Morgunblaðið - 30.04.1971, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1971
31
MIKILL ÁHI GI II.íA
STÚLKTJNXJM
Geysilegur áihugi er nú hjá
dðnskum stúlkum á knattspyrnu
iðkunum. Fyrsta Danmerkur-
meistaramótið í knattspyrnu
kvenna utanhúss er að hefjast
og hafa um 300 lið tilkynnt þátt
töku. Verður tekin upp deildar-
skipting, og forleikir látnir ráða
því í hvaða deild liðin hafna.
Eitt mesta vandamálið sem við
er að etja í sambandi við mót
þetta er hversu fáir dómarar
vilja dæma kvennaleiki. Aðeins
fjórar stúlkur hafa tekið dóm-
arapróf, en knattspyrnudómara-
félagið hefur ekki viljað viður-
kenna þær.
114. LANDSLEIKURINN
Ungverjaland sigraði Austur-
ríki í landsleik í knattspyrnu
sem fram fór í Austurríki ný-
lega með tveimur mörkum gegn
engu. 35 þúsund áhorfendur
fylgdust með leik þessum, sem
þótti heldur slakur. Bæði mörk-
in skoraði Bene fyrir Ungverj-
ana i síðari hálfleik, eða á 70.
og 84. minútu. Gerði hann síð-
ara markið eftir að markvörð-
ur Austurríkismanna hafði sent
boltann fyrir fætur honum, þar
sem hann var í oþnu færi. Þetta
var Í14. landsleikur þjóðanna í
knattspymu. Ungverjar hafa
sigrað 58 sinnum, Austurrikis-
menn 23 sinnum og 33 sinnum
hefur orðið jafntefli.
PELE OG BARDOT
Brasilíska knattspyrnukapp-
anum Pele var fagnað sem þjóð-
hetju er hann kom með liði sínu
Santos, til Parísar fyrir skömmu
en þar keppti Santos við úrvals
lið úr þremur félögum: St. Eti-
enne, Olympique og Marseille.
Strax eftir komuna til Parísar;
var Pele ekið í litilli, opinni
bifreið niður eftir aðalgötunni í
París, Champs-Elysées. Stöðvað-
ist þá öll umferð þar og tug-
þúsundir manna streymdu út á
götuna og reyndu að koma auga
á knattspyrnuhetjuna. Fjöldi
manna reyndi að stökkva upp á
bifreið Pele og kyssa hann og
var Pele óspar á kossana á móti.
„Lifi Pele,“ hrópaði mannfjöld-
inn, en hann kallaði aftur á
móti „Lifi Frakkland “
Fánar Frakklands og Kongós
héngu í flestum trjám við
Champs-Elysées meðan á sigur-
för Peles stóð. Ástæðan var sú
að fyrr um daginn hafði forseti
Kongó, Joseph Mobuto, sem var
í opinberri heimsókn I Frakk-
Inadi, ekið sömu leið, en komu
hans var veitt sáralítil athygii
miðað við þá sem Pele vakti.
Leikur Santos og frönsku lið-
anna var leikinn í góðgerðar-
skyni og hófst með þvi að hin
fræga þokkagyðja Birgitte Bard
ot gekk út á knattspyrnuvöil-
inn, klædd niðþröngum hvitum
buxum og gulri peysu. Heilsaði
hún knattspjrrnugörpunum og
tók siðan upphafsspyrnu leiks-
ins. Hvort sem það var hún
eða eitthvað annað sem truflaði
garpana, var það víst, að þeir
sýndu engin snillibrögð í þess-
um leik, sem lauk án þess að
mark væri skorað. ”r.r þá höfð
stutt vítasþyrnukfppm og
skyldu þrjár spyrnur teknar á
hvort mark. Frakkamir skor
uðu úr öllum sínum spyrnum, en
aðeins ein spyrna Brasilíumann
anna lenti í netinu og auðvitað
var það Pele sem hana átti.
