Morgunblaðið - 14.05.1971, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.05.1971, Blaðsíða 32
3W®rj0w«tlMM>i& nuGivsincnn ^^»22480 fltaigtifilifafeifr FÖSTUDAGUR 14. MAl 1971 800 tonn af olíu í slitlag á vegina í GÆR kom til Reykjavíkur norskt skip með 800 tonn af oláu, seim nota á í olíumöl til vega- gerðar. Hefur Innkaupastofnun ríkisins keypt þessa olíu inn frá Hollandi fy.rir fyrirtækið Olíu- möl h.f., sem er sameignarfélag sveitarfélaga á Suðurnesjum. OMumöl hf. lagði í fyrra oMumöl á vegi fyrir Vegagerðina og er nú keypt inn enn meira magn af oMu, sem síðan er blandað í möl og önnur efni. Olíunni er dælt upp í geyma á Klöpp. En blöndun í oMumölina fer fram í blöndunarstöðinni í Kópavogi. 12 ísl. lögregluþjónar — gæta dyra á EFTA fundinum NOKKUÐ miklar öryggisráð- stafanir eru viðhafðar í sam- bandi við ráðherrafund EFTA eða a.m.k. meiri en við eigum að venjast hér. Mbl. spurðist fyrir um það hjá Sigurjóni Sig- urðssyni, lögreglustjóra, hvern- ig löggæzlu væri háttað. Hann sagði að 12 lögregluþjónar væru við gæzluna, sem er í því fólg- in að gæta þess að ekki fari aðrir inn á fundarsvæðið en þeir sem hafa til þes3 skilríki. Lögreglustjóri sagði að gerðar væru mjög strangar kröfur uta að ekki færu aðrir inn á tvö svæði en þeir sem fengið hafa til þess tilskilin skilríki frá EFTA-mönnum sjálfum. Á fund- aravæðið í Loftleiðabygg- ingunni fara til dæmis ekki aðr- ir en þeir menn, sem sitja sjálfa fundina. Og eins er á hæðinni fyrir ofan, þar sem fuUtrúar hafa skrifstofur með telex og tal sambandi við sínar ríkisstjórnir. Þangað mega heldur ekki fara aðrir en þeir sem hafa skilríki til þess. Gæta íslenzkir lögreglu þjónar þess að eftir þessu sé farið og hafa verið valdir til þess menn, sem vanir eru slík- um störfum, eins og lögreglu- þjónarnir, sem starfað hafa hjá Sameinuðu þjóðunum. Dr. Gylfi Þ. Gíslason: EFTA-aðild styrkir stöðuna gagnvart EBE — ENGINN vafi er á þvi, með hliðsjón af því, sem nú er að gerast, að við íslendingar gerð- um rétt í því að gerast aðilar að EFTA í fyrra. Ef við hefðinn ekki gert það væri öll aðstaða okkar tU samninga við stækkað Efnahagsbandaiag Evrópu mun óhagstæðari en nú er. 1 samn- Fjölgar um eina kjör- deild í Reykjavík Fjölgunin í Breiðholtshverfi SAMKVÆMT upplýsingum manntalsskrifstofu Reykjavíkur- borgar verða kjörsvæðin í borg- inni við komandi alþingiskosning ar þau sömu og við borgarstjórn arkosningar á sl. vori. Kjördeild ir verða nú 62 að tölu, en voru 61 og er fjölgunin í Breiðholts- skólahverfinu, þar sem fjölgun Næg olía ÞUNGATAKMÖRKUNUM hefur verið létt af vegum, sem liggj a að Þórisvatni og hefur því verið hægt að flytja olíu og annað sem þurfti að fá þangað. Ollu samgönguerfiðleikarnir því ekki neinum verulegum vandræðum. íbúa hefur verið mikil á sl. mán uðum. Eru því þar þrjár kjör- deildir í stað tveggja áður. Fjöldi kjósenda á kjörskrá í hverju kjörhverfi fyrir sig er sem hér segir: Álftamýrarskól- inn 3454, Árbæjarskóli 2371, Austurbæj arskóli 6706, Breiða- gerðisskóli 5763, Breiðholts- skóli 2215, Langholtsskóli 7449, Laugarnesskóli 4507, Melaskóli 6179, Miðbæj arskóli 5708 og Sjómannaskólinn 6225. Þess utan að Elliheimilinu Grund 219 og Hrafnistu 273. í Breiðagerðisskólanum hefur orðið töluverð fjölgun, þar sem byggð hefur aukizt í Fossvogs- dalnum. ingiinum við EFTA fengum við aukið viðskiptafrelsi, sem við nú höfum bætta aðstöðu til þess að varðveita. Þannig fórust dr. Gylfa Þ. Gíslasyni, viðskiptamálaráðherra orð, þegar MbL áttl við hann samtal að Ioknum ráðherrafundi EFTA-landanna í gær. — Hvað vilduð þér segja um ráðherrafundinn almennt? — Það er skemimtilegt fyrir okkur íslendinga, að þessi sögu- legi fundur skuli vera haldinn hér. Það er raunar ekki síður skemmtilegt, að hægt skuli vera að halda slíkan fund hér í Reykjavík, en í hinum nýju húsa kynnum Loftleiða er aðstaðan öil eins og bezt verður á kosið og eru allir gestirnir hinir ánægðustu. Aðalatriði fundarins hefur auð vitað verið skýrsla Rippons, að- alsamningamanns Breta við Efnahagsbandalagið, um viðræð- urnar i Briissel, sem hann kom beint frá um hádegi í gær. Eftir þessar viðræður virðist enginn vafi lengur vera á því, að Bret- ar gangi í Efnahagsbandalagið. Mjög líklegt má einnig