Morgunblaðið - 09.05.1971, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAl 1971
5
loks tekui' að rofa til og ákveð
ið er að stofna byggðahverfi i
hluta af hreppnum, er enn far-
ið að rœða flugvallargerð og
þar með að fæla fólk frá að
setjast þar að.
HÁVAÐANN SKULU
BEYKVÍKINGAR OG
KÓPAVOGSBtFAR ÁFRAM
HAFA
Flugvellir eru nauðsynlegir
en eigi að siður vandræðafyrir
brigði í byggð. Því er i sjálfu
sér ekki að undra, þótt Reyk-
vikingar, Kópavogsbúar og ann
að fólk í nágrenni Reykjavíkur
flugvallar vilji losna við þau
óþægindi, sem honum fylgja.
Þeim verður hins vegar ekki af
létt með flugvallargerð á Álfta-
nesi. í skýrslu B. L. Hellmans,
flugvallarverkfræðings ICAO,
sem birt er sem fylgiskjal i áliti
flugvallarnefndar, eru þessir 5
ókostir taldir við flugvöll af X
tilhögun á Álftanesi, þ.e. í Bessa
staðanesi (leturbreytingar mín-
ar):
„Ókostir:
1. Óheppileg lega aðal (blind-
- aðflugs) brautar með hlið-
sjón af hindruninni af út-
varpsstöð á Vatnsenda.
2. Þverbraut verður að liggja
út i Lambhúsatjörn (ef hún
á að vera lengri en 1400 m),
og sú fylling er tiltöiulega
dýr.
3. Takmarkað athafnasvæði fyr
ir flugstöö og flugskýli.
4. Hávaðasvæði aðalbrautar
nær yfir íbúðahverfi í Kópa-
vogi.
5. Hávaðasvæði þverbrautar
nær yfir miðbæjarsvæði
Reyk,javíkur.“
Enn skulu Kópavogsbúar
hafa hávaðann og enn skal mið
bærinn í Reykjavík hafa hávað
ann, þar á meðal Alþingi, en ná
lægðar Alþingishúss við Reykja
víkurflugvöll hefur verið getið
sem einnar af ástæðunum fyrir
því að leggja ætti þann flug-
völl niður. Breytingin er sú, að
nú skal ekki einungis skrifstofa
þjóðhöfðingjans í Alþingi vera
á hávaða- og hættusvæði, held
ur skal svo frá gengið, að það
nái til forsetasetursins einnig,
og gildir þá einu, hvaðan vind-
urinn blæs.
Að sjálfsögðu mætti draga
verulega nú þegar úr hávaða á
Reykjavikurflugvelli með því
að banna allt þotuflug um völl-
inn. Það var óþarfi að leyfa
nokkurn tímann, að þota Flug-
félags íslands lenti þar (nema
þá í sérstakri nauð, en önnur
flugfélög virðast þó blessunar
lega laus við að þúrfa á Reykja-
vikurflugvelli að halda fyrir
þotur sínar). Ef félagið var þess
ekki umkomið að gera þotu sína
út að öllu leyti frá Keflavikur-
flugvelli, var það heldur ekki
fært um þotuflug, og þá hefði
ekki átt að veita því þá fjárhags
legu fyrirgreiðslu um almanna-
fjármuni, sem gert var. En óska
barnið hafði verið tekið á brjóst
og það virðist vera búið að
sjúga sig fast. Ráðuneytið getur
þess sem sé í yfirlýsingu sinni,
að flugvöllur á Álftanesi sam-
kvæmt X tilhögun „myndi nægja
minni gerð af þotum þ.á.m.
þotu þeiiTÍ, sem Flugfélag ís-
lands h.f. nú á“ (Leturbreyting
mín). Eðlilega er fjárhagsleg
ábyrgð ríkisins á afborgunum
þotunnar ofarlega í huga en var
ekki ráðuneytið að ræða um
hugsanlega skipan þessara mála
■eftir 15 ár í sömu andránni? Á
hve mörgum árum er venja að
afskrifa svona þotur? Elf sér-
stakan flugvöíl þarf vegna inn-
anlandsflugs nær þéttbýlis-
kjarnanum við Faxaflóa en
Keflavíkurflugvöllur er, þá
þarf hann ekki að vera fyrir
flugvélar af öðrum gerðum en
þeim, sem notaðar eru milli
þess flugvallar og annarra á
Iandinu. Meira rými þarf þó
vegna afgreiðslu, verkstæða, æf
ingarvéla og þarfa hinna gagn-
legu smáflugfélaga.
