Morgunblaðið - 30.04.1971, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1971
• * 70 ‘ *
að láta okki skotið breyta neitt
útliti. En ef nú þessi
sami maður, hefur átt önnur
Nimrodskot fyrir. Þá gat hann
æft sig á þeim skotum þangað
til ekki bar neitt á neinu.
— Woodspring er talinn hafa
keypt eitthvert dót, þar sem í
voru nokkur Nimrodskot, á upp
boðinu eftir John Blackbrook,
sagði Jimmy. — En ég bara
gleymdi því alveg eftir að ég
írétti að skotin, sem fundust
eftir Caleb hefðu verið keypt
nýlega.
— Já, það er eftirtektarvert,
sagði Priestley. — í>að, að
Woodspring átti nokkur Nim-
rodskot fyrir, mundi koma
honum til að kaupa sömu teg-
und seinna. Nú skulum við at-
huga bréfmiðann, sem fannst í
kassanum. Það leikur enginn
vafi á uppruna hans.
Hann er rifinn af bréfi, sem
Benjamín skrifaði ungfrú Black-
brook, sem segist hafa rifið bréf
Ið, en man ekki hvar eða hve-
nær.
— Hvernig getur nú vera
þessa miða í kassanum og sekt
Benjamíns komið heim og sam-
an? Það mætti halda því fram,
að Benjamín hefði sett hann
þarna, til þess að greina bróð-
ur sínum, hver sendandinn væri
og til að sanna honum, að ekk-
ert væri bogið við skotin. En
mér skilst, að miðinn hafi fund-
izt á botninum á kassanum.
Hefði Benjamín viljað láta bróð
ur sinn sjá hann hefði hann sett
hann efst í kassann, þar sem
hann sást greinilega. En hefði
nú Benjamín farið að leiða að
sér grun og auk þess að ung-
frú Baickbrook? Yfirleitt finnst
mér þessi bréfmiði benda ein-
dregið á einhvern allt annan
Benjamín.
— En hvernig náði þessi
maður í miðann? Það getum við
ekki sagt um með neinni vissu.
En það er að minnsta kosti vel
hugsanlegt, að ungfrú Black-
brook hafi rifið sundur bréfið
þar sem hún sat við borðið sitt
í leigubókasafninu, og fleygt
snifsunum i bréfakörfuna.
Og þá hefði miðinn auðveldlega
getað komizt i hendur
Woodsprings. Hann hefði, flest-
um mönnum fremur getað þekkt
rithöndina og gert sér ljóst,
hvert gagn mætti hafa af miðan
um.
— Og það, hvernig kassan-
um var komið í bílinn
hans Mowbrays leiðir enn frek-
ar gruninn frá Benjamín. Þið
vitið nú ekki hvenær þetta átti
að hafa gerzt, en þó að likind-
um um 6. ágúst, svo að ekki
skakki meira en viku. All-
an þennan tíma var Benjamin
úti á sjó. Hafi hann sent skotin,
hlaut hann að hafa haft ein-
hvern sér til aðstoðar. Og hafi
þessi hjálpari hans haldið send-
inguna vera meinlausa, þá er
undarlegt, að hann skuli ekki
hafa gefið sig fram. Hins vegar
er hann meðsekur, hafi hann
vitað um innihald sendingarinn
ar. En mundi maður, sem ætlar
að drepa bróður sinn trúa öðr-
um fyrir þessari fyrirætl-
un sinni ? Ég efast um það.
—- En ef við göngum út frá
því, að þarna hafi enginn hjálp-
armaður komið við sögu, verðum
við að álykta, að morðinginn
hafi sjálfur sett kassann inn i
bílinn. Hr. Woodspring á heima
þarna í bænum að staðaldri.
Hann gat verið þarna á flakki í
húsagarðinum, hvenær sem vera
vildi, án þess að vekja nokkra
eftirtekt.
— Sendinguna á grisjuböggl-
inum má skýra á ýmsan hátt.
Benjamín kann að hafa keypt
hann, úr því að skipið hans var
hér statt á þessum tíma. Hann
kann að hafa ætlað grisjuna til
að vinna úr henni sprengiefni,
en hætt við það, af því að hon-
um bauðst annað efni annars
staðar. En þá rís eftirtektarverð
spurning. Kenningin um sekt
Benjamíns hefur, eins og ég hef
þegar bent á, það í för með sér,
að ganga verður út frá einhverj
um aðstoðarmanni. Hvers vegna
notaði Benjamin þá ekki þennan
aðstoðarmann sinn til þess að
hirða fyrir sig grisjuböggulinn?