HÁTT BOÐ í EUSEBIO
Franska liðið Olympique Mars
eille hefur boðið svimandi háa
upphæð í „svörtu perluna'* Euse
bio. ■ Ekkert hefur verið ákveð-
ið um hvort hann fer frá Bene
fica, en sjálfur hefur kappinn
látið hafa eftirfarandi eftir sér:
„Það er ekki ósennilegt að ég
undirriti samning við Olympi-
que, eftir að lið mitt hefur leik
ið við það í París í Maí. Tilboðið
er freistandi, en ég verð að
ræða við framkvæmdastjóra
Benefica, áður en ég get tekið
endanlega ákvörðun."
Olympique hefur fyrir tvo út-
lendinga: Roger Magnusson frá
Svíþjóð og Skoblar frá Júgó-
slavíu.
BÚLGARÍA VANN
GRIKKLAND
Búlgaría sigraði Grikkland
með 1 marki gegn engu í lands-
leik í knattspyrnu sem fram fór
í Aþenu. Markið var gert af mið
herja búlgarska liðsins Vasilev,
i siðari hálfleik.
SVÍÞ-IÓÐ SIGRAÐI
Svíar sigruðu í sinum riðli í
Evrópumeistaramóti unglinga í
knattspyrnu og komast því í
lokakeppnina er fram fer i
Tékkóslóvakíu 20. til 31. maí.
Sigruðu Svíar Finna með 6 mörk
um gegn 1 og Norðmenin með 3
mörkum gegn engu Norðmenn
sigruðu svo Finna með tveimur
mörkum gegn engu.
LUXEMBURG SIGRAÐI
Luxemburg sigraði nýlega
Austurríki (áhugamenn) i lands
leik I knattspyrnu með 1 marki
gegn engu. Leikur þessi var lið-
ur i undankeppni Olympíuleik
anna. Markið gerði Dusier eftir
8 mínútna leik, en áður hafði
Luxemburg misnotað víta-
spyrnu.
MALI — ALSÍR
Mali og Alsir gerðu jafntefli
2-2 í síðari leik liðanna í undan
keppni Olympíuleikanna. Fyrri
leikinn vann Mali 1-0.
HÆTTUR AÐ LEIKA AF
ALVÖRU
— Ég hef enga löngun til þess
að vera áberandi og fá myndir
af mér í blöðunum, sem sýna
mig alilt öðru visi en ég er, sagði
Palle Nielsen, þegar rætt var
við hann um þá ákvörðun hans
að segja skilið við handknatt-
leiksíþróttina. Nielsen hefur
löngum þótt sérstæður persónu
leiki, og gert ýmislegt til þess
að vera öðruvísi en aðrir.
Hann er hár- og skeggprúður
með afbrigðum og klæðist venju
lega í hippabúning. Vakti hann
t.d. mikla athygli í mjög fínni
veizlu sem haldin var að lok-
inni heimsmeistarakeppninni í
París í fyrra, þar sem hann
mætti í röndóttum buxnm, sem
hann hafði prjónað sjálíur, í
vesti, sem var mörgum númer-
um of lítið og með miklar perlu
festar um hálsinn.
, — Fyrir nokkrum döigum þeg
ar mótorhljólið mitt bilaði, þeg-
ar ég var á leiðinni í vinnu,
tók bifreiðastjóri mig upp í og
sagði m.a. við mig, sagði Palde:
— Þú líkist venjuilegum manni.
Með því að horfa á þiig í sjón-
varpinu hafði óg fenigið allt aðra
hiugmynd um þig.
Palle Nielsen — furðufugl í
handknattlei knuni.
— Ég heif alltaf haft mjög
gaman af því að leiika hand-
knattleik, sagði PaMe, en kröf-
urnar eru orðnar mjög miklar, og
óg á fjölþætt áhugamál, sem ég
þarf iíka tima til þess að
sinna. Þess vegna hef ég nú
ákveðið að hætta að leika af
alvöru, en vona að ég fái taaki
færi tii þess að bregða mér í
búning öðru hverju og leika
mér til gamans.