ANDVARALEYSI
GAGNVART
B Y GGING AFRAMK V ÆMD-
UM I REYK.IAVÍK
Reykjavikurflugvöllur hefur
nægt fyrir innanlandsflug. Nú
er talað um, að til þess kunni
að koma, „að ekki þyki gerlegt"
að halda honum opnum, og
hverjar eru áistæðumar? Ráðu-
neytið segir, að hann „sé að
ýmsu leyti takmarkaður, aðal-
lega vegna byggingafram-
kvæmda í nágrenni flugvallar-
ins síðari ár“. Það talar um
„andvaraleysi" að hafa þá ekki
tiltækt land undir flugvöll, þeg-
ar að þessu kynni að koma. 1
skýrslu flugvallarnefndar er
þess m.a. getið sem ástæðu fyr-
ir þvi að stefna eigi að því að
leggja Reykjavikurflugvöll nið-
ur, að væntanlégt ráðhús við
Tjörnina muni tefla öryggi flug-
vallarins í hættu. Það er ekki
sama, hver ætlar að byggja og
hvar á að byggja. Á Álftanesi
var sett bann við þvi, að fólk
fengi að koma sér upp þaki yfir
höfuðið, og þá m.a. með tilliti
til þess, að borgaryfirvöld
Reykjavíkur kynnu einhvern
timann að láta verða af því að
reisa ráðhús við Tjörnina,. Það
er rétt, að þrengt hefur verið
að Reykjavikurflugvelli hin síð
ari ár, og skipulagsyfirvöld
Reykjavikur vilja vafalaust,
þegar í óefni er komið, velta
óþægindunum af flugvelli yfir á
aðra, þótt ekki hafi hingað til
þótt stórmannlegt að sópa frá
eigin dyrum yfir til nágrann-
ans. Hefur ekki andvaraleysi
einmitt átt sér stað gagn-
vart byggingaframkvæmdum í
Reykjavík og hver ber ábyrgð
á þvi? Eru það skipulagsyfir-
völd og borgarstjórn Reykja
vikur? Er það skipulagsstjórn
ríkisins og skipulagsstjóri? Er
það yfirstjórn flugmála í land-
inu? Eitt er víst, það eru ekki
Álftnesingar.
F.IARLÆGÐIN YFIR
SKER.IAFJÖRÐ
I skýrslu B. H. Hellmans, flug
vallarverkfræðings, sem áður er
vitnað til, segir svo um kosti
flugvallar á Álftanesi af X-gerð:
„Kostlr tilhögunar X.
1. Hlutfallslega hátt notagild
með hliðsjón af vindi.
2. Ltmdið er að mestu í ríkis
eign.
3. Bessastaðir eru allvel utar
flugvallarmarka."
Rétt er að líta nánar á þessi
atriði. Miðað við Reykjavíkur
flugvöll er nú veðurfarið tæp
ast stórum frábrugðið. Fjarlægð
in yfir Skerjafjörð frá brautar
enda hvorrar brautarinnar sem
væri í Bessastaðanesi að braut
arenda Reykjavíkurflugvallar
sem liggur út að Fossvogi, er
t.d. heliningi styttri en fjarlægí
in frá hafnarmynninu í Reykja-
vík að sama brautarenda
Reykjavíkui-flugvallar. Tækni
legur munur er varla mikill á
þvi, hvorum megin Skerjafjarð
ar flugbrautir liggja, og sízl
minnkar slysahætta og hávaði í
þéttbýlinu við það, þótt flug-
brautirnar yrðu í Bessastaða-
nesi og skurðpunktur þeirra
færðist frá því sem nú er um
minna en þrjá km i áttina að
hinni 25 þús. manna byggð i
Kópavogi, Garðahreppi og Hafn
arfirði. Reykjavik yrði eftir sem
áður í næsta nágrenni.
