Morgunblaðið - 24.04.1971, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐEÐ, LAUGARDAGUR 24. APRfL 1971
*• 65 “
aftur til Lydenbridge, sagði
hann rólega.
Þeir stigu upp í bilinn og óku
þögulir til bæjarins. En rétt áð-
ur en komið var að Drekanum,
sneri Priestley sér að Jimmy:
— Yður er sjálfsagt orðið mál
að hitta starfsbróður yðar, hann
Appleyard fulltrúa, sagði hann.
— Þá vilduð þér lika sjálfsagt
tilkynna honum, að grunur hr.
Woodsprings sé á góðum rökum
reistur. Hrunið á turninum var
áreiðanlega af mannavöldum en
ekki neiri forsjónarinnar ráð-
stöfun. Og ef þið fulltrúinn kær
ið ykkur um að hitta mig á hótel
inu klukkan níu í kvöíd, kann
ég að geta útskýrt fyrir ykkur,
hvernig þetta gerðist.
Jimmy vissi, að það þýddi
ekkert að spyrja neins frekar í
bili. Hann gekk því á fund App-
leyards og skýrði honum frá því
sem gerzt hafði,
— Það er skrítinn náungi,
þessi prófessor, lauk hann máli
sínu. - Hann er nú hættur rann
sóknarstörfum, en hefur aðal-
lega gaman af að hleypa upp
fundum vísindamanna með at-
hugasemdum sínum. En aðalgam
an hans er þó að leysa glæpa-
mál. Ég vil ekkert vera að leyna
því, að hann hefur hvað eftir
annað leyst vanda Scotland
Yards. Og nú er hann búinn að
fá einhverja flugu í kollinn í
sambandi við turninn þann arna.
Hann segir, að einhver hafi fellt
hann og hann vill að við hittum
sig í kvöld í Drekanum til að
heyra, hvað hann hefur til mál-
anna að leggja.
— Ég er nú ekki viss um, að
mig langi neitt til að hlusta á
neinar kynjasögur, nöldraði App
leyard. En ég skal nú samt koma.
Þú segir, að þessi gamli kunn-
ingi þinn hafi mikinn áhuga á
glæpamálum ? Kannski vildi
hann þá segja okkur, hvar hann
Benjamín hefur falið sig?
— Ég veit ekki. Þér getið
spurt hann ef þér viljið. En þeg
ar þér minnizt á það, þá man ég,
að víst sagði hann, að hann
kynni að geta hjálpað okkur til
þess.
— Hjálpa okkur! Hjálpa
Verkokvennaiélogið
Framsókn
Þær félagskonur, sem óska orlofsdvalar í húsum félagsins
í Ölfusborgum, og ekki hafa dvalizt þar áður sæki um það
fyrir 1. maí.
Ekki tekið á móti pöntunum i gegnum síma.
OPIÐ FRA KL. 2 — 6.
STJÖRNIN.
Til fermingargjafa
Tjöld — svefnpokar — vindsœngur
Opið til klnkknn 4 í dag
Skeifunni 15.
Tilboð
óskast í Bedford vörubifreið, árg. 1961, fyrir 4,7 tonna
hlassþunga. Bifreiðin er með dieselvél, vökvasturtum og
Faco krana, sem gefinn er upp fyrir 1,5 tonn.
Bifreiðin er til sýnis hjá Sildarverksmiðjum rikisins, Síglufirði.
Tilboðum sé skilað til Innkaupastofnunar ríkisins, Borgar-
túni 7, Rvík., fyrir 3. mai n.k.
Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast
viðunandi
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
60RGARTÚNI 7 SÍMI 10140
Scotland Yard, eigið þér við?
Og það er ekki laust við, að
þeir þarfnist hjálpar. Það eru
nú fjórir dagar síðan Benjamín
hvarf og hefur ekki sézt né
heyrzt til hans sxðan!. Gott og
vel. Ég skal hitta yður í Drek-
anum, rétt fyrir níu, og við
skulum heyra, hvað þessi dá-
samlegi prófessor hefur að segja
okkur.
Jimmy gætti þess að borða
snemma þetta kvöld, því að
hann vissi, að Priestley mundi
ekkert kæra sig um að hitta
hann Appleyard í forsal gisti-
hússins. Þeim var sagt, að
Priestley og Merefield væru
búnir að borða og hefðu farið
til herbergja sinna. Þegar
klukkan sló níu, börðu þeir þar
að dyrum, og var boðið að koma
inn.
