Morgunblaðið - 31.03.1971, Síða 16

Morgunblaðið - 31.03.1971, Síða 16
16 MORGUNBLAÐEÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1971 Útgefandi hf. Árvakur, Reykj'avík. Framkyæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Aöstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100 Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands. i lausasölu 12,00 kr. eintakið. MIKLAR BREYTINGAR Á SKATTAFRUMVARPI C|tundum er því haldið fram, ^ að Alþingi sé lítið annað en afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórn og embættismenn hennar. Og því miður er það svo, að of oft bera störf þings- ins keim af slíkri afgreiðslu- starfsemi. En þess ber að geta, sem vel er gert, og vinnubrögð þingsins í sam- bandi við afgreiðslu á skatta- frumvarpi ríkisstjómarinnar eru til fyrirmyndar. f>au sýna að Alþingi er annað og meira en afgreiðslustofnun. Fjár- hagsnefnd neðri deildar, und- ir forystu Matthíasar Á. Mathiesen, hefur í margar vikur unnið að því að yfir- fara skattafrumvarpið, sem ríkisstjórnin lagði fram að loknu jólalejrfi þingmanna. Það kom fljótlega í ljós, er þingnefndin kynnti sér af- stöðu samtaka atvinnuveg- anna til frumvarpsins, að þeir aðilar töldu á því býsna marga galla. Nú hefur meiri hluti fjárhagsnefndar lagt fram á Alþingi viðamiklar breytingatillögur við frum- varpið. Að baki þeim liggur mikil vinna og samráð við forsvarsmenn þeirra atvinnu- vega, sem hér eiga hagsmuna að gæta. Einstakir nefndar- menn í þingnefndinni hafa sett sig rækilega inn í alla málavöxtu og þekkja málið út og inn. Þannig á Alþingi að vinna. Þingnefndin hefur gert veigamiklar breytingar á frumvarpinu. Eins og kunn- ugt er, hafði ríkisstjómin lagt tii, að sameignarfélög yrðu lögð niður sem sjálf- stæðir skattaðilar. Þetta ákvæði frumvarpsins hefur verið mjög umdeilt og sætt mikilli mótspymu. Nú hefur þingnefndin lagt til að sam- eignarfélög haldi áfram að vera sjálfstæðir skattaðilar með sérstökum skilyrðum þó. Skilmálarnir eru m.a. þeir, að slík félög verði sér- staklega skráð í firmaskrá og við slíka skráningu liggi fyrir félagssamningur þar sem getið sé eignarhlutfalls eigenda innborgaðs stofnfjár, sem eigendur skuldbinda sig til að láta standa óhreyft í fé- laginu til félagsslita, svo og hvemig félagsslitum skuli háttað. Þá hefur fjárhagsnefnd lagt til við Alþingi, að fallið verði frá þeirri meginreglu fmm- varpsins, að aldrei minna en fjórðungur söluhagnaðar verði skattlagður. Þess í stað er gert ráð fyrir því, að sölu- hagnaður af fymanlegu lausu fé verði skattfrjáls eftir 4 ár og skattlagður að hálfu eftir 2ja ára eignarhald. í sam- bandi við fasteignir er gert ráð fyrir, að söluhagnaður verði skattlagður að fullu hafi skattþegn átt eignina skemur en 3 ár, 75% skatt- skyldur milli þriggja og fjög- urra ára eignarhaldstíma, 50% milli fjögurra og fimm ára, 25% milli fimm og sex ára en eftir það skuli sölu- hagnaður af fyrnanlegri fast- eign ekki skattlagður. Um skattfrelsi arðs hefur þingnefndin lagt til þá breyt- ingu að hlutafélögum verði skipt í svonefnd a-hlutafélög og b-hlutafélög. Hjá b-hluta- félögum verði 10% af arði skattlaus hjá fyrirtækinu en skattskyld hjá viðtakanda. Hjá a-hlutafélögum verði þetta þveröfugt. Allt er skatt- skylt hjá félaginu en 10% skattfrjálst hjá viðtakanda. Hefur fjárhagsnefnd lagt til að heimild til skattfrelsis arðs verði takmörkuð við 10% af hlutafjáreign skatt- þegns. Eins og fram hefur komið fjallaði frumvarp ríkisstjóm- arinnar fyrst og fremst um skattamál fyrirtækja, en í því vom einnig ákvæði, sem varða einstaklinga. Þing- nefndin hefur einnig gert veigamiklar breytingatillög- ur við þau ákvæði. Þannig var gert ráð fyrir því í frum- varpinu, að frádráttur af tekj- um giftra kvenna væri tak- markaður við hálfan persónu- frádrátt hjóna, en þingnefnd- in leggur til, að núgildandi reglur haldi áfram a.m.k. þangað til frekari breyting- ar verði gerðar á skattalög- um. Þá leggur