Morgunblaðið - 14.05.1971, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐH), FÖSTUÐAGUR 14. MAl 1971
í KVIKMYNDA
HÚSUNUM
Frábær, ★★★ mjög góð,
★★ RÓð, ★ sæmileg,
léleK.
Sig. Sverrir Björn Vignir Sæbjörn
Pálsson Sigurpálsson Valdimarsson
Nýja bió
Kvæntir
kvennabósar
Viðskiptafrömuður einu hlustar
af andagt á kunningja sinn lý»i
refilstigum framlhjáhaldsina.
Hann sýnir loks áhuga á því að
reyna þessa iþrótt af eigin raun.
en áður en svo má verða þarf
hann að ganga í gegnum harðan
skóla og leysa ýmsar þrautir,
sem kunningi hans leggur fyrir
hann. Eftir langa mæðu er hann
reiðuíbúinn til framkvæmda en
þá gerast ýmsir válegir atburðlr.
I aðalhlutverkum Waiter Matthau
og Robert Morse Leikstjóri Gene
Keliy.
★ Kvæntir kvennabósar: —
Fremur snauð glysmynd, —
bæðt kvikmyndalega og efn-
islega, nema hvað sumar
dæmisögurnar eru nokkuð
smellnar. Gene Kelly hefðt
mátt gera allmiklu betur
sem leikstjóri. Hinn væmni
endir kippir öllum rökum und
an því, sem áður var gengið
í myndinni.
★ Eg hafði vænzt raeiri til-
þrifa af samvinnu Kelly og
Matthau. Þeir þræða báðir
troðnar slóðir en meðhöndl-
un efnisins er fjarska amer-
ísk og myudin sjaldan veru-
lega skemmtileg.
★★ Kennslustundir í fram-
hjáhaldi eru nýstárlegt efni í
gamanmynd, og hefur reynzt
leikstjóranum ágætlega hand
bært. Þá er Walther Matthau
í essinu • sínu, en hann er
vafalaust einn bezti gaman
leikari Bandaríkjamanna í
dag. Þá koma einnig fram
fjölmargir aðrir ágætisleik-
arar, og standa sig flestir
með prýði. Góð skemmtun.
Gamla bió
Útsmoginn
bragðarefur
Útamoginn bragðarefur situr 1
fangelsi fyrir tilverknað tölvu,
sem kom upp um kauða. Um
leið og hann losnar hyggtw hann
á hefndir, ræðst í vinnu hjá
tölvufyrtrtæki og með klókind-
um og heppni tekst honum að
finna veilu 1 kerfinu með arð-
bærum árangri. Hann á þó ekki
síðasta orðið, því að eiginkona
hans slær hann gjörsamlega út í
klókindum. í aðalhlutverkum eru
Peter Ustinov (sem einnig hefur
samið handritið með IraWallach),
Maggie Smith, Karl Malden og
Bob Newhart. Letkstjóri Eric
Till.
★★ Lífiegri leikstjóm en sézt
hefur í mörgum öðrum form-
myndum. Fjörleg afþreying-
armynd, full af græskulausu
gamni. — ,,Mynd fyrir alla
fjölskylduna".
★★★ Óvenjuleg og kyrr-
lát brezk kímni svífur yfir
vötnunum í þessari mynd.
Ustinov hefur sjaldan leikið
betur en nýtur afbragðs lið-
veizlu Maggie Smith, Mald-
ens og síðast en ekki sízt
Bob Newharts.
★★ Oft bráðskemmtileg sat-
íra um vélarafmánina, sem
bráðum fer að sjá fyrir okk-
ur — rafmagnsheilann. Sem
betur fer virðist hún þó
ekki enn sjá við bragðaref-
um á borð við Peter Ustin-
ov, sem í þessari mynd sýn-
ir einn bezta gamanleik aem
ég hef lengi séð. Aðrir leik
arar skila' sínum hlutverkum
með ágætum.