Priestley heilsaði honum kurteis
lega. — Gleður mig að kynn-
ast yður, fulitrúi, sagði hann.
— Harold, vilt þú sjá um, að
gestirnir fái þá hressingu, sem
þeir vilja. Þér hafið sjálfsagt
sagt samstarfsmanni yðar af
komu okkar að tuminum í dag?
— Já, ég hef sagt honum frá
því, sagði Jimmy.
— Gott og vel. Nú munið þér
sjálfsagt eftir ritningarstöðun-
um á ættarbiblíunni, með yfir-
skriftinni: „Ritningarstaðir
handa ætt minni.“ Mér fannst
frá upphafi ólíklegt, að
Thaddeus Glapthome hefði val-
ið þá af handahófi eða af því
að hann héldi, að þeir gætu orð-
ið ættinni að einhverju siðferði-
legu gagni. Það virtist miklu lík
legra að þeir hefðu inni að
halda einhverjar bendingar, sem
krefðust nokkurra sniðugheita
til að skilja. En eins og versin
komu fyrir, virtust þau sam-
hengislaus.
— Það var ekki fyrr en fund-
ið var út úr merkjunum til hlið-
ar við ritningarstaðina, að hægt
var að botna frekar í þessu. En
þegar réttu orðin voru valin
varð útkoman eins og hér segir.
„Takið bók drottins og lesið:“
„Auður ríka mannsins er hinn
sterki turn hans."
„Höggvið sundur járnstengurn
ar, en hvorki frá austri, vestri
né suðri."
„Gull þitt margfaldast."
„Gættu þess, að auður þinn
farLst ekki með þér.“
„Steinn er þungur og sandur
sígur í.“
Priestley þagnaði og leit á
Jimmy. — 1 sambandi við það,
sem við sáum í dag, hvað fáið
þér út úr þessu? spurði hann.
—- Ekki annað en það, að á
einhvern hátt átti tuminn að
verða auðsuppspretta fyrir ætt-
ina, sagði Jimmy. — Annað fæ
ég ekki út úr þessu.
— Turminn hefur þegar gefið í
aðra hönd sjö hundruð og fimm-
tiu pund, sem er miklu meira en
verðmæti hans fyrr eða síðar,
sagði Appleyard í fyrirlitningar
tón.
Priestley lét sem hann heyrði
þetta ekki. — Það er til aðferð
til að fella reykháfa og annað
þvíumlíkt, frá gamalli tíð, og er
enn viðhöfð, sagði hann. Og hvað
snertir turna, hlaðna úr múr-
steini er aðferðin sem
hér segir: Segjum að turninum
sé ætlað að falla á auðan blett
til austurs, þá er sett í hleðsl-
una austanmegin og í hæfilegri
hæð trékubbar í múrsteina stað.
Þessu er haldið áfram til aust-
urs og vesturs þangað til tré-
kubbamir ná til norðurs og suð
urs gegn um austur. Þannig hef-
ur verið sett tré sem svarar
háifum hringnum, kannski tvö
lög, í múrsteina stað.
Næsta stigið er svo að
hrúga eídivið við austurhelming
inn á hringnum og kveikja í.
Þá er turninn óstuddur öðrum
megin, og fellur því í þá átt.
Og ég er sannfærður um, að
Farningcoteturninn hefur verið
felldur með einhverri svipaðri
aðferð.
Nei, það kemur ekki til
mála, sagði Appleyard. Það
hefur enginn haft tíma til að . . .
Hann þagnaði í miðri
setningunni er hann sá ægissvip
inn á prófessornum.
- Ég sagði svipaðri aðferð,
sagði Priestley byrstur. — Ef
þér viljið hafa þolinmæði til að
hlusta á mig, skal ég útskýra
þetta nánar. Við skulum athuga
eftirfarandi klausu hjá hon-
um Thaddeusi Glapthorne:
„Höggvið sundur járnstengurn-
ar, en hvorki frá austri, vestri
né suðri."