nefndin einn- ig til, að sérstakur frádrátt- ur einstæðra foreldra verði hækkaður úr 27 þúsund kr. í kr. 40.500,00 og er þar um að ræða umtalsvert hags- munamál hins stóra hóps ein- stæðra foreldra. Þá er ástæða til að vekja athygli á þeim breytingatil- lögum nefndarinnar, sem beinast að því að veita skatt- stofum meira aðhald í störf- um þeirra og auka rétt skatt- þegnanna. í fyrsta lagi er lagt til, að breyting á skatti verði ekki gerð öðru vísi en svo, að hún sé tilkynnt með ábyrgðarbréfi og ekki inn- heimt fyrr en að loknum kærufresti eða úrskurði kæru. í öðm lagi er ætlast til, að úrskurðir verði rök- studdir og í þriðja lagi, að SJÓNARMIÐ lí. EFTIR ELLERT B. SCHRAM ALLUR málflutningur stjómarand- stæðinga bendir nú til þess, að þeir hyggist gera landhelgismálin að helzta kosningamáli sínu. Við því er að sjálf- sögðu lítið að segja, en ólíkilegt er, að þeir ríði mjög feiibum hesti frá þeim um- ræðum. Hitt er armað mál, að það er að mínu mati athyglisvert tímainna tákn, ef kosn- ingaslagurinn betoiist inn á þær brautir. Hefði sannarlega mábt ætla, að stjórnar- andstaða síðastliðinna tiu ára, hefði við ríkisstjórntoa um annað að sakast og rif- ast en mál sem síðast var á dagskrá fyrir ámtug og lyktaði þá að mati fylg- ismanna stjómarinnar með einum mesta stjómmálasigri Islendinga fyrr og síð- ar. 1 landhelgisbaráttu íslenzku þjóðar- innar allt frá 1948, þegar lögin um verndun landgrunnsina voru sett, voru forystumenn Sjálfstæðisflokksins hinir óumdeildu leiðtogar og mörkuðu þá stefnu, sem nú er höfð að leiðarljósi hjá stjónarfiokkunum. Þau spor hræða ekki, þeirri stefnu er gobt að fylgja. Ef kosn- ingabaráttan nú á að snúast um þau mál, sem Ólafur Thors og Bjarni Bene- diktsson báru helzt fyrir brjósti og beitbu 3ér hvað mest fyrir, þá er ekkert mál liklegra til að sameina alla Sjálf- stæðismenn, alla góða menn, til styrkt- ar þeim málstað. ★ En um hvað snýst deilan, í hverju er ágreiningurinn fólginn? Hann kemur einkum fram í tvennu. 1 fyrsta lagi krefjast stjómarandstæðingar þess, að samningnum við Breta og Þjóðverja frá 1961 verði sagt upp og í öðru lagi vilja þeiir að því sé lýst yfir nú þegar, að landhelgin verði færð út í sept. 1972. Landhelgismálto og kröfur Islendtoga til landgrunnsins alls, eiga djúpar ræt- ur í þjóðemisvitund Islendinga, er rétt- lætismál í augum allrar þjóðarinnar. Á því er engton vafi, sú krafa er hafin yfir aiUa flokkadrætti. Því reynist létt verk, að höfða til tilfinninga þjóðarinn- ar og setja fram djarfar kröfur, sér í lagi, ef almenningi er ekki ljóst, hvað mikið er undir því komið, að kröfunum sé rétt og skynsamlega fylgt eftir. Kapp og ákafi er góðra gjalda vert, en þó til lítils ef ekki fylgja rök og forsjá. Það á við í dag, sem Bjami Benedikts- son sagði í ræðu um landhelgismálin 1952, „að það er minnstur vandinn, að setja fraim sem allra mestar kröfur, en af kröfugerðinni etoni verður enginn miki'll". Þessa ræðu er að finna I „Land og lýðveldi 11“ og ættu sem flestir að kynna sér þann kafla bókarinnar, sem um landhelgismál fjallar, því þar koma glögglega fram skoðanir Bjama og þau ágreiningsatriði, sem nú er aftur deilt um. ★ Þegar stjórnarandstæðingar nú, halda því fram, að segja eigi upp samningnum við Breta og Þjóðverja frá 1961, þá hafna þeir því höfuðsjónarmiði, m. a. Bjarna Benediktssonar, að Islendingar eigi að skoða það sem stærsta ávinning sinn, að samningurinn sé óuppsegjanleg- ur. Það sé okkar bezta haldreipi. Samningurinn kemur engan veginn í veg fyrir, að við færum landhelgina ein- hliða út og að þvi leyti er réttarstaðan ótvíræð og óumdeild hérlendis. En komi upp ágreiningur geta Bretar eða aðrir, sem mótmæla kunna útfærslunni, ekki beitt okkur vopnavaldi eða virt ákvarð- anir okkar einskis. Með samningnum hafa þeir þvert á móti skuildbundið sig til að hlita niðurstöðu Alþjóðadómstóls- ins, alþjóða'laga í hugsanlegu þrætu- máli. Ef við Islendtogar teljum okkur eiga rétt á