- Á þessu stigi málsins vil
ég benda ykkur á, að samkvæmt
ykkar eigin sögn átti Benjamín
við engan regluleg bréfaskipti
nema ungfrú Blackbrook. Hún
vinnur hjá Woodspring og er
því í stöðugu sambandi við hann.
Hjá henni gat Woodspring allt-
af fengið að vita, hvað ferðum
Benjamíns leið.
— Nú skulum við athuga tim-
ann frá því að skipið kom til
London og lagði úr höfn aftur,
þann 5. júní. Benjamín hafði
aldrei ætlað sér að fara til
Lydenbridge í það skiptið. Þess
var heldur engin þörf þar eð
ungfrú Blackbrook hafði ætlað
að vera að minnsta kosti nokk-
uð af þeim tíma í Catford hjá
bróður sínum. Er það liklegast,
að Benjamin færi að beina svona
hættulegri sendingu til staðar,
sem hann ætlaði sér alls ekki að
koma á?
— Nei, það virðist nú alls
ekki líklegt, sagði Appleyard. —
En þetta gerði hann nú samt.
Hann bað Woodspring alveg sér
staklega að hirða böggulinn og
koma honum svo áleiðis.
Priestley brosti. —- Það virð-
ist kannski benda eindregið til
sektar Benjamíns, finnst yður?
svaraði hann. Og þar við
bættist svo ákafi Benjamíns að
fá að vita hjá Woodspring, hvort
lögreglan væri búin að komast
að því, hvernig skotin hefðu bor-
izt til Klaustursins. Þér haldið
þvi réttilega fram, að aðeins
hinn seki hefði getað vitað um
tilveru þessa bögguls og leynd-
armálið í sambandi við sending-
una á skotunum. Og það að
Benjamín nefndi þetta við Wood
spring, ætti þá að vera sönnun
á sekt hans. Þar sem þér héld-
uð, að Benjamín væri bara horf-
inn rétt í bili, þá datt yður ekki
í hug að efast um sannfræði
ummæla Woodsprings um viðtal-
ið við hann. Hann mundi ekki
fara að ljúga að yður, þar eð
hinn aðilinn mundi bráðlega
koma á vettvang.
— En það sem við fundum í
morgun hefur breytt málinu al-
gjörlega. Þér vitið nú, að
Benjamín var þegar dáinn, er
Woodspring ságði yður frá við-
tali sínu við hann. Ef Wood-
spring væri þegar kunnugt um
fráfall hans, gat hann auðvitað
sagt yður hvað sem honum datt
í hug, vel vitandi, að aldrei var
Nemendur Varmalandsskóla
Nemendamót Húsmæðraskólans ó Vormalandi
verður haldið sunnudaginn 16. maí 1971. Þátttö ku skal tilkynna eigi siðar en 7 maí til Nönnu
Tómasdóttur, Blönduósi sími 4155, Grétu Finn bogadóttur Reykjavík, sími 30319 og Helgu
Helgadóttur Borgarnesi, sími 7350 og 7201.
Ferð með Sæmundi frá Umferðamiðstöðinni kl. 8 f.h. 16. maí.
Geymið auglýsinguna. NEFIMDIN.
FRÁ
Leikfimiskóla
HAFDÍSAR
ÁRNADÓTTUR
VORNÁMSKEIÐ SKÓLANS HEFST
MÁNUDAGINN 3. MAÍ í ÍÞRÓTTAHÚSI
JÓNS ÞORSTEINSSONAR VIÐ LINDAR-
GÖTU.
Upplýsingar og innrilun í síma 21724.
hægt að afsanna það. Þar af
leiðir, að frásögn Woodsprings
af samtalinu getur verið og er
sennilega upplogin frá rótum.
Ég trúi því trauðlega, að
að Benjamín hafi nokkurn tíma
nefnt við hann böggulinn eða
forvitni sína í sambandi við skot
in. En sú trú okkar, að aðeins
hinn seki gæti vitað um þetta,
er i góðu gildi eftir sem áður.
