Morgunblaðið - 31.03.1971, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVl tCUDAGUR 31. MARZ 1971
ISLAND
— eins og í árdaga
— segja franskir blaðamenn
í FRANSKA tímaritinu L’auto-
journal birtist nýlega grein um
Island eftir tvo af blaðamönn-
um ritsins, J. F. Tourtet og Guy
Bouiller, sem komu hingað
til að skrifa um ísland í vetrar
liam. Fylgja greininni ákaflega
fallegar litmyndir, bæði frá
hlaðamönnunum sjálfum og
einnig eftir íslendingana Gunn
ar Hannesson og Hrafn Hafn-
fjörð. Ná myndirnar yfir heil-
ar síður og heilar opnur.
Þeir félagar segja, að náttúra
íslands sé ósnortin eins og í
árdaga og eru mjög hrifnir af
landinu þó þeir kæmu um há-
vetur og lentu í gráma og rign
ingu. En þeir virðast hafa verið
varaðir við, því í upphafi grein
arinnar segja þeir frá símtali
sem þeir áttu, áður en þeir
lögðu af stað og sem þeir
færa vafalaust í stílinn og líkja
við leikrit Ionesco:
— Hvað er að sjá á fslandi
um vetur? Ekkert, herra minn,
það er ekkert að sjá.
— Halló . . . afsakið, er þetta
ekki sendiráð íslands?
— Jú, monsieur, það er ís-
lenzka sendiráðið!
— Ég veit að hinn sígildi
ferðamannatími á íslandi er frá
maí til september, en haldið
þér samt ekki að þessi svart-
hvitu litir . . .
— Það er ekkert að sjá og
svo er skammdegi, engin birta.
— En þið hafið þó eldfjall?
— Það er ekki hægt að sjá
það á veturna. Það er lokað.
Og það eru jöklarnir líka.
— N-ú, eru eldfjöllin lokuð
á veturna? Vegna úrkomu? En
hvalstöðin
vík?
— Hún
monsieur.
í nánd við Reykja-
er lokuð á vetrum,
— En litlu fiskihafnirnar ykk
ar? Það hljóta þó að vera til
litlar fiskihafnir, þar sem sjó-
mennirnir sitja á knæpum og
ylja sér um hjartað?
— Herra minn, það er bann
á áfengi hjá okkur!
Og þetta samtal varð til þess
að blaðamaðurinn fann til ómót
stæðilegrar löngunar til að fara
til íslands, sem hann gerði og
safnaði heilmiklu af skemmti
legu efni — þó í skammdegi
væri og um hávetur.
franska blaöinu L’auto-journal
Frá ráðstefnu háskólamenntaðra kennara:
Hentugra að kennara-
háskóli yrði deild i HÍ
Vilja ráða skólastjóra á „grunn-
skólastiginu44 til f jögurra ára í senn
Mengun hafsins
rædd á fundi
Norrænu fiski-
málanefndar-
innar
Þrándheimi, NTB.
MENGUN hafsins verður eitt (
af aðalmálunum á fundi Nor- i
rænu fiskimálanefndarinnar,
þegar hún kemur saman til1
fundar í Osló, 1. apríl næst-1
komandi. Þá verffa meffal ann i
ars rædd þau vandam-ál sem
viff blasa þegar veriff er aff ‘
vinna olíu á hafsbotni. Undir-
búningsvinna vegna ráffstaf-1
ana gegn mengun hafsins er (
þegar hafin í Noregi, og miff-
aff er viff samstöffu allra Norff \
urlandanna í því efni. í Norr- |
I ænu fiskimálanefndinni eiga |
sæti fulltrúar allra Norffur-
landanna, og starfar hún sem i
I ráðgjafi Norffurlandaráffs.
FÉLAG háskólamenntaðra kenn-
ara hélt ráðstefnu um grunn-
skólafrumvarpið og kennarahá-
skólafrumvarpið um síðustu
helgi. Samþykkti ráðstefnan
ályktun um hvort frumvarpið
fyrir sig og var þar m.a. í, að
ráðstefnan taldi, að hagkvæmara
hefði verið, að kennaraháskól-
inn yrði deild eða stofnun inn-
an Háskóla íslands. Taldi ráð-
stefnan að ýmis framkvæmdar-
atriði kennaraháskólafrumvarps
ins orkuðu tvimælis og með til-
liti til mikilvægis málsins þyrfti
að kanna slík atriði nánar áður
en frumvarpið yrði lögfest.
„Það væri þvi mikið fljótræði að
samþykkja frumvarpið á því Al-
þingi, sem mi situr, án þess að
slík endurskoðun fari fram.“
Gagnvart grunnskólafrumvarp-
inu kom fram sá andi, að með
því væri of mildð vald dregið
til menntamálaráðuneytisins og
gengu tillögur ráðstefnunnar i
miklum mæli út á það að draga
úr miðstjórnarvaldi ráðuneytis-
ins og koma kennurum inn sem
virkum aðilum í stjórn og fram-
kvæmd.