einhliða útfærslu landhelginnar, þá er það vegna lífshagsmuna okkar sem þjóðar, og með stoð í aJlþjóðarétti. Engtain á rétt sem ekki fær staðizt fyr- ir lögum. Islendtogar og þá um leið Bretar og Þjóðverjar tiilheyra vestræn- um réttarríkjum, við virðum lýðræðis- legar réttarhugmyndir og fyrir smáþjóð etas og Island er það ráunverulega lífs- Skilyrði að lög og regiur séu í heiðri hafðar, jafnt af okkur sem öðrum. Þess vegna er stuðningur við alþjóðalög okk- ur mest virði eins og flestir ábyrgir stjórnimálamenn á Islandi, að kommún- istum undanskildum, hafa viðurkennt og lagt áherzlu á. Núveramdi formaður Framsóknar- flokksins sagði um þetta atriði fyrir nokkrum árum: „Vissulega er það svo, að smáþjóð verður að varast það, að ganga svo langt, að hún geti ekki alltaf verið við því búin að leggja mál sín undir úrlausn alþjóðadómstóls, því sann- leikurinn er sá, að smáþjóð á ekki ann- ars staðar frekar skjóls að vænba, held- ur en hjá alþjóðasamtökunum og stofn- unum, af því hún hefur ekki valdið til að fylgja eiftir sínum ákvörðunum etos og stórveldin." Betri rökstuðning með málstað stjóm- arflokkanna er ekki hægt að fá, og und- irstrikar rækilega, að við eiigum aldrei að segja samntagmum við Breta upp, heldur halda því stíft fram, að hann sé óuppsegjanlegur. Það skerðir á engan hátt rébt okkar til útfærslu, þegar við sjálfir teljum okkur henta, þegar við teljum réttan tima kominn. ★ Hvenær það skuli gert er svo hin spurningin og um leið annar megin ágretoingurinn milli stjórnar og stjóm- arandstöðu. Eins og fyrr segir vilja stjórnarand- stæðingar lýsa yfir útfærslu frá og með september 1972. Stjómta hefur ekki vi'Ij- að stiga það skref, þó svo, að sá mögu- leiki sé alls ekki útilokaður, því þeim dyrum er haldið opnum sem áður. Vegna þessa blæbrigðamunar og rök- studdrar varkámi stjómarinnar, er hún sökuð um heigulshátt og undanlátssemi og hræðslu gagnvart öðrum þjóðum. Virðist svo sem vtona eigi kjósendur til fylgis við stjómarandstöðuna vegna þessa yfirboðs. Ef málið væri svo einfalt, ef stjófn- arflokkamir hefðu ekki talið það skerða málstað Islendinga, þá hefðu þeir í ábyrgðarleysi og kosningahita getað tek- ið undir þessa kröfu — og komizt á þann etafalda hábt hjá þvi, að láta þessa yfirlýsingu verða sér að falli í kosn- ingum. Tiil þess ráðs er þó ekki gripið af gildum ástæðum. Ekki vegna hugleys- iis og þjónsluudar heldur vegna þeirrar vissu að tíminn vinni með okkur, að í dag hafi slík yfirlýsing enga úrslita- þýðtogu en geti þvert á móti skaðað málstað okkar. ★ Árið 1973 verður haldin alþjóðaráð- sbefna um landhelgi og landgrunnsmál og til þessarar ráðstefnu er efnt að til- hluban íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Við höfum óskað þeirra við- ræðna, þessa samstarfs þjóða heims, I þeim tilgangi að móta skýrari alþjóða- reglur, í þeirri vissu að sjónarmið okk- ar verði ofan á. Hvar þykir það mannsæmandi eða viturlegt, að hlaupa til áður en slikar viðræður hefjast, hundsa þá leið, sem við sjálfir höfum lagt áherzlu á? Varla er það kænlegt til að sannfæra mót- stöðumenn okkar um, að fundurinn verði þess virði, að við okkur sé rætt; varla vísbendtog um trú okkar á, að málsbaður okkar sé í samræmi við al- þjóðavillja. Islendingar eru allir á einu máli um, að rébtur okkar til landgrunnstos sé ótvíræður. En í vissu Okkar skulum við ekki spilta því, að rébburtan verði okk- ar í reynd, að stærri þjóðir í skjóli valds og vopna virði þennan rébt okkar að vettugi. Kosningaslagur má ekki spiila sam- eiginleguim málstað okkar og þvi verður ekki trúað að óreyndu, að kjósendur láti yfirboð og kosningaglamur viila sér sýn í þessu máli. þeir verði ekki kveðnir upp nema a£ skattstjóra eða lög- giltum fulltrúa hans. Ekki verður annað séð, en að breytingatillögur þingnefnd- arinnar séu til bóta en mestu skiptir þó, að um þær hefur náðst víðtæk samsfcaða utan þings og innan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.