Morgunblaðið - 25.02.1971, Side 4
MORGUNBLAJÐXdt), FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1971
* 4
0 Að fórna lífi sínu
fyrir málefnið
Undir þessari fyrissögn skrif
ar Guðmundnr Marteinsson:
Til þess að láta lífið fyrir
málstað sinn þarf vissu-
lega meira en kokhreysti. í
flestum tilvikum mun það vera
talin hetjudáð. Þó kann það að
fara eftir þvi, hver málstaður-
inn er, og jafnvel að einhverju
leyti eftir því, hve mikill greiði
málstaðnum er gerður með
slíku athæfi.
22-0-22
RAUOARÁRSTIG 311
I *
l* 1444A
mw/m
BILALEIGA
UVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VWsvefnvaju
VW 9 marma - Landrover 7manna
IITT A
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13
Sími 14970
Eftir lokun 81748 eða 14970.
BILALEIGAN
Bliki hf,
Sími 5-18-70
NÝTT VETRARGJALD
NÝIR BlLAR.
Heimasímar 525^3, 50649.
BÍL AR
Noloðir bílur
Úrval notaðra bila.
Hagstæð kjör.
Fiat 25 Special '70
Plymouth Valiant 200 '67
Benz 190, dísil '64
Plymoutb Belvedere '66-'67
Rambler Ambassador '66
Rambfer American '67
Ford Custon '64
Austin Gipsy '66
Dodge Coronet '66-'67.
Simca 1301 '70
Rambler American 440, 2ja
dyra '67
Volvo 144 »67
Dodge Coronet 440, '68
Nokkrir bilar til sölu gegn
skuldabréfum.
ÖVOKULLH.F.
Chrysie;- HringbraJt 121
umboðíð stmi 106 uO
Nú hefur merkur bóndi norð
anlands lýst yfir þvi i blaða-
viðtali (í dagblaðinu Vísi 17.
febrúar), að sveitungar hans
væru reiðubúnir að fórna lífi
sínu fyrir málstað, sem hann
og sveitungar hans hafa und-
anfarið lagt mikla áherzlu á að
verja, og er fólginn i megnri
andstöðu við utansveitarmenn,
sem vilja vinna ljósmeti, eldi-
við og vélaafl fyrir Norðlend-
inga úr Laxá i Þingeyjarsýslu,
en að sögn spilla um leið
ósnortinni (eða lítt snort-
inni) náttúru Laxárdals og
jafnvel Mývatnssveitar.
„Fögur er hliðin,“ sagði
Gunnar Hámundarson og lét
ekki sitja við orðin tóm,
en lagði lífið í sölurnar.
0 Sprengingamenn og
Þorgeir Ljósvetn-
ingagoði
Nú hafa þeir, sem sprengdu
stíflu, að vísu fengið á sig
kæru, en varla verða þeir
í útlegð, eins og Gunnar
forðum, fyrir spellvirki sín. Og
naumast verður því heldur
trúað, að þeir eða sveitungar
þeirra fari að ráðast í ein-
hverjar þær atgerðir til stuðn-
íngs málstað sínum, er kunni
að verða þeim að fjörtjóni.
En menn hafa löngum látið líf
ið fyrir margs konar málstað og
með ýmsum hætti. Fræg er
japanska aðferðin, svo sem
skýrt var frá i fréttum ekki
alls fyrir löngu. Og várla verð
ur það af Adólf Hitler skafið,
að hann hafi látið lífið fyrir
málstað sinn, svo göfugur sem
hann var. Þá eru þeir ófáir á
liðnum öldum, sem hafa látið
lifið fyrir trú sina, og enn ger-
ast slíkar hörmúngar (á Norð-
ur-írlandi og trúlega víðar).
Legið mun hafa nærri, eftir
þvi sem sagan hermir, að blóðs-
Úthellingar og mannvig yrðu
hér á landi út af trúarbragða-
deilum fyrir rúmum 970 árúm,
en þá var það hinn spaki
sýslungi bóndans fyrir norðan,
Þorgeir Ljósvetningagoði, sem
afstýrði þeirri ógæfu.
Vandfundinn mun vera jafn-
ingi hans nú á dögum, jafnvel
í Þingeyjarsýslum.
