Morgunblaðið - 21.03.1971, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 21.03.1971, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1971 19 Á „gruimskólinn” að vera and- legar þrælabúðir fyrir börn — Er ætlun menntamálaráðherra að uppræta bændastéttina? — Ekki veldur sá er varar við hættunni Einn vinur minn hefur sent mér skólafrumvörpin, sem nú liggja fyrir Alþingi. Þá ég sé nú hættur kennslu vegna aldurs og vanheilsu eftir 33 ára kennslu- störf, þá er mér ekki sama hvern ig farið er með börn og ungl- inga þjóðar vorrar af hálfu hins opinbera, þvi ég held að engin Evrópuþjóð eigi betur gerð börn og unglinga frá guðs hendi en þjóð vor, ef rangt skóla kerfi og námsþrælkun drepur ekki það bezta í æskulýðnum. Ég hafði opin augun og sá, hvernig skólakeríið frá 1946 verkaði á börnin, þvi ég stund- aði ekki kennsluna vegna þeirra smánarlegu kennaralauna held- ur vegna barnanna, sem ég átti að kenna. Þess vegna skrifa ég þetta. FRÆÐSIAJLÖGIN FRÁ 1946 Þessi svonefndu lög voru mesti óskapnaður og flausturs- verk fullt af ósveigjanleika, þar sem múgmennskan var ræktuð og allir áttu að læra það sama, hvort sem þeir höfðu hæfileika til þess eða ekki. Bezt gefnu börnin fengu ekki að njóta sín við námið og var haldið niðri við námið, svo að þau færu ekki fram úr tossunum. Ekki mátti viðurkenna að einn væri betur gefinn en annar því „allir áttu að vera jafnir“, hvort sem þeir voru „geni“ eða hálfvitar. Flest- ir tossarnir gáfust upp og fundu BARNAVERNDARNEFND Kópavogs fékk til meðferðar mál 203 barna og unglinga á árinu 1970, að því er segir í nýútkom- inni skýrsiu nefndarinnar. í árs- lok liafði nefndin stöðugt eftir- Iit með 17 heimilum vegna að- búna.ðar 43 barna og ungmenna. Þrjú börn voru í vistun nefnd- arinnar allt árið og nefndin út- vegaði 30 börnum dvalarstað um langan eðí» skamman tíma. Á árinu 1970 hafði barnavernd arnefnd Kópavogs afskipti af 45 heimilum vegna aðbúnaðar 117 barna og ungmenna. Tilefni þessara afskipta voru: Drykkjuskapur 7 Lyfjamisnotkun 1 Geðveila og aðrir geðrænir erfiðleikar 6 Ósamkomulag 8 Hirðuleysi 3 Hegðunarvandkvæði barna 7 Annað, s.s. líkamleg veiikindi vanmátt sinn til að uppfylla námskröfurnar. Gáfuðu börnin urðu leið á athafnaleysinu og lögðu einnig árar i bát. Þarna var verið að berjast við lögmál sjálfs lífsins. Eina vörn barns- ins var að gefast upp við námið. Ég held t.d. að það sé fátítt að barn líti i bók eftir páskafrí á vorin, þá eru þau orðin leið á allt of löngum árlegum skóla- tíma. Það eru takmörk fyrir hve mikilli þekkingu er hægt að troða ínn i barnsheilann. Það er ekki hægt að troða þekkingu inn í óþroskaðan heila, „eins og heyi í poka," svo að ég noti orð vel þekkts kennara, sem hélt þessu fram, þegar ein kynslóð var vaxin upp undir þessum laga óskapnaði, komu ávextirnir i Ijós. Margir tossar, sem töggur var í urðu ofbeldislýður og fjandmenn þjóðfélagsins, fullir af skemmdarfýsn og andlega þjakaðir af vanmáttarkennd fyr ir of harðar námskröfur í skól- anum. Margir gáfaðir nemendur fóru sömu leiðina, af því náms- hvöt þeirra og starfshvöt var drepin í barnaskóla með tillits- lausu og ósveigjanlegu skóla- kerfi. Báðir þessir hópar hafa svo síðar reynt að drekkja hörmum sínum í áfengi eða fíknilyfjum og orðið hippar með lúsuga loð- hausa. Líklega verður þetta fólk æði dýrt fyrir þjóðfélagið i fram tíðinni. Menntamálaráðuneytið húsnæðisvandamál, örbirgð o.s.frv. 13 Árið 1969 hafði nefndin af- skipti af 28 heimilum. Nefndin hafði afskipti af 75 börnum og ungmennum á árinu vegna samtals 114 brota. — Sjá meðfylgjandi töflu. — Árið áður hafði nefndin