DANMÖRK — FÆREYJAR
Svo sem kunnugt er hélt
danska handknattleikslandsliðið
til Færeyja, eftir að það hafði
lokið landsleikjum sínum hér-
lendis á dögunum. Lék það einn
leik við „landslið" Færeyinga
og sigraði með 24 mörkum gegn
8. Staðan í hálfleik var 14-5.
Mikill áhugi var á leik þessum
i Færeyjum og horfðu um 1100
manns á hann. Mörk Dananna
gerðu: John Hansen 5, Iwan
Christiansen 5, Keld Andersen
4, Jörgen Heidemann 3, Jögen
Frandsen, Klaus Kaae, Claus
From 2 hver og Bent Jörgen-
sen 1. Fyrir Færeyjar skoruðu:
Sverri Jacobsen 2, Vagnur Mich
elsen 2 og Hanus Joensen 2.
HEIMSMEISTARAMÓT
STÚDENTA
Heimsmeistaramót stúdenta í
handknattleik er nú nýlega lok
ið í Tékköslóvakíu. Sigruðu
Rússar í úrslitaleik við Tékka
20:14 (8:5). Rúmenar urðu í
þriðja sæti, Spánverjar í fjórða,
Júgóslavar í fimmta, Pólverjar i
sjötta, Svíar í sjöunda og Frakk
ar í áttunda.
ALVEG VIÐ HEIMSMETIÐ
Sænski sundgarpurinn Gunn-
ar Larsson varð tvöfaldur
sigurvegari á bandaríska meist
aramótinu, sem fram fór í Was-
hington. Sigraði hann í 400
yarda fjórsundi á 4:01,5 mín,
en það er aðeins 1 sek. lakari
tími en heimsmet Gary Hall er á
þessari vegatengd og svarar til
beti'i tima en Evrópumetið er i
Gunnar Larsson — einn frenisti
400 metra fjórsundi. Synt var i
25 yarda laug, en bezti tími sem
Larsson hefur náð í þessari
grein í 50 metra laug ér 4:36,2
min., og er það jafnframt
Evrópumet.
Larsson var einnig nálægt
heimsmetinu í 200 metra fjór-
sundi sem hann synti á 1:53,4
min. Frábær árangur náðist í
mörgum öðrum greinum á þessu
sundmóti og má nefna, að í 500
yarda skriðsundi sigraði John
Kinzella, USA, á 4:28,8 mín., í
200 yarda skriðsundi sigraði
Brian Job, USA, á 2:04,0 mín.,
og í 100 yarda skriðsundi sigr-
aði Mike Stamm, USA, á 51,2
sek.
EVRÓPUMET í FLUGSUNDI
Austur-þýzki sundmaðurinn
Roland Matthes setti nýlega
Evrópumet í 100 metra flug
sundi, sem hann synti á 56,1 sek.,
Eldra metið átti Hans Lampe,
V-Þýzkalandi og var það 57,5
sek.
LANDSKEPPNI
Svíar sigruðu Tékka í lands-
keppni í sundi, er fram fór í
Prag með 162 stigum gegn 130
(Karlar 89-57 og konur 73-73).
ÞRIGGJA LANDA KEPPNl
Um páskana fór fram þriggja
landa sundkeppni í Budapest og
mættust þar lið frá Ungverja-
landi, V-Þýzkalandi og Svíþjóð.
Sigurðu Ungverjamir með 260
stigum, Þjóðverjamir hlutu 229
stig og Svíar 199 stig. Mjög góð
ur árangur náðist í mörgum
greinum og má nefna sem dæmi,
að í 100 metra bringusundi sigr-
aði Gunther, V-Þýzkalandi á
1:09,6 mín., í 200 metra skrið-
sundi sigraði Sven von Holst,
Svíþjóð, á 2:01,2 mín., i 100 m
skriðsundi sigraði Szentirmai,
Ungverjalandi á 54,3 sek., og í
100 metra baksundi sigraði
Cseh frá Ungverjalandi á 1:01,4
mín. Svíar sigruðu tvöfalt i
einni grein 1500 metra skrið-
sundi, þar sem Anders Bellbring
varð fyrstur á 17:05,2 mín., og
Per Hagström annar á 17:24,0
mín.
