í sjó er átt við at-
huganir á hitastigi, seltu og öðr-
um efnaþáttum sjávar, smásæj-
um þörungum og átu, og einnig
hafstraumum og bylgjum. Þær
eru í eðli sínu nátengdar veður-
farslegum athugunum. Meira eða
minna kerfisbundnar umhverfis-
rannsóknir hafa verið gerðar á
íslenzkum hafsvæðum á vegum
Hafrannsóknastofnunarinnar sið
an 1949, að mestu á sumrin, og
hafa þær leitt í Ijós margan mik
ilsverðan fróðieik um ástand
sjávar umhverfis landið, og sann
að bæði fræðilegt og hagnýtt
gildi sitt.
Þessar rannsóknir þurfa nauð-
synlega að fara fram á sem flest-
um árstímum frá ári til árs, svo
betur sé unnt að ráða fram úr
veðurfarssveiflum i sjónum og
túlka þær.
Skipulag rannsóknaleiðangra
á vegum Hafrannsóknastofnun-
arinnar hefur oftast verið þann
ig háttað, að skipin hafa fyrst
og fremst fengizt til fiskifræði-
legra athugana og fiskileitar, og
síðari þátturinn í mjög auknum
mæli i seinni tíð. Umhverfisrann
sóknum hefur svo verið skotið
inn í áætlunina, enda er mark-
mið þeirra samofið fiskirann-
sóknum. Umhverfisrannsóknim-
ar hafa þannig notið gððs af
skilningi yfirvalda á fiskifræði-
legum athugunum og fiskileit,
og er ekki nema gott eitt um það
að segja. Sérstökum leiðöngrum
til umhverfisrannsókna hefur
einnig farið fjölgandi á undan-
förnum árum.
Þó hefur stundum farið svo, að
fyrirhugaðar umhverfisrann-
sóknir hafa orðið að víkja fyrir
skyndilegum ákvörðunum aðila
utan Hafrannsóknastofnunar-
innar. Stafar það af fjárhagsleg
um ástæðum og ónógum skipa-
kosti til rannsóknastarfa. Dæmi
um það var fyrirhugaður leið-
angur í marz i vetur (1970), sem
féll niður vegna nauðsynjar á
loðnuleit. Það getur einnig kom-
ið fyrir i miðjum leiðangri, að
ekki er unnt að ljúka við fyrir-
hugað verkefni vegna skyndi-
legra frétta af fiskigöngum. Að
þessu athuguðu er það skoðun
min, að kerfisbundnar umhverf-
isrannsóknir í sjónum við Is-
landsstrendur þurfi í auknum
mæl'i að verða óháðar yfirstjórn
þeirra aðila, sem leggja megin-
áherzlu á fiskirannsóknir og
fiskileit. Ekki má skilja þessi
orð svo, að þessar rannsóknir
eigi enga samleið né sem ádeilu
á samstarfið, sem er og hefur ver
ið bæði gott og nauðsynlegt.
MÆLIDUFL
Nokkur lausn þeirra mála, er
varða umhverfisrannsóknir,
fæst með notkun mælitækja, er
leggja má við dufl á hafi úti, og
geta þau safnað upplýsingum um
hitastig, seltu og strauma allan
ársins hring. Unnið er að slibum
mælingum á Hafrannsóknastofn-
uninni, og verða þær væntanlega
auknar til muna á næstunni, m.a.
í samvinnu við Veðurstofu Is-
lands og fleiri aðila. En duflum
eru takmörk sett að þvi leyti, að
þau verða aldrei nema tiltölu-
lega fá á hverju svæði og ná
þvi aðeins til takmarkaðs um-
hverfis, og þau ná heldur ekki
til allra þátta umhuerfisrann-
sókna eins og t.d. efnarann-
sókna.
