Morgunblaðið - 25.02.1971, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1971
7
William Shakespeare, 15t>4—1616. Kopar-
stunga eftir Martin Droeshont. Titiiblað folio
útg-áfunnar fyrstu 1623.
Sviðsmynd úr .Jónsmessunæturdraumi.
Koparstunga úr fyrstn myndskreyttu útgáf-
unni af verkum Shakespeare, sem ritstýrð
var af Nicholas Rowe, 1709.
Jónsmessunæturdraumur á Góu
Menntaskólanemendur
sýna um þessar mundir leik-
rit Williams Shakespeare um
drauminn á Jónsmessunótt í
Háskólabíói, við mikinn fögn-
uð áhorfenda. I>að er eitthvað
friskt við sýninguna, þótt sitt
livað megi alltaf finna að
framsögn einstakra leikenda,
og ekki er að undra, þegar
kallast verður á um þveran
stóran sal eins og í þessu
bíói háttar.
Samt síast snilli Shakespe-
are inn í mannskapinn, á
sviði og handan þess, og ekki
skemmir sú aldagamla Skrap
arotsprédikun úr Skálholts-
skóla, sem flutt er i upphafi
af mikilli innlifun, svo mik-
illi, að allur salurinn stendur
upp og hlýðir standandi á síð
ustu bænina.
Á morgun, föstudag, er síð
asta sýning þessa ágæta leik-
rits, sem Menntaskólanem-
endur hafa æft undanfarinn
háifan annan mánuð, og marg
ir eru þeir Reykvikingarnir,
sem hafa jafnan hlakkað til
skólaleikjanna, og vafalaust
fyiia þeir húsið annað kvöld.
Annað hvort væri! — Fr.S.
*
A
skökkum
f jölum
30. janúar sl. voru gefin sam-
an í hjónaband í Akraneskirkju
af séra Jóni M. Guðjónssyni
ungfrú Ásdís Elin Júlíusdóttir
bankamær og Aðalsteinn Ólafur
Aðalsteinsson skrifvélavirki.
Heimili þeirra er að Dverga-
bakka 4, Rvík.
Ljósmyndast. Ólafs Árnasonar,
Akranesi.
VÍSUKORN
Meðan þeir menn hafa völdin,
sem meta harðfisk og smér,
Ijúf verða kútmagakvöldin
með kveðju frá hafinu og mér.
Gunnlaiigur Gunnlaugsson.
Við sjónvarpsskerminn
1 langstökki og listum sprækur.
lagði flesta í keppninni,
enda les hann allar bækur,
en eina bezt á nóttunni.
J.Jn.
Auður Auðuns sextug.
Veit ég þú ert Vestfirðingur,
viröulega frú.
Andi þinn svo orkuslyngur
Islands sómi nú.
Lilja Björnsdóttir.
Þann 31.12 voru gefin saman
í hjónaband hjá Borgarfógeta
ungfrú Pálína Erna Ásgeirsdótt
ir og Kristinn Hreinn Þorbergs-
son. Heimili þeirra er að Rauða-
læk 29, Rvík.
Studio Guðmundar,
Garðastræti 2.
ÁHEIT OG GJAFIR
Áheit og gjafir á Strandar-
kirkju afh. Mbl.
L.G. 1.000, H.S. 200, P.H. 500,
H.P.H.G. 200, G.J.M. 500, S.S.
100, S.M. 500, Þ.J. 100 N.N. 300,
F. 1.000, S.V. 200, H.S. 200, T.R.
600, G.H. 1.000, Skiptinemi 20,
Sæmundur 100, Gerður 100, J.G.
200, P.J. 500, M.S.J. 150, Guð-
rún 300, Kiddý 1.000, V. og L.
300, Guðrún Kolbeinsd. 300,
ónefndur 100, L.K- 200, Þ.P. 300,
Guðný Petersen 200.
Ástralíusöfnunin afh. Mbl.
G.G. 200, E.Þ. 200, Margrét
1.000, Jón Vigfússon 1.000, S.G.
200, Stefán Th. 1.000, Ólafur
Thorarensen 200, I.I. 100, S.S.
