Morgunblaðið - 31.03.1971, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.03.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1971 19 Bf UUDffiTMorgunblaðsins — GetraunaseðiII Framhald al bls. 30. tel að sigur falli öðru hvoru lið inu í skaut. Ég hefi meiri trú á Tottenham, þó að liðið leiki á útivelli, en Coventry hefur tap- að tveimur af síðustu fjórum heimaleikjum. Crystal Palace — Stoke 1 CrystaJl Palace hetfuir tapað 4 leikjum í röð á heimavelli, svo að tími er kominn til að hressa upp á skap áhorfenda á Selhurst Park. Stoke á erfiðan leik í kvöld gegn Arsenal og árangur liðsins á útivelli er fremur slak ur. Ég spái því Crystal Palace sigri. Derby — Huddersfield 1 Derby hefur valdið nokkrum vonbrigðum að undanfömu, en ef liðið kemst hjá sjálfsmörkum í þessum leik, held ég að liðið eigí sigurinn vísan, þó að Hudd ersfield hafi aðeins tapað einum af fjórum síðustu leikjum á úti- velii. Ipswich — Soiithampton 1 Ipswidh er ekki enn úr allri fallhættu, en Southampton er í hópi efstu liða í 1. deild. Ipswich gerir sjaidan jafntefli á heima- velli og árangur Southampton á útivelli er fremur rýr. Ég spái Ipswich sigri, þó að South ampton reyni að halda jafntefli. Leeds — Burnley 1 Leeds hefur enn örugga for- ystu í 1. deild, en liðið hefur engin efni á því að tapa stigi í þessum leik. Burnley mun áreiðanlega berjast til jafntefl is, enda er hvert stig liðinu dýr mætt í fallbaráttunni, en ég ætla samt Leeds bæði stigin. Man. City — Everton 2 Man. City verður að heyja aukaleik í Evrópukeppni bikar hafa og verður sá leikur leik- inn í Kaupmannahöfn í kvöld. Þá eru margir leikmenn liðsins á sjúkralista, svo að sigurhorf ur liðsins eru fremur smáar. Everton hefur væntanlega sleikt sár sín eftir ófarirnar í síðustu viku og liðinu gefst gott tækifæri til að vinna sjáilfs traust í þessum leik. Ég spái því Everton sigri. West Ham — Man. Utd. X West Ham hefur færzt geig vænlega nálægt botninum í 1. deild að undanförnu og liðið hefur varla efni á því að tapa fleirum leikjum á heimavelli. West Ham og Man. Utd. hafa skilið jöfn á Upton Park fcvö undanfarin ár og ég hallast að því, að svo verði einnig nú. Wolves — Nott. Forest 1 Úlfarnir heyja nú harða bar- áttu við Chelsea um 3. sætið í 1. deild og þeir eru ekki árenni legir á heimavelli um þessar mundir. Nott. Forest vann Úlf ana í haust og þess ósigurs munu Úlfarnir örugglega hefna nú í þessum leik. Carlisle — Leicester X í þessum leik mætast tvö af efstu liðum í 2. deild og hvor- ugt mun sætta sig við tap. — Carlisle er með beztan árangur allra liða í 2. deild á heima- veiii, en Leicester með beztan árangur á útivelli. Ég spái jafn tefli, en Carlisle stendur þó bet ur að vígi vegna heimavallar- ins. Luton — Birmimgham 1 Luton hefur aðeins einu sinni tapað á heimavelli í vetur og liðið verður að vinna þennan leik eigi vonir þess um sæti í 