RANNSÓKNASKIP
Lausn á þessu vandamáli
væri skip, sérstaklega útbúið til
umhverfisrannsókna í viðtæk-
ustu merkingu, án sérstakra við-
horfa til fiskirannsókna og fiski
leitar. Það kann að þykja langt
gengið að nefna þetta atriði, þeg
ar auk Árna Friðrikssonar, einn
ig Bjarni Sæmundsson er að kom
ast í gagnið. Bæði þessi skip eru
skuttogarar og því fyrst og
fremst ætluð til fiskifræðilegra
rannsókna, þó þau séu einnig vel
útbúin til nauðsynlegra umhverf
isrannsókna. En togskip eins og
þessi, með fullkomnustu veiði-
og leitartæki, sem völ er á,
munu þó væntanlega að mestu
sinna þeim veigamiklu rannsókn
um, sem þau eru svo vel útbú-
in fyrir. Þannig má gera ráð fyr
ir að með bættum skipakosti
(NB ekki auknum, þvi fyrirhug-
að er að taka Hafþór, sem rek-
inn hefur verið af Hafrannsókna
stofnuninni á undanförnum ár-
um, úr rannsóknunum, þegar
Bjami Sæmundsson kemur) og
bættum útbúnaði, vaxi og þær
kröfur, sem gerðar eru til við-
komandi rannsókna — fiski-
fræði, fiski- og fiskimiðaleit.
En önnur verkefni bíða úr-
lausnar í hafinu umhverfis Is-
land, m.a. á sviði jarðvis-
inda. Það skal tekið fram, að haf
eðlis- og hafefnafræði (sjófræði)
teljast hér til jarðvísindagreina
þótt í sérstökum viðhorfum 1
lendinga séu þessar greina
einnig nátengdar liffræði Sjá’
ar. Umrætt skip skyldi þvi einr
ig anna jarð- og jarðeðlisfræði
iegum athugunum á landgrunns
svæðunum umhverfis Island, og
e.t.v. einnig rækju- og humar-
rannsóknum sem og öðrum athug
unum á fánu og flóru sjávar-
botnsins, enda eru þau verkefni
nátengd annarri könnun hans.
Um verkefnaskort er því ekki
að ræða fyrir þrjú íslenzk haf-
rannsóknaskip.
JARÐVÍSINDI
Það er einkum vaxandi áhugi
manna á veðurfari og
samspili sjávar og lofts
og möguleikar á nýtingu auð-
æfa á og undir sjávarbotni auk
fæðuöflunar sem kalla á
forrannsóknir á þessum
sviðum. Þykir mér rétt að leggja
áherzlu á þessi sjónarmið og
jafnframt að benda á, að ekki
ætti að vera nauðsynlegt að
hef ja nýsmíði skips, heldur koma
ýmis skip okkar til greina í
þessu sambandi, eins og t.d. Haf-
þór. Þyrfti að athuga hag-
kvæmni þess að gera Hafþór út
til þessara starfa áður en það
verður um seinan.
Með þessum skrifum um sér-
stakt skip til jarðvísindalegra
rannsókna er ekki gengið í ber-
högg við skýrslu svonefndrar
Landgrunnsnefndar til Rann-
sóknaráðs ríkisins um „Rann-
sóknir á landgrunni Islands"
(höf. að þessari grein er með-
höf. að skýrslunni), en þar seg-
ir svo á einum stað:
„Athugaðir verði möguleikar
á Því að gera jarðfræðilegar
og jarðeðlisfræðiiegar rann-
sóknir að föstum lið í
starfsemi rannsóknaskipsins
Bjarna Sæmundssonar og at-
huguð hagkvæmni þess að láta
það skip annast að miklu leyti
þær rannsóknir, sem hér er
gert ráð fyrir, með tilUti til
hinna fullkomnu siglinga- og
mælitækja, sem þar verða um
borð.“
Þar er um sérstakt, timabund
ið og tiltölulega umfangsmikið
verkefni að ræða (m.a. nákvaam-
ar dýptarmælingar og jarðeðlis-
fræðiiegar athuganir á land-
grunninu). Bjarni Sæmundsson
er bezta skipið til þessa ákveðna
verkefnis, sem völ er á hér á
landi, en þar sem þetta er tíma-
bundið verkefni, þá er vandi
SJÓ- og jarðrannsókna á hafi
úti óleystur eftir sem áður.