Laugarásbíó
Harry Frigg
Harry Frígg er I einkastríði við
metorðatign hersins meðan aðrir
berjast á vfgvöUum síðarl heims
styrjaldarinnar, og hiýtur því að
gista herfangelsí fyrir að afngjta
herþjónustu. Sérhæfir hann sig
i að strjúka úr fangelsum og
þegar myndin hefst strýkur hann
I þrítugasta sinn Á sama tíma
eru fimm einnar stjömu hershöfð
ingjar bandamanna teknir fastir
af ítalska hernum
Tilraunir þeirra tU stroks eru
meira 1 orði en á borði, Terstjóm
tn dubbar Harry Frigg upp f 2ja
stjörnu hershöfðingja og gertr
hann út ttl að kippa málunum
1 lag.
Formföst framleiðsla, þar
sem hvergi örlar á frumleg-
heitum. Paul Newman, sem
gerður er að tveggja stjörnu
hershöfðingja í myndinni á
þessar tvær stjörnur fyllilega
skilið fyrir leik sinn, en
myndin á því miður enga.
★ ★
Þetta er heldur ófrumleg
gamanmynd og að ýrosu leyti
andlega skyld Cool Hand
Luke (einnig með Newman),
þó að lakari sé. Gamanið er
græskulaust, en gildi hennar
er fólgið í afbragðsleik New
mans og bráðskemmtilegri
persónusköpun aukaleikar-
anna. Dágóð afþreying.
★ Hvert stefnirðu Paul
Newman? Hvað fær þig til
þess að leika í mynd á borð
við þessa? Hún er þér engan
veginn samboðin. Andlaus,
bragðMtill og gefur hvergi
tækfæri til að sýna hæfileika
þína. Þú ætlar vonandi ekki
að fara sömu leið og Peter
Sellers, Brando og fleiri góð-
ir menn — láta myndir á
borð við þessa drepa þig?
Hafnarbíó
Sjálfskaparvíti
Stephan Rojack, þekktur sjón-
varpsmaður, kemur í íbúð konu
slnnar, sem er veizlu- og drytókju
sjúk en forrík heimskona. Hún
er nýkomin úr svallferð um Evr-
ópu en þau Rojack hafa ekki bú-
ið saman í mörg ár. Hann vili
skilnað en hún verður æf og
neitar. Kemur til slagsmála og
hún feUur fram af svölum.
Rojack hefur deilt harkalega á
iögregluna fyrir dugleysi hennar
í baráttu gegn Mafíunnl og
henni gefst nú kærkomið tækí-
færi að klekkja á honum —
gruna hann um morð. Á þessum
örlagatíma rifjar Rojack upp
gömul kynni við söngkonuna
Cherry, sem gengið hefur Maf-
íunni á hönd. Frelsi beggja er
heft en þau reyna að losna úr
viðjunum til að sameinast. Leik-
stjóri Robert Gist, — Janet Leigti
og Stuart Whitman I aðaihlut-
verkunum.
★ Byltingin étur börnin sín er
sagt, en það gerir draumur-
inn ameríski einnig — sam-
kvæmt sögu Mailers. f mynd
inni er ráðizt á fremur veik-
an hátt á efnishyggjudraum-
inn, valdið og fjölmiðlana.
Efnið of yfirgripsmikið til
að því séu gerð viðhlítandi
skil.
★ Mynd þessi er satt að
segja ekki ýkja merkileg, en
þó bregður fyrir á köflum
kaldranalegri þjóðfélags-
ádeilu Mailers. Á meðan
Elanor Parker nýtur við er
myndin harkaleg og mlskunn
arlaus, en það varir ekki
lengi, því miður. Og ekki
skína beinlínis leiklistargáf-
urnar af Stuart Whitman.
Háskólabíó
Makalaus
sambúð
Felix Unger, (Jack Lemmon),
fyllist svo miklum lífsleiða eftir
skilnað vtð konu sína, að hann
hyggst fyrirfara sér. Honum snýst
þó hugur er á hólminn er komið
og leitar á náðir kunningja 3Íns.
Oscar Madison (Walther Matthau)
sem er nýskilinn. Hefst þá hin
„makalausa samibúð.‘,
Felix er kattþrifinn og heima-
kær, en Oscar lætur vaða á súð-
um. Fara þeir því fljótlega í
taugarnar á hvor öðrum. Fyrst
sýður þó upp úr er Oskar hefur
boðið heim tveimur systrum og
hyggst' deila nærveru þeirra með
sambýlismanni sínum. En þær
eru ekki fyrr búnar að koma sér
fyrir en Felix fer að rekja fyrir
þeim raunir sínar. Endar gleðskap
urinn með gráti og kveinstöfum.