afskipti af 100 börnum og ungmennum vegna samtals 160 óknytta eða afbrota. Til nefndarinnar komu mál sex barna vegna fjarvista úr skólum og þrjár ættleiðingar- beiðnir bárust, sem nefndin mælti með. í nefndinni sitja nú: Sigríður Gísladóttir, formaður, Stefán Tryggvason, varaformaður, Gerður Óskarsdóttir, ritari og meðstjórnendur eru: Jóhanna Valdimarsdóttir og Björn Helga son. Ólafur Guðmundsson, barna verndarfulltrúi, annaðist fram- kvæmdastjórn daglegra starfa. mætti muna, þegar svona lýður gerði innrás í skrifstofu þess á s.l. ári. Flest þetta fólk hefði getað orðið góðir þegnar, hefði það fengið að njóta sin, hver á sínu sviði fyrir röngu skóla- kerfi og fræðslulöggjöf. Langsoltinni kennarastétt var lofað launahækkun, ef hún legði blessun sína yfir farganið. En þær launabætur úrðu aldrei ann að en sannkallaðar hunds- bætur. Hafa þingmenn skýrslur um, hve mörg góð mannsefni hafa komið með eyðilagða fram- tíð út barna- og unglinyaskól- um hér síðustu 15 árin? Nei, þeim skýrslum er ekki safnað. ÚR ÖSKUNNI í ELDINN. En með grunnskóla- og skóla- kerfisfrv. á að halda enn lengra á kúgunar- og forheimskunar brautinni. Hafi t.d. einhver nem- andi ekki þolað námsþrælkun- ina og bilað á geði eða ef skól- anum og kerfinu, hefur tekizt að drepa aðlögunarhæfileika hans, getur menntamálaráðu- neytið (ráðuneytisstjórnin) svipt nemandann almennum mannréttindum allt til 18 ára aldurs (sjá 9. og 10. gr). Hvaða foreldri vill fela óviðkomandi mönnum slikt vald yfir börnum sínum? Nú eru unglingar sjálf- ráða 16 ára og þvi ekki leyfilegt að skylda þá til náms eftir þann tíma. En þetta sýnir bara þann ofbeldis- og kúgunaranda, sem einkennir allt þetta frv. gagn- vart nemendum skólans. Slikt getur íslenzk skapgerð ekki lát- ið bjóða sér til lengdar, því of- beldi fæðir af sér nýtt ofbeldi. Frakkar og Vestur-Þjóðverjar hafa lent út í svona námsþrælk- unarfen. Afleiðing þess varð eiturlyfjanautn, hippiamennska unglinga og stúdentaóeirðir. Þegar unglingar svo loks losna úr þessum námsþrælkunar- búðum, sem nefnast skólar, er buið að slíta þá úr tengslum við atvinnulifið og allt hið raun- hæfa mannlíf, svo að margir þeirra verða óhæfir til að vinna sér brauð á heiðarlegan hátt. Námsleiðinn hefur drepið náms- hvöt þeirra og heilbrigða starfs- hvöt, en hún brýzt þá út í óeirðum og ofbeldisverkum. í Frakklandi kvað svo ramt að þessu, að nærri lá, að sjálfur De Gaulle yrði að flýja land um tíma. Nei. Þjóðfélag, sem æsir hina uppvaxandi kynslóð upp á móti sér til haturs og hermdar- verka, það getur ekki lengi þrif- izt. Það er bráðfeigt. í útvarpi heyrði ég að einn reyndur og goður þingmaður hefði spurt Gylfa, hvernig færi, ef ungling- ar neituðu að læra. Gylfa hafði orðið svarafátt. Líklega hefur hann ekki látið alþjóð vita, hvaða þrælatökum ætti að beita við slika nemendur. En hvernig færi, ef unglingarnir líktust nú þeim fullorðnu og gerðu verk- fall við skólann? Verkfallsrétt- ur telst hér heldur „málfræði- stagl!“ (hann hefur þá víst gleymt þjóðrækninni austur 1 Moskvu), því hann vildi láta kenna einhverja kommaþvælu, sem hann nefndi „bókmenntir“. Þar var hægt að koma að áróðri. Hinn reyndi og greindi þing- maður rak hann þar á stampinn. Það er enginn vandi að kenna málfræði. Ég álít rétt, sem Arnór Hannibalsson vitnar i grein dr. Braga Jósepssonar í Morgunbl. 