Guðmundur Marteinsson."
9 Enn um tóbaksreyk-
ingar í sjónvarpi
— leikurinn æsist . . .
Halldór P. Dungal skrifar:
„Velvakandi!
„Lastaranum líkar ei neitt,
lætur hann ganga róginn
finni hann laufblað fölnað eitt,
þá fordæmir hann skóginn."
Þessi spaklega kveðna
vísa Steingrims Thorsteinsson-
ar datt mér í hug i morgun
(sunnud. 19. febr.), þegar ég'
las þann hluta VELVAK—
ANDA, þar sem Björn Leví
Jónsson, veðurf ræðingur og
læknir, gerir skemmtiþátt
Kristins Hallssonar s.l. sunnu-
dag að umtalsefni.
I þessum pistli sínum færir
B.L.J. núverandi starfsbróður
sínum, Skúla Thoroddsen
lækni, og Nirði P. Njarðvík
það t il foráttu, að sá
fyrrnefndi hafi reykt digr-
an vindil, en sá síðarnefndi
hafi tottað pípu sína.
Björn L. Jónsson er mér að
góðu kunnur, bæði úr mennta-
skóla og frá samveru okkar í
Parísarborg. Það væri því
ódrengilegt af mér, ef ég færi
að líkja honum við „last-
ann“, eins og kemur fram
visu Steingrims, því að slíkt á
B.L.J. ekki skilið. Og einmitt
vegna fyrri kynna minna af
B.L.J. brá mér þvi meir í brún,
er ég hafði lesið pistil B.L.J. til
enda, ekki vegna þess að ég sé
Einbýlishús
Vorum að fá í sölu eitt af glæsilegustu einbýlishúsum borg-
arinnar á fögrum stað.
Húsið er á 2 hæðum, gótfflötur ails á 5. hundrað fermetrar.
Verð um 8 milljónir.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
FASTEIGNAÞJÓNUSTAN,
Austurstrætí 17,
(Silli & Valdi) 3. hæð.
Skemmtileg og vönduð innrétting — hönnuð
sérstaklega til að rúma sem mest. Algjörlega
sjálfvirk afþýðing.
PHILIPSI
KANN TÖKIN ÁTÆKNINNI
hlynntur reykingum, heldur
vegna þess að ég tel
það óþarfa og mjög ósmekklegt
af honum að hnýta opinberlega
1 starfsbróður sinn Skúla
Thoroddsen og að þyrla upp
þvílíku moldviðri út af reyk-
lausu piputotti N.P.N. Þama
finnst mér B.L.J. gera úlfalda
úr mýflugunni, hugsa meira
um hismið en kjamann, því að
mér dettur ekki í hug, að þess-
ir tveir heiðursmenn hafi með
þessu framferði sinu spillt þætt
inum, hvað þá heldur valdið al
mennu hneyksli. Það er fyrst
og fremst aðferð B.L.J., sem ég
er andvígur.
^ Um allt þarf að rífast
á prenti á íslandi
Okkur íslendingum er lík-
lega I blóð borið að þurfa að
rífast um alla skapaða hluti á
PRENTI. Liklegt tel ég, að
þeir B.L.J. og Sk.Th. séu a.m.k.
málkunnugir. Sú er spá mín, að
hefði B.L.J. hringt til Sk.Th.
hefði sú upphringing orð-
ið áhrifabetri en VEL-
VAKANDA-pistill hans, því að
reynsla mín er sú, að oft megi
losna við langar og hvimleiðar
ritdeilur með persónulegum við
ræðum eða jafnvel með einu
símtali. Mér hefði ekki sárnað
eins við B.L.J. ef hann hefði
eftir ádrepuna á þá Sk.Th. og
N.P.N. látið þó ekki væri nema
eitt gott orð falla um þáttinn
I heild, en hann var, að mínu
viti, sá langbezti, sem Kristinn
Hallsson hefur stjórnað, og má
ágæti hans allt færast þátttak-
endum til tekna. Því miður láð-
ist fornvini mínum B.L.J. að
gera þennan sjálfsagða hlut.
En þvi miður gætir þessa
skeikulleika víðar en hjá B.L.J.