telja, að Danir og Norðmenn eigi þess lika kost. — Hvað gera þá hinar EFTA- þjóðirnar? —. Spurningin er á hvers kon- ar samningum þær munu eiga kost. Það væri íslenzkum við- Noble, viöskiptaráöherra Breta: a „Formálalaus og ein- hliða útfærsla í 50 mílur - gæti þýtt þorskastríð FRÉTTAMAÐUR Morgun- blaðsins ræddi í gær við Michael Noble, viðskiptaráð- herra Bretlands, og spurði m.a. hver yrðu viðbrögð hrezku stjórnarinnar ef ís- Iand færði landhelgi sína út í 50 mílur. — Ef það gerðist formálalaust og einhliða, yrðum við litið hrifn ir af því. Tólf mílna landhelgin ykkar hefur gefið góða raun, en að færa hana út i fimmtíu míl- ur, er að gapa yfir oí miklu. Equador færði sína fiskveiðilög- sögu út í 100 mílur án þess að tala við nokkurn mann, og það hefur ekki mælzt vel fyrir. Það er erfitt að taka það alvarlega. Ég held þó að við höfum íull- an skilning á því hversu mikil- vægar fiskveiðar eru afkomu is- lenzku þjóðarinnar, og við yrð- um reiðubúnir til viðræðna um þá hagsmuni. — En ef ísland myndi færa út fiskveiðilögsögu einhliða, mætti þá búast við nýju þorska- striði? — Ef það gerðist, eins og ég nefndi, einhhða og formálaiaust, er svarið já. skiptahagsmunum mjög óhag- stætt, ef Bretar, Danir og Norð- menn gengju í Efnahagsbanda- lagið, og við næðum engum samn ingum við það. Utf 1 utningsmögu leikar okkar skertust þá veru- lega, og við fengjum ekki jafn- hátt verð fyrir afurðir okkar. Hins vegar létu ráðherrar allra EFTA-landanna á fundinum i gær í ljós eindreginn vilja til þess, að varðveita það viðskipta- frelsi, sem náðst hefur og láta ekki stækkun Efnahagsbanda- lagsins verða til þess, að nýjar viðskiptahömlur komist á í Vest- ur-Evrópu. — Hverjar eru helztu ástæður hinna breyttu viðhorfa að yðar dómi? — Hinn aukni samningsvilji EBE gagnvart Bretum á sér efalaust tvær orsakir. Annars vegar er um að ræða stjórnmála sjónarmið, en hins vegar skiln- ing á því, að viðskiptafrelsi þurfi enn að aukast í V-Evrópu. Þetta sýnist geta bent til þess, að EBE muni taka vinsamlega óskum þeirra EFTA-rikja, sem ekki óska fullrar aðildar um Framhald á bls. 21 ■ Þessi mynd var tekin af fulltrú I um Islands á ráðherrafnndi EFTA í gær. Frá v.: Valgeir Ársælsson, fnlltrúi í viðskipta I ráðimeytinu, Einar Benedikts- 1 son, sendifulltrúi Islands í Genf, Gylfi Þ. Gíslason, við- skiptaráðherra og Þórhallnr 1 Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri. Togarastrandið: Reynt í dag að ná togar- anum á flot ísafirði, 13. maí. BREZKI togarinn Rosa Intretid hélt héðan í morgun. Það virð- ist hafa tekizt að eyða olíunni, sem hann missti niður hér í höfnina. En sett var trygging fyrir því tjóni, sem hún kynni að valda, eins og fyrr er sagt. í dag var farið með seinni tankana tvo að strandaða brezka togaranum og er ætlunin að festa þá við hann í dag og reyna að draga hann á flot kl. 10 í fyrramálið. Búið er að festa á hann fyrri tankana tvo. — Fréttaritari. Sjómannadagur í Nauthólsvík Siglingaklúbburinn þátttakandi SIGLINGAKLÚBBURINN Siglu nes mun aðstoða Sjómannadags- ráð við framkvæmd hátíðahald- anna á Sjómanmadaginn, 6. júnlí nk., en að þessu sinni fara hátíðahöld dagsins fram í Naut- hólsvík. Fara þar fram kappróðr ar, stakkasund, björgunarsund, reiptog, sýning á björgun með stól, lúðrablástur, ræðuhöld, sýn ing á siglimgu seglbáta og ýmis- legt fleira. Tekur sigMngaklúbburimm virk am þátt í ýmisum þessara atriða, en auk þess anmast hann veit- imgasölu við víkina og væntan- lega eimmig bátaleigu fyrir al- menming að dagslkráratriðum loknum. Fær siglingaklúbburimm hluta af ágóða dagsins og mun hanm renma í ferðasjóð klúbbs- inis, sem fer til Skotlands síðar í sumnar. Umsjónarmaður klúbbs ins er Guðmumdur Hallvarðs- son, en hann er jafnframt fram- kvæmdastjóri Sjómamradagsráðs. Önmur verkefni, sem klúbbur- imn tekur sér fyrdr hendur á sumrimu eru lenging á bátaskýll klúbbsins, endurbætur á bryggj- unmi og smyrting umhverfisinSt Þá verður lögð áherzla á að kanna unglimgum siglingar S smænri bátum, siglimgareglur, utmihirðu bátanma og öryggisráð- stafamir við siglimgu og róðra- æfingar. Inmiritum í klúbbinm er þegar hafim inmi í Fossvogi & þeim tímum, sem klúbburinn er opimn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.