Leikstjóri Gene Saks.
★ ★ ★ Makalaus sambúð:
Samtölin í handriti Neil Sim
ons eru snilldarvel gerð og
hver setning fær aukinn
styrk í meðförum Lemmona
og Matthaus. Gerð upp úr
leikriti og fremur ómerkileg
sem kvikmynd (nema fyrir
leikinn), en er jafnframt
bráðfjmdin afþreying.
★ ★ ★ Kvikmyndir gerðar
eftir leikritum Neil Simons
eru alltaf trygging fjrrir
nokkrum notalegum brönd-
urum. í þessari mynd er hann
jafnvel óvenju gamansamur
og ætti engum að leiðast
þessi forkostulega sambúð, er
myndin lýsir.
★ ★ ★ Meinfyndið leikrit
Simons um hjónabandserjur
og sambýlisþjark, kemst mjög
vel til skila, þökk sé stórko3t
legum samleik þeirra Lemm-
ons og Matthau og handriti
höfundar. í einu orði «agt —
bráðskemmtileg.
Tónabíó
Svartklædda
brúðurin
Myndin segír frá konu nokkurri
sem varð fyrir því ólánl, að eíjg-
Inmaður hennar var skotinn, er
þau gengu niður kirkjutröppum
ar eftir hjónavígsluna. Þann dag
hættir hún sjálf að vera til, eins
og hún segir á einum stað og ein
asta markmið lífs hennar er að
hafa upp á morðingjum eígin-
mannsins og koma þeim fyrir
kattamef. Lýsir myndin hvemig
svartklædda brúðurin birtist
skyndilega í lífi mannanna fimm
sem þátt áttu í ódæðinu, rifjar
upp fyrir þeim löngu gleymt atvik
og gerir að því búnu út af víð
þá — einn af öðrum. í aðaihtut-
verkum em Jeanne Moreau og
Jean Claude Brialy.
Leikstjóri Francois Tmffaut.
★ ★ Svartklædda Brúður-
in: Truffaut er mikill aðdá-
andi Hitchcock, en enginn
skyldi taka sér annan of ræki
lega til fyrirmyndar. Ytri stíl
einkenni eru Hitchcocks, en
innri spennu vantar. Fórnar-
lömbunum er iðulega betur
lýst en brúðinni og mun
sjálfsagt vefjast fyrir mörg-
um að taka afstöðu til per-
sóna.
★ ★ Truffaut fetar þarna í
fótspor meLstara síns Alfreds
Hitchcocks. Truffaut er bezt
ur er hann tekur húmaníska
afstöðu til viðfangsefnis síns.
Svartklædda brúðurin fellur
ekki undir þá skiigreiningu,
en ber kunnáttu og vand-
virkni Truffauts glöggt vitni.
Stjörnubíó
Funny Girl
„Funny Girl'* fjallar um hluta
ævi gamanleikkonunn.ar fraagu,
Fanny Brice. Allt frá því húa
tróð í fyrsta einn upp, í lítil-
fjörlegu leikhúsi í fátækrahverf-
inu, sem hún bjó í og þar til
hún er orðin aðalstjarna Zieg-
field dansflokksins, en lengra var
tæpast hægt að ná á þeim ár-
um. Inn í myndina fléttast svo
misheppnað hjónaband hennar og
fiárhættuspilarans Nick Amstein.
Asamt Barbra Streisand letka
þeir Omar Sharif og Walter Píde
gon. Leikstjóri er William Wyler.
★ ★
Söngvamyndir falla iðulega
á lævísu bragði, væmni. —
Leikstj óranum, William Wyl
er, tekst þó furðu vel að forð
ast hana og Barhra Strei-
sand hjálpar mikið til með
skemmtilegu látbragði og á-
gætum leik. Mörg hópatrið-
in á leiksviðínu eru frábær-
lega sviðsett og kvikmynda-
takan stundum tilþrifamikil.
★ ★ ★
Hór er á ferðinni danisa- og
söngvamynd, eins og þær
gerast beztar frú draumaverk
smiðjunni Hollywood. Leik'
tjöld, og búningar eru meist
aralega vel gerð og stúdíó
upptaka frábær. Þá eiru dana
og söngvaatriðin skemmtiiega
útfærð.