Umrætt rannsóknaskip skipt-
ir hinar ýmsu rannsóknastofnan
ir meira eða minna máli og Há-
skóla Islands einnig (stúdentar
og aðrir námsmenn gætu notið
þar kennslu og reynslu), en
eðlilegast virðist, að skip og út-
búnaður sé rekið af Hafrann-
sóknastofnuninni.
Æskilegt væri að teknar
yrðu upp rannsóknir á sviði jarð
fræða á Hafrannsóknastofnun-
inni fyrr eða síðar, enda má
ekki gleyma þvi, að hlut-
verk þeirrar stofnunar spannar
1970.
ekki aðeins fisk og fiskiveiðar,
heldur eftir aðstæðum aðrar haf
rannsóknir, sem upp koma á
hverjum tíma.
HELGUN LANDGRUNNSINS
Með aukinni tækni eru jarð-
vísindin á . víðáttumiklu land-
grunni umhverfis Island engu
síður þýðingarmikil viðfangsefni
en fiskirannsóknir. Er hér um
að ræða viðhorf tii nýtingar auð
linda á hafsbotninum og í sjón-
um, bæði úr hinni lifandi og
dauðu náttúru og þekk-
ingu á veðurfari því, sem þjóð-
in á við að búa, en viðhorfin
beinast einnig að viðleitni til að
tryggja okkur óskoraðan rétt til
þeirra viðáttumiklu svæða, sem
talað er um á alþjóðavettvangi
sem „landgrunn". Til að forðast
allan misskilning, þá skal lögð
áherzla á þá skoðun mína að
slíkar rannsóknir skal skipu-
leggja undir merkjum þarfa þjóð
lifsins og atvinnulífsins, og forð-
ast ber að draga um of mörk á
milli svonefndra undirstöðu og
hagnýtra rannsókna — gæði
hinna síðarnefndu fara eftir
hinum fyrrnefndu — heldur skulu
þær taka höndum saman um
lausn ákveðinna viðfangsefna.
Það er vist, að viðfangsefnin
eru flest það margbrotin, að þau
verða aðeins leyst með samstöðu
margra aðila. Verkið skal þá
vinna undir merkjum viðfangs-
efnisins og þeirra stofnana, sem
að þeim vinna, en ekki nauðsyn
lega i nafni einstakra manna.
Það er árangur af starfinu (og
hlutfallslega mun betri laun en
nú tíðkast og þá einnig auknar
kröfur til árangurs), sem veita
á hverjum einstökum ánægjuna
og sjálfsvirðinguna. Gott dæmi
um þau viðhorf,' sem reynt er
að skýra hér, virðast mér vera
tunglskot Bandarikjamanna, sem
gerð eru í nafni þjóðar með öll-
um tiltæki’legum ráðum. Banda-
ríkjamenn huga og ekki aðeins
að geimnum, heidur snúa þeir
sér í auknum mæli að hafrann-
sóknum í sama mælikvarða und-
ir merkjum siagorða eins og „an
oceanic quest" og „our nation
and the sea“.
Ég vil ijúka þessum hugleið-
ingum með þvi að leggja áherzlu
á órofa samband okkar, sem ís-
land byggjum, við hafið, með
slagorði í sama anda — „Islend-
ingar og hafið." —
Lokið í leiðangri á
r/s Áma Friðrikssyni
í júní 1970.
Svend-Aage Malmberg,
haffræðingur.
Vindill
hinna
vandlát
/2/étde cet-ctfá&k-
^tem-ö/c/%cri^en cy/> -zroké-
^íj/cco/cote cc^ccket,.
\ WULFF
KGL. HOFIEVEPAND0P
Rosá Danica vindillinn er vaf inn úr úrvals
tóbaksblöðum. Rosa Danica fæst nú í 5 stk.
pökkum. Rosa Danica er framleiddur í
stærstu vindlaverksmiðju Danmerkur og
er í sama gæðaflokki og hinn þekkti
vindill Flora Danica.
REYNIÐ ROSA DANICA í DAG.