1. deild að rætast. Birmingham hefur ekki tapað leik síðan í desember og sigurganga liðsins hefur verið nær óslitin síðan. Ég spái því, að Luton takizt, að hemja Trevor Francis og fé- laga hana hjá Birmingham og vinni dýrmætan sigur, en þó er varla ráðlegt að útiloka jafn- tefli með öllu. 1. DEILD: 35 13 2 2 Leeda 10 6 2 60:27 54 32 13 3 0 Arsenal 835 57:25 48 35 10 5 2 Chelsea 675 47:36 44 34 11 2 4 Wolves 755 55:49 43 33 10 7 0 Liverp. 367 33:19 39 34 115 1 South.t. 368 44:35 39 32 844 Tottenh. 664 45:30 38 33 672 M. City 5 76 37:28 36 33 764 M. Utd. 547 48:49 34 33 9 2 5 Coventry 458 29:31 33 34 962 Everton 2 5 10 49:49 33 34 863 Newc. 4 3 10 37:40 33 33 862 Stoke 2 5 10 38:40 31 33 6 4 6 Derby 5 48 42:45 30 35 756 C. Pal. 359 29:38 30 34 963 W. Brom. 0 6 10 52:63 30 35 6 7 5 Huddersf. 359 34:41 30 34 8 2 7 Ipswich 2 5 10 36:40 27 33 836 N. For. 2 4 10 33:47 27 33 386 W. Ham 259 28:53 23 34 2 8 8 Burnley 259 25:52 21 34 2 7 7 BLackp. 1 4 13 27:58 17 2. DEILD: 34 11 5 2 Leicester 754 48:27 46 34 10 5 1 Sheff. U. 756 59:37 44 33 9 7 1 Cardiff 745 55:28 43 34 13 3 1 Carlisle 2 9 6 50:36 42 34 7 5 4 HulL 864 44:32 41 32 10 4 1 Luton 566 46:24 40 34 13 2 2 Middl.b. 449 51:34 40 34 11 5 2 Birmingh. 5 3 8 53:39 40 35 10 7 1 Norwich 458 46:42 40 34 12 4 2 Swindon 1 4 11 49:37 34 34 10 5 3 Millw. 3 3 10 43:38 34 34 593 Orient 45 8 25:38 32 34 565 Oxford 648 32:41 32 34 953 Sunderl. 2 4 11 38:46 31 34 9 5 3 Sheff. W. 2 4 11 42:56 31 33 9 3 5 Portsm. 17 8 41:48 30 33 745 QPR 359 43:47 29 34 5 5 7 Watford 368 32:50 27 34 755 Brist. C. 1 4 12 39:56 25 35 648 Bolton 14 12 31:57 22 34 467 Blackb. 15 11 29:57 21 33 548 Charlton 16 1129:55 20 R. L . — Ármann vann Framliaid af bls. 3®. unnu Ármenningar einnig 16:13, þannig að úrslitatölur leiksins urðu 28:23. 1 þessum ieik fór fram sann- kallað markaeinvígi milli beztu manna liðanna, Gísla Blöndal i KA og Harðar Kristinssonar í Ármanni. Skoraði hvor um sig 13 mörk, og heyrir það senni- lega til einsdæma að tveir menn skori samtals 26 mörk í einum leik. Gerði Gísli nokkum veg- inn jafnmörg mörk í fyrri og síð ari hálfleik, en Hörður tók fyrst verulega við sér síðustu fimmtán mínútumar og mátti segja að hann skoraði þá úr hverju einasta upphlaupi, jafn- vel þótt KA menn gerðu allt sem þeir gátu til þess að stöðva hann. Ármannsliðið er nú greinilega að ná sér verulega á strik aftur og ætti að hafa jafna möguleika og KR-ingar í baráttunni um 1. deildar sætið. Hörður var bezti maður liðsins að þessu sinni, en einnig sýndu þeir Björn Jóhánns son, Olfert og Vilberg allir ágæt an leik. 1 KA-Mðinu snertst allt í kringum Gísla Blöndal, en leik menn liðsins eru mjög lagnir að 'leika hann uppi og skapa hon- um tækifæri, au'k þess sem þeir eru snjallir við að fara inn úr hornunum. — Körfubolti Framhald af bls. 30. UMFS til að jafna og komast yfir runnu út i sandinn, og