Um kennaraháskólafrumvarp-
ið segir m.a. svo í ályktun ráð-
stefnunnar:
„Ráðstefnan fagnar þeirri meg
inhugsun frumvarpsins að auka
þurfi menntun kennarastéttar-
innar. Hins vegar telur ráðstefn-
an ýmis framkvæmdaratriði
frumvarpsins orka tvímælis. Með
tilliti til mikilvægis þessa máls
þarf að kanna si ík atriði nánar,
áður en frumvarpið verður lög-
fest. Það væri því mikið fljót-
r»>ði að samþykkja frumvarpið
á því Alþingt, sem nú situr, án
Ráðstefnu- og
hljómleikahald
— Bahá’ ía á íslandi
DAGANA 2.—5. september nk.
verður haldin hér á landi ráð-
stefna á vegum Bahá’í-safnaðar-
Ins á Islandi. Ráðstefnu þessa
sækja 500—70« fulltrúar frá
EvTópu og Ameríku.
Bandariskir tóniistarmenn að
nafni Seals og Crofts koma fram
á hljómleikum í Háskólabíói
þriðjudaginn 13. april nk. kl. 21
og fiytja þar tónlist i stíl, sem
helzt mætti kaila þjóðlagapopp-
stil, en á ensku gengur hann
undir nafninu „folk roek“. Ald-
urstakmark á hijómleikum þess-
um er 16 ár, en aðgangur er
ókeypis. Verður aðgöngumiðum
úthlutað í miðasölu Háskóiabíós
frá og með 3. apríl.
þess að slík endurskoðun fari
fram.
Ráðstefnan telur að hagkvæm
ara hefði verið, að kennarahá-
skólinn yrði deild eða stofnun
innan Háskóla Islands, e.t.v. með
sérstakan fjárhag og sérstaka
stjórn. Með slíku fyrirkomulagi
hefði m.a. fengizt betri nýting
fjármuna og starfskrafta. Rétt
er að vekja sérstaka athygli á
því, að skv. 6. gr. frumvarpsins
um nám og námstíma í kennara-
háskóla eru gerðar minni kröf-
ur til þekkingar kennara á nú-
verandi unglingastigi i kennslu-
greinum sínum en gerðar eru
til B.A.- eða B.S.-prófs frá Há-
skóla Islands."
Síðan voru samþykiktar ýmsar
breytingartillögur við frumvarp
ið, þar sem „svo virðist sem
mikið kapp sé á það lagt af háltfu
stjórnvalda, að frumvarpið verði
samþykkt sem skjótast. Ráðstefn
an gerir því jafnvel ráð fyrir,
að ókleift verði að breyta kenn-
araháskólanum í háskólastofnun
úr því sem komið er. Því viljum
við koma á framfæri eftirfar-
andi breytingartillögum sem
miða m.a. að því að styrkja
tengsl kennaraháskólans við Há-
s'kóia ísiands og tryggja að um
raunverulegan háskóla verði að
ræða.
Ráöstefnan gerði siðan ýmsar
breytingartillögur við frumvarp-
ið, þar sem m.a. uppeldisfélags-
fræði, skólastjórn, námsefni og
kennslubækur, skólakerfi og
skólalöggjöf og íslenzk og erlend
skólasaga eru settar inn sem
námsgreinar fram yfir það, sem
frumvarpið gerir ráð fyrir og
einnig: „Nú óskar nemandi, sem
tekið hefur lokapróf frá Kenn-
araháskóla Islands, eftir að
stunda nám til B.A.- eða B.S.-
prófs við Háskóla Islands, og
skal þá nám hans við kennara-
háskólann metið sem ákveðinn
hluti fyrrgreinds náms við Há-
skóla íslands eftir nánari ákvæð
um í reglugerð." Ennfremur:
„Gerðar sku-lu svipaðar kröfur
til nemenda og til námsefnis í
kennaraháskóla og gerðar eru
til nemenda í Háskóia Islands í
jafnlöngu námi.“
Lögðu forsvarsmenn Féiags
háskólamenntaðra kennara á
það áherzlu á fundi með frétta-
mönnum í gær, að málum yrði
svo hagað, að kennaraháskólinn
og Háskóli Islands kæmu ekki
til með að vera að kenna hvor
sínum hópinum sama efnið á
sama tíma, þar sem um óþarfa
tvíverknað yrði þá að ræða, auk
þess sem þá mætti alltaf búast
við, að kennaraháskólinn yrði
undir í samkeppninni um hæfa
kennara.
—O—
Grunnskólafrumvarpinu lýstu
forsvarsmenn Félags háskóia-
menntaðra kennara, sem ákveð-
inni tilraun til að draga allt vald
í kennslumálum undir hatt
menntamálaráðuneytisins. Sögðu
þeir, að frumvarpið gerði ráð
fyrir fingrum ráðuneytisins svo
víða og svo mjög inn í öll smá-
atriði, að helzt mætti líkja við
veldi kaþólsku kirkjunnar, er
hún bældi allt mannslif niður á
þeim forsendum, að það líf, sem
skipti öllu máli, væri lífið eftir
dauðann.