Sænska stúlkan Gunnilla
Jonsson sigraði i tveimur grein
um: 400 metra skriðsundi á
4:48,5 mín., og 200 metra skrið-
sundi á 2:15,4 mín.
EVRÓPUMET
Á sundmöti í Budapest bætti
Andrea Gyarmathy frá Ung-
verjalandi Evrópumetið í 100
metra baksundi kvenna í 1:06,5
mín.
HEIMSMET f 800 rnetra
SUNDI
Nýlega sétti Ástralíumaður-
inn Graham Vubdeatt heimsmet
i 800 metra skriðsundi á móti er
sundmaður heims
fram fór í Sidney. Synti hann á
8:28,6 mín.
ÁTTA MET Á NORSKA
MEISTARAMÓTINU
Átta ný norsk sundmet voru
sett á norska meistaramótinu,
sem fram fór í Alta fyrir
skömmu, auk þess sem góður ár
angur náðist í flestum grein-
um, Helztu úrslit í mótinu urðu
þessi:
4x100 m. bringusund kvenna:
Sveit TSLK 5:36,7 mín. (met)
4x100 metra skriðsund karla:
Sveit BSC 3:52,4 mín.
4x100 metra fjórsund karla:
Sveit BSC 4:21,9 min.
800 m. skriðsund kvenna:
Trine Krogh 9:58,6 mín. (met)
200 m. skriðsund karla:
Carsten Wangsmo, 2:02,7 mín..
200 m. bringusund kvenna:
Eva Bruusgaard, 2:53,9 mín.
100 m. bringusund karla:
Freddy Jacobsen 1:11,3 mín.
200 m. fjórsund kvenna:
Trine Krogh 2:34,7 mín.
100 m. baksund kvenna:
Turid Stien 1:14,6 mín.
100 m flugsund karla:
Atle Melberg 1:03,0 mín.
4x100 m skriðsund kvenna:
Sveit Kirkens 4:28,7 mín.
4x100 m bringusund karla:
Sveit OI 4:58,0 mín (met).
800 m skriðsund karla:
Haakon Iversön, 8:46,9 mín.
200 m skriðsund kvenna:
Trine Krogh 2:15,8 mín.
(met).
100 m bringusund kvenna:
Eva Bruusgaard, 1:20,9 mín.
200 m bríngusund karla:
Freddy Jacobsen 2:35,9 mín.
(met).
100 m flugsund kvenna:
Trine Krogh 1:11,5 mín.
200 m fjórsund karla:
Atle Melberg 2:20,3 mín.
100 m baksund karla:
Reidar Lorentzen 1:06,2 mín.
LANDSKEPPNIR
Auk þess sem Skotar heyja
landskeppni í sundi við Islend
inga á sumri komanda keppa
þeir einnig við Norðmenn og
Dani í Edinborg, dagana 7.—8.
maí, og verður lið þeirra í þeirri
keppni að Wigmestu leyti skip
að sama sundfólkinu og keppti
hér í Reykjavík s 1. sumar.
SÆKJA UM
EVRÓPUBIKARKEPPNINA
Danska sundsambandið hefur
sótt um að fá að halda C-riðil
í Evrópubikarkeppni kvenna I
sundi, en keppni í honum á að
fara frám 28. og 29. ágúst n.k.
Sviss hafði áður fengið leyfi til
að halda þennan riðil, en dreg-
ið sig til baka. Noregur hefur
sótt um leyfi til þess að sjá um
framkvæmd á C-riðli i karla-
keppninni.