IS sigraði í leiknum með 64 stigum gegn 61. Ef til vill gerði það gæfumun inn fyrir IS, að Gunnar Gunn- arsson, UMFS, var illa upplagð ur í þessum leik, og er langt síð an undirritaður hefur séð hann svo slakan. Annars er UMFS lið ið mjög jafnt ungt lið, og þeir veita UMFN örugglega góða keppni. Háskólaliðið er aðallega bor- ið uppi af tveim leikmönnum, þeim Stefáni Þórarinssyni og Bjarna Gunnari Sveinssyni. Lið ið er i mikilli framför undir handleiðslu hins kunna leik- manns úr KR, Kristins Stefáns- sonar, og ætti liðið að geta kom ið vel út í I. deildinni næsta vet ur. — Borðtennis Framhald af bls. 31. Tvenndarkeppni: stlg Elísabet Siemsen og Jóhann Sigurjónsson, ö 10 Rífca Júlíusson og John W. Sewell, Á 8 Margrét Rader og Stefán Árnason, KR 7 Nanna Sigurjónsdóttir og Þór Sigurjónsson, Ö 3 Jóhanna Stefánsdóttir og Birkir Þ. Gunnarsson, Ö 2 Einliðaleikur kvenna: stig Margrét Rader, KR 8 Elísabet Siemsen, Ö 2 Ríta Júliusson, Á 1 Tvíliðaleikur kvenna: stig Sigrún Pétursdóttir og Margrét Rader, KR 6 Ríta Júlíusson, Á og Elísabet Siemsen, Ö 3 Nanna Sigurjónsd. og Jóhanna Stefánsdóttir, Ö 0 Einliðaleikur unglinga: stig Hjálmar Aðaisteinss., KR 11 Gísli Antonsson, Á 9 Sigurður Jóhannsson, Á 6 Finnur Snorrason, KR 4 Egill Guðjónsson, KR 0 Tvíliðaleikur unglinga: sttg Hjálmar Aðalsteinsson og Finnur Snorrason, KR 11 Gísli Antonsson og Sigurður Jóhannsson, Á 8 Gunnar Þ. Finnbjömsson og Jónas Kristjánsson, Ö 7 Bjarni Einarsson og Egill Guðjohnsen KR 4 Þórður Halldórsson og Frimann Ólafsson, KR 0 NAFNSKÍBTEINA - MYNDATÖKUR LAXVEIÐIÁ Veiði í Gljúfurá í Borgarfirði er til leigu næstu fimm ár. Tilboð óskast send til Magnúsar Thorlacius hæstaréttar- lögmanns fyrir 1. apríl næstkomandi. Fimleikameistaramót íslands 1971 Keppni í frjálsum æfingum fer fram í Laugardalshöllinni laugar- daginn 3. apríl kl. 2,30 e.h. Keppni í skylduæfingum kvenna verður í Iþróttahúsi Háskólans miðvikudaginn 31. marz kl. 8 e.h. Keppni í skylduæfíngum karla verður í íþróttahúsi Háskólans fknmtudaginn 1. april kl. S e.h. Kvennagreinar: Dýna — kista — gólfæfingar. Karlagreinar: Svifrá bogahestur — hringir — langhestur tvíslá — gólfæfingar. KOMUÐ OG SJÁIÐ SPENNANDI KEPPNl. FIMLEIKASAM8ANDIÐ. Sölumannadeild Sölumenn Hádegisverðarfundur verður haldinn laugardaginn 3 apríl i Átthagasal Hótel Sögu, Gestur fundarins: ALBERT GUÐMUNDSSON, framkvæmdastjóri. Ræðuefni: Tollvörugeymslan og framtiðaráform. ooooooooooooooooooooooooooo KA UPUM HREINAR, STÓRAR OG GÓÐAR LÉREFTSTUSKUR PRENTSMIÐJAN OOOOOOOOÖOOOOOOOOÓOOOOOOOOO GULLFOSS UM PÁSKANA Vegna mikillar eftirspurnar í PÁSKAFERÐ m/s Gullfoss til ísafjarðar er ákveðið að taka nokkra farþega til viðbótar með gist- ingu í landi, en allar máltíðir um borð í Gull- fossi. Allar nánari upp- lýsingar veitir far- þegadeild Eim- skips, sími 21460. EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.