Woodspring vissi af þessu af
þvi að hann hafði sjálfur sent
böggulinn og komið skotunum
fyrir í bíl Mowbrays.
Hvorki Jimmy né Appleyard
þorðu að hreyfa neinum andmæl-
um, og eftir nokkra þögn hélt
Priestley áfram:
— Nú skulum við athuga,
hvernig á stóð hjá Wood
spring, þegar þettá samtal átti
að hafa farið fram. Caleb Glap-
thorne var dauður og Símon og
Benjamín einir eftir af ættinni.
Woodspring hafði í höndum
samning, sem gerði hann að eig-
anda að turninum, þegar eng-
inn af fjölskyldunni hefði leng-
ur eignarhald á neinu af eign-
inni. Þetta voru vænleg-
ustu samningar, sem hægt var
að búast við af Simonar hálfu,
sem trúði svo mjög á turninn.
En þessi kjör nægðu alveg
Woodspring. Næsta skrefið hjá
honum var að heimsækja
Benjamín um borð í skipinu.
Það er að mínu viti býsna
auðvelt að geta sér til um, hvað
fram hafi farið hjá þeim. Wood-
spring sýndi samninginn og lét
þess getið, að sennilega mundi
hann aldrei taka gildi. Hann
hafði fengið hann sem eins kon-
ar tryggingu fyrir þessum fimm
hundruð pundum, sem var raun-
verulega fyrirframgreiðsla
Símoni til handa. Benjamín hef-
ur sjálfsagt spurt, við hvað
hann ætti með þessu og Wood-
spring hefur þá sennilega hald-
ið fram máli sinu á þessa leið:
— í mesta trúnaði sagði hann
Benjamín, að hann væri búinn
að lesa úr ritningarstöðunum i
biblíunni, og bauðst til að
segja honum leyndarmálið. En
hann gætti þess vel að hafa
skýringarinar eins og honum
sjálfum kom bezt. Hann sagði
Benjamín, að gullið væri falið
innan við járnsveiginn innan í
turninum. En vitanlega hefði
skýring hans geta verið skökk
og því hafði hann ekki nefnt
þetta neitt við Símon, þar er
hvert taugaáfall hefði getað gert
út af við gamla manninn. Það
væri betra að nefna þetta ekki
á nafn í Klaustrinu fyrr en búið
væri að sannprófa það.
Sjálfur gæti Benjamín
hæglega gert tilraunina. Hann
þyrfti ekki annað en saga sund-
ur járnbogann og þá sæi hann
strax, hvort eitthvað annað en
steinn - væri undir honum.
Fy.ndi hann gullið, sem getið
var um í ritningarstaðnum, gæti
hann greitt Woodspring aftur
þessi fimm hundruð pund og
Hrútiirinn, 21. niarz — 19. apríl.
Reyndu að vinna sem bezt með vinum og félögum, svo að hug-
myndir þinar komi að sem beztu gagni.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Þú verður að gjalda fyrir ákvörðun, sem þú hefur tekið, og
ekki verður aftur snúið með.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Hugmyndir þínar virðast mjiig æskilegar. Gjörnýttu þær, meðan
tími vinnst til.
Krabbinn, 21. .iúní — 22. júll
Gleymdu því ekki. að einhver hefur áður flutt þér ófullkomn-
ar fréttir.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
í ljós kemur. að hugmyndir þínar hafa komið að bctra gagni
en þú gerðir þér vonir um. Láttu aðra vita af þessu.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Því meira, sem þú hefur komið til leiðar, þeim mun meiri
gagnrýni hlýturðu.
Vogin, 23. september — 22. október.
Reyndu að finna ástæðuna fyrir lægðinni, sem þú ert í og losa
um hana.
Sporðdrekinn, 23. októbor — 21. nóvember.
Reyndu að fá sem flesta sálufélaga í lið með þér_
Bog;niaðiirinn, 22. nóvember — 21. desember.
Reyndu að skýra skoðanabræörum þínum frá framvindu mála.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Þú hefur gengið svo vel frá skipulagi einkainála og annarra
málefna, scm þú fjallar um þessa dagana að hætta er á smáárekstrum
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Furðulegt ástand er yfirvofandi, og það fyrr en varir.
Mskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Sambönd þín breytast, og styrkjast jafnvel. Loforð verða frem
ur efnd en venjulega.