Með það í huga, að þessi
klausa minnir á turninn, er eðli-
legt að halda, að járnstengum-
ar standi í einhverju sambandi
við hann. Og það er greinilegt,
að þetta járn átti að vera norð-
anmegin. Ég var þegar farinn
að ráða í þessa klausu og álit
mitt var staðfest af Wally
Chudley, sem er meira en
í meðallagi eftirtektarsamur.
Hann sagði mér, að járnrönd, fet
á breidd væri þarna innan
í turninum, um það bil í tveggja
feta hæð frá jörðu.
Sagði Wally yður það?
spurði Appleyard, tortrygginn.
— Ekki kannski með þeim orð
um, en að efninu til. En nú skul-
um við athuga endinn á grein-
inni „Gæt þess, að auður þinn
farist ekki með sjálfum þér.
Steinn er þungur og sandur sig-
ur í.“ Þetta er sýnilega við-
vörun, enda þótt hún sé dálítið
óljós. Steinn er þungur. Turn-
inn var óvenju sterkbyggður.
En sandur sígur í. Manni verð
ur á að spyrja: Hvaða sandur?
Er hægt að ímynda sér einhvern
sand, sem gæti orðið hættuleg-
ur hverjum þeim sem reyndi að
höggva járnstengurnar sundur?
Bæði Jimmy og Appleyadr
hristu höfuðið og botnuðu ekki
neitt í neinu, og eftir nokkra
þögn hélt Priestley áfram:
— Þið hafði sjálfsagt heyrt,
að Thaddeus Glapthorne fékk
ítalska verkamenn til að hlaða
turninn. Hvað sem nú þessir
menn kunna að hafa haft til
brunns að bera, þá er eitt víst,
að heimamenn skildu ekki tal
þeirra. Hafi því bygging turns-
ins verið eitthvað frábrugðin,
þá vissu ekki aðrir en verka-
mennirnir af því, að sú vitn-
eskja mundi ekki breiðast út.
Þessi járnbogi innan í turn-
inum bendir mér til þess, að
ekki einasta var byggingin eitt-
hvað afbrigðileg, heldur hvern-
ig hún var það. Ég skal reyna
að skýra þetta betur: Turninn
var byggður úr steinlögum í
tveggja feta hæð frá jörðu. Síð-
an voru settir i hleðsluna tveir
hálfhringar af járni, lík-
léga ekki nema þumlungs þykk-
ir, og reistir upp á rönd. Þessir
hálfhringar voru annar að inn-
anverðu og hinn að utanverðu á
hleðslunni, og bilið milli þéirra
fyllt af sandi, en að öðru leyti
var hringurinn að dyrunum
undanteknum — hlaðinn upp á
venjulegan hátt. Mér skilst, að
turninn hafi verið múrhúðaður
að utan, þannig að ekki bar á
ytri járnhringnum.
Nú skulum við hugsa okk-
ui', hvað mundi gerast ef ein-
hver hyggi sundur járnhringinn,
Ilniturinn, 21. marz — 19. apríl.
Sömu vandamálin koma alltaf aftur í ýmsum myndum. Reyndu
að bregðast við þcim á nýjan hátt, og læra eitthvað í leiðinni.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
í dag skaltu ráðast i leiðinlegasta verkið fyrst, og síðan koll af
kolli.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. jiiní.
Reyndu að kynna þér eigin verkefni betur ofan í kjölinn, áður
en þú segir hverjum, sem hafa viil, fyrirætlanir þínar.
Krabbinn, 21. jnní — 22. jiilí.
I>ú getur skemmt þér alveg prýðilega, ef þú leggur smásálina
á hilluna í dag.
I.jónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Styddu nú við bakið á þínum nánustu.
Meyjan, 23. ágúst — 22. septeniber.
Þú færð góðar fréttir fyrr en varir.
Vogin, 23. september — 22. október.
Metnaðargirnin er alveg að sliga þig núna.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Tengslin við umhciminn eru ekki sem bezt.
Bofrmaðurinii, 22. nóvember — 21. desember.
Þú ert dálaglegur núna, ef þú heldur ekki striki.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þér er óhætt að slaka á um helgina.
Vafcnsberinn, 20. janúar — 1H. febrúar.
Þú lækkar stöðugt í áliti hjá þeim, sem teljast yfirboðarar
þínir.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Þú átt þess kost að hækka í tign, ef þig lystir.