ATHUGUN Á
KAPELLUHRAUNI
Aðrir staðir en Reykjavik og
Álftánes við innanverðan Faxa-
flóa, sem helzt hafa komið til
álita undir flugvöll, eru Garða-
hraun og Kapelluhraun (Al-
menningur). Hugmyndin um
flugvöll i Garðahrauni var kveð
in niður með einni rökfastri
blaðagrein. Flugvallarverkfræð-
ingar hafa talið, að frá flug-
tæknilegu sjónarmiði væri Kap-
elluhraun lakara en hinir þrír
staðirnir, en þeir hafa ekki tal-
ið það óhæft. Því má líka hver
trúa, sem vilí, að svo þrengi að
um aðflug og svo misvindasamt
sé þar, að lakara sé en helztu
flugvellir annars staðar á land-
inu, sem þó þykja nothæfir.
Ráðuheytið segir, að þar yrði
flugvallargerð mjög ódýr, að
flugvallarstæðið sé í eigu ríkis
stofnunar og enn fremur, að
lega Reykjanesbrautar (Kefla-
víkurvegar), staðsetning mann-
virkja i Straumsvik og há-
spennulínan þangað frá Búrfelli
hafi m.a. verið „ákveðin með
hliðsjón af því, að ekki væru
skertir möguleikar á flugvallar-
gerð i Kapelluhrauni i framtíð-
inni". Þctta ætti ráðuneytið að
láta nægja t.il þess að falla al-
gjörlega frá flugvallargerð á
Álftanesi eins og gert var i
Garðahrauni (sem raunar er
hluti af hinu gamla Álftanesi).
Þá er sagt, að talið sé, að nota-
gildi slíks flugvallar í Kapellu-
hrauni, miðað við Reykjavík og
sama aðflugsbúnað, væri allt að
11% minna. Væri nú ekki hægt
að htigsa sér, að flugvélarnar
notuðu Keflavíkurflugvöll í
þeim tilvikum, þegar lendingar-
aðstaða væri slæm, eða má alls
ekki nefna hann í þessu sam-
bandi? Þó rekur ýmsa minni til
þess, að þegar flugvallarnefnd-
in var skipuð, hafi hún átt að
athuga flugvallarmál Suð-Vest-
urlands, en ekki Reykjavíkur
eingöngu. 1 meðferð nefndar
innar er það þó Reykjavík ein,
sem hún virðist hafa í huga. Ef
til vill er það þess vegna að
ekki er minnzt á þéttbýlið suður
með sjó og hvað því hentar.
Ef flugvallargerð í Kapellu-
hrauni kemur til greina þarf þó
nauðsynlega að kanna til hlítar
áður, hvort hann ylli hávaða í
***.*■» r.i
mmpmt
Álafoss gólfteppi
í TollstöÓina... hversvegna?
Hnanyyu. Til þess liggja góð og gíld rök.
þeirra þekkið þér þegar, önnur e.
Sum
t. v. ekki.
Tökum dæmið um „Innovation" vöruhús-
ið i Brussel. Það þrann fyrir fjórum árum.
Fjöldi fólks týndi lífi i brunanum. Husið
hefur verið endurreist og opnað á ný -
en nú eru menn reynslunni rikari. Öll gólf
þess - á fimm hæðum - eru lögð al-
ullarteppum.
Ástæðurnar eru einkum þrjár:
1. Eldmótstaða ullar er mikil vegna hins
háa íkveikjustigs hennar.
2. Myndun staðbundins rafmagns ér lítil
i alullarteppum.
3. Alullarteppi er auðvelt að hreinsa og
sparast þvi stórfé i ræstingarkostnaðí.
Þegar þessa er gætt, auk þess
sem þegar er vitað um endingu og útlit
Álafoss teppanna, skal engan undra þótt
þau séu valin á stóra gólffleti, jafnt sem
smáa, Þau eru Wilton-ofin úr alull.
ÁLAFOSS
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2, REYKJAVÍK. SÍMI 22090
umboðsmenn um allt land