Mér finnst það satt að segja
vera mein í þjóðarlíkama vor-
um, hvað lastið flýtur ofan á,
en lofið gleymist á botninum.
Af tvennu illu, vil ég held-
ur eyrblína (nýyrði mitt:
að hlusta og horfa samtímis) á
spumingaþátt í sjónvarp-
inu þó allir þátttakendur
reyktu eins og strompar, ef
þeir stæðu sig jafnvel og fjór-
menningarnir gerðu s.l. sunnu-
dag, en að hlusta á hálfgerð
dauðyfli sem reyktu ekki.
Hitt er svo annað mál, að ég
tel það sjálfsagða skyldu Sjón
varpsins að láta alla, sem hlut
eiga að máli, vita, bæði munn-
lega og með prentuðum spjöld-
um, að reykingar séu bannað-
ar í upptökusal. Ég hef þá
óbifanlegu trú, að slíku reyk-
ingabanni myndu allir hlýða,
þar með taldir fyrrgreind-
ir sakborningar. Hefðu slík
sjónvarps-reykingabönn tek-
ið gildi, áður en margnefndur
þáttur var tekinn upp, hefði
orðaskak okkar B.L.J. aldrei
orðið til.
0 Margt væri betur ósagt
Daginn sem Hannes Hafstein
var jarðaður sagði Lárus H.
Bjarnason, lagaprófessor, í lok
kennslustundar við stúdent-
ana: „Nú falla tímar niður eft-
ir hádegið, svo að þið getið
fylgt Hannesi Hafstein til graf
ar.“ Augu hans tárast, þegar
hann bætir við: „Nú mundi
maður óska þess, að márgt
væri ósagt, sem áður var
talað,“ (Frásögn Thors Thors,
sem var einn af stúdentunum.
Úr ævisögu Hannesar Hafsteins
eftir Kristján Albertsson).
B.L.J. væri maður að meiri, ef
hann hugaði vel að þessum örð
um Lárusar H. Bjarnasonar.
0 Burtu með allan reyk
nenia hverareyk!
Og hugleiddu svo, Björn
minn, að þú hefðir getað spar-
að þér þinn pistil og mér mirin
(eða eiphverjum öðrum sinn),
en úr því að þú brást þér út
á ritvöllinn, þá varð ég, því
miður, að svara þér á sama
vettvangi. Við erum svo lán-
samir að búa i þessu velferðar-
ríki, Islandi, og við erum báðir
sjáheyrendur (gaman-nýyrði
mitt: þeir sem horfa og hlusta
á sjónvarp) og þó ég sé ekki
læknislærður þykist ég þess
fullviss, að hvorki vindilreyk-
ur Skúla (það var nefnilega
einn smávindill, sem hann
fékk sér nokkra teyga úr, en
ekki stór eða digur vindill, né
piputott Njarðar hafi haft
nokkur skaðleg áhrif á öndun
arfæri okkar beggja. Skyldum
við þó verða þess varir seinna
á ævinni, að reykur á sjón-
varpsskermi hafi skaðleg áhrif
á sjónina, þá skulum við báðir
vera þess minnugir, að þótt
Skúli sé afbragðsliðsmaður i
spurningaþáttum, þá er sér-
grein hans þó fyrst og fremst
augnlækningar. Velvakanda
færi ég fyrirfram þakkir fyrir
birtingu þessara orða, og þér,
Björn, óska ég lukku og lang-
lífis og að Hvergerðingar megi
njóta heilsugæzlu þinnar sem
allra lengst, og helzt að þér
takist að losa þá við allan
reyk nema hverareykinn.
Með beztu kveðjum,
Halldór P. Dungal".
ÁKLÆÐI OG MOTTUR
í ALLA BÍLA
Hin viðurkenndu gæði og langa reynsla
okkar á framleiðslu og sölu áklæða úr
heimsþekktri gæóavöru, vekur allstaðar
umtal og athygli.
Þeim fjölgar stöðugt sem fá sér áklæði og
mottur í bílinn.
Fljót afgreiðsla. — Verð við allra hæfi.
RITIKHBÚÐIII
FRAKKASTIG 7 SIMI 22677
>