Ganga flestar tillögur ráð-
stefnunnar í þá átt að auka lýð-
ræði í stjórnun skólamála, en
um það segir m.a. í ályktunum
ráðstefnunnar:
„Nauðsynlegt er að stjórn
skóiamála verði mun lýðræðis-
Legri en nú er. Einkum ber að
leggja áherzlu á að kennarar og
nemendur taki þátt í stjórn
skólamála að nokkru leyti, en
frumvarpið gengur í þveröfuga
átt. Það eykur enn miðstjórn-
arvald i skólamáluan. Þetta er
afleiðing af skipan nefndarinn-
ar. 1 nefndinni er enginn full-
trúi kennara, enginn fulltrúi
dreifbýlisins, enginin fulltrúi frá
atvinnuldfinu. Þá leitaði nefnd-
in ekki samráðs kennara eða
skólastjóra í undirbúningsstörf-
um sínum.
Þær tillögur, er hér fara á
eftir marka fyrstu áfangana,
sem ný fræðslulög eiga, að áliti
ráðstétfnunnar, að kveða á um,
svo lýðræði aukist við stjórnun
skólamála og einstakra skóla.
Tillögurnar fjalla einkum um
hlutdeild kennara í þeim efnum,
ráðningarskilyrði embættis-
manna er fara með völd í skóia-
kerfinu og eflingu fræðslumála-
stjórnar utan menntamálaráðu-
neytisins.”
Helzta nýjung í tillögum ráð-
stefnunnar felast í því, að
kennarasamtök í fræðsluum-
dsemi eigi að kjósa fræðslustjóra
til 4 ára í senn og að skólastjór-
ar verði ráðnir til sama tíma,
„og áframhaldandi skipun verði
ekki nema eftir umsögn kenn-
arafundar viðkomandi skóla.“
Um starfstíma skóla segir svo:
„Óheppilegt er að setja í 62.
gr. nákvæm fyrirmæli um það
hvenær grunnskólar skuli starfa.
Víða í dreifbýli skapar það erfið
leika í atvinnulífi, ef nemend-
ur hefja skólanám 1. september.
Sums staðar kann að eiga bet-
ur við að halda skóla að nokkru
að sumrimu, en fella niður haust-
og vorkennslu í staðinn. Þetta
getur farið eftir atvinnuháttum
á hverjum stað.“
1 niðurlagi ályktana ráðstefnu
háskólamenntaðra kennara um
grunnskólafrumvarpið segir svo:
„Frumvarp tii laga um grunn-
skóla er gallað að því leyti, að
viða er blandað í lagagreinarnar
atriðum, sem betur ættu heima
í reglugerð eða jafnvel sem skýr
ingar og athugasemdir. Dæmi
um þetta er 91. gr., er fjéillar um
aga og á betur heima í reglu-
gerð og að nokkru í kennara
handbókum.
Ráðstefnan telur að setning
nýrra fræðslulaga um skyldu-
nám hafi dregizt of lengi, of
langur frestur sé gefinn til
framkvæmda. Endurskoðun laga
um önnur skólastig þarf að
haldast i hendur við endurskoð-
un á skyldustigi og er eðlileg
afleiðinig af henni, sé skipulega
á málum halddð — verkefnin
leyst í eðlilegri röð."
Óhagstæður
vöruskipta j öfnuður
BRÁÐABIRGÐATÖLUR um
verffmæti útflutnings og inn-
flutnings í febrúarmánuffi sl.
liggja nú fyrir. Þá var flutt út
fyrir samtals 775.5 millj. króna,
og fyrstu tvo mánuffi ársins
fyrir 1.6 milljarða króna. í fyrra
var hins vegar flutt út fyrir
752.7 milljónir króna og tvo
fyrstu mánuðina fyrir 1.529,4
millj. kr.
í febrúarmánuði sl. var flutt
inn íyrir 1.132,3 millj. króna
og tvo fyrstu mánuðina fyrir
2.133,0 millj. kr. í íebrúar í'
fyrra var fiutt inn fyrir 667,1
millj. króna og tvo fyrstu mán-
uðina á árinu fyrir 1.377,9 millj.
króna. Vöruskiptajöfnuðurinn í
febrúar sl. var því óhagstæður
um 356,8 milljónir, og um 536.3
milljónir fyrstu tvo mánuði árs-
ins. í febrúar í fyrra var hann
hins vegar hagstæður um 85.6
milljónir kr. og hagstæður um
151,5 milljónir tvo fyrstu mán-
uðina. Varðandi innflutninginn
ber að hafa í huga, að í tölum
um hann er innifalin trygging
og fiutningsgjaid.