Morgunblaðið - 30.04.1971, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRlL 1971
13
Frásögn
sjónar-
votta
vestra
gangslaust væri að reyna að
þvo fuglana eins og fólk þar
vestra væri að gera. Við
Torrey Canyon slysið var
reýnt að þvo 8000 fugla og
taiið var um tima að unnt
yrði að bjarga 200 til 300 og
þeir gætu lifað. En eftir síð-
ustú fréttum að dæma virð-
ist enginn þessara fugla geta
liíað í náttúrunni og ástæðan
er sú, að um leið og fuglarnir
eru þvegnir og olían fjarlægð
úr fiðri þeirra, hverfur um
leið það fituefni, sem hindrar
það að sjór komizt inn að
skrokknum. Fuglarnir verða
þungsyndir í sjónum, er f jaðr
irnar halda ekki lengur vatn-
inu frá; þeir skríða i fjörur
og innan tíðar verður þeim
kalt og þeir krókna úr kulda.
Þetta er einmitt að ger-
ast við Djúpið nú, Mik-
ið af þessum fugli er iif-
andi enn og oft þarf ekki
nema sáralítinn olíublett á
fugiinn til þess að hleypa
vatninu inn undir. Sitja þessi
grey á steinum i fjörunni og
reyna að þrifa sig — en það
er vonlaust verk.
'OIíúsorinn liggur sums stað
ar í lögum á ströndinní eins
©g svartbrúnn, límkenndur
massi. Sporrækt verður ef
gengið er í honum og sér þá
í fjörusandinn undir — hann
límist við skó manna.
• AI.I.T I NDIR VEÐRI
KOMIÐ
Haidist veður hins vegar
ekki gott getur mikið slys
gerzt — þá verður stórfelld-
ur fugladauði og getur orðið
óskaplegt vandamál að
hreinsa olíuna. Sú björgunar-
leið, sem kosið hefur verið að
fara, er ekki tímafrekari en
Kortið sýnir
varpstöðvar æðarfugls við ísafjarðardjúp og
strandstað við Amarnes.
að dæla oliunni úr togaranum,
þeir eð svo mrkla undirbúnings
vinnu þarf að framkvæma.
Auk þess er dæling olíu mjög
háð því að veður sé gott.
Hjálmar R. Bárðarson gat
þess að ekki skorti viljann
frá hendi Breta til þess að
hindra oliumengun. Kvað
hann Breta raunar hafa mesta
reynslu i ráðstöfunum gegn
olíumengun.
Dr. Finnur Guðmundsson
sagði í viðtali við Mbl., að
búast mætti við því ef veður
héldist gott að hinir dauða-
dæmdu fugiar yrðu lengi að
drepast. Olian, sem iekið hefði
út, væri þó smáræði í saman
burði við þá olíu sem í togar-
anum er. f>að væri þvi allra
von að veður héldist óbreytt,
svo að skipið haggaðist ekki,
unz unnt verður að gera ráð
stafanir. Ekki kvað dr. Finn-
ur unnt að segja um þann
fugladaúða, sem nú ætti sér
stað, að hann væri stórfelldur.
Hann kvað ágizkunartöiur
þeirra félaga 3000 til 5000
þó láta nokkuð nærri að sinu
áliti.
• ÆÐARVARP í HÆTTU
Mbl. ræddi við Halldór Haf
liðason, bónda i Ögri og spurð
ist fyrir um olíuna. Halldór
sagði að engin oHu hefði sézt
þar enn og kvað hann lognið
síðastliðna þrjá daga hafa
bjargað því. Hins vegar kvaðst
Bjöm Bjarnason, bóndi í Vig-
ur hafa fundið um 70 til 80
fugla með olíu í fiðri, er hann
hefði gengið fjörur eyjarinn
ar i gær. Engin olíubrák sást
þá frá Vigur. Bjöm sagðist
aðeins hafa fundið 3 æðar-
fugla —■ hitt hafi allt verið
svartfugl, lundi og teista. —-
u' Deyjandi langvía leitar skjóls milli steina í fjörunni.
Við óttumst að oiían muni
reka hingað inn til okkar ef
vindátt breytist, sagði Bjöm
og þá er hætt við að allt
blotni í olíu. Varpið hér hjá
okkur hefur gefið árlega um
60 til 70 kg og þegar 4000
krónur fást fyirir hvert kg
sést að töluvert er í húfi hjá
okkur.
1 Isafjarðardjúpi er auk
Vigurs einnig æðarvarp í Æð-
ey, Borgarey, sem er innar-
lega í Djúpinu, Hrútey á Mjóa
firði og í hólmum í Ögri, Ög-
urhólmum og í hóima við
Hvítanes. AUt er þetta æðar
varp í bráðri hættu vegna olíu
mengunar. Þá er lundinn ný-
kominn í Djúpið og er þar
nú svo hundruð þúsunda skipt
ir. Er hann einnig í bráðri
hættu.
Næststærsta æðarvarp á ís-
landi er í Æðey — aðeins
Mýrar í Dýrafirði hafa meira
varp. Mbl. ræddi í gær við
bóndann i Æðey, Helga Þór-
arinsson. Hann sagðist hafa
gengið kringum eynna í gær-
morgun og fundið 30 til 40
fugla — mest þó svartfugl,
en einnig æðarfugl, teistu og
lunda. Engin brák er við eyna
og þar eð svartfugl virðist
hafa farið verst út úr oHunni
og hann heldur sig fjarri landi
— taldi Helgi brákina ekki
vera við landið.
