Morgunblaðið - 11.10.1970, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1970
41
VISA HANSYN
NORWSKA OUESKAOíKOMMITTtN
Spjald, sem Svíar hafa gefið út — áróður fyrir að haida sjó
hreiuum og olíulausum.
efnum og láta sjóinn skola
sandinn á næsta flóði, en þetta
var þó miklum erfiðleikum
bundið.
• FLOTSLÖNGUR
BEZTA RAÐIÐ
— Hvað um flotslöngur í
þessu sambandi? Má ekki
hindra útbreiðslu olíu með
þeim?
— Þetta var reynt við Sjö-
steinarif til þess að hindra að
olían kæmist ekki í hafnir og
voru þær byrgðar með þessum
flotslöngum. Þegar á reyndi
kom í ljós, að oliupollarnir
fóru hindrunarlítið í gegnum
þessar flotgirðingar, nema þeg
ar algjör ládeyða var og slétt-
ur sjór. Síðar hefur verið
reynd ný gerð flotgirðinga,
flotslöngur með pilsfaldi neðan
úr, og þetta hefur gefið betri
árangur að þvi talið er.
— Mikið af fugli hefur farið
þarna, ef ég man rétt?
— Skaðinn í dýrarikinu var
óskaplegur. Mikið drapst af
fugli og sjávardýr, svo sem
krabbar og skeldýr voru gjör
samlega eydd á svæðinu vegna
notkunar uppleysandi efna og
gróður drapst einnig að veru-
legu leyti. Þá drapst einnig
mikið af fiski við ströndina.
Þúsundir sjálfboðaliða unnu
sleitulaust að björgunarstarfi
þessa daga og m.a. voru þvegn
ir um 8000 fuglar, sem bjargað
var úr brákinni. Þó er vafamál
að þeir fuglar hafi nokkurn
tíma getað bjargað sér í nátt-
úrunni eftir áfallið.
Torrey Canyon er slys, sem
vakti menn til umhugsunar um
þetta mikla vandamál. Þótt
olíuskipin risavöxnu eigi ekki
leið nú á dögum um hafsvæðið
næst íslandi er dæmið frá Axar
firði samt viðvörun til okkar
— og þessi dæmi ættu að verða
hverjum sem er hvatning til
þess að viðhafa fyllstu varúð í
meðferð olíu á hafi og í höfun-
um. Aldrei má sleppa olíu í haf
ið, nema líf liggi við, sagði
Hjálmar R. Bárðarson, siglinga
málastjóri að lokum.
Ef þú lítur í alheimsblöð
... er CAMEL
ávallt í
fremstu röð
niRKlSH & OOMESTIC
I! L E N I)
ÚRVALS TÓBAK
ÞESS VEGNA
ÚRVALS
SÍGARETTUR.
Smíðum alls konar
frysti- og kœlitœki
við yðar hœfi
Frystikistur — Frystiskápa — Kæliskápa —
Gosdrykkjakifíla og margt fleira.
Breytum gömlum kæliskápum í frystiskápa.
Fljót og góð þjónusta. — Reynið viðskiptin. Sækjum, sendum.
Reykjavíkur 74 — Sími 50473.
i
CRAFTMASTERS for MEN
Biúnir cg
svartir