6.11., ‘68, að hingað til hafa fræðslumál okkar verið „stefnulaust fálm“ út i loftið og einkennzt af eftirhermum eftir fræðslulöggjöf þjóða með allt aðra staðhætti og viðhorf en þau, sem hér eru til staðar. Nefndir hafa verið skipaðar. En vegna andlegrar fátæktar, vanþekkingar á islenzkri þjóð- arsál, og annars aumingjadóms, hafa þessar nefndir ekki getað annað en gleypt ómeltar ýmsar hugmyndir meira og minna óskyldra þjóða. Hugmyndir, sem hafa reynzt þeim þjóðum misjafnlega. Nefndunum hefur þótt hægra að herma eftir, en að hugsa sjálfar. Hitt er ekki tekið með í reikninginn, þó að það kosti fjölda nemenda, og síðar þjóðfélagið, framtíðarvel- ferð. þess. Nei. Við þurfum fræðslulöggjöf, sem er miðuð við islenzka staðhætti og ísienzkan lnigsiinarliátt, en ekki eitthvert fálm og eftiröpun eftir þjóðum úti i heimi, sem búa við allt aðr- ar aðstæður og hugsunarhátt en við hér. Á AÐ „FÆKKA" BÆNDUNUM? Eina tálbeitu hafa höfundar frumvarpsins um skólakerfi sett i það frv. þar sem gert er ráð fyrir, að rikið og sveitarfélög kosti að öllu leyti nám þeirra barna, sem foreldrar hafa ekki efni á að kosta sjálf. Þetta á vist að blekkja ýmsa góða menn til fylgis við þennan frumvarps- óskapnað. Það er lika ekki sagt um hvernig efndir verða á þessu í framkvæmd. En hvað um bændurna og börn þeirra? Þar er ætlazt til að börn séu rifin frá heimilum sínum 1. sept. ár hvert um há- sláttinn, þótt það sé þvert á móti vilja barnanna, og þau flutt nauðungarflutningi, jafn- vel í aðrar sýslur til náms. Það þarf engan sáifræðing til að skilja, hvaða áhrif slík meðferð getur haft á sálarlíf barnsins og mestar líkur til að það bíði þess aldrei bætur. Þá er hinn fúli ítroðningur skólans orðinn ærið dýrkeyptur. Ég álít að þeir, sem fremja slik afbrot gegn varnarlausum börnum, ættu að sæta þungri ábyrgð fyrir slikt athæfi. Það hlyti að teljast ill meðferð á börnum. ef til dóm- stóla kæmi. Samkvæmt alþjóða- viðurkenningu á mannhelgi er líka vafamál, hvort löggjafi hef- ur vald til að heimila slika með- ferð á börnum í löggjöf. Börn- in eru mannverur og eiga að njóta mannlielgi: En þeir menn, sem sömdu þessi frv. virð- ast ekki hafa gert sér ljóst, að mannanna börn eru líka vits- munaveriir, sem ekki er hægt að fara með eins og dauða hluti. Þau hafa sínar tilfinningar og hugsanir og ekkert barn verður jafngott eftir slíka meðferð. í stjórnarskrá vorri er ákvæði um að heimilið sé frið- heilagt. Það hlýtur að vera röskun á friðhelgi heimilisins að vaða þar inn og ræna börnum þaðan með ofbeldi. Slíkt er því nær öruggt ráð til að gera barn ið að glæpamanni, eiturlyfjaneyt anda eða varanlegum aumingja. í réttarríkjunum varða barna- rán þyngstu refsingu, sem lög þeirra leyfa. Svo er önnur hlið á þessu máli. Sláttartíminn er hábjargræðistími bóndans og undir heyöflun er afkoma hans komin. Án heyja getur bóndinn ekki framleitt mat handa skrif- stofulýð og nefndalýð landsins. Nú er það svo, a.m.k. norðan- lands og á Vestfjörðum, að slátt- ur getur oft ekki byrjað fyrr en í byrjun ágúst eða um miðjan ágúst. Víða í sveitum eru börn 14-16 ára gömul eina hjálp for- eldra sinna við heyskapinn. Én á nýbyrjuðum slætti á nú eftir þessu frv. að svipta börnunum burtu, oft frá heilsutæpum for- eldrum, eftir kröfu tillitslausra og duttlungafullra harðstjóra i skólastjómastöðu. Ot yfir tekur þó, að með þessu er börnunum fyrirmunað að kynnast foreldr- um sinum og viðhorfum þeirra, nema rétt eins og kaupstaða- börn, sem fá sumardvöl í sveit. Foreldrum er einnig fyrirmun- að að fylgjast með þroska og þörfum barna sinna. Halda frum varpshöfundar að sveitafor- eldrar séu tiifinningalaus gagn- vart börnum sínum og sveita- börn gagnvart foreldrum sínum? Þetta vCTkar á þau líkt og Berlínaimúr, sem þarna á að reisa milli foreldra og barna. Börn í sveitum fá þannig ekki að kynnast sveitalífi frá 7 ára aldri. Þetta er svo kallað „jafn- rétti“ þeirra við kaupstaðaböm. Núverandi menntamálaráðherra þykir ekki vinveittur bændum. Þarna virðist hann hafa fundið öruggt ráð til að „fækka bænd unum“. Um það skal minna hirt, þótt meginhluti landsins leggist við það í eyði og geti þar með orðið auðveld bráð fyrir ofbeld- isþjóð, sem þá mundi nota land- ið sem herstöð, en flytja Is- lendinga burt. Ég er sammála því, sem Arnór Hannibalsson segir í Vísi 10. febr. s.l. að stjórn núverandi menntamála ráðherra á fræðslumálum Islands sé orðin 14 árum of löng. Grein Arnórs að öðru leyti er ég einnig sammála. Það vil ég og láta háttvirtan menntamálaráðherra vita, að ef skólafruinvörp lians eiga að vera kosningatromp í vor, þá nmn hann fá minna kjörfylgi út á þau, en hann vonast eftir. Þau miinu ekki auka kjörfyigi hans, heldnr öfugt. Svo á að keyra þessi frumvörp gegnum þingið með flaustri og fagur- gala á siðustu vikum kjörtima- bilsins. Undanfarin ár hefur septembermánuður verið einn bezti og sólríkasti sumarmánuð- urinn sbr. s.l. sumar. Hér á landi er langt skammdegi og sólarlítið. Landið liggur svo norðarlega. Hvers vegna mega íslenzk börn ekki njóta sólar- innar meðan þess er kost- ur? Það styrkir bæði andlega og líkamlega heilsu þeirra, og það er þeim hollara en nauð- ungartroðningur í svonefndum skóla. Hví á að loka varnarlaus og saklaus börn inni í skóla- fangeisi á meðan sólar nýtur að ráði i voru norðlæga landi? Ef hinir máttugu höfundar þess- ara frumvarpa gætu flutt hólm- ann okkar ea 1500 km sunnar í Atlantshafið, þá væri nóg sól allt árið i landinu. En það verð- ur nú líklega erfiður flutningur fyrir þá voidugu herra. Þetta er bara eitt dæmi um tillits- leysi þeirra til íslenzkra stað- hátta. Nei, allt skal vera eins og í París, hver sem lega lands- ins er. Það er hægt að segja íbúum Borneó, sem ganga nær naktir, að búa fáklæddir á Grrenlands.jökli. en hve lengi héldu þeir þar lífi? Ég álit þessi frumvörp hrein- asta tilræði við sveitabúskapinn og ég er ekki einn um það álit, hvað sem pólitískir loftkastala- smiðir segja. „GRTJNNSKÓLINN“ verður ANDLEGAR ÞRÆI.KUNAR— BtJÐIR fyrir börn og UNGLINGA. í rússneskum þrælabúðum skulu þeir, sem dæmdir eru til ströngustu þrælkunar, vinna 42 stundir á viku. í námsþrælkun- arfrumvarpi um „grunnskól- ann“ skuiu 8. og 9. bekk- ir þræla í skólanum (skv. frv.) 40 kennslustundir á viku, hver stund 40 mínútur og heimavinna að auki. Þá er vikulegur vinnu- tími þeirra orðinn lengri en í rússnesku þrælabúðunum. Þetta álít ég (og fleiri) hættulegt álag á taugakerfi barnanna, því námsþrælkun fer verr með taugakerfið og allan líkamann en nokkur hófleg líkamleg vinna. Af þessu geta svo stafað geðtruflanir barna. En frum- varpshöfundar eru nú ekki í vandræðum með hvernig fara eigi með börn, sem hafa geðbil- azt af námsþrælkuninni. Jú, lokaúrræðið eftir skammir og aðfinnslur, er það að fela barnið algeriega í umsjá bama- verndarnefndar, sem er orðin Framh. á bls. 20 Aldur . 3 « * S 3 1 Taia 1 Is 5S lnnbrot Svik Falsanir Spell Skcmmdir Flakk Útivist —jO Hrekkir Meiðsl ölvun 'II '>0 Tala brota 7 ára P S 4 7 7 1 ára P s 9 ára p s 7- 3 2 2 7 10 ára p s 11 ára p s 3 1 2 1 4 . 12 ára p s 5 5 5 13 ára p s 10 I 11 1 8 1 2 22 1 14 ára p s 24 I 26 1 1 7 2 36 I 15 ára p s 16 S 10 1 2 1 5 27 16 ára p s 4 2 I 1 4 Piltar samtals 73 53 22 21 1 6 1 8 112 Stúlkur samtals 2 2 2 AILs Misferli M bari á 75 ll Og 1 1 55 ung lafði 24 22 linga afski X sen pti a1 i 21 Ka ' á s b« 1 rnav< iðast ar 'inda a ári. •n 6 rnefi a 1 id 8 Kópi 114 LVOffS til barnaverndarnefndar Kópavogs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.