Fyrir fjórum dögum gekk
Helgi fjörur á Snæfjalla-
strönd. Sagðist hann þá hafa
fundið 3 til 4 teistur ataðar
olíu. Lítið er komið af æðar-
fúgli á varplönd enn og held
ur hann sig mikið við útnes
— svo sem eins og við Am-
arnes, þar sem Cæsar strand
aði. Helgi kvað 5 til 6 þúsund
hreiður vera í varpstöðvun-
um i Æðey og þau 10 ár, sem
hann hefði verið þar vestra
hefði hann mest fengið 90 kg
eitt sumar en minnst 70 kg.
Það er því mikið i húfi þessa
daga. — Mér finnast alþjóða-
reglur harla lltils virði —
sagði Helgi, ef ríkisvald í
landi því sem skip strandar
í, getur ekki gert sínar var-
úðarráðstafanir. Helgi sagði
að þegar Notts County strand
aði á Snæfjallaströnd í febrú
ar 1967, hafi verið skilin eftir
í skipinu olía allt fram í júní.
Lét Helgi í ljós mikla óánægju
með framgang þessara má'la.
Þá má geta þess að skipin,
sem koma frá Noregi með
flothylkin eru væntanleg til
landsins um helgina og von-
andi helzt veður gott þar til
sem hingað til eftir þetta
bagalega slys.
- <
Frá slýsstað. Broncoinn fremst, en Volkswagen-öíllinn sést álengd
ar. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)
Enn slys
á Sléttuvegi -
Kringlumýrar-
braut
SLYS varð á gatnamótum Sléttu-
vegar og Kringlumýrarbrautar
um þrjúleytið i gærdag. Volks-
wagen-bíll var á leið austur yfir
gatnamótin í átt að Borgarspítal-
anum og er hann var kominn
yfir á eystri akbrautina skall
Bronco-jeppi á hægri hlið hans.
Ökumaður litia bilsins kastaðist
út úr bílnum, svo og kona, sem
sat við hlið hans. Slösuðust bæði
eitthvað, en farþega í aftursæti
sakaði ekki.
Litli bíllinn stöðvaðist ekki við
áreksturinn, heldur rann af stað
aftur og fór í miklum sveig út
fyrir götuna um 20 til 30 metra
og inn á Kringlumýrarbrautina
aftur að staðnæmdist á miðri
brautinni.
Farþeginn, sem sat við hlið
ökumanns, svo og hann, voru
fluttir í slysadeild Borgarspital-
ans, en ekki var kunnugt um
meiðsl þeirra — en talið var, að
þau hefðu sloppið betur en á
horfðist i fyrstu. Biilinn skemmd
ist mikið.
Vilja Torden-
skjöld heim
SÍDAN Flateyjarbók og Kon-
ungsbók Eddu-kvæða vom af-
hentar Islendingnm hafa þær
raddir heyrzt á Norðurlönd-
nm að Dönum beri að afhenda
Norðmönnum jarðneskar leíf-
ar sjóhetjnnnar Peter Tord-
enskjolds.
1 lesendabréfi í „Berlingske
Tidende“ er á það bent að
Tordenskjold var aðmiráll í
dansk-norska flotanum þegar
Danmörk og Noregur höfðu
sameiginlegan konung. Hvatt
er til þess að lík hetjunnar
verði flutt til dómkirkjunnar
í Þrándheimi þar sem hann
eigi heima en ekki í Dan-
mörku. Þetta sé „eðljleg gjöf
og skylda við Noreg að sýna
þeim þakklætisvott fyrir mik-
il afrek sem Peter Torden-
skjold hafi unnið fyrir Dan-
mörku . . .“
Gerpla
— nýtt íþrótta-
félag í Kópavogi
STOFNAÐ hefur verið nýtt
íþróttafélag, Iþróttafélagið
Gerpla í Kópavogi. Skammstöf-
un félagsins er Í.G.K. Stofnfund
sóttu konur, sem liafa undan-
farna vetur æft rithmiska leik-
fiini og fl. lijá Margréti Bjarna
dóttur í Kópavogi.
1 lögum félagsins er þess get-
ið, að félagið sé opið jafnt körl-
um og konum á öllum aldri. Á
stefnuskrá félagsins er m.a. að
þjálfa fimleika og íþróttir hvers
konar. 1 vor á t.d. að stofna
flokka fyrir badminton, tennis
og skokk.
Á stofnfundi var kosin stjórn
félagsins til eins árs, og var
Margrét Bjarnadóttir einróma
kjörin formaður.
Nánari upplýsingar um félag-
ið verða gefnar í simum 81423
og 42467.
Tólf ára drengur lenti í hakningnnt á fleka út á Skerjafirði í gær.
Flekinn var gerðtir úr tveimur tnnnum, sent lmndnar voru sam-
an með snæri. Hafði flekann rekið um 800 nietra frá landi, þeg-
ar lögregla kont á vettvang. Fórn lögreglunienn í gúnibjörgtinar-
bát út að flekanum og drógu hann í land. Ekki varð snáðaniun
meint af volkimt. (Ljósm. Kr. Brn.)