Guðbjörg Bjarman 1.000, Hús-
móðir á Hellissandi 1.000, Rot-
aryklúbbur R, 6.300, Mummi
1.000, E.E. 400, Kristbjörg, 500,
G.J. 500, N.N. 500, Elín Sigurð-
ard. 100, E.S. 500, Brynjar og
Hörður 300, Starfsmenn Gufu-
borsins 2.400, S.G. 200, Sigur-
björg 400, Versl. O. Ellingsen
hf 1.000, Othar Ellingsen 500,
Guðni. góði afh. Mbl.
J.Þ. 1.000, Sigr. Guðmundsd.
200, Sigríður 100.
Vísukorn
PENNAVINIR
Joseph Raguin, 14, rue la Pata
lisse, (37) Jove les Tours, France
óskar eftir bréfaskriftum við is
lenzka stúlku 20—22 ára að
aldri, annaðhvort á frönsku eða
ensku. Jóseph er 22 og hálfs árs
gamall.
Osvaldo J. Lopez, Fischetti
528, Caseros, F.C.N.G.S.M., Arg
entínu, óskar eftir pennavinum
á Islandi, en hann safnar fri-
merkjum og sérstaklega mynt.
Anneniarie Tiefenthaler, Lind-
achersengasse 50, 8223 Trost-
berg, Alz, Þýzkalandi óskar eft
ir pennavinum á íslandi. Anne-
marie er fædd 23.3. 1933 og
safnar póstkortum.
SÁ NÆST BEZTI
Presturinn (á sunnudag). „Ætiar Jens til kirkju í dag?“
Jens: „Ó-nei! Ég þarf að fara í dag með grísina til hans Óla.“
Prestur: „Það gaztu gert í gær eða getur það á morgun, á
sunnudögum má enginn erfiða."
Jens: „Presturinn erfiðar þó á sunnudagana fyrir árstekjunum
sinum."
Prestur: „Það er ekki líkamlegt erfiði, að leiða frávillta sauði
inn í hópinn."
Jens: „Ég held, að það sé ekki minna strit, að leiða þá sauði,
en að draga grísina til hans Óla.“
Frystihús - Framkvæmdustjóri
Framkvæmdastjóra vantar að frystihúsi H.f. Hólaness
á Skagaströnd.
Upplýsingar í síma 95-4671 eða 95-4690.
Cluggatjaldaverzlun
óskar eftir að ráða konu til afgreiðsiustarfa hálfan eða allan
daginn. Þarf að vera vön gluggatjaldaafgreiðslu.
Upplýsingar er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf (hvar
unnið) óskast sendar Morgunblaðinu fyrir 4. marz merktar:
„25—40 ára 6752”.
Niðursoðnir ávextir
ANANAS: 1/1 dós Kr. 56.00
FERSKJUR: 1/1 — — 62.00
JARÐARBER: 1/1 — — 69.00
PERUR: 1/1 — — 61.00
ENNFREMUR: RÚSlNUR 1 kg Kr. 66.00
HVEITI 25 kg — 398.00
KORNFLAKES 500 gr. — 43.00
VEBÐ ÚT A VIÐSKIPTASPJÖLD.
OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD.
SKEIFUNNI 15 — SiMI: 30975.
Hljómplötusaínoror
Notið einstakt tækifæri þessa viku og eignist
öndvegisverk íslenzkra listamanna á hljóm-
plötum í tali og tónum.
Útsalan á íslenzkum hljómplötum er í full-
um gangi að Suðurlandsbraut 8.
Fáið vandaðan lista yfir allar íslenzkar út-
gáfur Fálkans.
Fólkinn hi.
Sími: 8-46-70.
Samtök frjálslyndra í Reykjavík
Skoðanakönnun
um framboð til Alþingiskosninga fyrir utanfélagsmenn
verður haldin n.k. laugardag og sunnudag 27. og 28.
febrúar kl. 2—6 hvorn daginn.
Þátttaka utanfélagsmanna er aðeins bundin því skilyrði,
að þátttakendur samþykki að láta setja sig á skrá félags-
ins yfir stuðningsmenn til Alþingiskosninganna í vor, séu
þeir ekki þegar skráðir þar.
Samtök frjálslyndra hvetja alla stuðningmenn sína til að
taka þátt í skoðanakönnuninni.
Uppstillinganefnd SF í Reykjavík.